Fréttablaðið - 24.11.2016, Síða 18
Borgum meira fyrir heilbrigðisþjónustu
Íslendingar vörðu hærra hlutfalli úr eigin vasa til heilbrigðismála árið 2014 en aðrir Evrópubúar gerðu að meðaltali. Þetta kemur fram í
nýrri skýrslu OECD. Fleiri tilfelli krabbameins og kynsjúkdóma greinast hér en í öðrum löndum Evrópusambandsins að meðaltali.
ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU!
Bólgueyðandi og verkjastillandi
munnsogstafla við særindum í hálsi
Nýtt
www.apotekarinn.is
- lægra verð
Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta
leysast upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Strefen-5x10.indd 1 18/11/16 10:43
Heilbrigðismál Íslendingar vörðu
2,9 prósent af heildarneyslu heim-
ilanna úr eigin vasa til heilbrigðis-
mála árið 2014. Þetta er hærra en
meðaltal ESB ríkja en þar var hlut-
fallið 2,3 prósent. Þetta kemur fram
í nýrri skýrslu efnahags- og fram-
farastofnunarinnar OECD, Health
at a Glance: Europe 2016 sem kom
út í gær.
Í skýrslunni kemur fram að
útgjöld til heilbrigðismála á Íslandi
séu 8,8 prósent af vergri landsfram-
leiðslu, samanborið við 9,9 prósent
meðaltal ESB-ríkja. Hæsta kostn-
aðarhlutfall sem Íslendingar greiða
úr eigin vasa er vegna lyfja, en sá
kostnaður er 41 prósent heildar-
upphæðarinnar.
Íslendingum finnst þeir vera við
góða heilsu ef marka má skýrsluna.
Um 76 prósent Íslendinga sögðust
vera við góða heilsu árið 2014 og 18
prósent við ágæta. Til samanburðar
töldu 67 prósent sig vera við góða
heilsu innan Evrópusambandsins.
Í skýrslunni er dregin upp mjög
áhugaverð mynd af stöðu heil-
brigðismála í Evrópu. Fram kemur
meðal annars að löndin verji mjög
misjöfnum upphæðum til heil-
brigðismála. Sjúkdómar hrjá löndin
á mismunandi hátt og er hlutfall
bólusettra barna og tilfelli kynsjúk-
dóma mjög mismunandi yfir álfuna.
Evrópa er sú álfa þar sem mests
áfengis er neytt í heiminum, en þó
er verulegur munur milli landa.
Austur-Evrópubúar drekka yfir 12
lítra af hreinu alkóhóli á mann á
ári en Norður-Evrópubúar drekka
undir átta lítra. Tilfellum offitu fer
fjölgandi samhliða því að reykingar
og drykkja dragast saman.
Þau lönd sem eru með hæstu
tekjur í Evrópu, Lúxemborg, Nor-
egur og Sviss, vörðu mestu til heil-
brigðismála árið 2015. Lúxemborg
varði yfir 6.000 evrum, jafnvirði 720
þúsund íslenskra króna á núvirði, á
hvern íbúa. Útgjöld til heilbrigðis-
mála (þar með talin fjárfesting)
námu 3.126 evrum á íbúa á Íslandi á
síðasta ári og var langstærsti hlutinn
í gegnum ríkið. Þetta er hærri upp-
hæð en meðaltal ESB, sem var tæp-
lega 2.800 evrur, en mun lægra en í
flestum vestrænum ríkjum Evrópu.
Meðaltal útgjalda á Norðurlöndum
nam 3.700 evrum á síðasta ári sam-
kvæmt skýrslunni.
Útgjöld til heilbrigðismála jukust
að raunvirði um 0,4 prósent á ári á
Íslandi frá 2009 til 2015 á meðan
Upplifa sig með góða heilsu Klamydíutilfelli
hverja 100 þúsund íbúa
Áfengis- og tóbaksneysla 15 ára unglinga
Sjálftilkynnt
offita fullorðinna
Hlutfall íbúa sem
hafa frestað tíma
hjá tannlækni
529
Íslendinga
187,2
esb
11%
22%
Íslendinga
5%
16%
esb
Íslendinga
Íslendinga Íslendinga
76
%
esb
esb esb
67
%
meðaltal ESB var 0,7 prósent. Heil-
brigðisútgjöld sem hlutfall af lands-
framleiðslu voru 8,8 prósent árið
2015 á Íslandi, þar með talin fjár-
festing. Á sama tíma var meðaltal í
ESB-löndum 9,9 prósent. Hlutfallið
er hæst í Sviss, eða 11,5 prósent.
