Fréttablaðið - 01.11.2016, Síða 4
Höfundur
málar sjálfur
á ríflega 2000
eintök af
bókinni
„Fullkomið jafnvægi
í fögru myndmáli ...
falleg og fyndin.“
J M A / M O R G U N B L A Ð I Ð
Ég get sagt
það við
hvern sem er að ég
tel að Sjálfstæðis-
flokkurinn geti
verið kjölfestan í
næstu stjórn.
Bjarni Benediktsson
Við erum
algjörlega
tilbúin til að taka
þátt í og jafnvel
leiða fimm flokka
stjórn frá vinstri.
Katrín Jakobsdóttir
Það er
augljóst að
það er verið að
kalla eftir meiri
breidd í stjórn-
skipan landsins en
áður hefur verið
gert.
Birgitta Jónsdóttir
Við erum
tilbúin til
samstarfs við hvern
sem er og erum
tilbúin til að sitja í
ríkisstjórn, það er
ekki spurning.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Mín tillaga
er að við
munum leiða
stjórnarsamstarf og
stjórnarmyndun.
Þetta er nú ekki
þannig að maður sé
með skriflega
umsókn.
Benedikt
Jóhannesson
Við höfum
lagt til að
Benedikt Jóhannes-
syni, formanni
Viðreisnar, verði
gefinn möguleiki á
að spreyta sig á því
að mynda stjórn.
Óttarr Proppé
Við erum
ekki að
fara í ríkisstjórn,
það er augljóst mál.
Oddný Harðardóttir
✿ Ummæli gærdagsins
Stjórnmál Línur voru teknar að
skýrast í möguleikum til stjórnar-
myndunar í gær áður en formenn
sjö stærstu stjórnmálaflokka lands-
ins gengu á fund forseta Íslands á
Bessastöðum. Í lok dags hefur mögu-
leikunum þó fjölgað og í raun hafa
margir flokkar komið sér í lykilstöðu
við stjórnarmyndun.
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að óformleg samtöl á milli formanna
Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar hefðu átt sér stað.
Stjórn sem myndi knýja Sjálfstæðis-
flokkinn aftur nær Evrópumálunum
en jafnframt inn í þægindasvæði sitt
varðandi frekari niðurfellingu tolla
og aukið frelsi í viðskiptum. Þetta
stjórnarmynstur virtist það eina
augljósa í stöðunni í gærmorgun í
ljósi þess að Benedikt Jóhannesson,
formaður Viðreisnar, hafði sagst úti-
loka Píratabandalagið, Vinstri græn
hafa útilokað samstarf með Sjálf-
stæðisflokki og Sjálfstæðisflokkur
og Píratar útilokað hvor annan.
Stjórn Sjálfstæðisflokks, Við-
reisnar og Bjartrar framtíðar væri
með minnsta mögulega meirihluta,
32 þingmenn, og hefur atkvæði 46,7
prósenta kjósenda á bak við sig.
Allt átti þetta þó eftir að breytast
þegar Píratar mættu á fund for-
seta Íslands og sögðust reiðubúnir
að verja minnihlutastjórn Vinstri
grænna, Viðreisnar og Bjartrar fram-
tíðar falli. Tilkynningin er stórmerki-
leg í ljósi þess að Píratar eru þriðji
stærsti flokkur landsins með jafn
marga þingmenn og Vinstri græn.
Frítt spil Pírata
Það eru bæði kostir og gallar við
þessa tillögu Pírata. Í fyrsta lagi er
ákveðinn kostur fólginn í því að
þingflokkur Pírata, sem verður
skipaður sjö alveg óreyndum þing-
mönnum, fái tækifæri til að læra inn
á starfið og þingið án þess að þurfa
að takast á við þá ábyrgð sem fylgir
ríkisstjórnarsamstarfi alveg blautir
á bak við eyrun. Heimildir Frétta-
blaðsins herma að reynsluleysi Pírat-
anna hafi verið sérstakt áhyggjuefni
mögulegra samstarfsflokka áður en
úrslit kosninganna voru kunngjörð.
