Fréttablaðið - 25.11.2016, Side 12
SKIPULAGSMÁL „Þetta er skipulags-
klúður og bærinn á bara að laga
þetta,“ segir Kristján Ólafsson, vél-
fræðingur og íbúi við Frjóakur í
Garðabæ, sem árangurlaust hefur
reynt að fá bæinn til að lagfæra
graseyjar í Frjóakri.
Að sögn Kristjáns hefta gras-
eyjarnar ekki aðeins aðkomu að
stæðum á lóðum húsanna heldur
fækki þær líka stæðum sem gætu
verið í götunni.
„Í flestum þessum húsum er tveir
bílar og jafnvel þrír og stundum
koma gestir,“ segir hann. Og þá er
ekki allur vandinn upptalinn. „Lög-
reglan hefur verið að koma á nótt-
unni í hverfið til þess að sekta þá
sem lagt hafa bílum með kannski
eitt hjól uppi á gangstétt – þetta er
fáránlegt.“
Bæjaryfirvöld benda á að graseyj-
arnar séu í samræmi við deiliskipu-
lag í Akrahverfi. Kristján segir ekki
um það deilt. Vandamálið sé hins
vegar skipulagið sjálft. Eyjarnar
séu rangt staðsettar um allt Akra-
hverfi, þær séu fyrir bílastæðum og
jafnvel fyrir inngangi húsa.
„Menn geta ekki notað stæðin og
íbúarnir hafa sjálfir verið að skera
þetta burt en það verður ljótt þegar
hver og einn er að gera þetta fyrir
sig. Þess vegna vildum við að bær-
inn gerði þetta svo þetta væri heil-
steypt,“ segir Kristján.
Nú síðast sendi Kristján bænum
bréf þar sem hann sagði bæjarverk-
fræðinginn hafa lagt til að íbúar
mættu sjálfir leggja grassteina í
staðinn fyrir gras í eyjunum og að
þeir gætu síðan ekið yfir eyjarnar.
„Litlir bílar komast ekki upp á
þetta, þeir bara rekast í og skemm-
ast, þeir eru svo lágir,“ segir Krist-
ján.
Bæjarráð Garðabæjar tók bréf
Kristjáns fyrir á þriðjudaginn og
ítrekaði þá frá því áður að frá-
gangur götunnar sé í samræmi við
deiliskipulag en að það taki jákvætt
í einstaka breytingar á vegum íbúa í
samráði við tækni- og umhverfissvið
bæjarins. Að auki var bæjarstjór-
anum falið að ræða við Kristján.
gar@frettabladid.is
Thera°Pearl margnota
hita- og kælipúðarnir
eru hannaðir af læknum.
Thera°Pearl eru með ól
sem auðveldar meðferð
meðan á vinnu eða leik
stendur.
Jólagjöfin
í ár
Með grænmetið á höfðinu
Í borginni Port-au-Prince á Haítí mátti sjá þessa konu flytja grænmeti á höfði sér um götur. Þar í landi voru kosningar haldnar um síðustu helgi en
ekki er búist við úrslitum fyrr en á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Íbúar geta vart lagt í öll
stæðin fyrir graseyjum
Bæjaryfirvöld í Garðabæ segja íbúa í Akrahverfi sjálfa geta kostað breytingar á
graseyjum sem íbúarnir telja hindra aðgang að bílastæðum. Eyjarnar séu sam-
kvæmt skipulagi. Íbúi segir skipulagið vera klúður sem bærinn eigi að lagfæra.
Kristján Ólafsson segir graseyjar í Frjóakri og reyndar í Akrahverfinu öllu vera
skipulagsklúður sem fækki bílastæðum og hindri aðgang að stæðum við húsin.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Lögreglan hefur
verið að koma á
nóttunni í hverfið til þess að
sekta þá sem lagt hafa bílum
með kannski eitt hjól uppi á
gangstétt – þetta er fáránlegt.
Kristján Ólafsson, íbúi við Frjóakur í
Garðabæ
SVÍÞJÓÐ Sænsk stjórnvöld hafa
orðið ásátt um lagabreytingu sem
veitir fylgdarlausum flóttabörnum,
sem átt hafa á hættu að vera vísað
úr landi þegar þau verða 18 ára, rétt
til dvalar í Svíþjóð stundi þau nám
í framhaldsskóla. Þau fá þar með
tímabundið dvalarleyfi í fjögur ár.
Um er að ræða hóp flóttabarna
sem ekki eru talin þurfa á vernd
að halda en eiga ekki öruggt skjól
í heimalandi sínu. Hingað til hafa
þau oftast fengið dvalarleyfi til
frambúðar en í kjölfar ákvörðunar
sænsku útlendingastofnunarinnar
í sumar fá fylgdarlausu flóttabörnin
tímabundið dvalarleyfi þar til þau
verða 18 ára. Sænska sjónvarpið
greindi frá. - ibs
Nám veitir rétt
til dvalar
GÍRAÐU BÍLINN
FYRIR VETURINN
Sími: 535 9000www.bilanaust.is
SJÖ VERSLANIR UM LAND ALLT
VIÐSKIPTI Velta í fataverslun dróst
saman í október síðastliðnum
miðað við október í fyrra þótt verð
á fötum hafi verið 5,9 prósentum
lægra en fyrir ári. Ef borin er saman
velta í fataverslun síðustu þrjá mán-
uði við sama tímabil í fyrra sést að
nánast engin breyting var á veltunni
milli ára. Bent er á að um síðustu
áramót hafi tollar á fatnaði verið
felldir niður.
Greiðslukortavelta Íslendinga
erlendis í október síðastliðnum var
19 prósentum meiri í október síð-
astliðnum en í sama mánuði í fyrra.
Það þykir gefa vísbendingu um að
innkaup landsmanna erlendis hafi
aukist og að fatakaup séu líklega þar
innifalin. - ibs
Minni velta í
fataverslun
2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
6
C
-E
5
F
C
1
B
6
C
-E
4
C
0
1
B
6
C
-E
3
8
4
1
B
6
C
-E
2
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K