Fréttablaðið - 25.11.2016, Page 80

Fréttablaðið - 25.11.2016, Page 80
Þegar ég fór að skoða líf og sögu Þeirra sem eru á myndunum, Þá ég áttaði mig fljótlega á Því hversu mikið hann var búinn að pæla í Þessu fólki. L jósmyndir Jóns Kaldals frá þriðja áratug síðustu aldar og fram á áttunda áratuginn mynda ein­stakt höfundarverk í íslenskri ljósmyndasögu. Ljósmyndun var iðngrein Jóns en ekki síður listgrein sem birtist eink­ um í einstökum portrettmyndum hans sem margar hverjar urðu að einkennismyndum myndefnanna. Þar á meðal má nefna Jóhannes S. Kjarval og Ástu Sigurðardóttur enda náði Jón með sínum einstaka hætti að fanga kjarna hverrar manneskju í svarthvítri ljósmynd, í ljósi og skugga. Um þessar mundir standa yfir sýningarnar Portrett Kaldals og Kaldal í tíma og rúmi í Þjóðminja­ safni Íslands en auk þess er nýút­ komin bókin Kaldal, svart og hvítt. Í bókinni er að finna einstaka saman­ tekt á mörgum af bestu ljósmyndum meistarans og fylgja æviágrip við­ fangsefnanna með. Það var Óskar Guðmundsson, sagnfræðingur og blaðamaður, sem tók að sér að afla upplýsinga um lífshlaup þessara fjölmörgu einstaklinga og hann segir að hann hafi nú verið fenginn til verksins sökum reynslu sinnar af því að segja frá fólki. „Svo er ég náttúrulega eins og aðrir Íslendingar mjög uppnuminn og hrifinn af Kaldal. Þó að hann hafi myndað þúsundir ef ekki tug­ þúsundir Íslendinga þá eru sumar þessarar mynda algjört listaverk. Í þeim býr persónuleg natni og þá sérstaklega í portrettunum sem hann síðan sýndi. Þegar ég fór að skoða líf og sögu þeirra sem eru á myndunum, þá ég áttaði mig fljót­ lega á því hversu mikið hann var búinn að pæla í þessu fólki. Kaldal var Húnvetningur að upp­ runa en missti foreldra sína ungur að árum og var því alinn upp í Reykjavík að hluta til hjá Þorleifi póstmeistara sem var föðurbróðir hans en hann var faðir Jóns Leifs. Jón var síðar einn af þeim sem Kaldal myndaði og það má segja að hann hafi umgengist listamenn alveg frá frumbernsku. Þegar hann er svo úti í Kaupmannahöfn við nám þá er hann í þannig félagslegu umhverfi að mörg af þessum við­ fangsefnum urðu náin honum þar. Kaupmannahöfn var á þessum tíma höfuðborg Íslands og þangað lá leið allra íslenskra heimsborgara.“ Það má segja að eftir að Jón Kal­ dal snýr heim úr námi hafi hann umgengist það sem kalla má list­ aðal Reykjavíkur á þeim árum. Óskar tekur undir það og segir að á ljósmyndastofu Kaldals hafi menn komið til þess að sitja og spjalla um líf og list. „Það voru ótrúlegustu menn sem áttu þarna vé og komu þarna til þess að skiptast á skoð­ unum og hittast. Kjarval, Laxness, Thor Vilhjálmsson, menn af ýmsum kynslóðum og Jón Pálsson, sá frægi maður, sem greip í píanóið sem stóð á ljósmyndastofunni. Jón Kaldal var líka áhugamaður um tónlist og þetta var það menningarlega andrúmsloft sem hann lifði og hrærðist í. Síðan virðist hann líka hafa notað tæki­ færið eins og allar þessar myndir af Kjarval sýna. Hann tekur óvæntar myndir af honum en fyrir vikið þá eru þær allar einstæðar.“ En hvernig skyldi Óskari hafa gengið að róta upp í fortíðinni og finna bakgrunn og sögu allra þessara andlita? „Það gekk misvel. Þetta var ákaflega spennandi og heillandi leit í fortíðinni. Leit að fólki sem er horfið og það getur verið allt annað en ein­ falt að hafa upp á fólki og sögunum af því eftir svona langa tíð. Oft er það þannig að maður finnur eitthvað í minningargreinum í blöðunum og vefur á borð við tímaritavefinn auð­ veldar vissulega rannsóknarvinnu af þessum toga. Það var fullt af fólki sem ég fann í gegnum það en langt því frá allir. En svo eru svona nokkrir hópar fólks sem var aðeins erfiðara að nálgast. Það var annaðhvort fólk sem ekki höfðu verið skrifaðar minn­ ingargreinar um eða þá að fólk hafði skipt um nafn síðar á lífsleiðinni. Fólk sem var annað í skráningunni hjá Kaldal en það var svo seinna meir í lífinu. Þetta var þónokkur stokkur fólks sem þannig var varið um.“ Ef litið er á bókina er þar aðeins ein kona sem lítið virðist hafa fundist um og Óskar segir að það hafi einmitt verið dæmi um nafn­ breytingu. „Þetta er eina konan sem ég ekki fann. En ég veit núna hver hún er. Þessi kona giftist Richard Patterson frá Bandaríkjunum og tók upp eftirnafn hans. Hún, eins og nokkuð margar konur sem Kal­ dal myndaði, varð svo módel síðar í útlöndum. Það átti við um Stefaníu og nokkrar fleiri. Það segir okkur nú eitthvað um hvað Kaldal hefur haft næmt auga fyrir kvenlegri fegurð.“ Á laugardaginn kl. 14 ætlar Óskar vera með leiðsögn um sýninguna í Þjóðminjasafninu og þar gefst því gott tækifæri fyrir fólk til þess að kynnast í senn meistaraverkum Kaldals og sögum þeirra sem eru á myndunum. Í leit að lífinu á bak við portrettmyndir kaldals óskar guðmundsson lagðist í mikla rannsóknarvinnu til þess að fræðast um líf fólksins í portrettunum í myndum jóns kaldals ljósmyndara sem nú eru sýndar á Þjóðminjasafninu og komu nýverið út á bók. Óskar Guðmundsson, sagnfræðingur og blaðamaður, segir að það hafi verið snúið að finna sögur sumra persónanna í myndum Kaldals. Fréttablaðið/anton brinK Sigurlína María Gísladóttir, mynd eftir Jón Kaldal tekin 1961. Jóhannes Kjarval, mynd eftir Jón Kaldal frá 1925-1930. 2 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r62 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 5 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 6 D -0 8 8 C 1 B 6 D -0 7 5 0 1 B 6 D -0 6 1 4 1 B 6 D -0 4 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.