Fréttablaðið - 25.11.2016, Page 94
„Roller derby er hröð snertiíþrótt
sem er spiluð á hjólaskautum og fer
fram á sporöskjulaga braut. Hvort
lið samanstendur af fjórum varn-
armönnum og einum hlaupara.
Hlaupararnir skora stig með því að
hringa andstæðingana og mynda
varnarmennirnir því vegg til þess
að koma í veg fyrir að hlaupari
andstæðinganna komist fram hjá
þeim. Á sama tíma reyna þeir að
hjálpa sínum hlaupara að komast í
gegnum vegg andstæðinganna og er
þannig vörn og sókn spiluð á sama
tíma,“ segir Gabríella Sif Beck, með-
limur ferðaliðsins Ragnaraka, spurð
út í íþróttina sem er heldur betur að
hasla sér völl hér á landi.
Gabríella kynntist íþróttinni fyrst
þegar hún sá kvikmyndina Whip It
eftir Drew Barrymore.
„Mér fannst þetta áhugaverð
íþrótt og langaði að prófa hana.
Ég skráði mig á nýliðanámskeið í
byrjun árs og dró vinkonu mína
með mér því það var ekki séns að
ég þyrði að fara ein. Nú hef ég leikið
fjóra landsleiki og er að fara að spila
minn annan leik með Ragnarökum
á laugardaginn og fæ einfaldlega
ekki nóg af derby,“ segir hún.
Íþróttin í sinni núverandi
mynd rekur uppruna sinn
til Texas í Bandaríkjunum,
en eftir að hafa verið hálf-
gerð gervi-sjónvarps-
þáttaíþrótt á níunda
áratugnum voru regl-
urnar endursamdar
og leiknum breytt í
alvöru íþrótt.
„Í dag eru svo yfir
tvö þúsund roller
derby deildir út um
allan heim,“ segir
Gabríella.
Á Íslandi eru aðeins
tvö lið, ferðaliðið Ragna-
rök og landsliðið Team Icel-
and og því ekki miklir mögu-
leikar til keppni í greininni.
„Við erum dugleg að fá lið frá
öðrum löndum til að koma og
keppa við okkur. Nú þegar höfum
við spilað fimm heimaleiki á móti
liðum frá Frakklandi, Finnlandi, Sví-
þjóð og Englandi meðal annars, en
flest lið eru mjög spennt að koma
til Íslands þar sem landið er orðið
mjög vinsæll ferðamannastaður.
Landsliðið okkar keppti síðan á
Evrópumóti í Belgíu núna í septem-
ber á móti liðum eins og Portúgal,
Ítalíu og Wales. Við höfum því ágæta
reynslu og erum alltaf að bæta við
okkur,“ segir hún.
Allir sem eru 18 ára og eldri geta
æft roller derby. En haldið er nýliða-
námskeið tvisvar til þrisvar á ári og
verður næsta námskeið haldið í
janúar.
„Við auglýsum skráningu á
nýliðanámskeiðin á Facebook-síð-
unni okkar, Roller Derby Iceland,
nokkrum vikum fyrir námskeið.
Það þarf ekki að eiga hjólaskauta og
eina skyldan er að mæta með sinn
eigin hjálm,“ segir hún og hvetur
sem flesta til þess að prófa þessa
skemmtilegu íþrótt.
Fram undan er nóg um að vera en
um helgina keppir ferðaliðið Ragna-
rök á móti þýska liðinu Maniac
Monsters Mainz.
„Leikurinn verður haldinn í Hertz
Höllinni á Seltjarnarnesi klukkan
16.30 og kostar bara 1.000 kr. inn
og frítt fyrir 12 ára og yngri,“ segir
Gabríella. gudrunjona@frettabladid.is
Við auglýsum
skráningu á
nýliðanámskeiðin á
Facebook-síðunni
okkar, roller Derby
icelanD, nokkrum
Vikum Fyrir nám-
skeið. Það ÞarF ekki
að eiga hjóla-
skauta og eina
skylDan er að
mæta með sinn
eigin hjálm
skautað gegn maniac monsters
Roller derby eða hjólaskautaat hefur haslað sér völl hérlendis sem skemmtileg íþróttagrein. Um helgina keppir
ferðaliðið Ragnarök við þýska liðið Maniac Monsters Mainz í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi klukkan 16.30.
Roller Derby eða hjólaskautaat er sívaxandi íþróttagrein á Íslandi. MynD/Lucas MaRtinez.
Hér má sjá ferðaliðið Ragnarök í
miðjum leik. MynD/MaksyM GRys-
HcHenko
Söngvarinn Bruno Mars fer í mars
á næsta ári í tónleikaferðalag um
heiminn og hefur þetta ferðalag
hans verið titlað 24K Magic World
Tour.
Miðar á tónleika í þessu ferðalagi
Brunos fóru í sölu á mánudaginn
og í engu var sparað þennan dag.
Bruno Mars kom fram á American
Music Awards og sýndur var sér-
stakur þáttur um hann í Sextíu mín-
útum. Þessi aukna athygli á honum
virðist hafa skilað sér því að honum
tókst að selja milljón miða á einum
degi. Geri aðrir betur.
Í kjölfarið var bætt við einum
fimmtán tónleikum í annars mjög
svo þétta dagskrá Bruno Mars – en
meðal annars var bætt við heilum
fimm tónleikum í New York-borg,
fjórum aukakvöldum í London og
fjórum í viðbót í Forum-höllinni í
Kaliforníu.
Þess má einnig geta að viðtalið
við Bruno Mars var fyrsta sjón-
varpsviðtalið við hann í fjögur ár,
en hann hefur látið lítið fyrir sér fara
annars staðar en á sviði tónlistar í
þennan tíma.
Tónleikaferðalagið hefst 28. mars
í Antwerpen en því lýkur ekki fyrr
en 11. nóvember þegar hann treður
upp í The Forum í Los Angeles, þá
búinn að spila á nánast hverjum
einasta fótboltavelli í Evrópu og
Norður-Ameríku. – sþh
bruno mars selur milljón miða
Bruno Mars mun gera milljónir aðdáenda sinna um allan heim alveg vitlausa
nánast allt næsta ár.
2 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r76 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
6
C
-E
A
E
C
1
B
6
C
-E
9
B
0
1
B
6
C
-E
8
7
4
1
B
6
C
-E
7
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K