Fréttablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 4
stjórnsýsla Framkvæmdir við
sumarhús við Þingvallavatn eru ekki
í samræmi við heimildir Þingvalla-
nefndar sem vill neyta forkaupsréttar
og eignast steyptan grunn á lóðinni
fyrir 70 milljónir króna.
Í sumar sem leið var auglýstur til sölu
steyptur grunnur að nýju sumarhúsi í
þjóðgarðinum á bakka Þingvallavatns.
Eigendurnir, hjónin Bogi Pálsson og
Sólveig Dóra Magnúsdóttir, fengu 70
milljóna króna kauptilboð frá Gísla
Haukssyni, eiganda fasteignafélagsins
Gamma.
Þingvallanefnd ákvað eftir umfjöll-
un fjölmiðla að neyta forkaupsréttar
og óskaði í lok október eftir afstöðu
forsætisráðuneytisins til fjármögn-
unar.
Fram kemur í tölvupóstssamskipt-
um starfsmanna forsætisráðuneytis-
ins að ekki liggi peningar á lausu fyrir
kaupunum. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins verður ákvörðun um
málið látin bíða þar til ný ríkisstjórn
tekur við.
Vandséð er að byggingin á umræddri
leigulóð í eigu ríkisins sé í samræmi við
heimildir frá Þingvallanefnd. Í ágúst
2006 óskuðu lóðar hafarnir eftir því að
tengja saman aðalhús og svefnskála
með nýju anddyri í stað þess að þau
væru tengd saman með palli og skjól-
vegg.
„Öll hönnunin miðar að því að raska
ekki þeim jarðvegi sem húsið stendur
á og í kring um það er og verður því
alfarið notast við sömu undirstöður
og núverandi hús eru byggð á, auk
þess sem notast verður við eins mikið
af núverandi byggingarefni og ástand
þess leyfir,“ segir í erindi Boga Páls-
sonar og Sólveigar Dóru Magnúsdóttur
til Þingvallanefndar sem samþykkti
beiðnina enda væri haft að leiðarljósi
að raska sem minnstu.
Framkvæmdirnar sem síðan hófust
voru ekki í samræmi við það sem
Þingvallanefnd samþykkti. „Í ljós
hefur komið að lóðarleiguhafar létu
rífa sumarhúsin sem stóðu á lóðinni
árið 2008 og í stað þeirra var steyptur
133,7 fermetra grunnur úr steinsteypu
á stöplum með kjallara en stærð kjall-
arans er ekki innifalin í framangreindri
stærð,“ segir Ólafur Örn Haraldsson
þjóðgarðsvörður í bréfi til forsætis-
ráðuneytisins í lok október síðast-
liðins.
Í bréfi þjóðgarðsvarðar kemur fram
að fyrirhuguð bygging sé í „verulegri
andstöðu við gildandi byggingarskil-
mála innan þjóðgarðsins“ og að „veru-
legs ósamræmis gætir á milli fram-
kvæmdanna sem þegar eru hafnar og
orðalags bókunar nefndarinnar“ vegna
umsóknar lóðarhafanna.
„Þingvallanefnd telur að þar sem
sumarhúsin voru rifin og steyptur
var í stað þeirra grunnur á stöplum
ásamt kjallara séu hugsanlega í reynd
brostnar forsendur fyrir því að endur-
bygging sumarhúsanna teljist til þeirra
lagfæringa eða breytinga sem þegar var
búið að samþykkja,“ skrifar þjóðgarðs-
vörður forsætisráðuneytinu.
Leigusamningurinn við Boga og Sól-
veigu var endurnýjaður til tíu ára frá
1. janúar 2011.
„Óheimilt er að valda jarðraski eða
reisa mannvirki á hinni leigðu lóð eða
nágrenni hennar nema að fengnu sam-
þykki Þingvallanefndar,“ er meðal ann-
ars undirstrikað í leigusamningnum.
Þó að framkvæmdirnar á lóðinni
virðist unnar í leyfisleysi þá vill Þing-
vallanefnd að ríkið kaupi þar steypu-
grunn fyrir 70 milljónir króna. Ekki á
að beita ákvæði leigusamningsins um
vanefndir. „Vanefni leigutaki skyldur
sínar samkvæmt samningi þessum
hefur hann fyrirgert leigurétti sínum,“
segir í samningnum. gar@frettabladid.is
Ekki ráð á grunni sem steyptur
var án leyfis Þingvallanefndar
Forsætisráðuneytið hefur ekki svarað ósk um 70 milljóna króna framlag svo Þingvallanefnd geti keypt 137
fermetra húsgrunn á leigulóð ríkisins í þjóðgarðinum. Nefndin telur framkvæmdir á lóðinni „hugsanlega“
ekki í samræmi við leyfi sem nefndin veitti. Til stóð að tengja tvö hús með anddyri í staðinn fyrir skjólvegg.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardagar 11–15 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
„Ég er lesblind og þetta er
fyrsta þykka bókin sem ég
nenni að klára alveg […] Þetta
er skemmtilegasta bók sem ég
hef lesið og mér finnst að
hún ætti að vera fræg
því hún er svo fyndin.
