Fréttablaðið - 21.07.2016, Side 24

Fréttablaðið - 21.07.2016, Side 24
Rapparinn $igmund er ættaður úr póstnúmeri 101, hjarta Reykavík­ ur að eigin sögn. Í byrjun sumars kom úr fyrsta plata hans, Glópa­ gull, sem hann vann með teym­ inu sínu en þeir félagarnir hafa samið tónlist saman undanfarið ár. Hann lýsir fatastíl sínum sem full­ komnum milliveg á milli „street­ wear“ og „menswear“ og segist hafa áhuga á vönduðum vörum og flíkum sem eru framleiddar í tak­ mörkuðu upplagi. Hvenær fékkstu áHuga á tísku? Ég hef haft áhuga á tísku í langan tíma en sá áhugi hefur stigmagnast á síðustu árum. Sjálfur hef ég góðan smekk fyrir merkjavöru og geng um í ein­ hverju fersku á hverjum degi. Næsta haust hef ég nám við LHÍ þar sem ég mun læra fatahönnun. Hvernig blandast tónlistar- og tísku- Heimurinn? Tónlist og tíska blandast mikið saman. Allir tónlistar­ menn og listamenn sem ég fylgist með eru með góðan stíl. Ég fylgist að sjálf­ sögðu með hverju þeir klæðast og út frá því kynnist maður nýjum straumum. Hvernig fylgist þú með tískunni? Það er auðvelt að fylgjast með tísku með öllum þessum samfélagsmiðlum. Instagram er góður miðill til að vera með á nótunum en annars eru blöð eins og Vouge eða Fantastic Man í uppáhaldi. áttu þér uppá- Haldsverslanir? Heima eru það Húrra Reykjavík og JÖR. Annars versla ég mest á netinu eða erlendis því það er ekki hægt að nálgast megnið af merkjunum sem ég fíla hér á landi. Uppá­ haldsbúðirnar erlendis eru Acne Studios, A Bathing Ape og Supreme. Hverjir eru uppá- HaldsHönnuðirnir? Heima er það Guð­ mundur Jörundsson og teymið á bak við JÖR. Erlendis myndi ég segja að Virgil Abloh, sem er á bak við fata­ merkið Off White, stæði upp úr í ár. Einnig mætti nefna Jerry Lorenzo hjá Fear of God. áttu þér uppáHalds- flík? Það er jakki frá Bathing Ape sem ég keypti í New York. Ég myndi segja að hann lýsi mér vel. bestu og verstu fatakaup? Fyrrnefndur Bathing Ape­jakki var gerður í mjög takmörkuðu upplagi þannig að ég var heppinn að ná eintaki. Ég get ekki nefnt neitt sem mín verstu kaup, ég geri bara góða díla. notar þú fylgiHluti? Fylgi­ hlutir skipta miklu máli og geta haft mikil áhrif á heildarútkom­ una. Ég nota eyrnalokka, hringa, keðjur, úr og sólgleraugu. Ég fer ekki út úr húsi án þess að vera með gullhringana mína. Sólgler­ augu eru einnig í miklu uppáhaldi hjá mér en ég á ein góð frá Ver­ sace og önnur frá Acne sem eru að koma fersk inn í sumar. Hvað er að gerast í tónlist- inni? Við gáfum nýlega út fyrstu plötuna okkar og síðan þá höfum við verið að spila á tónleikum hér og þar, t.d. Secret Solstice. Í lok júlí fer ég í þriggja vikna ferð um Japan og kem heim rétt áður en ég byrja í fatahönnunarnáminu. Þessa dagana erum við að vinna í nýrri tónlist sem við ætlum að gefa út í kringum Airwaves­tón­ listarhátíðina en þar komum við fram í fyrsta skipti. Góðir tímar fram undan. starri@365.is fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis: sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, vera einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 $igmund klæðist hér peysu frá Acne Studios og er með sólgleraugu frá Versace. MYNDIR/HANNA Hér klæðist $igmund Yeezy 750 Boost skóm sem eru samstarfsverk- efni Adidas og Kanye West. Buxurnar eru frá Levi’s og peysan frá Supreme. Jakkinn er frá A Bathing Ape og er í miklu uppáhaldi. Sólgleraugun eru frá Acne Studios. Buxur frá Levi’s og peysan frá Acne Studios. Skórnir eru Yeezy 750 Boost sem er samstarfsverkefni Adidas og Kanye West. Sólgleraugun eru frá Acne Studios. gerir góða díla  $igmund er rappari úr 101 Reykjavík sem hefur áhuga á vönduðum vörum og flíkum sem eru framleiddar í takmörkuðu upplagi. Réttu fylgihlutirnir skipta miklu máli og áhugi á tísku er alltaf að aukast. ÚTSALA! ÚTSALA! ÚTSALA! - allt að 60% afsláttur - Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga kl. 11–18 laugardaga kl. 11-15 Stretch og háar í mittið Stretchbuxur á 13.900 kr. - einn litur - stærð 34-52 - rennilás neðst á skálmum Gallabuxur á 14.900 kr. - 6 litir: hvítt, svart, blátt, beige, ljósblátt, ljósbleikt - stærð 34-48 - rennilás neðst á skálmum Endalaust ENDALAUST NET 1817 365.is 2 1 . j ú l í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R2 F ó l k ∙ k y n n I n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A R b l A ð ∙ T í s k A 2 1 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 0 E -5 8 7 4 1 A 0 E -5 7 3 8 1 A 0 E -5 5 F C 1 A 0 E -5 4 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 0 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.