Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 29
SwimMiami-tískuvikan var hald- in í Flórída í síðustu viku en þar kynntu fremstu sundfatahönnuð- ir heims brakandi ferskan sund- fatnað á konur og karla. Mikið var um útskorna sundboli, rendur, blúndur og bönd hingað og þangað. Svo virðist sem minna sé lagt upp úr því að konur fái jafnt sund- fata far en áður og ljóst að sumar eiga eftir að koma skemmtilega munstraðir heim af ströndinni. Sundfötin voru hins vegar mörg prýdd fallegum smáatriðum og útsaumi og eru mörg hver mikið fyrir augað eins og sjá má. Tím- inn verður svo að leiða í ljós hvort þau berist hingað heim á sundlaug- arbakkana. Ekkert að stressa sig á sundbolafari Antonio Banderas tekur að sér hlutverk tískurisans Gianni Versace í nýrri kvimynd um ævi hins síðarnefnda. Banderas leikur Versace Hjartaknúsarinn Antonio Banderas hefur tekið að sér hlutverk Gianni Ver- sace í kvikmynd um ævi tískuhönnuðar- ins ástsæla sem fæddist árið 1946 á Ít- alíu og var myrtur 15. júlí 1997 á tröpp- unum heima hjá sér í Miami. Versace var einn merkasti og áhrifamesti tískuhönn- uður tuttugustu aldarinnar og tísku- hús hans Versace, sem nú er stjórnað af systur hans Donatellu, er enn þá meðal risa tískuheimsins. Banderas er mjög spenntur fyrir hlutverkinu sem hann segir sameina helstu ástríður sínar í líf- inu; leiklist og fatahönnun, en á síðasta ári skráði hann sig einmitt í virtan fata- hönnunarháskóla til að læra að hanna karlmannaföt. Billie August leikstýrir myndinni sem verður frumsýnd á næsta ári þegar tuttugu ár verða liðin frá and- láti Versace. Fjölskylda Versace sendi frá sér yfirlýsingu á dögunum þar sem kemur fram að hún muni ekki taka neinn þátt í gerð myndarinnar sem bæri að líta á sem „skáldverk og ekkert annað“. Mikið af upplýsingum er þó til um líf tískurisans og hægt að ganga út frá því að mynd um ævi hans verði seint lág- stemmd eða leiðinleg. Hin nýtrúlofaða Pippa Middleton, 32 ára, mætti á mánudag í hina ár- legu garðveislu hjá Frost-fjölskyld- unni í London. Veislan er fjáröfl- un í samvinnu við bresku hjarta- verndarsamtökin. Pippa var í glæsilegum sumarkjól úr silki frá breska tískumerkinu L.K. Bennet. Bæði Pippa og systir hennar, Kate hertogaynja, eru leiðandi í tísku- heiminum. Þær styrkja því breska tískuhönnuði með því að klæðast vörum frá þeim. Pippa kom í veisluna með Eug- enie prinsessu og virtist fara vel á með þeim. Það var um síðustu helgi sem James Matthews, 40 ára, fór á hnén til að biðja henn- ar í rómantískri ferð um England. Pippa í silki F ó l k ∙ k y n n i n g a r b l a ð ∙ X X X X X X X X 7F i M M T U D a g U r 2 1 . j ú l í 2 0 1 6 F ó l k ∙ k y n i n g a r b l a ð ∙ T í s k a 2 1 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 6 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 0 E -3 0 F 4 1 A 0 E -2 F B 8 1 A 0 E -2 E 7 C 1 A 0 E -2 D 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 0 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.