Fréttablaðið - 25.11.2016, Page 38
Nýsamþykkt lög án mótatkvæða á Alþingi um breytingar á almannatrygg
ingum, að leggja af grunnlífeyri og
láta lífeyris sjóðina taka yfir skyldur
almannatrygginga, er ekkert annað
en eignaupptaka ríkisins á lög
þvinguðum skyldusparnaði þeirra
einstaklinga, sem ættu að njóta
óskerts grunnlífeyris og lífeyris
sjóðsgreiðslna til viðbótar, til að
geta lifað efri ár með sæmd.
Aðför þingsins að eignarrétti
Aðför að eignarrétti einstaklinga,
hlýtur að kalla á dómsmál einstakl
ings, sem brotið er á, gegn þessum
lögum, sem verkalýðsforystan og
stjórnendur lífeyrissjóða ættu með
réttu að fjármagna, en ekki standa
gegn. Stjórnunarkostnaður um
30 lífeyrissjóða upp á að minnsta
kosti 10 milljarða á ári, ætti að geta
borið þann viðbótarkostnað við
lögsókn, um svo sjálfsagðan rétt
einstaklinga, sem hafa greitt eftir
lagaboði í lífeyrissjóði, sem ætti að
jafngilda lögmætri inneign en ekki
lögum um eignaupptöku.
Lífeyrisgreiðslur til eldri borgara,
sem eiga að njóta almannatrygg
inga, eru skertar krónu á móti
krónu á móti greiðslum frá lífeyr
issjóðum, þannig að þessi eignar
réttur einstaklinga á eigin lífeyri frá
lífeyrissjóðum er hirtur af ríkisjóði.
Að auki lætur ríkissjóður lífeyris
sjóðina vera með skatt ríkissjóðs
til ávöxtunar eða taps frá réttmætri
inngreiðslu til einstaklings. Auðvit
að hefði hver einstaklingur átt að
fá til sín hlut atvinnurekanda, sem
hann hefði við þá greiðslu, átt að
viðbættri eigin greiðslu að greiða
skatt af til ríkisins, en viðkomandi
lífeyrissjóður átt að fá mismuninn,
sem viðkomandi lífeyrissjóður
greiddi síðan út til hans, sem eldri
borgara, skattlaust og án nokkurrar
skerðingar.
Þetta fyrirkomulag um að líf
eyrissjóðir geymi skattfé ríkis
sjóðs þekkist hvergi annars staðar
í heiminum og hefur komið fram
að ríkisjóður hefur tapað háum
fjárhæðum á þessu fyrirkomulagi.
Eldri borgarar sem fá lífeyrissjóðs
greiðslur erlendis frá, sem þeir
hafa greitt skatt af, verða skertir
um þessar greiðslur eftir nýju lög
unum um 45% umfram kr. 25.000,
á mánuði. Hugsið ykkur, hvílíkt
óréttlæti, samþykkt samhljóða
með lögum.
Greiða kostnaðinn sjálfir
Sagt er að lagabreytingin muni
kosta ríkissjóð 11 milljarða. Hið
rétta er, að eldri borgarar með
hærri lífeyrissjóðsgreiðslur, greiða
þennan kostnað sjálfir með afnámi
grunnlífeyris almannatrygginga
og lækkun frítekjumarks úr kr.
109.000, á mánuði í kr. 25.000, á
mánuði. Þessi lækkun þýðir að
þeir eldri borgarar sem unnu sér til
bjargar fyrir um 100 þús. á mánuði
og greiddu skatt af þeim launum fá
45% skerðingu á 75 þús. krónurnar
og halda því eftir af þeim kr. 13.500.
Hver lætur bjóða sér upp á að
vinna fyrir þennan afrakstur af
vinnu? Hver er raunverulegur til
gangur þessara laga, þar sem stend
ur skrifað í 1. grein þeirra: „… skal
stuðlað að því, að þeir sem lögin
taka til, geti framfleytt sér og lifað
sjálfstæðu lífi“? Er tilgangurinn að
loka þennan hluta eldri borgara,
um 5 til 6 þúsund einstaklinga,
inni án lífsbjargar, til að deyja?
Þessari spurningu verða nýkjörnir
alþingismenn að svara og verðandi
ríkisstjórn að takast á við.
Grunnlífeyrir almannatrygginga lagður af
Vítahringur veikinda
og vannæringar
Undanfarin tvö ár hafa velferðarráðuneytið, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins,
Sjúkratryggingar Íslands og Embætti
landlæknis unnið að kerfisbreyt
ingum á heilsugæslunni. Fyrirmynd
þessara breytinga er sænsk og í
samræmi við það sem Alþjóðaheil
brigðismálastofnunin (WHO) boðar.
