Fréttablaðið - 01.11.2016, Síða 20

Fréttablaðið - 01.11.2016, Síða 20
Bandaríski lúxusbílaframleiðand- inn Cadillac hefur hug á því að loka 43% af þeim söluumboðum sem selja Cadillac-bíla vestanhafs, eða 400 umboðum samtals. Þessi sölu- umboð seldu öll minna en 50 Cad- illac-bíla í fyrra og Cadillac hefur boðið eigendum þeirra 100.000 til 180.000 dollara eingreiðslu ef þeim verður lokað. Þessi 43% af sölu- umboðum Cadillac seldu einung- is 9% af þeim Cadillac-bílum sem seldust í Bandaríkjunum í fyrra og skipta því litlu máli fyrir heild- arsölu Cadillac, en kosta aftur á móti Cadillac skildinginn. Cadil- lac er með mun fleiri söluumboð á hvern seldan bíl en samkeppnisað- ilar þess og mörg af þessum sölu- umboðum eru að selja aðrar bíl- gerðir en Cadillac. Cadillac hefur hins vegar hug á því að allir sölu- aðilar þess selji eingöngu Cadill- ac-bíla. Í nýrri aðgerðaáætlun Cad- illac ætlar fyrirtækið að skipta söluumboðunum upp í 5 flokka og ræðst afsláttur á Cadillac-bílum til þeirra af því hve marga bíla þau selja á hverju ári. Mörg smærri söluumboð Cadillac-bíla eru ekki hrifin af þessum áformum og því hefur Cadillac boðist til þess að greiða þeim fyrir að hætta sölu Cad illac-bíla. Söluumboðin hafa til loka ársins 2017 til að gera upp hug sinn um hvort þau ætli að hætta að selja Cadillac-bíla og þiggja ein- greiðsluna frá Cadillac. Cadillac vill loka 43% söluumboða sinna Cadillac. Mercedes-Benz kynnti nýjan pallbíl til leiks í Stokkhólmi á dögunum sem fengið hefur heit- ið X-Class. Bíllinn er enn á þró- unarstigi en hann mun fara í framleiðslu á næsta ári. X-Class verður með aflmiklum vélum og Mercedes-Benz ætlar að gera bíl- inn sérlega góðan hvað aksturs- eiginleika varðar og þægindi eins og þýska lúxusbílaframleiðand- anum er einum lagið. Hönnun pallbílsins þykir hafa tekist mjög vel. Hann er kraftalegur en um leið með fágaðar línur. Að aftan eru LED-ljósin mjög áberandi. Bíllinn verður búinn mikl- um lúxus í innanrýminu og mun meiru en venja er í þessum flokki bíla. Þá verður bíllinn með öllum nýjasta öryggis- og akstursbún- aði frá Mercedes-Benz. Merc- edes Benz X-Class verður með sex strokka V6 dísilvél sem skil- ar 260 hestöflum en á sama tíma er vélin sparneytin og umhverfis- mild. X-Class mun hafa burðar- getu upp á 1,1 tonn og dráttargetu upp á 3,5 tonn. Bíllinn verður í boði með 4MATIC fjórhjóladrif- inu frá Mercedes-Benz. Nýr X-Class pallbíll frá Mercedes-Benz X-Class. Nú hefur stærsta pöntun sem bresku Rolls Royce verksmiðj- urnar hafa fengið frá upphafi verið afgreidd. Fyrir um tveim- ur árum pantaði Stephen Hung 30 bíla af gerðinni Rolls Royce Phantom í Extended Wheel- base útfærslu til afnota fyrir gesti hótels síns, The 13 Hotel í Macau. Allir þessir bílar hafa nú verið afhentir og eru þeir allir í sama litnum, þ.e. rauðir. Þessir bílar kostuðu samtals 20 milljónir dollara, eða 2,3 millj- arða króna. Þessi pöntun sló út 14 bíla pöntun sem Rolls Royce fékk árið 2006, en þar var einn- ig um að ræða bíla sem nota skyldi fyrir gesti hótels í Asíu, í því tilviki fyrir Peninsula-hót- elið í Hong Kong. Tveir af þess- um 30 bílum sem afgreiddir voru fyrir hótelið í Macau eru skreytt- ir gulli hér og þar og demantar eru að auki í Rolls Royce merki þeirra. Þessir tveir bílar eru dýr- ustu Rolls Royce Phantom bílar sem framleiddir hafa verið. The 13 Hotel í Macau hefur ekki enn verið opnað, en það mun ger- ast snemma á næsta ári og ekki kemur á óvart að hótelið er ætlað ofurríku fólki og kostar dýrasta gisting þar 130.000 dollara nótt- in, eða um 15 milljónir króna. Stærsta pöntun á Rolls Royce bílum afgreidd Vespa 400. Á atvinnubílasýningunni í Hann- over í Þýskalandi í lok október frumsýndu Toyota og Arctic Trucks sameiginlega nýjan Toy- ota Hilux Double Cab pallbíl með svokallaðri AT35-breytingu. Í grundvallaratriðum felur hún í sér sömu aðgerðir og gerðar eru á öðrum bílum frá Arctic Trucks sem hannaðir