Fréttablaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 20
Eitt stærsta verkefni ferðaþjónust-
unnar, að dreifa komum ferðamanna
yfir allt árið, hefur skilað mark-
verðum árangri og ný farþegaspá
Isavia fyrir árið 2017 gerir ráð fyrir að
fjölgun ferðamanna verði langmest
yfir vetrar mánuðina. Spáin gerir ráð
fyrir að erlendum ferðamönnum inn
í landið fjölgi á milli ára um 444.000
manns; þeir verði rúmlega 2,2 millj-
ónir sem er 25 prósent fjölgun milli
ára. Samtök ferðaþjónustunnar vara
sterklega við þeim þankagangi að
uppgangur ferðaþjónustunnar sé
sjálfsagður.
Veturinn hefur vinninginn
Ný farþegaspá Isavia fyrir Keflavíkur-
flugvöll fyrir árið 2017 var kynnt
í gær. Eins og undanfarin ár er því
spáð að fjölgun ferðamanna verði
talin í tugum prósenta á milli ára –
á það jafnt við um farþega til og frá
landinu auk skiptifarþega sem aðeins
millilenda hér á leið sinni yfir hafið.
Mörg undanfarin ár hefur keppi-
kefli ferðaþjónustunnar í heild verið
að fjölga ferðamönnum yfir vetrar-
tímann – að gera ferðaþjónustuna að
heilsársatvinnugrein. Þetta verkefni
hefur tekist og fjölgun ferðamanna
utan háannar er markverð. Margt
skýrir þennan árangur, markaðs-
starfið er eitt en Isavia setti til dæmis
á fót hvatakerfi sem veitir flugfélög-
um sem hefja nýjar heilsársflugleiðir
afslátt af lendingargjöldum. Þessi
dreifing ferðamanna yfir árið þýðir
mun betri nýtingu allra innviða sem
við sögu koma; Keflavíkurflugvallar
sjálfs, vega og gistirýmis, og er þjón-
ustu og stoðgreinum hvers konar
augljóslega í hag.
Sem dæmi var á fundinum farið
yfir þróunina frá árinu 2010, en á því
ári komu 50% erlendra ferðamanna
yfir hásumarið og 23 prósent yfir
vetrartímann – janúar til mars og
nóvember til desember. Árið 2017
verður þetta hlutfall vetrinum í vil,
en þá er gert ráð fyrir að 35 pró-
sent erlendra ferðamanna komi yfir
vetrarmánuðina og 33 prósent yfir
hásumarið.
Hlynur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Viðskiptasviðs Keflavíkur-
flugvallar, sagði að á þessu ári hafi
metfjöldi flugfélaga verið að fljúga
allt árið til Íslands – ellefu félög í
stað tveggja árið 2005 og þriggja
árið 2010. Hann setti þróunina
í samhengi. „Vetrarmánuðirnir
núna 2016 eru hærri í farþegafjölda
en sumarmánuðirnir árið 2010,“
Fleiri ferðamenn að vetri en sumri
Það hefur tekist að dreifa komum ferðamanna yfir árið, eins og stefnt var að. Spá gerir ráð fyrir 444.000 ferðamönnum til viðbótar árið
2017. Keflavíkurflugvöllur þjónustar á níundu milljón manna. Fjárfestingar þar á fimm árum jafngilda verðmiða nýs þjóðarspítala.
Íslensku flugfélögin tvö og fimm erlend ætla að stórauka umsvif sín hérlendis á ári komanda. Mynd/IsaVIa
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
sviðs Keflavíkurflugvallar, og gerði
grein fyrir að með árinu 2012 og út
árið 2017 verði samtals búið að fjár-
festa fyrir um 43 milljarða á Kefla-
víkurflugvelli. Til samanburðar
mun nýr Landspítali kosta rúmlega
45 milljarða, ef áætlanir ganga eftir.
„Við erum því búin að byggja nýjan
Landspítala á fimm árum án þess að
mikið hafi verið tekið eftir,“ sagði
Guðmundur og bætti við að það væri
aðeins toppurinn á ísjakanum miðað
við það sem þróunar áætlun Isavia
fyrir Keflavíkurflugvöll gerði ráð fyrir
því nú eru stórframkvæmdir í undir-
búningi á flugvellinum, en nokkur ár
munu líða áður en þær miklu stækk-
anir sem unnið er að verða teknar að
fullu í notkun.
Ljónin í veginum
„Það er ekkert mál að klúðra
þessu,“ sagði Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar, í upphafi síns erindis
og jarðtengdi fundargesti. Hún gerði
að umtalsefni það sem hún telur
„stóru fréttirnar“ sem eru fjölgun
ferðamanna og þróun hennar á milli
mánaða – sem væri einkar ánægju-
legt að sjá að væri utan háannar. Það
þýddi meiri framleiðni og nýtingu
fjárfestinga. Eins, öfugt við full-
yrðingar erlendra fjölmiðla um að
ástæður uppgangs í ferðaþjónustu
verði raktar til hruns og eldgosa, að
markaðsstarf ferðaþjónustunnar og
stjórnvalda hefði tekist giftusam-
lega, heilsársstarfsemi flugfélaganna
og fjárfesting ferðaþjónustunnar í
afþreyingu og gistirými til að gera
Ísland sem áfangastað áhugaverðari.
Þá nefndi hún skiptifarþegana –
sem millilenda hérlendis – sem eru
að skila tugum milljarða til þjóðar-
búsins og það framboð af ferða-
möguleikum sem raun ber vitni. Um
80 áfangastaðir eru í boði yfir sum-
arið og 50 yfir veturinn. Peningalega
hliðin er sú að greinin skilar um 80
milljörðum í beinar tekjur til ríkis-
sjóðs og 440 milljörðum í gjaldeyris-
tekjur – auk þúsunda starfa um allt
land.
„Ferðaþjónustan er orðin eins og
efnahagslegt færiband fyrir þjóðar-
búið. Hún hefur gífurleg bein og
óbein áhrif hvert sem við lítum. Hún
hefur stækkað kökuna og ekki gert
atvinnulífið einhæfara, svo síður sé,“
sagði Helga en sló varnagla.
„Spáin er jákvæð um fjölgun flug-
sæta en við skulum gera okkur grein
fyrir því að þetta er sýnd veiði en
ekki gefin. Það þarf margt að ganga
upp, við erum í gífurlegri samkeppni.
Okkur er refsað grimmilega í fjöl-
miðlum ef við stöndumst ekki vænt-
ingar, og verð og gæði verða að fara
saman. Þessi efnahagslegi stöðug-
leiki sem við köllum eftir er algjört
lykilatriði til að framtíðarvöxtur og
þróun greinarinnar gangi eftir,“ sagði
Helga og nefndi ljón sem gætu verið í
veginum – ekki síst gengis- og launa-
þróun. „Umhverfið er erfitt og þarna
verða stjórnvöld að koma með okkur
af fullum þunga og sýna ábyrgð gagn-
vart þessari atvinnugrein,“ sagði
Helga og beindi orðum sínum til
stjórnmálaflokkanna sem nú sitja
og draga upp framtíðarplön sín fyrir
næstu ár. Gerði hún þá kröfu að fjár-
veitingar til greinarinnar endurspegl-
uðu þjóðhagslegt mikilvægi hennar
og þörf fyrir uppbyggingu.
✿ Straumur ferðamanna að jafnast út á milli árstíða
n sumar júní-ágúst n Vor og haust apríl-maí og september-október n Vetur janúar-mars og nóvember-desember
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 raun og spá 2017 spá
Spáin er jákvæð um
fjölgun flugsæta en
við skulum gera okkur grein
fyrir því að þetta
er sýnd veiði
en ekki gefin.
Helga Árnadóttir,
framkvæmda-
stjóri SF
Ferðamenn inn í
landið 2015-2017
2017 2.241.000 – 25% aukning*
2016 1.797.000 – 42% aukning**
2015 1.262.000 – 30% aukning
*Farþegaspá Isavia
**Spá fyrir nóvember
og október
Ferðamannaspá 2017
fjölgun innan árstíða
Vetur [jan-mar & nóv-des]:
+36%
Vor og haust [apr-maí & sep-okt]:
+28%
Sumar - háönn [jún-ágú]:
+12%
23% 21% 24% 27% 29% 29% 32% 35%
28% 30% 30% 29% 29% 31% 31% 32%
50% 49% 47% 44% 42% 40% 37% 33%
sagði Hlynur en tók jafnframt fram
að aukningin yfir nýliðna sumar-
mánuði hafi aldrei verið meiri, eða
34 prósent ofan á þá miklu fjölgun
farþega sem var þegar staðreynd á
þessum tíma. Taka verður fram að
farþegaspáin er byggð á aukningu á
sætaframboði sem þegar hefur verið
kynnt. Því liggur fyrir að aukningin
næsta sumar er mun minni eða 17
prósent á meðan mánuður eins og
janúar næstkomandi lofar 74 pró-
senta aukningu og febrúar öðrum 53
prósentum – og eru þá allir farþegar
taldir, bæði þeir sem koma og fara og
þeir sem millilenda. Hausarnir þarna
að baki eru næstum milljón talsins
en um flugvöllinn fara samkvæmt
spánni 8,7 milljónir manna miðað
við 6,8 milljónir í ár.
Gríðarleg fjárfesting
„Það eru erfiðir tímar á flugvellinum
– að vera í mikilli uppbyggingu á
flugvellinum í miklum vexti. Það
er oft talað um að við séum ekki að
gera nóg og því ágætt að benda á
hvað við höfum verið að gera síð-
ustu fimm ár og hvað stendur til,“
sagði Guðmundur Daði Rúnarsson,
framkvæmdastjóri Tækni- og eigna-
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r20 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
2
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
6
9
-6
4
9
8
1
B
6
9
-6
3
5
C
1
B
6
9
-6
2
2
0
1
B
6
9
-6
0
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K