Fréttablaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 8
OPNUNARTÍMI 25.11.: Smáratorg, Korputorg: 10:00-22:00 Glerártorg: 10:00-24.00 BLACK FRIDAY TILBOÐIN GILDA 25.-27.11 Á VÖLDUM VÖRUM! FULLT AF FLOTTUM BLACK FRIDAY TILBOÐUM Í VERSLUNUM OKKAR70% SPARIÐ ALLT AÐ Samfélag Lögmenn hafa einn af öðrum dregið sig úr þjónustu við hælisleitendur vegna þess að þeim reynist ómögulegt að greiða lögmönn- um fyrir þjónustu þeirra. Gjafsóknar- nefnd hafnar ítrekað hælisleitendum um gjafsókn en Rauði kross Íslands og Lögmannafélag Íslands hafa kvartað yfir því við innanríkisráðuneytið án þess að breyting verði á. Formlegum bréfum Rauða krossins til ráðuneytis- ins hefur ekki verið svarað. Rauði kross Íslands fer með mál hælisleitenda fram að ákvörðun í máli þeirra. Fari svo að umsókn um hæli sé synjað geta hælisleitendur óskað eftir því að fara með málið fyrir dómstóla til að freista þess að úrskurðinum verði snúið við. Á því stigi málsins njóta hælisleitendur ekki lengur þjónustu Rauða krossins heldur þurfa þjónustu lögmanns. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er aðeins einn lögmað- ur eftir sem er tilbúinn að taka að sér hælismálin gegn mjög lítilli eða engri þóknun. Aðrir lögmenn vísa málunum frá sér enda ekki tilbúnir að gefa vinnu sína. Starfsmenn Rauða krossins segja að í raun sé nú orðið ómögulegt að fá gjafsókn fyrir hælisleitendur og þegar umsóknum um hæli sé hafnað þurfi að útskýra þá stöðu fyrir fólki áður en það tekur ákvörðun um að fara lengra með málið. „Vegna þess að gjafsókn er yfir- leitt synjað þá hafa hælisleitendur mjög takmarkaða möguleika á að fá lögfræðing nema lögfræðingar taki málin pro bono [án þóknunar] eða semji um annað,“ segir Björn Teits- son, upplýsingafulltrúi Rauða kross- ins. Reimar Pétursson, formaður Lög- mannafélags Íslands, segir að þar á bæ séu menn þeirrar skoðunar að of fáar gjafsóknar séu samþykktar og þegar gjafsóknir séu samþykktar séu greiðslurnar alls ekki fullnægjandi. Lögmannafélagið sé mjög ósátt við það hvernig málefnum hælisleitenda er fyrirkomið af hálfu innanríkisráðu- neytisins. „Það er grundvallarregla að fólk á að njóta raunhæfra úrræða til að bera mál sín fyrir dóm. Hælisleitendur eru hópur sem hallar verulega á vegna þess að þetta er sjaldnast fólk sem hefur ráð á að leita sér lögmanns en hefur mikla hagsmuni af niðurstöðu þessara mála. Þarna er hópur sem manni þykir eðli- legt að í mörgum tilfellum fái kostnað greiddan úr ríkissjóði til að njóta raun- hæfra réttarúrræða.“ Hann þekkir dæmi þess að lög- menn hafi hætt þjónustu við hælis- leitendur. „Þetta er það sem gerist. Það eru dæmi um að menn sem hafa unnið að þessum málaflokki í mjög langan tíma og náð miklum árangri treysti sér ekki til þess af tilliti til sinnar eigin velferðar. Það er þannig að sjálfstæðir lögmenn þurfa líka að hafa í sig og á.“ snaeros@frettabladid.is Margir lögmenn veigra sér við að verja hælisleitendur Einn lögmaður tekur að sér nærri öll mál hælisleitenda sem synjað hefur verið um hæli. Innanríkisráðu- neytið hefur ekki svarað kvörtunum Rauða krossins vegna þess hve illa gengur að fá gjafsókn fyrir hópinn. Frá mótmælum No Borders fyrir utan innanríkisráðuneytið. Gjafsóknarnefnd starfar á vegum ráðuneytisins og tekur ákvörðun um það hvort hælisleitendur fái málskostnað greiddan eða ekki. FréttaBlaðið/SteFáN Björn teitsson upplýsingafulltrúi rauða krossins. reimar Pétursson, formaður lMFÍ. DómSmál Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu hefur ákært átta aðila fyrir hatursorðræðu. Samtökin 78 kærðu viðkomandi aðila í apríl árið 2015. Pétur Gunnlaugsson, útvarps- maður á Útvarpi Sögu, er einn hinna ákærðu og sagðist bálreiður í útvarpinu í gær. „Ég skal alveg viður- kenna það að einhver lögreglustjóri hér skuli saka mig um þetta,“ sagði Pétur í símatíma á Útvarpi Sögu. Björg Valgeirsdóttir, lögmaður Samtakanna 78, staðfestir að ákær- urnar hafi verið gefnar út. „Það er búið að gefa út ákæru af hálfu lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Kærandi í því máli eru Samtökin 78,“ segir hún. Lögregla vísaði kærum Sam- takanna 78 upphaflega frá án rann- sóknar. Sú ákvörðun var kærð og sendi ríkissaksóknari málið til baka til lögreglu. Þá var málið rannsakað og nú hafa ákærur verið gefnar út. Ummælin sem fyrir er ákært voru látin falla í umræðu um hinsegin fræðslu í grunnskólum Hafnar- fjarðar. – þea Átta ákærðir fyrir hatursfulla orðræðu á netinu Björg Valgeirsdóttir lögmaður. MyNd/diKa löGMeNN 2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 f I m m T U D a g U r8 f r é T T I r ∙ f r é T T a b l a ð I ð 2 4 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :5 9 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 6 9 -9 5 F 8 1 B 6 9 -9 4 B C 1 B 6 9 -9 3 8 0 1 B 6 9 -9 2 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.