Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 32
Ein af skyldum Fríkirkjunnar er að tryggja þjónustu um land allt. Fríkirkjan er óháð landfræðilegum mörkum og fólk um allt land tilheyrir henni. Frí- kirkjan leitast við að sinna þjón- ustu um land allt m.a. með góðum samskiptum sem er nokkuð auðvelt að gera með fjölbreyttri nútímasamskiptatækni sem og með góðum samgöngum. Skyld- ur evangelísk lúterskra kirkna helgast eingöngu af köllun Jesú Krists og sú köllun er og á að vera óháð landfræðilegum mörkum og landamærum veraldlegra þjóð- ríkja. Nú ritaði biskupsritari þjóð- kirkjunnar, Þorvaldur Víðisson, hér í blaðið þann 21.11. sl. „Þjóð- kirkjan ber þær skyldur umfram aðra kristna söfnuði á Íslandi að tryggja þjónustu um land allt.“ Hér gætir einhvers misskilnings. Hér virðist það gefið í skyn að köllun Krists til þjóðkirkjunnar sé mikil- vægari, helgari eða a.m.k. umfram aðrar lúterskar kirkjur. Fríkirkjan er ekki einn af söfn- uðum þjóðkirkjustofnunarinnar. Fríkirkjan í Reykjavík er sjálfstætt evangelískt lúterskt trúfélag og hún á sína eigin sögu sem nær langt aftur til þess tíma er við feng- um trúfrelsi. Í 62 gr. Stjórnarskrár Íslands segir: „Hin evangelíska lút- erska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda …“ Því er hin lúterska Fríkirkja sam- kvæmt stjórnarskrá sjálfstæður hluti af „þjóðarkirkjunni“ í víðri merkingu þess orðs en lýtur ekki stjórn Biskupsstofu eða kirkju- þings þjóðkirkjustofnunarinnar. Æðri köllun þjóðkirkjunnar? Starfseiningar þjóðkirkjustofnun- arinnar eru aftur á móti afmark- aðar með landfræðilegum sóknar- mörkum. Það er m.a. frá þeim tíma þegar sóknarmörk ríkiskirkjunnar voru hluti af stjórnsýslumörkum og stjórntækjum danska ríkisins þegar við vorum þeirra nýlenda. Reyndar nær hugmyndin um land- fræðileg sóknarmörk allt aftur til miðalda og þess tíma kristindóms þegar trúarstríð geisuðu í Evrópu og kirkjustofnanir börðust um landfræðileg yfirráðasvæði til að drottna yfir. Sá kristindómur olli það miklu böli að hann hefur með tímanum að mestu afkristnað Evr- ópu og svipt hefðbundnar ríkis- kirkjur trúverðugleika. Hér á öldum áður höfðu emb- ættismenn ríkiskirkjunnar hlut- verki að gegna víða um land gagn- vart hinu veraldlega yfirvaldi. Það var á sviði, uppfræðslu og mennta, skráningar upplýsinga um heilsu- far, á sviði manntals og sálgæslu. Öll þau hlutverk eru nú komin á hendur annarra fagstétta og stofn- ana. Aðeins hið trúarlega svið er nú eftir og í nútíma samfélagi telst það til einkamála. Það að ríkislaunaður embættis- maður þjóðkirkjunnar hafi búsetu á tilteknu svæði gerir hvorki jörð- ina sem hann stendur á, ákveðin landsvæði né samfélagið sem þar býr „meira kristið“. Forræðis- hyggja í anda miðaldakirkjunnar á þessu sviði á ekki lengur við í dag og veldur skaða. Samkvæmt Lúter eru allir kristnir menn prestar og köllun eins er ekki annarri köllun æðri. Tilraunir þjóðkirkjustofnunar- innar til að skapa henni hlutverk umfram önnur kristin trúfélög sem dæmigerðri ríkisstofnun eins og t.d. RÚV eru ótrúverðugar og ganga alls ekki upp. Vísað er í óljósar borgara- legar og þjóðernislegar skyldur sem talsmenn þjóðkirkjunnar telja hana gegna umfram önnur trú- félög en