Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1892, Side 77
75
Af töflu þessari sjest, að innlögin hafa jafnt og þjett aukizt í öllum sjóðunum til
samans árin 1872—1876, 1878—1884 og 1887—1891. það eru að eins 3 ár: 1877, 1885
og; 1886 sem innlög!unum hefur farið litið eitt aptur, 0? þó eigi fyrsta árið af þessum
þremur neinu sem nemur, en hin 2 árin stafar Iækkunin á innlögunum aðallega frá ein-
um sjóði (sparisjóðnum á Isafirði) sem bæði þau 2 ár og næsta ár á eptir (1877) hefur
verið talsverður apturkippur i. Mestur er vöxtur í innlögunum árin 1889 og 1890 en
þau ár var góðæri til lands og sjáfar svo að segja um allt land, einkum þó á Suðurlandi,
og fjársala til útlanda meiri en nokkru sinni áður.
það væri nógu fróðlegt að geta nákvæmlega sjeð, hve miklir vextir þeir eru allt í
allt, sem sparisjóðirnir til samans hafa gefið samlagsmönnnm sínum þessi 20 ár, en því
miður hafa reikningságrip þau, sem skýrslur þessar eru samdar eptir, ekki gefið nægar
upplý8i'ngar í þessu efni, eins og skýrslurnar bera vott um. Samt má mega fullyrða, ept-
ir þeim npplýsingum sem fyrir hendi eru og skýrslurnar bera með sjer að vextir þessir
sjeu að öllu saman lögðu eigi minni en c. 210,000 krónur, eður hjer um bil 3 knínur á
hvert einasta mannsbarn á öllu landinu. þetta er Ijóst og gott dæmi upp á gagn það,
sem sparisjóðirnir eru þegar búnir að vinna þjóðinni.
Um varasjóSi sparisjóðanna, eign þeirra i útlánum (o: allskonar skuldabrjefum) og
peningaforða má fá upplýsingar af eptirfylgjandi yfirliti, en samkvæmt því áttu allir sjóð-
irnir til samans i lok hvers einstaks árs: í varasjóði I ýmiskonar útlánum í peningum
Arið 1872 634 13180 1064
— 1873 1798 31160 • 2175
— 1874 3027 65340 5535
— 1875 6350 131451 1001
— 1876 10052 169411 4780
— 1877 11254 166018 6489
— 1878 13790 181425 7581
— 1879 15295 207199 14280
— 1880 16626 242484 14523
— 1881 19817 319172 16734
— 1882 21409 356881 21518
— 1883 24547 419932 24213
— 1884 29268 453080 23762
— 1885 33115 456942 13440
— 1886 37926 443183 20486
1887 8489 106738 2439
— 1888 9743 106233 5715
— 1889 9166 133009 12589
— 1890 11082 208720 15024
— 1891 13077 261297 10040
Við yfirlit þetta er það að athuga, að lækkunin á töluliðunum í því eptir árið
1886 stafaraf því, að sparisjóðsdeild landsbankans er eigi talin með, þvf eins og áður er
tekið fram eru innlögin þar eigi ávöxtuð sjerstaklega út af fyrir sig, heldur í sameiningu
við annað starfsfje bankans.
fíaði maður sparisjóðunum frá upphafi niður eptir ömtum, verður hlutfallið þannig: