Fréttablaðið - 01.11.2016, Page 4

Fréttablaðið - 01.11.2016, Page 4
Höfundur málar sjálfur á ríflega 2000 eintök af bókinni „Fullkomið jafnvægi í fögru myndmáli ... falleg og fyndin.“ J M A / M O R G U N B L A Ð I Ð Ég get sagt það við hvern sem er að ég tel að Sjálfstæðis- flokkurinn geti verið kjölfestan í næstu stjórn. Bjarni Benediktsson Við erum algjörlega tilbúin til að taka þátt í og jafnvel leiða fimm flokka stjórn frá vinstri. Katrín Jakobsdóttir Það er augljóst að það er verið að kalla eftir meiri breidd í stjórn- skipan landsins en áður hefur verið gert. Birgitta Jónsdóttir Við erum tilbúin til samstarfs við hvern sem er og erum tilbúin til að sitja í ríkisstjórn, það er ekki spurning. Sigurður Ingi Jóhannsson Mín tillaga er að við munum leiða stjórnarsamstarf og stjórnarmyndun. Þetta er nú ekki þannig að maður sé með skriflega umsókn. Benedikt Jóhannesson Við höfum lagt til að Benedikt Jóhannes- syni, formanni Viðreisnar, verði gefinn möguleiki á að spreyta sig á því að mynda stjórn. Óttarr Proppé Við erum ekki að fara í ríkisstjórn, það er augljóst mál. Oddný Harðardóttir ✿ Ummæli gærdagsins Stjórnmál Línur voru teknar að skýrast í möguleikum til stjórnar- myndunar í gær áður en formenn sjö stærstu stjórnmálaflokka lands- ins gengu á fund forseta Íslands á Bessastöðum. Í lok dags hefur mögu- leikunum þó fjölgað og í raun hafa margir flokkar komið sér í lykilstöðu við stjórnarmyndun. Fréttablaðið greindi frá því í gær að óformleg samtöl á milli formanna Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hefðu átt sér stað. Stjórn sem myndi knýja Sjálfstæðis- flokkinn aftur nær Evrópumálunum en jafnframt inn í þægindasvæði sitt varðandi frekari niðurfellingu tolla og aukið frelsi í viðskiptum. Þetta stjórnarmynstur virtist það eina augljósa í stöðunni í gærmorgun í ljósi þess að Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, hafði sagst úti- loka Píratabandalagið, Vinstri græn hafa útilokað samstarf með Sjálf- stæðisflokki og Sjálfstæðisflokkur og Píratar útilokað hvor annan. Stjórn Sjálfstæðisflokks, Við- reisnar og Bjartrar framtíðar væri með minnsta mögulega meirihluta, 32 þingmenn, og hefur atkvæði 46,7 prósenta kjósenda á bak við sig. Allt átti þetta þó eftir að breytast þegar Píratar mættu á fund for- seta Íslands og sögðust reiðubúnir að verja minnihlutastjórn Vinstri grænna, Viðreisnar og Bjartrar fram- tíðar falli. Tilkynningin er stórmerki- leg í ljósi þess að Píratar eru þriðji stærsti flokkur landsins með jafn marga þingmenn og Vinstri græn. Frítt spil Pírata Það eru bæði kostir og gallar við þessa tillögu Pírata. Í fyrsta lagi er ákveðinn kostur fólginn í því að þingflokkur Pírata, sem verður skipaður sjö alveg óreyndum þing- mönnum, fái tækifæri til að læra inn á starfið og þingið án þess að þurfa að takast á við þá ábyrgð sem fylgir ríkisstjórnarsamstarfi alveg blautir á bak við eyrun. Heimildir Frétta- blaðsins herma að reynsluleysi Pírat- anna hafi verið sérstakt áhyggjuefni mögulegra samstarfsflokka áður en úrslit kosninganna voru kunngjörð.   Aftur á móti myndi þetta skapa Pírötum óskastöðu sem gæti reynst minnihlutastjórn virkilega erfið. Með tíu þingmenn yrðu það Píratar sem réðu í raun og veru hvað færi í gegnum þingið hverju sinni, án þess að þurfa að taka ábyrgð á því sem úrskeiðis færi. Píratar gætu þannig haldið þingi og ríkisstjórn í gíslingu í hlutverki sínu sem stuðningsflokkur minnihlutastjórnar án þess að fara í gegnum venjubundna eldskírn stjórnmálaflokka við að svíkja kosn- ingaloforð sem á endanum reynast ómöguleg. Ef Viðreisn hugnaðist ekki samstarf með Pírötum er erfitt að sjá flokkinn samþykkja þessa lendingu. Spilin á borðið Viðreisn er í kjöraðstöðu til að mynda ríkisstjórn til hægri og til vinstri. Tillaga Pírata neyðir Við- reisn þó til að leggja spilin á borðið því ef Viðreisn þekkist ekki boð um að ræða að minnsta kosti við flokkana um tilboðið, bendir allt til þess að flokkurinn hafi alltaf ætlað sér í ríkisstjórn með Sjálfstæðis- flokknum. Minnihlutastjórn varin af Pírötum og Samfylkingu hefði enda 34 þingmenn en þriggja flokka stjórnin sem var í kortunum aðeins 32, eins og áður hefur komið fram. Til að tryggja minnihlutastjórn- inni vinsældir væri borðleggjandi að Katrín Jakobsdóttir yrði forsætis- ráðherra, en ný könnun sýnir að 40 prósent þjóðarinnar vilja sjá hana í því embætti. Í slíkri stjórn, sem er líklega full vinstrisinnuð fyrir þing- mannahóp Viðreisnar, gæti flokkur- inn engu að síður náð meiru fram en í stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Í öllu falli yrði fyrr ráðist í atkvæða- greiðslu um áframhald aðildarvið- ræðna við Evrópusambandið og hugmyndir um myntráð líkast til ekki slegnar út af borðinu strax. Og það eru kannski helstu tíðindi kosninganna. Fjórir flokkar af sjö, með tæplega 40 prósent atkvæða, eru Evrópuflokkar sem leggja áherslu á að kanna möguleikann á aðild við Evrópusambandið. Ef Vinstri græn, sem tala fyrir þjóðar- atkvæðagreiðslu líka, eru tekin með í hópinn er samanlagt fylgi þessara flokka ríflega helmingur. Stórtíðindi þegar þjóðin hélt að Evrópusam- bandsumræðan væri dauð. Útspil Pírata opinberar plön Viðreisnar Fleiri möguleikar á stjórnarmyndun eru á borðinu nú en áður. Vinstriblokkin reynir af öllum mætti að mynda stjórn án Sjálfstæðis- flokksins. Viðreisn er lykilflokkur við myndun nýrrar ríkisstjórnar og hefur farið fram á að fá stjórnarmyndunarumboðið. Forseta Íslands bíður mikilvægt verkefni að veita einum af flokkunum sjö stjórnarmyndunarumboðið. Viðreisn og Sjálfstæðis- flokkur eru líklegastir til að fá umboðið og það gæti gerst í dag, á fundi formannanna með forsetanum. Fréttablaðið/anton brink Snærós Sindradóttir snaeros@365.is Kosningar 2016 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð j U D A G U r4 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A Ð I Ð 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 F -B 9 D 0 1 B 1 F -B 8 9 4 1 B 1 F -B 7 5 8 1 B 1 F -B 6 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.