Morgunblaðið - 16.10.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2015
Árlegt þing Hringborðs norðurslóða
– Arctic Circle verður sett í dag
klukkan 8:30 í Hörpu. Hafa rúmlega
1.800 þátttakendur frá 50 löndum
skráð sig á þingið.
Meðal ræðumanna á opnunar-
fundi þingsins verða auk forseta Ís-
lands, Ólafs Ragnars Grímssonar,
Albert II. Mónakófursti, Philippe
Couillard, forsætisráðherra Quebec
í Kanada, Artur Chilingarov, sér-
stakur sendimaður Vladímírs Pút-
íns, Rússlandsforseta, Carter Ro-
bers, forseti World Wildlife Fund,
og Okalik Eegeesiak, formaður
frumbyggjasamtaka, Inuit Circ-
umpolar Council. Þá flytur Wang Yi,
utanríkisráðherra Kína, ræðu á
myndbandi.
Á opnunardegi þingsins verða
sendinefndir frá Kína og Þýskalandi
sem Xi Jinping, forseti Kína, og
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, ákváðu að senda til að kynna
stefnu og aðgerðir ríkjanna í mál-
efnum norðurslóða.
Þá verður einnig fjallað um fram-
tíð Grænlands og mun utanríkis- og
iðnarðarráðherra Grænlands, Vittus
Qujaukitsoq, sitja fyrir svörum.
François Hollande, forseti Frakk-
lands, kemur til þingsins í Hörpu
beint frá leiðtogafundi Evrópusam-
bandsins og flytur síðdegis stefnu-
ræðu þingsins þar sem hann gerir
grein fyrir mikilvægi norðurslóða
með tilliti til nýrra samninga um
loftslagsmál sem gera á í París í des-
ember.
Morgunblaðið/Eggert
Ráðstefna Frá setningu Hringborðs norðurslóða í Hörpu á síðasta ári.
Hringborð norðurslóða sett í dag
1.800 þátttak-
endur frá 50 lönd-
um skráðir á þingið
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Peysur
Verð 8.900 kr.
str. 40–56/68 3 litir
Laugavegi 63 • S: 551 4422
SKOÐIÐ LAXDAL.IS
KJÓLADAGAR (í nokkra daga)
20% AFSLÁTTUR
AF GERRY WEBER OG
BETTY BARCLAY KJÓLUM
MEIRA ÚRVAL
MEIRI GÆÐI
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
EFTIR MÁLI
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061
Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 10-18
Betri birtustjórnun
TWIN LIGHT
GARDÍNUR
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 Flot
tir í fötum
Við seljum frægu
buxurnar
Vorum að fá nýja sendingu
– frábært úrval
Ríkissjóður hefur greitt 286 millj-
ónir króna til stjórnmálasamtaka
fyrir þetta ár. Framlagið skiptist á
milli flokka eftir atkvæðum í síð-
ustu kosningum.
Þannig fær Sjálfstæðisflokkurinn
mest í ár, tæpa 81 milljón króna,
enda með flest atkvæði í síðustu
kosningum. Hann fær 28,3% af
framlagi ríkisins til flokkanna. Þar
á eftir kemur Framsóknarflokk-
urinn með rétt rúmar 74 milljónir
króna, eða 25,9% fjárins.
Af stjórnarandstöðuflokkunum
fékk Samfylkingin mest, rétt tæpar
39 milljónir króna, eða 13,6%. Þar á
eftir koma Vinstri græn með tæpar
33 milljónir
króna eða 11,5%,
Björt framtíð
með 25 milljónir
króna eða 8,7%
og Píratar með
um 15,5 miljónir
króna eða 5,4%.
Dögun, sem
hlaut 3,1% at-
kvæða í síðustu kosningum, og
Flokkur heimilanna sem fékk 3,02%
eru einu minni framboðin sem fá
framlag frá ríkinu, rúmar níu millj-
ónir hvor flokkur, að því er fram
kemur á heimasíðu fjármála- og
efnahagsráðuneytis.
286 milljónir króna til stjórnmálasamtaka