Fréttablaðið - 01.11.2016, Page 30

Fréttablaðið - 01.11.2016, Page 30
Tesla hefur nú sent frá sér útgáfu 8.0 af hugbúnaði fyrir Model S og Model X bílana og þar er að finna margar nýjungar. Eins og ávallt er uppfærslan sótt sjálfvirkt í gegnum netið, en allir Tesla- bílar eru nettengdir og greið- ir Tesla fyrir alla notkun. Um er að ræða langþróaðasta hugbúnað- inn í sjálfstýringu í bílum sem al- menningur getur keypt. Bíllinn er þó ekki sjálfakandi, þar sem öku- maður þarf ennþá að sitja undir stýri og mögulega grípa inn í. Meiri kröfur eru nú gerðar til við- bragða ökumanns ef bíllinn telur þörf á slíku inngripi. Safnar gögnum og sendir betrumbætur Ein af nýjungunum sem fylgja út- gáfu 8.0 er fólgin í því að unnið er nánar með gögn frá radar bíls- ins sem greinir nú þrívíða mynd af umhverfinu framan við bílinn. Þannig er hægt að beita neyðar- hemlun mun fyrr en ella, sem eykur öryggi. Tesla safnar einn- ig gögnum frá bílaflota sínum í rauntíma til að betrumbæta kort og akstursupplýsingar. Eigendur bílanna hafa tekið eftir því hvern- ig bílarnir læra á götur og verða betri í að keyra sjálfir eftir því sem meira er keyrt með sjálfstýr- ingu. Gögnum er hlaðið í gagna- grunn sem sendir betrumbæt- ur til allra bíla. Nú verður þessi aðferð notuð til að „hvítmerkja“ staði sem ökumenn telja vera í lagi og hemla sjaldan á. Hægt að stjórna hitastigi inni í bílunum Allar Teslur í Evrópu eru með ókeypis Premium-áskrift að Spot ify og hefur umhverfið vegna streymis tónlistar verið þróað mikið. Einnig er hægt að nota einkareikning eiganda og samtengja við önnur tæki. Þegar hlustað er á Spotify í síma færist tónlistin sjálfkrafa í bílinn þegar sest er inn í hann. Í Bandaríkj- unum hafa 30 manns dáið á þessu ári vegna of mikils hita inni í bílum. Í þessari útgáfu stýrikerfis bílsins er hægt að stilla hámarks- hitastig sem má vera inni í bílnum. Það hefur alla tíð verið hægt að ákvarða hitastigið í bílunum með appi í símanum, en þá er það stillt fyrir ákveðinn tíma. Elon Musk, aðaleigandi Tesla, hefur gefið það upp að í útgáfu 8.1 verði einnig hægt að stilla lágmarkshitastig í bílunum. Það mun væntanlega gagnast íslenskum notendum betur, þar sem hægt er að halda bílunum frostfríum, eða við t.d. 10°C allan veturinn. Vegna stærðar rafhlöðunnar í Model S og X hefur þetta lítil áhrif á drægi þeirra. Tesla eru einu bílarnir sem fá reglulega uppfærslu á stýrikerfi og öllum hugbúnaði og batna þeir því sífellt með tímanum. Ljóst er að aðrir framleiðendur munu reyna að feta sig í þessa átt með tímanum, enda eykur þetta upp- lifun, öryggi og gæði bílanna. Tesla sendir uppfært stýrikerfi 8.0 í alla bíla Tesla hefur nú sent frá sér hugbúnað fyrir Model S og Model X bílana. Vespa er þekktara fyrir framleiðslu léttmótorhjóla en bíla en fyrirtækið framleiddi hins vegar þennan Vespa 400 bíl á árunum 1957 til 1961. Framleiðsla hans náði mestum hæðum árið 1958 er framleiddir voru 12.130 bílar en bæði sölu og framleiðslu fór hnignandi eftir það og átti það helst skýringar í því að bíllinn var afllaus, þótti ansi lítill, með afar skrítna skiptingu og einkar illa hljóðeinangraður. Það hefur þó ekki komið veg fyrir það að nú eru þessir bílar verðmætir söfnunarbílar, enda ekki ýkja mörg eintök til af þeim svona heilleg eins og þessi sem hér sést. Nú er verið að bjóða þennan bíl á eBay á 39.975 dollara, eða 4,7 milljónir króna, en enginn hefur þó ennþá stokkið á það verð og mun lægri tilboð komin í hann. Þessu tiltekna eintaki, sem er af árgerð 1960, hefur aðeins verið ekið 8.000 kílómetra og er hann því svo til ónotaður og eiginlega ekkert sést á honum. Allir íhlutir hans eru uppruna­ legir og virka sem skyldi. Bíllinn er að sjálfsögðu í ökuhæfu ástandi. Vespa 400 er með 14 hestafla vél og hámarkshraða sem er 83,4 km/klst. og því má ná á um 25 sekúndum. Uppgefin eyðsla hans í breskum prófunum var 5,11 lítrar. Vespa 400 boðin upp á eBay á 39.950 dollara 522 4600 www.krokur.net Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja. Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina. Krókur býður m.a. uppá: • Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum Taktu Krók á leiðarenda Suðurhraun 3, 210 Garðabær á þinni leið Bílar Fréttablaðið 12 1. nóvember 2016 ÞRIÐJUDAGUR 0 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 1 F -D 7 7 0 1 B 1 F -D 6 3 4 1 B 1 F -D 4 F 8 1 B 1 F -D 3 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.