Fréttablaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 18
Borgum meira fyrir heilbrigðisþjónustu Íslendingar vörðu hærra hlutfalli úr eigin vasa til heilbrigðismála árið 2014 en aðrir Evrópubúar gerðu að meðaltali. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD. Fleiri tilfelli krabbameins og kynsjúkdóma greinast hér en í öðrum löndum Evrópusambandsins að meðaltali. ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU! Bólgueyðandi og verkjastillandi munnsogstafla við særindum í hálsi Nýtt www.apotekarinn.is - lægra verð Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Strefen-5x10.indd 1 18/11/16 10:43 Heilbrigðismál Íslendingar vörðu 2,9 prósent af heildarneyslu heim- ilanna úr eigin vasa til heilbrigðis- mála árið 2014. Þetta er hærra en meðaltal ESB ríkja en þar var hlut- fallið 2,3 prósent. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu efnahags- og fram- farastofnunarinnar OECD, Health at a Glance: Europe 2016 sem kom út í gær. Í skýrslunni kemur fram að útgjöld til heilbrigðismála á Íslandi séu 8,8 prósent af vergri landsfram- leiðslu, samanborið við 9,9 prósent meðaltal ESB-ríkja.  Hæsta kostn- aðarhlutfall sem Íslendingar greiða úr eigin vasa  er vegna lyfja, en sá kostnaður er  41 prósent heildar- upphæðarinnar.   Íslendingum finnst þeir vera við góða heilsu ef marka má skýrsluna. Um 76 prósent Íslendinga sögðust vera við góða heilsu árið 2014 og 18 prósent við ágæta. Til samanburðar töldu 67 prósent sig vera við góða heilsu innan Evrópusambandsins. Í skýrslunni er dregin upp mjög áhugaverð mynd af stöðu heil- brigðismála í Evrópu. Fram kemur meðal annars að löndin verji mjög misjöfnum upphæðum til heil- brigðismála. Sjúkdómar hrjá löndin á mismunandi hátt og er hlutfall bólusettra barna og tilfelli kynsjúk- dóma mjög mismunandi yfir álfuna. Evrópa er sú álfa þar sem mests áfengis er neytt í heiminum, en þó er verulegur munur milli landa. Austur-Evrópubúar drekka yfir 12 lítra af hreinu alkóhóli á mann á ári en Norður-Evrópubúar drekka undir átta lítra. Tilfellum offitu fer fjölgandi samhliða því að reykingar og drykkja dragast saman. Þau lönd sem eru með hæstu tekjur í Evrópu, Lúxemborg, Nor- egur og Sviss, vörðu mestu til heil- brigðismála árið 2015. Lúxemborg varði yfir 6.000 evrum, jafnvirði 720 þúsund íslenskra króna á núvirði, á hvern íbúa. Útgjöld til heilbrigðis- mála (þar með talin fjárfesting) námu 3.126 evrum á íbúa á Íslandi á síðasta ári og var langstærsti hlutinn í gegnum ríkið. Þetta er hærri upp- hæð en meðaltal ESB, sem var tæp- lega 2.800 evrur, en mun lægra en í flestum vestrænum ríkjum Evrópu. Meðaltal útgjalda á Norðurlöndum nam 3.700 evrum á síðasta ári sam- kvæmt skýrslunni. Útgjöld til heilbrigðismála jukust að raunvirði um 0,4 prósent á ári á Íslandi frá 2009 til 2015 á meðan Upplifa sig með góða heilsu Klamydíutilfelli hverja 100 þúsund íbúa Áfengis- og tóbaksneysla 15 ára unglinga Sjálftilkynnt offita fullorðinna Hlutfall íbúa sem hafa frestað tíma hjá tannlækni 529 Íslendinga 187,2 esb 11% 22% Íslendinga 