Fréttablaðið - 01.11.2016, Page 18
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
eva sjöfn Helgadóttir og baldur Hannesson vinna að lokaverkefni sínu til meistaranáms í klínískri sálfræði sem snýst um að
hanna meðferð eða fræðslu fyrir feður sem eiga barn á fyrsta aldursári. Þau baldur og eva sjöfn munu halda fimm skipta sál-
fræðslu um einkenni kvíða, þunglyndis og streitu og nota til þess hugræna atferlismeðferð. mynd/gVa
Baldur Hannesson og Eva Sjöfn
Helgadóttir vinna nú að lokaverk
efni sínu til meistaranáms í klín
ískri sálfræði við Háskólann í
Reykjavík. Lokaverkefnið er rann
sókn sem snýst um að hanna með
ferð eða fræðslu fyrir feður sem
eiga barn á fyrsta aldursári. Þau
Baldur og Eva Sjöfn munu halda
fimm skipta sálfræðslu um ein
kenni kvíða, þunglyndis og streitu
og nota til þess hugræna atferlis
meðferð. Kynningartími verður
haldinn í dag klukkan fimm í Há
skólanum í Reykjavík í stofu M102.
Baldur og Eva Sjöfn hvetja feður til
að mæta í kynningartímann og at
huga hvort þetta sé eitthvað sem
þeir eru tilbúnir að taka þátt í.
„Öllum feðrum með barn á fyrsta
aldursári er velkomið að koma
og kynna sér rannsóknina og sál
fræðslumeðferðina ítarlega. Þátt
taka þeirra er mjög mikil væg fyrir
feður framtíðarinnar og fyrir rann
sóknir á þessu sviði,“ segir Baldur.
Eva Sjöfn bætir við að mark
miðið með fræðslunni sé að kynna
fyrir feðrum hvernig bregðast
megi við vanlíðan eftir barnsburð.
„Við vonumst til þess að námskeiðið
dragi úr einkennum streitu, þung
lyndis og kvíða ef þau er til staðar í
upphafi en annars getur námskeið
ið nýst þeim sem forvörn ef upp
kemur vanlíðan síðar meir. Auk
þess verða athugaðir aðrir þætt
ir sem snúa að umhverfi feðranna
eins og samband við maka, félags
legur stuðningur og lífsgæði,“ út
skýrir hún.
Aðspurð af hverju þau hafi
ákveðið að gera þessa rannsókn
segja þau að það að eignast barn
sé mikil breyting í lífi allra og það
að annast ungbarn sé oft og tíðum
mjög krefjandi. „Það er vitað að
streita og álag í lífi hvers og eins
getur ýtt undir kvíða og þung
lyndiseinkenni. Því er mjög mikil
vægt að foreldrum, jafnt feðrum
sem mæðrum, sé veittur stuðn
ingur. Þetta er mikilvægt fyrir
fjölskylduna alla og samfélag
ið í heild sinni,“ segir Eva Sjöfn.
Baldur tekur undir þetta og segir
helstu ástæðuna fyrir því að þau
hafi ákveðið að fara af stað með
þessa rannsókn vera fyrst og
fremst þá að þau telji mikla þörf
fyrir að halda utan um feður sér
staklega þegar þeir eru að taka
sín fyrstu skref í nýju hlutverki.
„Komið hefur í ljós að feður geta
einnig þjáðst af streitu, kvíða og
þunglyndi eftir barnsburð rétt eins
og mæður og er þetta því vonandi
skref í að auka við geðþjónustu
fyrir feður. Námskeiðið er þó ekki
eingöngu ætlað nýbökuðum feðr
um heldur ætti það líka að nýtast
þeim sem eiga barn fyrir,“ lýsir
hann.
Þau Eva Sjöfn og Baldur hafa
ekki fundið neinar erlendar fyrir
myndir að námskeiðinu en segja
það líklega eiga sínar skýringar í
því að við sem þjóð stöndum mjög
framarlega hvað varðar fæðingar
orlof feðra og fleira og sé það
kannski eðlileg þróun að við séum
forsprakkar í því að sinna þess
um stóra og mikilvæga hóp í lífi
barna og mæðra. „Það eru margar
mæður sem þjást af streitu, kvíða
og/eða þunglyndi og því spyrjum
við okkur, hvers vegna feður ættu
ekki líka að upplifa svipaðar eða
sömu tilfinningar. Við höldum að
þetta sé hópur sem hefur ekki feng
ið næga þjónustu hér á landi,“ nefn
ir Baldur.
„Feður eru þó annar af aðalum
önnunaraðilum barnsins og því er
mikilvægt að hjálpa feðrum sem
eiga við tilfinningavanda að stríða.
Við viljum að það verði vitundar
vakning í þjóðfélaginu um að það
sé mikilvægt að sinna feðrum jafnt
sem mæðrum,“ segir Eva Sjöfn.
Þau eru sammála um að það sé
mikilvægt að allir geti gripið til
verkfæra hugrænnar atferlismeð
ferðar þegar þeir finni fyrir van
líðan þar sem hún hefur sýnt fram
á góðan árangur á ýmsum sviðum.
„Við vonum því að þessi sálfræðslu
meðferð eigi eftir að gagnast þeim
feðrum sem koma til okkar og að
hún sýni fram á góðan árangur svo
við getum haldið áfram með nám
skeiðið í framtíðinni.“
brugðist við van-
líðan ungra Feðra
Nýbakaðir feður geta glímt við kvíða, þunglyndi og streitu rétt eins og
mæður. Lokaverkefni tveggja sálfræðinema snýst um að hanna
meðferð eða fræðslu fyrir feður þar sem hugrænni atferlismeðferð er
beitt. Verkefnið verður kynnt í dag og eru feður hvattir til að mæta.
lilja björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
öllum feðrum með barn á fyrsta aldursári er velkomið að koma og kynna sér rann-
sókn og sálfræðslumeðferð sem baldur Hannesson og eva sjöfn Helgadóttir vinna
að á kynningarfundi í Hr í dag. nOrdiCPHOtOs/getty
2 FYRIR 1
Aðeins 1.490 kr.
Texas-ostborgari
með frönskum
Gildir til 15.12.2016.
Klipptu út og taktu með þér.
Grandagarði 11 • www.texasborgarar.is
Texas-ostborgari
með frönskum 1.000 kr.!
AIRWAVES-TILBOÐ
HEILL HEIMUR AF
SKEMMTUN VIÐ HÖNDINA
Stöð 2 Maraþon NOW er ný streymisveita fyrir
snjallsíma, spjaldtölvur, Apple TV og vefspilara.*
2now.is
2.990 KR. Á MÁNUÐI
*Þjónustan er einnig aðgengileg á myndlyklum Símans.
MÍN AÐ SKRÁ SIG
DAGAR FRÍTT3
1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A Ð ∙ h e I l s A
0
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
F
-D
7
7
0
1
B
1
F
-D
6
3
4
1
B
1
F
-D
4
F
8
1
B
1
F
-D
3
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K