Fréttablaðið - 25.11.2016, Qupperneq 30
Herdís kenndi með hljóðlestraraðferð í fjörutíu og fimm ár. Gleðin er mikilvæg, segir hún. Fréttablaðið/Eyþór
Herdís, Herdís! Það kemur saga út úr mér!“ Þetta hrópaði eitt sinn sex ára drengur í tíma hjá Herdísi Egilsdóttur,
kennara í lestrarkennslu í Ísaks
skóla. „Þetta er svo mögnuð stund,
þegar þessi heimur lýkst upp fyrir
börnum. Þau verða frá sér numin
af gleði. Gleðinni megum við ekki
gleyma,“ segir Herdís sem hefur gefið
út kennsluhandbók í lestri. Bókina
kallar hún einmitt: Það kemur saga út
úr mér! Handbók sem er ætluð þeim
sem vilja stuðla að læsi barna. Herdís
tileinkar bókina Ísaki Jónssyni, stofn
anda Ísaksskóla. Í Ísaksskóla kenndi
Herdís mörg hundruð börnum að lesa
með hljóðlestraraðferðinni í fjörutíu
og fimm ár með gleðina að leiðar
ljósi. „Ég var átján ára gömul þegar ég
útskrifaðist úr Kennaraskólanum og
hóf störf við skólann. Ég lærði aðferð
ina hjá Ísaki sem var brautryðjandi í
kennslu yngri barna.“
Í hljóðlestri eru orð ekki slitin í
sundur, það eru tengsl milli hljóða
sem verður lestur með æfingu. Hljóð
lestraraðferðin byggir á því að börn
læri hljóðin og þekki táknin þeirra.
„Ég hef mikla trú á hljóðlestrar
aðferðinni því með henni renna börn
svo auðveldlega inn í lesturinn,“ segir
Herdís.
Hún segir lestrarvanda barna
mikla áskorun. „Það er vegna þess að
við eigum við ofurefli að etja, sem er
tæknin og innreið hennar í líf okkar,“
segir Herdís. „ Nú til dags veit ég að
það er erfiðara að gera lestur spenn
andi vegna keppinauta í afþreyingu
og tækni. En það er nú samt hægt. Því
ekkert kemur í stað þess að lesa. Við
megum samt ekki fyllast vanmætti,
verðum að halda áfram starfi okkar
hægt og rólega. Án niðurrifs. Fullorðið
fólk verður að vera tilbúið þegar börn
sýna lestri áhuga. Grípa það eins og
brothættan dýrgrip og fara vel með.
Kennarar sá fræjum og svo fylgj
umst við með vextinum. Sum börn
þurfa meiri tíma en önnur, þetta
hefur allt sinn gang. Við bætum við
næringu, hlúum að. Gerum það með
jákvæðni og uppörvun en ekki gagn
rýni,“ segir Herdís. „Það að kunna að
lesa er dýrmætt. Leikur og gleði nær til
ungra barna og þau vilja læra.“
Ekki neyða börn
Herdís segir mikilvægt að leyfa
börnum að skynja getu sína þegar
þau hafa lært að lesa. „Segjum sem
svo að barnið þitt sé búið að læra alla
stafina. Það vill lesa stóra fullorðins
bók. Þá megum við ekki segja nei,
þetta er ekki fyrir þig. Þetta er fyrir
fullorðna. Við eigum bara að hvetja
þau til að prófa að lesa en segja þeim
að ef þeim finnist þetta ekki spenn
andi sé til fullt af öðrum skemmti
legum bókum. Heimur bókmennta
sé stór og spennandi. Þau geti lesið
allar bækur sem til eru, af því að staf
irnir eru ekki fleiri í fullorðinsbók
unum heldur koma þeir bara oftar
fyrir. Börnum á að finnast þau vera
með undraverða hæfileika. Því það
er rétt. Við eigum frekar að segja við
börn að það sé alls ekki víst að allar
bækur séu skemmtilegar fyrir þau.
Séu þau að lesa bók sem þeim finnst
ekki spennandi eigi þau bara að fara
og fá sér nýja bók. Ekki neyða börn til
að klára leiðinlegar bækur. Það er vís
leið til þess að fá þau til að hætta að
finnast skemmtilegt og undravert að
kunna að lesa. Forvitnin er mikilvæg
þessi fyrstu ár í lestri,“ segir Herdís.
„Ekki myndum við láta kúga okkur til
að klára bækur. Af hverju ætti það að
vera öðruvísi fyrir börn?“
Söngur og leikur
Með bókinni fylgja stafaspjöld sem
Herdís hengdi upp á vegg um leið og
stafurinn hafði verið kenndur. Hún
notaði gælunöfn yfir stafina. S var
slöngustafur, Ó var óhappastafur, D
var dropastafur til að mynda. Þá rifj
ast upp sögur og hljóð tengd stafn
um. Herdís lét börnin teikna, syngja,
leika sögur um stafi, dansa, klippa og
líma og föndra. „Það fer eftir þroska
og áhuga barnanna. Ef þau vilja hlusta
þá er gullið tækifæri. Ef kennara tekst
að fá börn í alvörunni til að hlusta, þá
gengur vel. Bæði læs og ólæs börn hafa
gaman af sögum og leikjum í kringum
stafi og hljóð. Oft var ég með fluglæs
börn sem vildu alls ekki missa af leikj
unum. Mér finnst leiðinlegt þegar ég
heyri fullorðið fólk eða kennara segja
við börn: Þú átt að vera búinn að læra
þetta! Sumir staglast á þessu þegar
þeim finnst börnum ganga hægt og
illa að læra að lesa. Það má alls ekki
segja þetta við börn. Það brýtur þau
niður og það hefur engan tilgang.“
Ekki ólæs þjóð
Herdís vonar að Íslendingar verði
aldrei meðal ólæsra þjóða. „Jú, þetta
er ójafn bardagi. En ég held að við
getum unnið hann og legg mitt af
mörkum og ég trúi að við þurfum að
koma til móts við barnið fyrr. Strax
og barnið vill líta á bók. Allt niður í
tveggja ára,“ segir Herdís.
Hún gefur út bókina orðin átta
tíu og tveggja ára gömul. Hún hlær
og segir marga forviða yfir því hvað
henni gangi til á gamals aldri að
stússast svona. „Það kemur engum
við hvað ég er gömul og síst af öllum
sjálfri mér, ég bý enn að gleðinni og
trúi á hljóðlestraraðferðina. Ég vona
að bókin mín komi til góða í kennslu
og ég vona að við verðum ekki ólæs
þjóð,“ segir Herdís.
Við getum unnið
þennan ójafna bardaga
„Gleði og leikur er lykill að læsi,“ segir Herdís Egilsdóttir kennari. Með það að
leiðarljósi sé hægt að vinna ójafnan bardaga við tækni og afþreyingu. Hún
vonar að íslensk þjóð verði ekki ólæs og hefur gefið út kennsluhandbók í lestri
sem byggir á hljóðlestraraðferð sem hún kenndi í fjörutíu og fimm ár.
Ekki neyða
börn til að
klára leiðinlegar bækur. Það
er vís leið til þess að fá þau til
að hætta að finnast skemmti-
legt og undravert að kunna
að lesa.
Herdís Egilsdóttir
Kennsluhandbók Herdísar, það kemur saga út úr mér! þarna má líka sjá stafablöðin
sem hægt er að hengja upp á vegg. Fréttablaðið/Eyþór
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r28 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð
2
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
6
C
-D
C
1
C
1
B
6
C
-D
A
E
0
1
B
6
C
-D
9
A
4
1
B
6
C
-D
8
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K