5% 16% esb Íslendinga Íslendinga Íslendinga 76 % esb esb esb 67 % meðaltal ESB var 0,7 prósent. Heil- brigðisútgjöld sem hlutfall af lands- framleiðslu voru 8,8 prósent árið 2015 á Íslandi, þar með talin fjár- festing. Á sama tíma var meðaltal í ESB-löndum 9,9 prósent. Hlutfallið er hæst í Sviss, eða 11,5 prósent. Ísland er meðal fremstu Evrópu- landa þegar kemur að ýmsum heil- brigðismálum. Dánartíðni ung- barna er sú lægsta á Íslandi eða 1,7 börn á hver 1.000 sem fæddust milli áranna 2012  og 2014. Til saman- burðar er ESB-meðaltalið 3,6. Lífs- líkur eru einnig með þeim hæstu meðal Evrópulanda eða 82,7 ár, samanborið við 80,9 ára meðaltal ESB. Unglingadrykkja og reykingar hér á landi eru einnig með því minnsta innan Evrópu. Krabbameinstilfelli eru þó rétt yfir meðaltali ESB á Íslandi eða 300 á hverja 100 þúsund íbúa. Til- fellin eru fleiri hjá konum. Á Íslandi greindust 96 tilfelli brjóstakrabba- meins hjá hverjum 100 þúsund konum árið 2012, en meðaltal ESB var 74. Svipaða sögu er að segja um krabbamein í blöðruhálskirtli. Þar greindust 107 tilfelli á hverja þús- und menn á Íslandi, samanborið við 74 innan ESB. Offita er einnig að blossa upp á Íslandi. Offita meðal stráka á Íslandi var í kringum meðaltal ESB eða um 21 prósent, en offita stúlkna var undir meðaltalinu árið 2014 til 2015. Offita fullorðinna (sjálftil- kynnt) er þó mun meiri á Íslandi en innan ESB, 22 prósent samanborið við 16 prósent. Tíðni kynsjúkdóma er ansi há á Íslandi samanborið við önnur Evrópuríki. Á Íslandi greindist klamydía í 529 mönnum á hverja 100 þúsund íbúa árið 2014 sem er næstmesti fjöldi í Evrópu, rétt á eftir Danmörku. Þetta er einnig tæp- lega þrefaldur fjöldi meðaltals ESB. Lekandatilfelli á Íslandi voru færri en meðaltal ESB-ríkja, en sárasótt greindist 51 prósenti oftar á Íslandi en að meðaltali innan ESB. Samkvæmt skýrslunni eru Íslendingar undir meðaltali ESB í bólusetningum eins árs barna gegn barnaveiki, stífkrampa, kíghósta og mislingum. Hér var hlutfallið 90 prósent árið 2014, en var 94 til 96 prósent innan ESB. Sæunn Gísladóttir saeunn@frettabladid.is Samkvæmt skýrslunni sóttu ellefu prósent Íslendinga sér ekki tannlæknisaðstoð sem þurftu árið 2014 vegna fjárhagsástæðna, landfræðilegra ástæðna eða biðraða. Fréttablaðið/Getty Útgjöld til heilbrigðismála á hvern íbúa í evrum árið 2015* 6. 02 3 lú xe m bo rg Þý sk al an d 4. 00 3 sv íþ jó ð 3. 93 7 D an m ör k 3. 77 3 Fr ak kl an d 3. 34 2 br et la nd 3. 34 2 Fi nn la nd 2. 98 8 es b m eð al ta l 2. 78 1 gr ik kl an d 1. 66 3 N or eg ur 4. 68 1 Ís la nd 3. 12 6 3 % 6 % 14 % 25,5 % reykja Neyta áfengis *eða nýjustu gögn Heimild: OECD 82,7 ár eru lífslíkur meðal Íslend- ings. ESB meðaltalið er 80,9. 2 4 . N ó v e m b e r 2 0 1 6 F i m m T U D A g U r18 F r é T T i r ∙ F r é T T A b l A ð i ð 2 4 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :5 9 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 6 9 -6 9 8 8 1 B 6 9 -6 8 4 C 1 B 6 9 -6 7 1 0 1 B 6 9 -6 5 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.