Aftur á móti myndi þetta skapa
Pírötum óskastöðu sem gæti reynst
minnihlutastjórn virkilega erfið.
Með tíu þingmenn yrðu það Píratar
sem réðu í raun og veru hvað færi í
gegnum þingið hverju sinni, án þess
að þurfa að taka ábyrgð á því sem
úrskeiðis færi. Píratar gætu þannig
haldið þingi og ríkisstjórn í gíslingu í
hlutverki sínu sem stuðningsflokkur
minnihlutastjórnar án þess að fara
í gegnum venjubundna eldskírn
stjórnmálaflokka við að svíkja kosn-
ingaloforð sem á endanum reynast
ómöguleg. Ef Viðreisn hugnaðist
ekki samstarf með Pírötum er erfitt
að sjá flokkinn samþykkja þessa
lendingu.
Spilin á borðið
Viðreisn er í kjöraðstöðu til að
mynda ríkisstjórn til hægri og til
vinstri. Tillaga Pírata neyðir Við-
reisn þó til að leggja spilin á borðið
því ef Viðreisn þekkist ekki boð
um að ræða að minnsta kosti við
flokkana um tilboðið, bendir allt til
þess að flokkurinn hafi alltaf ætlað
sér í ríkisstjórn með Sjálfstæðis-
flokknum. Minnihlutastjórn varin
af Pírötum og Samfylkingu hefði
enda 34 þingmenn en þriggja flokka
stjórnin sem var í kortunum aðeins
32, eins og áður hefur komið fram.
Til að tryggja minnihlutastjórn-
inni vinsældir væri borðleggjandi
að Katrín Jakobsdóttir yrði forsætis-
ráðherra, en ný könnun sýnir að 40
prósent þjóðarinnar vilja sjá hana
í því embætti. Í slíkri stjórn, sem er
líklega full vinstrisinnuð fyrir þing-
mannahóp Viðreisnar, gæti flokkur-
inn engu að síður náð meiru fram en
í stjórn með Sjálfstæðisflokknum.
Í öllu falli yrði fyrr ráðist í atkvæða-
greiðslu um áframhald aðildarvið-
ræðna við Evrópusambandið og
hugmyndir um myntráð líkast til
ekki slegnar út af borðinu strax.
Og það eru kannski helstu tíðindi
kosninganna. Fjórir flokkar af sjö,
með tæplega 40 prósent atkvæða,
eru Evrópuflokkar sem leggja
áherslu á að kanna möguleikann
á aðild við Evrópusambandið. Ef
Vinstri græn, sem tala fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðslu líka, eru tekin með
í hópinn er samanlagt fylgi þessara
flokka ríflega helmingur. Stórtíðindi
þegar þjóðin hélt að Evrópusam-
bandsumræðan væri dauð.
Útspil Pírata opinberar plön Viðreisnar
Fleiri möguleikar á stjórnarmyndun eru á borðinu nú en áður. Vinstriblokkin reynir af öllum mætti að mynda stjórn án Sjálfstæðis-
flokksins. Viðreisn er lykilflokkur við myndun nýrrar ríkisstjórnar og hefur farið fram á að fá stjórnarmyndunarumboðið.
Forseta Íslands bíður mikilvægt verkefni að veita einum af flokkunum sjö stjórnarmyndunarumboðið. Viðreisn og Sjálfstæðis-
flokkur eru líklegastir til að fá umboðið og það gæti gerst í dag, á fundi formannanna með forsetanum. Fréttablaðið/anton brink
Snærós Sindradóttir
snaeros@365.is
Kosningar
2016
1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð j U D A G U r4 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A Ð I Ð
0
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
F
-B
9
D
0
1
B
1
F
-B
8
9
4
1
B
1
F
-B
7
5
8
1
B
1
F
-B
6
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K