þær eru einfaldlega ekki lengur til staðar. Eða að það eru almennar skyldur sem allir þegnar landsins bera en hafa ósköp lítið með kirkju eða kristni að gera. Það sem að baki liggur er þörfin fyrir að réttlæta árlegar milljarðagreiðslur til þjóðkirkjunnar umfram önnur evangelísk lútersk trúfélög sem ættu að njóta jafnræðis. Fagrar hugsjónir Markmið Fríkirkjunnar er ekki að hún vaxi sem mest og verði sjálfri sér til dýrðar. Hún tekur ekki miðaldakirkjuna eða ríkis- kirkjur til fyrirmyndar. Markmið hennar er m.a. að stuðla að lýð- ræðislegu jafnræðisfyrirkomulagi lífsskoðana og trúmála hér á landi. Hennar tilgangur er m.a. að vera vettvangur fyrir einlæga trúarleit og tjáningu, þar sem fólk samein- ast um bjarta lífssýn, fagrar vonir í anda Krists. Þegar þeim mark- miðum er náð má Fríkirkjan vel leysast upp í frumeiningar sínar. En nú þurfum við öll í sameiningu að skapa þjóðinni trúverðuga og lýðræðislega umgjörð lífsskoðana og trúmála. Þörfin hefur sjaldan verið brýnni en einmitt nú. Þegar margir óttast vaxandi erlend áhrif framandi trúarbragða hér á landi þá eru það áherslur á mannrétt- indi sem vernda okkur best, ekki afturhvarf til kirkju miðalda. Með því að leggja áherslu á mannrétt- indi og að manngildið er æðra allri bókstafshyggju, æðra allri þröng- sýnni stofnunarhyggju, þá erum við að starfa í anda Jesú frá Nasaret og hins þýska Lúters sem við kennum okkar kirkjudeild við. Það er í anda okkar æðri máttar, þess frumglæðis ljóssins sem við förum brátt að syngja um á aðventu og ljósanna hátíð. Skyldur Fríkirkjunnar og köllun Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur við Tjörnina Þar af leiðandi hafa fjölmargar greinar verið skrifaðar í áraraðir í íslenskum fjölmiðlum og fréttir birtar á vefsíðum af allmörgum mistökum og óviðeigandi hegðun af völdum þjónustu Barnaverndar gegnum tíðina, við verðum því að spyrja okkur að því hvort börnin séu í raun undir alvöru verndarvæng hjá þessari stofnun. l Er íslenska ríkið að kappkosta að reyna allar mögulegar aðgerðir til að tryggja og vernda hagsmuni Íslensk stjórnvöld eru afar vanþróuð í málefnum varðandi barnavernd og jafnrétti foreldra François Scheefer fv. formaður félags um vináttu og nemenda- skipti Frakklands og Íslands KRINGLUNNI, 2 HÆÐ. SÍMI 568 9111 Breiðari lespunktur með nýrri tækni barna sem eru fórnarlömb í miðjum hjónaskilnaði foreldra þeirra? l Er íslenska ríkið að kappkosta að virða grundvallarréttindi barna, eins og að minnast á evrópska mannréttindasáttmálann og grund- vallarfrelsið og jafnvel líka New York alþjóðasamninginn um rétt- indi barnsins? l Væntanlega ekki, sökum þess sívaxandi fjölda barna sem fá ekki að sjá annað foreldrið sitt. Við þann- ig aðstæður er komið í veg fyrir grundvallarrétt þeirra til fjölskyldu- lífs þrátt fyrir að sáttmálarnir tryggi það í samræmi við framangreinda samninga sem Ísland hefur fullgilt. l Er það ástæða þess að íslenska ríkið, ólíkt því sem er í mörgum öðrum Evrópulöndum, fellst ekki á að fullgilda fjölda viðbóta og mjög mikilvæga samninga sem miða samt að áhuga á vernd barnsins? Eins og við best vitum, þá er „Evr- ópski sáttmálinn (nr.160) um nýt- ingu réttinda barna“ gerður í Strass- borg á Evrópuþinginu 25.  