Fréttablaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 32
„Þetta er tímabundinn litur sem
á að renna úr eftir tíu til tuttugu
þvotta. Hárið á mér er reyndar
alveg hvítt undir, liturinn mun
því líklega sitja mjög fast. Ég hef
verið með fjólubláan lit í hárinu
af og til síðustu þrjú ár og nú
síðast var ég með fjólubláan og
bleikan. Það kom mjög vel út en
sá litur sat líka mjög fast,“ segir
Salóme Ósk Jónsdóttir, hár-
snyrtinemi og förðunarblogg-
ari, spurð út í bláa hárið. Hún
bloggar reglulega á lífsstílssíð-
unni Kalon.is og segist óhrædd
við að leika sér með hressileg-
ar litaúrfærslur, bæði í förðun
og hárlit.
„Hár er bara hár. Í versta falli
má bara raka allt af, það vex
aftur,“ segir hún. „Mig langar
svo sem ekkert til þess að snoða
mig núna en ég veit að ég mun
einhvern tímann gera það, bara
til þess að prófa. Ég læt verða af
því þegar ég verð alveg búin að
rústa á mér hárinu,“ bætir hún
við og viðurkennir að litagleðin
fari ekki vel með hárið.
„Þessi tíska hentar ekki þeim
sem vilja heilbrigt hár. Aflitun-
in brýtur niður hárið en það er
samt hægt að hugsa vel um af-
litað hár svo það sé mjúkt og fal-
legt. Ég held mig við hárvörur
sem seldar eru á stofum og ég
veit að eru mjög góðar,“ segir
Salóme. Hárið fær jafnan mikla
athygli segir hún og sérstaklega
frá eldri konum sem sækja hár-
greiðslustofuna Epli þar sem
Salóme er nemi. „Þær myndu
kannski aldrei gera þetta sjálfar
en finnst þetta mjög flott. Sem
er skemmtilegt.“
Augabrúnirnar litar Salóme
líka bláar en þó með lit sem
hægt er að ná af í lok dags.
„Ég nota bara bláan eyeliner á
augabrúnirnar, eða augnskugga
sem þvæst af. Ég hafði hugsað
mér að aflita á mér augabrún-
irnar fyrst en hætti við. Ég held
að blái liturinn hefði þá orðið
of sterkur og skær í brúnun-
um,“ segir Salóme en á blogginu
Kalon.is fær hún útrás fyrir lita-
og tilraunagleðina.
„Á blogginu er ég að gera
„lúkk“, og finnst skemmtileg-
ast að mála mig eitthvað flipp-
að og taka skemmtilegar mynd-
ir. Til að fylgjast með fer ég
mikið inn á grúppuna Sam-
félagsmiðlaspamm á Facebook
en þar eru bloggarar að pósta
inn nýjar færslur. Mér finnst
fínt að fylgjast með því nýjasta
þar og uppgötva fleiri bloggara
í stað þess að flakka milli síða.
Ég veit ekki hvernig ég ætti að
skilgreina minn stíl. Stundum
vil ég vera með svartan varalit
en stundum vil ég bara bleikt.
Þetta eru öfgar í ýmsar áttir hjá
mér. Reyndar geng ég langmest
í svörtu en á nokkrar flíkur sem
eru bleikar eða rauðar. Uppá-
halds búðin er Zara en ég kíki
líka í Sautján og Vila.“
ætlar einhvern tíma að snoða
Salóme Ósk Jónsdóttir hársnyrtinemi er óhrædd við að lita á sér hárið í afgerandi lit. Hún er ein sjö bloggara á
lífsstílssíðunni Kalon.is þar sem hún gefur lita- og tilraunagleðinni lausan tauminn.
Salóme Ósk Jónsdóttir segir bláa hárið fá skemmtilega athygli frá eldri konum á hársnyrtistofunni þar sem hún er nemi. Salóme bloggar um förðun og útlit á kalon.is. mynd/Anton Brink
Hár er bara hár. Í
versta falli má
bara raka allt af, það vex
aftur. Mig langar svo sem
ekkert til þess að snoða
mig núna en ég veit að ég
mun einhvern tímann
gera það, bara til þess að
prófa. Ég læt verða af því
þegar ég verð alveg búin
að rústa á mér hárinu.
Vantar þig hugmynd að jólagjöf?
Heilsa & Spa | Ármúli 9 | Sími 595 7007 | www.heilsaogspa.is
Hvernig væri að gefa gjafabréf í
nudd og dekur í endurnærandi
umhverfi?
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r4 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A ð ∙ T í s k A
2
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
6
9
-9
A
E
8
1
B
6
9
-9
9
A
C
1
B
6
9
-9
8
7
0
1
B
6
9
-9
7
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K