eru til notkunar á heimskautasvæðum, en fyrir- tækin hafa unnið náið saman í nærri tvo áratugi að breyting- um og markaðssetningu á breytt- um Toyota Hilux og Land Cruiser jeppum. Helstu kostir breyting- arinnar á Toyota Hilux AT35 eru stærri dekk, endurhönnuð fjöðr- un til að bæta aksturseiginleika og hækkun undir lægsta punkt til að auka drif- og akstursgetu við erfiðar aðstæður, svo sem í snjó og drullu. Ekki bara Noregur, Rússland og Ísland Auk nýrrar ásýndar og spenn- andi útlits sem AT35 framkallar eru helstu kostir breytingarinn- ar þeir að bíllinn hentar við mun breiðari aðstæður en óbreytt- ur. Það á við hvort sem bíllinn er notaður til daglegra nota innan- bæjar, í atvinnurekstri eða sem þægilegur fjölskyldubíll sem nota má við margbreytilegar aðstæður á láglendi sem hálendi, allt eftir áhugamálunum hverju sinni. To- yota Hilux AT35 sem sýndur var í Hannover hefur verið boðinn til sölu í Rússlandi frá 2015 en er nú einnig fáanlegur hér á landi og í Noregi. Um þessar mundir er unnið að skráningu á breytingu bílsins fyrir Evrópumarkað sem gert er ráð fyrir að klárist fyrir árslok. Er þess að vænta að frá og með ársbyrjun 2017 verði Toyota Hilux AT35 fáanlegur á öllum mörkuðum í Evrópu. Pólfarar frá árinu 1987 Samstarf Toyota og Arctic Trucks má rekja allt aftur til árs- ins 1987 þegar hugmynd um að senda tvo mikið breytta Land Cruiser 80 bíla ásamt íslensk- um ökumönnum með sænsku pól- stofnuninni til Suðurskautslands- ins varð að veruleika. Þar voru bílarnir notaðir við afar erfið- ar aðstæður til flutninga og vís- indarannsókna og var þetta jafn- framt í fyrsta sinn sem bílar voru notaðir á Suðurskautsland- inu. Leiðangurinn sýndi fram á að mun hagkvæmara er að not- ast við bíla en snjóbeltabíla og er þessi samgöngumáti nú fyrsta val þeirra sem hyggja á erfiða leiðangra, bæði á Suðurskauts- landinu og norðurheimsskauts- svæðinu þar sem bílar frá Arctic Trucks hafa einnig verið notað- ir við hinar erfiðustu og köldustu aðstæður. Mikil sérþekking Frá því að ævintýrið hófst hefur starfsfólk Arctic Trucks byggt upp mikla og einstaka sérþekk- ingu á þessu sviði þar sem frá upphafi hefur verið haft að leiðar ljósi að bæta aksturs- eiginleika og öryggi breyttra bíla, hvort sem er við notkun innan- bæjar eða við erfiðar aðstæð- ur á jöklum eða hálendis slóðum. Starfsmenn Arctic Trucks hafa tekið þátt í fjölmörgum leið- öngrum og skilja því frá fyrstu hendi þær áskoranir sem bílarnir þurfa að geta mætt. Þessi þekk- ing og reynsla hefur gert fyrir- tækinu kleift að bjóða bíla sem mætt geta erfiðari aðstæðum en nokkur annar aðili á markaðnum. Bílum Arctic Trucks hefur verið ekið á báða pólana, þeir hafa verið notaðir í ferð stjórnenda Top Gear á norður- segulpólinn og í fjölmörgum ferðum á Suð- urskautslandinu. Þar er nú stað- settur floti bíla frá Arctic Trucks sem notaður er af vísindamönn- um á svæði þar sem ríkja ein- hverjar erfiðustu veðurfarslegu aðstæður í heiminum. Þess má geta að ökumenn á bílum Arctic Trucks settu heimsmet árið 2010 er þeir óku á Suður pólinn hraðar en nokkurt farartæki hafði áður gert. Auk Íslands starfrækir fyr- irtækið starfsstöðvar í Noregi, Bretlandi, Rússlandi, Póllandi, Finnlandi og Sameinuðu arabísku fursta dæmunum. ToyoTa Hilux aT35 senn boðinn á öllum mörkuðum í evrópu Um þessar mundir er unnið að skráningu á breytingu bílsins fyrir Evrópumarkað sem gert er ráð fyrir að klárist fyrir árslok. Er þess að vænta að frá og með ársbyrjun 2017 verði Toyota Hilux AT35 fáanlegur á öllum mörkuðum í Evrópu. Toyota Hilux AT35. www.visir.is/bilar BÍlaR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Sími 512 5457 Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is bílar Fréttablaðið 2 1. nóvember 2016 ÞRIÐJUDAGUR 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 F -D 2 8 0 1 B 1 F -D 1 4 4 1 B 1 F -D 0 0 8 1 B 1 F -C E C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.