Fréttablaðið - 01.11.2016, Side 14

Fréttablaðið - 01.11.2016, Side 14
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@frettabladid.is Sterkari staða gegn Sjálfstæðisflokknum Daginn eftir kjördag virtist ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar fram- tíðar blasa við. Of flókið væri fyrir stjórnmálaflokka að starfa í fimm flokka ríkisstjórn og því er einhvers konar Lækjarbrekku- stjórn með Viðreisnarkryddi ógirnilegur kokteill. Hugmynd Píratanna um að flokkurinn verji minnihlutastjórn VG, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar falli er síðan í meira lagi athyglisverð. Þótt slík stjórn verði ef til vill ekki að veruleika er ljóst að möguleikinn á henni styrkir stöðu Viðreisnar og Bjartrar framtíðar í samninga- viðræðum við Sjálfstæðisflokk- inn á næstu dögum. Útlendingahatri hafnað Síðustu ár hefur orðið vart við uppgang öfgahreyfinga erlendis sem ala á tortryggni í garð inn- flytjenda og jafnvel fjandskap í garð hælisleitenda og flótta- manna. Á sama tíma fara fram kosningar á Íslandi þar sem nýju framboði sem elur á útlendinga- hatri er hafnað. Flokkum sem kalla eftir róttækum stjórnkerfis- breytingum gengur ágætlega, en borgaralegur flokkur sem leggur höfuðáherslu á stöðug- leika í efnahagslífinu hlýtur bestu kosninguna. Áherslan á mann- réttindi varð ofan á í nýliðnum alþingiskosningum og fyrir það eigum við öll að þakka. jonhakon@frettabladid.is Heildarsamtök á vinnumarkaði hafa unnið að mótun nýs samningalíkans byggðu á norrænni fyrirmynd, þar sem órjúfanlegt samhengi er á milli efnahagslegs og félagslegs stöðugleika. Þrátt fyrir að uppstytta hafi orðið á þessari vinnu verður það áfram viðfangsefni vinnumarkaðarins að vinna að bættum vinnubrögðum við gerð kjara- samninga. Markmið ASÍ er að kjarasamningar skili varan- lega auknum kaupmætti og bættum réttindum um leið og þeir styðji við efnahagslegan stöðugleika. Efnahagslegur stöðugleiki gerir kröfu um sveigjan- leika fyrirtækja til að geta aðlagað sig síbreytilegum aðstæðum á markaði. Forsenda slíks sveigjanleika fyrirtækjanna er hins vegar að launafólk búi við félagslegt öryggi til að mæta afleiðingum atvinnu- missis, veikinda og slysa, barnsfæðinga eða tæki- færa til endur- og símenntunar. Því verða stjórnvöld og fyrirtæki að axla sinn hluta ábyrgðarinnar á efnahagslega stöðugleikanum og viðurkenna að honum fylgi jafnframt félagslegur stöðugleiki og velferð. Annað verður ekki án hins! Stjórnvöld forgangsraði í þágu velferðar Alþýðusambandið vill samfélag jafnréttis og jafnra tækifæra þar sem öllum er tryggð mannsæmandi afkoma og réttur til heilbrigðisþjónustu, menntunar og velferðar. Launafólk verður að geta treyst því að stjórnvöld forgangsraði í þágu velferðar og tryggi í það fjármagn með réttlátu skattkerfi sem dreifir byrðunum. Um þetta þarf að ríkja breið sátt og skiln- ingur milli stjórnmálanna og vinnumarkaðarins. Það er þetta sem við köllum félagslegan stöðug- leika – fyrirkomulag sem tryggir launafólki öryggi og skjól en jafnframt tækifæri til þess að standa á eigin fótum ef aðstæður breytast t.d. vegna breyt- inga á vinnumarkaði, atvinnumissis, veikinda og slysa eða þegar barn fæðist. Félagslegur stöðugleiki – hvað er það? Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ Launafólk verður að geta treyst því að stjórnvöld forgangsraði í þágu vel- ferðar og tryggi í það fjármagn með réttlátu skattkerfi sem dreifir byrð- unum. Vera kann að lausnin á vandanum felist í sam- tölum VG og Sjálfstæðis- flokksins. Þjóðin hafnaði vinstristjórn undir forystu Pírata með afgerandi hætti í alþingiskosn-ingunum og Sjálfstæðisflokkurinn er sigur-vegari kosninganna. Flokkurinn er með fyrsta mann kjörinn í öllum kjördæmum og tæplega þrjátíu prósenta fylgi þrátt fyrir klofningsframboð. Forseti Íslands fundaði í gær með öllum formönnum flokkanna. Engin stjórnskipunarvenja hefur löghelgast um að forsetinn þurfi að afhenda stærsta flokknum umboðið og engin venja heldur um að það sé „sigurveg- ari“ kosninganna. Forsetinn getur í raun hagað þessum málum dálítið eftir eigin höfði. Í þessu sambandi má ekki gleymast að flokkarnir gætu myndað stjórn án atbeina forseta og þá skiptir ekki máli hver fær umboðið. Í ljósi úrslita kosninganna hlýtur samt formaður Sjálfstæðisflokksins fyrstur að fá umboð til myndunar nýrrar stjórnar enda eru fáir möguleikar til stjórnarmyndunar í stöðunni án þátt- töku Sjálfstæðisflokksins. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, lét í ljós þá afstöðu á fundi forsetans í gær að hennar fyrsti kostur væri myndun fimm flokka stjórnar. Eftir kosningarnar hefur hún ítrekað lýst efasemdum um að VG og Sjálfstæðisflokkur geti unnið saman í ríkis- stjórn í ljósi þess hversu langt þessir flokkar eru frá hvor öðrum í hugmyndafræðilegu tilliti. Það verður mjög erfitt fyrir Katrínu að „selja“ slíka hugmynd innan raða eigin flokksmanna. Vera kann að hún horfi einnig til lærdóma sögunnar. Margir líta svo á að upphafið að endinum hjá Samfylkingunni hafi falist í stjórnar- myndun með Sjálfstæðisflokknum árið 2007. Þetta hafi verið koss dauðans því Samfylkingin hafi verið stofnuð í þeim tilgangi að sameina jafnaðarmenn og búa til sterkt mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn. Í gær var greint frá því að óformleg samtöl hefðu átt sér stað milli Bjarna Benediktssonar og Óttars Proppé, formanns Bjartrar framtíðar. Ef að baki slíkum samtöl- um býr einlægur ásetningur til myndunar ríkisstjórnar með breiðri skírskotun er ástæða til bjartsýni því þjóðin þarf frið, stöðugleika og sátt. Ef Bjarni Benediktsson býr yfir réttsýni og stjórnvisku þá sýnir hann auðmýkt og virðir þau tæplega sextíu prósent þjóðarinnar sem höfnuðu núverandi ríkisstjórn. Vera kann að hann verði að mynda ríkisstjórn án þátttöku Framsóknarflokksins til að ná slíkri sátt. Það er engum vafa undirorpið að hann styrkir sjálfan sig pólitískt og styrkir ímynd sína í íslensku samfélagi ef hann myndar ríkisstjórn inn á miðjuna án þátttöku Framsóknar. Bjarna er hins vegar vandi á höndum því ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjartr- ar framtíðar og Viðreisnar lafir bara á einum þingmanni. Bjarni útilokaði slíkt í raun óbeint með ummælum um sterka ríkisstjórn á RÚV á sunnudagskvöld. Í slíku felst líka afar mikil pólitísk áhætta því einn þingmaður hefði líf ríkisstjórnarinnar í hendi sér allt kjörtímabilið. Að þessu sögðu er staðan flókin. Vera kann að lausnin á vandanum felist í samtölum VG og Sjálfstæðis- flokksins. Menn þurfa stundum að kyngja hugmynda- fræðilegu stolti til að tryggja frið, stöðugleika og sátt í samfélaginu. Friður og sátt 89% af lesendum dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 18–49 ára lesa Fréttablaðið daglega. *Fréttablaðið og Morgunblaðið. Heimild : Prentmiðlamæling Gallup júl.-sep. 2016 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r14 s k o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð SKOÐUN 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 F -A F F 0 1 B 1 F -A E B 4 1 B 1 F -A D 7 8 1 B 1 F -A C 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.