Ísland er meðal fremstu Evrópu-
landa þegar kemur að ýmsum heil-
brigðismálum. Dánartíðni ung-
barna er sú lægsta á Íslandi eða 1,7
börn á hver 1.000 sem fæddust milli
áranna 2012 og 2014. Til saman-
burðar er ESB-meðaltalið 3,6. Lífs-
líkur eru einnig með þeim hæstu
meðal Evrópulanda eða 82,7 ár,
samanborið við 80,9 ára meðaltal
ESB. Unglingadrykkja og reykingar
hér á landi eru einnig með því
minnsta innan Evrópu.
Krabbameinstilfelli eru þó rétt
yfir meðaltali ESB á Íslandi eða
300 á hverja 100 þúsund íbúa. Til-
fellin eru fleiri hjá konum. Á Íslandi
greindust 96 tilfelli brjóstakrabba-
meins hjá hverjum 100 þúsund
konum árið 2012, en meðaltal ESB
var 74. Svipaða sögu er að segja um
krabbamein í blöðruhálskirtli. Þar
greindust 107 tilfelli á hverja þús-
und menn á Íslandi, samanborið
við 74 innan ESB.
Offita er einnig að blossa upp
á Íslandi. Offita meðal stráka á
Íslandi var í kringum meðaltal ESB
eða um 21 prósent, en offita stúlkna
var undir meðaltalinu árið 2014 til
2015. Offita fullorðinna (sjálftil-
kynnt) er þó mun meiri á Íslandi en
innan ESB, 22 prósent samanborið
við 16 prósent.
Tíðni kynsjúkdóma er ansi há
á Íslandi samanborið við önnur
Evrópuríki. Á Íslandi greindist
klamydía í 529 mönnum á hverja
100 þúsund íbúa árið 2014 sem er
næstmesti fjöldi í Evrópu, rétt á eftir
Danmörku. Þetta er einnig tæp-
lega þrefaldur fjöldi meðaltals ESB.
Lekandatilfelli á Íslandi voru færri
en meðaltal ESB-ríkja, en sárasótt
greindist 51 prósenti oftar á Íslandi
en að meðaltali innan ESB.
Samkvæmt skýrslunni eru
Íslendingar undir meðaltali ESB í
bólusetningum eins árs barna gegn
barnaveiki, stífkrampa, kíghósta
og mislingum. Hér var hlutfallið 90
prósent árið 2014, en var 94 til 96
prósent innan ESB.
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
Samkvæmt skýrslunni sóttu ellefu prósent Íslendinga sér ekki tannlæknisaðstoð sem þurftu árið 2014 vegna fjárhagsástæðna,
landfræðilegra ástæðna eða biðraða. Fréttablaðið/Getty
Útgjöld til heilbrigðismála á hvern íbúa í evrum árið 2015*
6.
02
3
lú
xe
m
bo
rg
Þý
sk
al
an
d
4.
00
3
sv
íþ
jó
ð
3.
93
7
D
an
m
ör
k
3.
77
3
Fr
ak
kl
an
d
3.
34
2
br
et
la
nd
3.
34
2
Fi
nn
la
nd
2.
98
8
es
b
m
eð
al
ta
l
2.
78
1
gr
ik
kl
an
d
1.
66
3
N
or
eg
ur
4.
68
1
Ís
la
nd
3.
12
6
3
%
6
%
14
%
25,5
%
reykja Neyta áfengis
*eða nýjustu gögn
Heimild: OECD
82,7
ár eru lífslíkur meðal Íslend-
ings. ESB meðaltalið er 80,9.
2 4 . N ó v e m b e r 2 0 1 6 F i m m T U D A g U r18 F r é T T i r ∙ F r é T T A b l A ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
6
9
-6
9
8
8
1
B
6
9
-6
8
4
C
1
B
6
9
-6
7
1
0
1
B
6
9
-6
5
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K