Markmið breytinganna er að auka
aðgengi að heilsugæslunni, bæta
gæði og skapa fjölbreyttara starfs
umhverfi innan heilsugæslunnar
sem er ætlað að skili sér síðan í betri
mönnun.
Greiðslukerfið er sett þannig
upp að allir sitja við sama borð og
dreifing fjármuna er gegnsæ. Áður
hafa verið fjögur ólík greiðslukerfi
fyrir heilsugæslu á höfuðborgar
svæðinu. Greiðslurnar eru samsettar
úr nokkrum þáttum, en mestir fjár
munir eru ætlaðir í að sinna börn
um, öldruðum og fjölveikum. Sett
eru fram fjölmörg gæðamarkmið
sem heilsugæslustöðvum er ætlað
að ná og greitt er fyrir.
Til að auka aðgengi almennings
að heilsugæslu er ráðgert að tvær til
þrjár nýjar heilsugæslustöðvar verði
opnaðar á næsta ári. Heilsugæsla
höfuðborgarsvæðisins er jafnframt
að ljúka töluverðum skipulags
breytingum til þess að mæta þessum
nýju áskorunum. Hver heilsugæslu
stöð mun áfram sinna ákveðnum
svæðum, en skjólstæðingum verður
heimilt að færa sig á aðrar stöðvar
eða halda áfram hjá sama lækni
á sömu stöð þó þeir flytji í annað
hverfi. Hjá Sjúkratryggingum Íslands
(SÍ) verður miðlægur gagnagrunnur
sem heldur utan um skráningar ein
staklinga á heilsugæslustöðvar. Hver
og einn getur breytt skráningu sinni
á heilsugæslustöð rafrænt í gegnum
Réttindagátt á heimasíðu SÍ www.
sjukra.is. Einnig er hægt að breyta
skráningu með því að fara á viðkom
andi stöð. Fjármagni til stöðvanna
er síðan dreift í samræmi við skrán
ingu. Þannig flyst fjármögnunin með
skjólstæðingnum, sem byggir meðal
annars á aldri, kyni, sjúkdómsgrein
ingum og gæðaþáttum. Þetta er gert
til þess að skapa hvata fyrir bætt
aðgengi og betri þjónustu.
Þegar eru farnar að sjást breyting
ar varðandi bætt aðgengi á seinni
hluta þessa árs miðað við fyrra ár,
hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæð
isins vegna þessara kerfisbreytinga.
Auknir fjármunir hafa verið settir í
heilsugæsluna og er því fé vel varið
miðað við þann árangur sem er að
byrja að sjást. Það er okkar von að
heilsugæslan styrkist áfram og sam
hliða því verði áfram settir auknir
fjármunir í hana enda er það í sam
ræmi við það sem alþjóðastofnanir
mæla með. Heilsugæslan getur því
farið að standa undir nafni sem
fyrsti viðkomustaðurinn í kerfinu
og verið sá hornsteinn í heilbrigðis
þjónustu sem henni er ætlað að
vera.
Kerfisbreyting Heilsugæslunnar
Fyrir nokkru sá læknirinn minn að ég þyrfti að fara í einfalda aðgerð sem framkvæmd er í
Hjartagáttinni á Landspítalanum.
Þegar verið var að búa mig undir
aðgerðina uppgötvaðist að vantaði
blóð í kappann og nauðsynlegt
að bregðast við því, sem starfsfólk
Hjartagáttar og gerði, en sem kallaði
á flóknara ferli. Sjúklingurinn skyldi
magaspeglaður til þess að reyna
að komast fyrir um ástæður blóð
lekans og síðan blóði bætt á kerfið;
tók sú aðgerð um það bil sólarhring
allt með öllu. Svo var hin upphaf
lega aðgerð framkvæmd samkvæmt
áætlun og alls stóð heimsókn mín á
Hjartagáttina í tæpa tvo sólarhringa.
Komandi eftirlit mun leiða í ljós
hvort þessi saga fái ekki hamingju
samlegan endi.
Ef það veltur á starfsfólki Land
spítalans, þá er lítið að óttast. Þar
er að finna atvinnumann í hverju
rúmi, hvort sem litið er til starfsfólks
í býtibúri, sjúkraliða, hjúkrunarfræð
inga eða lækna. Um það bil tuttugu
til þrjátíu starfsmenn komu að mér
þá tvo sólarhringa sem ég lá inni og
hver einasti þeirra mætti mér af alúð
og metnaði til að gera vel.
