Fréttablaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 7 8 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 2 4 . n ó v e M b e r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
sKOðun Skimanir geta skaðað
heilsu. 28
spOrt Þessi tíðindi komu mér á
óvart, segir formaður KSÍ. 30
Menning Heimurinn í Íslandi og
Ísland í heiminum á Þjóðminja-
safninu. 38-44
plús 2 sérblöð l FólK
l sjávarútvegsráðsteFnan 2016
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
FrÍtt
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjöf sem lifnar við!
Gjafakort
Borgarleikhússins
FRÁBÆR JÓLAGJÖF
Laugavegi 178 - Sími 568 9955
ENJOY HITAFAT HELDUR HEITU/KÖLDU
Í ALLT AÐ 4.KLST. 3.TEGUNDIR & LITIR
VERÐ FRÁ KR.12.500 M/AFSL.
Katrín Jakobsdóttir var augljóslega afar vonsvikin þegar hún ræddi við fjölmiðla í þinghúsinu í gær eftir að hafa slitið stjórnarmyndundarviðræðum fimm flokka. Hún
hyggst ræða um framhaldið við Guðna Th. Jóhannesson forseta í dag. FréTTablaðið/Eyþór
lÍFið Bloggfærsla Hönnu Rúnar
Óladóttur um bágan aðbúnað á
rússnesku sjúkrahúsi vakti gríðar-
lega athygli í landinu. „Ég eyddi
færslunni því þetta var orðið þannig
að ég fékk ekki frið fyrir
rússnesku fjölmiðla-
fólki. Það var enda-
laust verið að hringja
og biðja mig um við-
tal.“ Hún og Nikita
Bazev, eiginmaður
hennar, eru að
flytja á ný til
Íslands. – bbh /
sjá síðu 54
Fær ekki frið
fyrir fjölmiðlum
saMFélag Lögmenn hafa einn af
öðrum dregið sig út úr þjónustu
við hælisleitendur vegna þess að
þeim reynist ómögulegt að greiða
lögmönnum fyrir þjónustu þeirra.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er aðeins einn lögmaður
eftir sem er tilbúinn að taka að sér
hælismálin gegn mjög lítilli eða
engri þóknun. Aðrir lögmenn vísa
málunum frá sér enda ekki tilbúnir
til að gefa vinnu sína. – snæ / sjá síðu 8
Lögmenn hafna
hælisleitendum
stjórnMál Hæpið er að Björt fram-
tíð fari í ríkisstjórnarsamstarf án
Viðreisnar, þrátt fyrir að tvennar
stjórnarmyndunarviðræður þar sem
flokkarnir hafa gengið samhliða, hafi
runnið út í sandinn. Einörð afstaða
Viðreisnar í sjávarútvegs-, og Evrópu-
málum annars vegar og skattamálum
hinsvegar hefur komið í veg fyrir að
til ríkisstjórnarsamstarfs hafi verið
stofnað.
„Björt framtíð er auðvitað ekkert
í hjónabandi með Viðreisn, en sam-
starfið við þau hefur verið gott og
verið á málefnalegum grundvelli.
Við erum tveir flokkar sem samein-
ast á miðjunni og út frá frjálslyndum
viðhorfum. Við höfum gert þá rödd
sterkari saman, og það er fyrst og
fremst það sem okkur í Bjartri fram-
tíð finnst mjög mikilvægt,“ segir Björt
Ólafsdóttir, þingkona Bjartrar fram-
tíðar.
Upp úr stjórnarmyndunarviðræð-
um fimm flokka undir stjórn Vinstri
grænna slitnaði seinni partinn í gær
þegar Benedikt Jóhannesson, for-
maður Viðreisnar, tilkynnti Katrínu
Jakobsdóttur, formanni VG, á tveggja
manna fundi þeirra að hann hefði
ekki sannfæringu fyrir samstarfinu.
Ákvörðun Katrínar um að viðræð-
unum væri þar með sjálfhætt var
tilkynnt á fundi formannanna fimm
skömmu síðar.
Hugmyndir VG um aukinn fjár-
magnstekjuskatt, auðlegðarskatt
og hátekjuskatt stóðu í Viðreisn en
heimildir Fréttablaðsins herma að
Björt framtíð hafi ekki gengið alveg
í takt við Viðreisn þegar kom að því
að slíta stjórnarmyndunarviðræð-
unum. Björt segir flokkinn tilbúinn
í ríkisstjórnarsamstarf sem hafni
forræðishyggju og hafi frjálslyndi
og framsýni að leiðarljósi. „Hingað
til hafa flokkarnir lengst til hægri og
lengst til vinstri ekki staðsett sig þar.“
Katrín Jakobsdóttir kemur til með
að ræða við forseta Íslands í dag um
framhaldið og hvort henni beri að
skila stjórnarmyndunarumboðinu.
Heimildir Fréttablaðsins herma að
fyrst verði gerð tilraun til að ræða við
Framsóknarflokkinn. – snæ/ sjá síðu 4
Stefnir í stjórnarkreppu
Upp úr stjórnarmyndunarviðræðum fimm flokka slitnaði í gær þegar ljóst var
að ekki næðist saman um skattabreytingar. Formaður Vinstri grænna ræðir við
forseta í dag. Ólíklegt að Björt framtíð slíti samstarfinu við Viðreisn.
Björt framtíð er
auðvitað ekkert í
hjónabandi með Viðreisn, en
samstarfið við þau hefur
verið gott og verið á málefna-
legum grundvelli. Við erum
tveir flokkar sem sameinast
á miðjunni og út frá frjáls-
lyndum við-
horfum.
Björt Ólafsdóttir,
þingmaður Bjartrar
framtíðar.
2
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
6
9
-5
5
C
8
1
B
6
9
-5
4
8
C
1
B
6
9
-5
3
5
0
1
B
6
9
-5
2
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K