Fréttablaðið - 25.11.2016, Qupperneq 80
Þegar ég fór að
skoða líf og sögu
Þeirra sem eru á myndunum,
Þá ég áttaði mig fljótlega
á Því hversu mikið hann var
búinn að pæla í Þessu fólki.
L jósmyndir Jóns Kaldals frá þriðja áratug síðustu aldar og fram á áttunda áratuginn mynda einstakt höfundarverk í íslenskri ljósmyndasögu.
Ljósmyndun var iðngrein Jóns en
ekki síður listgrein sem birtist eink
um í einstökum portrettmyndum
hans sem margar hverjar urðu að
einkennismyndum myndefnanna.
Þar á meðal má nefna Jóhannes S.
Kjarval og Ástu Sigurðardóttur enda
náði Jón með sínum einstaka hætti
að fanga kjarna hverrar manneskju
í svarthvítri ljósmynd, í ljósi og
skugga.
Um þessar mundir standa yfir
sýningarnar Portrett Kaldals og
Kaldal í tíma og rúmi í Þjóðminja
safni Íslands en auk þess er nýút
komin bókin Kaldal, svart og hvítt. Í
bókinni er að finna einstaka saman
tekt á mörgum af bestu ljósmyndum
meistarans og fylgja æviágrip við
fangsefnanna með. Það var Óskar
Guðmundsson, sagnfræðingur og
blaðamaður, sem tók að sér að afla
upplýsinga um lífshlaup þessara
fjölmörgu einstaklinga og hann
segir að hann hafi nú verið fenginn
til verksins sökum reynslu sinnar af
því að segja frá fólki.
„Svo er ég náttúrulega eins og
aðrir Íslendingar mjög uppnuminn
og hrifinn af Kaldal. Þó að hann
hafi myndað þúsundir ef ekki tug
þúsundir Íslendinga þá eru sumar
þessarar mynda algjört listaverk.
Í þeim býr persónuleg natni og þá
sérstaklega í portrettunum sem
hann síðan sýndi. Þegar ég fór að
skoða líf og sögu þeirra sem eru á
myndunum, þá ég áttaði mig fljót
lega á því hversu mikið hann var
búinn að pæla í þessu fólki.
Kaldal var Húnvetningur að upp
runa en missti foreldra sína ungur
að árum og var því alinn upp í
Reykjavík að hluta til hjá Þorleifi
póstmeistara sem var föðurbróðir
hans en hann var faðir Jóns Leifs.
Jón var síðar einn af þeim sem
Kaldal myndaði og það má segja
að hann hafi umgengist listamenn
alveg frá frumbernsku. Þegar hann
er svo úti í Kaupmannahöfn við
nám þá er hann í þannig félagslegu
umhverfi að mörg af þessum við
fangsefnum urðu náin honum þar.
Kaupmannahöfn var á þessum tíma
höfuðborg Íslands og þangað lá leið
allra íslenskra heimsborgara.“
Það má segja að eftir að Jón Kal
dal snýr heim úr námi hafi hann
umgengist það sem kalla má list
aðal Reykjavíkur á þeim árum.
Óskar tekur undir það og segir að á
ljósmyndastofu Kaldals hafi menn
komið til þess að sitja og spjalla
um líf og list. „Það voru ótrúlegustu
menn sem áttu þarna vé og komu
þarna til þess að skiptast á skoð
unum og hittast. Kjarval, Laxness,
Thor Vilhjálmsson, menn af ýmsum
kynslóðum og Jón Pálsson, sá frægi
maður, sem greip í píanóið sem stóð
á ljósmyndastofunni. Jón Kaldal var
líka áhugamaður um tónlist og þetta
var það menningarlega andrúmsloft
sem hann lifði og hrærðist í. Síðan
virðist hann líka hafa notað tæki
færið eins og allar þessar myndir af
Kjarval sýna. Hann tekur óvæntar
myndir af honum en fyrir vikið þá
eru þær allar einstæðar.“
En hvernig skyldi Óskari hafa
gengið að róta upp í fortíðinni og
finna bakgrunn og sögu allra þessara
andlita? „Það gekk misvel. Þetta var
ákaflega spennandi og heillandi leit í
fortíðinni. Leit að fólki sem er horfið
og það getur verið allt annað en ein
falt að hafa upp á fólki og sögunum
af því eftir svona langa tíð. Oft er það
þannig að maður finnur eitthvað í
minningargreinum í blöðunum og
vefur á borð við tímaritavefinn auð
veldar vissulega rannsóknarvinnu
af þessum toga. Það var fullt af fólki
sem ég fann í gegnum það en langt
því frá allir. En svo eru svona nokkrir
hópar fólks sem var aðeins erfiðara
að nálgast. Það var annaðhvort fólk
sem ekki höfðu verið skrifaðar minn
ingargreinar um eða þá að fólk hafði
skipt um nafn síðar á lífsleiðinni.
Fólk sem var annað í skráningunni
hjá Kaldal en það var svo seinna meir
í lífinu. Þetta var þónokkur stokkur
fólks sem þannig var varið um.“
Ef litið er á bókina er þar aðeins
ein kona sem lítið virðist hafa
fundist um og Óskar segir að það
hafi einmitt verið dæmi um nafn
breytingu. „Þetta er eina konan sem
ég ekki fann. En ég veit núna hver
hún er. Þessi kona giftist Richard
Patterson frá Bandaríkjunum og
tók upp eftirnafn hans. Hún, eins
og nokkuð margar konur sem Kal
dal myndaði, varð svo módel síðar í
útlöndum. Það átti við um Stefaníu
og nokkrar fleiri. Það segir okkur nú
eitthvað um hvað Kaldal hefur haft
næmt auga fyrir kvenlegri fegurð.“
Á laugardaginn kl. 14 ætlar Óskar
vera með leiðsögn um sýninguna í
Þjóðminjasafninu og þar gefst því
gott tækifæri fyrir fólk til þess að
kynnast í senn meistaraverkum
Kaldals og sögum þeirra sem eru á
myndunum.
Í leit að lífinu á bak við portrettmyndir kaldals
óskar guðmundsson lagðist í mikla rannsóknarvinnu til þess að fræðast um líf fólksins í portrettunum í
myndum jóns kaldals ljósmyndara sem nú eru sýndar á Þjóðminjasafninu og komu nýverið út á bók.
Óskar Guðmundsson, sagnfræðingur og blaðamaður, segir að það hafi verið snúið að finna sögur sumra persónanna í
myndum Kaldals. Fréttablaðið/anton brinK
Sigurlína María Gísladóttir, mynd eftir Jón Kaldal tekin 1961. Jóhannes Kjarval, mynd eftir Jón Kaldal frá 1925-1930.
2 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r62 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
6
D
-0
8
8
C
1
B
6
D
-0
7
5
0
1
B
6
D
-0
6
1
4
1
B
6
D
-0
4
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K