Ég fékk þá bestu þjónustu sem
hugsast gat, en starfsfólkið var að
niðurlotum komið vegna álags. Það
var á hlaupum, að flýta sér frá einum
sjúklingi til annars, frá einu verkefni
til hins næsta. Og reyndi hvað það
gat að láta ekki á asanum bera. Þetta
var álag sem hefði ekki talist boðlegt
á neinum vinnustað, hvað þá þar
sem þiggjendur þjónustu eru háðir
því að starfsfólki líði vel og finnist
það hafa tíma og aðbúnað til að
sinna starfinu eins og sæmir metnaði
þess og fagmennsku.
Blygðunarlaus árás
Það þarf greinilega að minna á
hve mikilvæga þjónustu starfsfólk
Landspítalans innir af hendi. Þarna
komum við, sjúklingar, með eymsli
okkar og áhyggjur – svo ekki sé talað
um ótta við að vera í lífshættu! – og
starfsfólkið mætir okkur af fag
mennsku, umhyggjusemi og lipurð.
Það gefur sér tíma til að hlusta, það
mætir hverjum sjúklingi á hans eigin
forsendum, því er umhugað um að
skapa öryggi og frið í sál sjúklingsins
og búa hann þannig undir að takast
á við að ná heilsu.
Starfsumhverfi fagfólks Land
spítalans hefur nánast verið rústað
með stöðugum niðurskurði í fjár
veitingum hins opinbera – í fjár
hagsáætlun ríkisins eru framlög til
heilbrigðismála enn skorin niður,
sem er ekkert nema blygðunarlaus
árás á þetta frábæra fagfólk!
Er til of mikils mælst að stjórn
málamenn sjái til þess að heilbrigðis
kerfið fái það fjármagn sem þarf til
að það geti staðið undir væntingum
starfsmanna og þörfum sjúklinga?
Hvað þarf til að stjórnmálamenn
sýni af sér sömu fagmennsku og
starfsfólkið okkar í heilbrigðiskerf
inu?
Áminning til stjórnmála-
manna – fjármagn til
heilbrigðismála
Hver er raunverulegur til-
gangur þessara laga, þar sem
stendur skrifað í 1. grein
þeirra: „… skal stuðlað að því,
að þeir sem lögin taka til, geti
framfleytt sér og lifað sjálf-
stæðu lífi“? Er tilgangurinn
að loka þennan hluta eldri
borgara, um 5 til 6 þúsund
einstaklinga, inni án lífs-
bjargar, til að deyja? Þessari
spurningu verða nýkjörnir
alþingismenn að svara og
verðandi ríkisstjórn að
takast á við.
Halldór
Gunnarsson
formaður
kjararáðs EB í
Rangárvallasýslu
Jakob S. Jónsson
leiðsögumaður
Nýlegar rannsóknarniðurstöður sýna að 66% aldraðra sem dvelja á Landspítala eru
annaðhvort vannærðir eða í hættu
á vannæringu. Því miður kemur
þetta ekki á óvart þar sem sá hópur
sem dvelur á Landspítala á jafnan
við alvarleg veikindi að stríða. Þessi
hópur aldraðra er oft með tvo eða
fleiri langvinna sjúkdóma og hefur
lengi átt við vaxandi slappleika og
orkuleysi að stríða. Þegar vannær
ing bætist við eykst hætta á ýmsum
sjúkdómum og dauðsfalli.
Sá hópur sem dvelur á hjúkrunar
heimilum er einnig í mikilli hættu
á vannæringu en góðu heilli hafa
íslensk hjúkrunarheimili staðið sig
vel í að koma í veg fyrir þyngdar
tap íbúanna en um 5% þeirra eru að
tapa þyngd sem er langt innan við
þau gæðamarkmið sem sett eru fyrir
íslensk hjúkrunarheimili og er betri
árangur en þekkist víða erlendis.