janúar 1996 og hefur aldrei verið fullgiltur af Íslandi þrátt fyrir eftirkallanir frá Evrópuþinginu. En þessi samningur styrkir New York alþjóðasamning- inn um réttindi barnsins sem er mikilvægt tæki til að gera börnum kleift að nýta rétt sinn. Þar til annað kemur í ljós, þá hefur „tilgerður sáttmáli síðan 19. október 1996 um dómsvald, gild- andi lög, viðurkenningu, fullnustu og samvinnustofnun vegna ábyrgð- ar foreldra og ráðstafanir til verndar börnum“ frá Haag aldrei verið full- giltur af Íslandi þrátt fyrir ítrekanir frá Evrópuþinginu. Á sama hátt, þrátt fyrir endur- tekna kröfu Evrópuþingsins frá október 2015, hefur Ísland enn ekki fullgilt „Sáttmála (nr.192) um sam- band varðandi börn“ sem var gerður í Strassborg þann 15. maí 2003, sem er mikilvæg stoð til að styrkja nýtingu og verndun persónulegra sambanda barna og þá sérstaklega til að styrkja framkvæmdir gildandi alþjóðlegra löggerninga á þessu sviði. Við skulum muna að síðasta vetur hafði Guðmundur Steingrímsson alþingismaður þegar leitt þetta óeðlilega ástand í ljós, að enn í dag eru börn svipt réttindum sínum til að viðhalda og lifa með bæði móður- og föðurfjölskyldu sinni eftir afleiðingar skilnaðar. Þúsund- um foreldra, aðallega feðrum, vegna núríkjandi einhliða, hlutdrægrar sterkrar stöðu mæðra í kerfinu í landinu, er ólöglega og ómannúð- lega hafnað: „Eftir skilnað hætti annað foreldrið að vera til […] Eftir skilnað er faðir inn ekki leng ur faðir, borg ar bara meðlag. Báðir for eldr ar eru for eldr ar og hafa rík ar skyld ur.“ Það er ekki aðeins útilokun þeirra, heldur einnig fyrst og fremst fullkomin sönnun þess að jafnrétti foreldra er ekki til staðar þegar það kemur að hatrömmum skilnaðar- málum. Ísland heldur áfram að hrópa, fyrir allt og ekkert, um að það verði að vera algjört jafnrétti milli karla og kvenna, rök samt heyrð í síðustu forsetakosningaumræðu. Það er frábært, en íslensk stjórnvöld ættu í raun að setja þessi jafnréttismál í framkvæmd alls staðar, byrja á mæðrum og feðrum þar sem allir verða að hafa sömu réttindi og sömu skyldur þrátt fyrir skilnað þeirra. Börn skilja aldrei við foreldra sína. Það verður að ábyrgjast að grundvallarréttindi þeirra séu algerlega og að fullu tryggð, eins og foreldra þeirra, til að byrja með lög- giltur réttur til að vera í sambandi og lifa saman. Hvað annað gæti verið eðlilegra? Þar til annað kemur í ljós, þá hefur „tilgerður sáttmáli síðan 19. október 1996 um dómsvald, gildandi lög, viðurkenningu, fullnustu og samvinnustofnun vegna ábyrgðar foreldra og ráðstaf- anir til verndar börnum“ frá Haag aldrei verið fullgiltur af Íslandi þrátt fyrir ítrekanir frá Evrópuþinginu. Það sem að baki liggur er þörfin fyrir að réttlæta ár- legar milljarðagreiðslur til þjóðkirkjunnar umfram önnur evangelísk lútersk trúfélög sem ættu að njóta jafnræðis. 1 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U d A G U r32 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð 0 1 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :2 0 F B 0 8 8 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 7 F -5 0 1 0 1 B 7 F -4 E D 4 1 B 7 F -4 D 9 8 1 B 7 F -4 C 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.