U.A. 9 ára / Fréttatíminn
(Um Tomma Teits – Undraheiminn minn)
„Verði mannvirki byggt á grunninum er ljóst að það verður stærsta mannvirki
innan þjóðgarðsins í eigu einstaklinga,“ segir í bréfi þjóðgarðsvarðar til forsætis-
ráðuneytisins. Mynd/SkjáSkot af auglýSingu faSteignaMarkaðarinS
stjórnsýsla Steinþór Pálsson, banka-
stjóri Landsbankans, og bankaráð
bankans hafa náð samkomulagi um
að hann hætti störfum hjá bankanum.
Tilkynning þessa efnis var send út
í gær. Ekki kemur fram í tilkynningu
hverjar séu ástæður þess að Steinþór
hættir, en bankinn hefur mikið verið
gagnrýndur vegna sölu eignarhlutar í
Borgun, meðal annars í nýrri skýrslu
Ríkisendurskoðunar.
Haft er eftir Steinþóri í tilkynn-
ingu frá bankanum að síðastliðin
sex og hálft ár hafi verið viðburðar-
rík og gríðarlega mikið hafi áunnist
við að endurreisa fjárhag heimila og
fyrirtækja. „Landsbankinn hefur tekið
stakkaskiptum á þessum tíma og ég
skil sáttur við mín störf,“ segir Steinþór
í tilkynningunni. Hann vildi ekki tjá sig
frekar um starfslokin þegar eftir því var
leitað og vísaði í tilkynningu bankans.
Haft er eftir Helgu Björk Eiríks-
dóttur í tilkynningu að mörg krefj-
andi úrlausnarefni hafi verið leidd til
lykta undir forystu Steinþórs og staða
bankans styrkst. Við starfi Steinþórs
tekur tímabundið Hreiðar Bjarnason,
framkvæmdastjóri fjármála, en staða
bankastjóra verður auglýst fljótlega.
Rekstur Landsbankans var góður
undir stjórn Steinþórs og ljóst er að
hann er ekki að hætta hjá bankanum
af því að hann stóð sig ekki vel við
rekstur hans. Er afkoma bankans besti
vitnisburður þess en hann naut trausts
bankaráðsins alveg þangað til í síðustu
viku.
Samanlagður hagnaður Lands-
bankans á starfstíma Steinþórs Páls-
sonar í bankanum nemur um 170
milljörðum króna samkvæmt árs-
reikningum bankans frá 2010 og til
dagsins í dag og níu mánaða uppgjöri
þessa árs. Á sama tímabili hefur bank-
inn greitt ríkissjóði 82 milljarða króna
í arð. – hh / þþ
Steinþór hættir sem bankastjóri Landsbankans
Steinþór Pálsson hættir sem bankastjóri eftir að hafa stýrt landsbankum í á
sjöunda ár. fréttablaðið/VilhelM
Menntun Í dag munu 66 doktorar,
sem brautskráðst hafa frá Háskóla
Íslands á tímabilinu 1. desember
2015 til 1. desember 2016, taka
við gullmerki skólans við hátíð-
lega athöfn. Þriðja árið í röð nær
skólinn markmiði sínu um 60-70
brautskráningar úr doktorsnámi á
ári eins og kveðið er á um í stefnu
skólans.
Viðstaddur athöfnina verður
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, sem flytur ávarp. Enn frem-
ur flytur Sunna Gestsdóttir, doktor
í menntavísindum, ávarp fyrir hönd
brautskráðra doktora. – jhh
HÍ heiðrar
nýdoktora
tækni GoPro hyggst reka fimmtán
prósent starfsmanna sinna og loka
afþreyingardeild fyrirtækisins. Fyrir-
tækið, sem skilar ekki hagnaði, mun
þannig skera niður um 200 störf. Frá
þessu var greint í fréttatilkynningu
sem GoPro sendi frá sér í gær.
Afþreyingardeild GoPro hefur leit-
ast við að markaðssetja íþróttamynd-
bönd, tekin á myndavélar fyrirtækis-
ins. Það hefur ekki gengið sem skyldi
og mun fyrirtækið því beina sjónum
sínum eingöngu að framleiðslu
myndavéla og myndavéladróna.
„Eftirspurn eftir vörum GoPro
er mikil og við höfum nú breytt
áherslum okkar til að einbeita okkur
að kjarna fyrirtækis okkar,“ segir for-
stjórinn Nicholas Woodman í frétta-
tilkynningunni. – þea
GoPro ræðst í
niðurskurð
Lóðarleiguhafar létu
rífa sumarhúsin sem
stóðu á lóðinni árið 2008 og
í stað þeirra var steyptur
133,7 fermetra
grunnur.
Ólafur Örn Haralds-
son, þjóðgarðs-
vörður
15%
starfsmanna GoPro missa
vinnuna á næstunni.
Rekstur Landsbankans
var góður undir stjórn
Steinþórs og ljóst er að hann
er ekki að hætta hjá bank-
anum af því að hann stóð sig
ekki vel við rekstur hans.
1 . d e s e M b e r 2 0 1 6 F i M M t u d a G u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
0
1
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
F
-5
E
E
0
1
B
7
F
-5
D
A
4
1
B
7
F
-5
C
6
8
1
B
7
F
-5
B
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K