Vannæring vegna lystarleysis
Erlendar rannsóknir sýna að á bil
inu 3060% aldraðra sem leggjast á
spítala eru vannærðir eða í hættu á
vannæringu og rannsókn á Land
spítala frá árinu 2005 sýndi að
58,3% aldraðra sjúklinga voru van
nærðir. Flestir þessara einstaklinga
komu inn á Landspítala vannærðir
eða í hættu á vannæringu. Vannær
ingin stafar ekki af því að fólk eigi
ekki mat eða að matur sé ekki í boði
heldur er ástæðan fyrst og fremst
lystarleysi, orkuleysi og lítill áhugi
á mat sem hindrar fólk í því að
hafa til mat og borða. Þessi hópur
aldraðra býr við alvarlegan heilsu
vanda en þó ber að hafa í huga að
rannsóknir sýna að flestir þeir sem
eru komnir á efri ár búa við ágæta
færni og heilsu.
Aldraðir sem eru fjölveikir og búa
einir eða jafnvel með heilsuveilum
maka hafa oft ekki orku til að elda
og nærast þá á því sem er auðvelt að
hafa til. Oft er um að ræða brauð
meti og mjólkurmat sem ekki upp
fyllir þörf fyrir hitaeiningar eða orku
og inniheldur lítið af próteini. Þann
ig mataræði leiðir síðan til þess að
vöðvar fara að rýrna, fólki er kalt,
það er orkulaust og slappt sem síðar
leiðir til enn meira lystarleysis. Þá er
einstaklingurinn kominn inn i víta
hring veikinda og vannæringar.
Prótein- og orkurík fæða
En hvað er hægt að gera? Jú, byrjum
á einhverju einföldu og viðráðan
legu. Hægt er að fá heimsendan mat
auk þess sem fjölbreyttur matur
fæst í verslunum sem aðeins þarf að
hita. Þá er einnig til fjölbreytt úrval
af drykkjum sem innihalda prótein.
Ráðleggingar mínar til þeirra sem
eru vannærðir, dvelja heima og geta
ekki fylgt almennum ráðleggingum
um hollt mataræði er að reyna að
borða kjöt eða fisk daglega, gjarnan
tilbúinn mat sem hægt er að hita eða
að fara í hádegismat í nálæga þjón
ustumiðstöð, ef heilsan leyfir. Þessu
til viðbótar er gott að eiga til pró
teindrykki sem henta bragðlaukum
hvers og eins.
Úrval tilbúinna próteindrykkja er
orðið mikið í venjulegum matvöru
verslunum og má þar nefna Hámark,
Hleðslu og skyrdrykki með viðbættu
próteini, auk fjölbreytts úrvals
drykkja sem fást í lyfjaverslunum.
Gott er að bæta svona drykk við
það sem borðað er á matmálstímum
eða 23 sinnum á dag, á morgnana
með morgunmatnum og síðan um
miðjan daginn eða á kvöldin. Auk
þessa er gott að eiga eitthvað sem
gefur hitaeiningar og orku sem auð
velt er að borða t.d. á kvöldin þegar
horft er á sjónvarp. Það getur jafn
vel verið niðurskorin lifrarpylsa eða
súkkulaði. Einfalt og fljótlegt, það er
það sem þarf ef maður er slappur og
veikur.
Við berum öll ábyrgð
Ekkert stöðvar framgang tímans og
við vitum að elli kerling vitjar okkar
allra. Hins vegar er vitað að lykillinn
að því að tefja eða fyrirbyggja þenn
an vítahring veikinda og vannæring
ar er að hreyfa sig, borða fjölbreyttan
mat og taka Dvítamín. Meiri fjöl
breytni í heimsendum mat og meiri
aðstoð við að matbúa og borða er
mikilvæg fyrir þá sem eru farnir að
heilsu. Afleiðingarnar af vannæringu
aldraðra eru að öll veikindi verða
alvarlegri, sár gróa illa, endurhæfing
er tilgangslítil og líkur á því að þurfa
að flytja á hjúkrunarheimili aukast
verulega. Ábyrgðin á að bregðast við
þessum vanda liggur ekki eingöngu
hjá heilbrigðisyfirvöldum heldur
einnig hjá hverjum og einum enda
afleiðingarnar alvarlegar bæði fyrir
einstaklinginn og samfélagið.
Ingibjörg
Hjaltadóttir
sérfræðingur í
hjúkrun aldraðra
á Flæðisviði
Landspítala
Ingveldur
Ingvarsdóttir
deildarstjóri hjá
Sjúkratryggingum
Íslands
Oddur Steinarsson
sérfræðingur í vel-
ferðarráðuneyti
Óskar Reykdalsson
svæðisstjóri og
fagstjóri lækninga
hjá Heilsugæslunni
í Árbæ
2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R36 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
6
D
-3
9
E
C
1
B
6
D
-3
8
B
0
1
B
6
D
-3
7
7
4
1
B
6
D
-3
6
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K