Morgunblaðið - 16.10.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.10.2015, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2015 Slóvakísk-austurríska tríóið Lotz, skipað bræðrunum Ronald og Ro- bert Šebesta og Sylvester Persc- hler, sem leika á endurgerðir af bassetthornum eftir hinn virta hljóðfærasmið Theodor Lotz, held- ur tónleika í Skálholtskirkju í dag og á morgun í Listasafni Sigurjóns kl. 18. Tvennir tónleikar með tríóinu Lotz Tríó Lotz leikur í dag og á morgun. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hin kunna sinfóníuhljómsveit Phil- harmonia Orchestra, sem kölluð hef- ur verið þjóðarhljómsveit Breta, kemur fram á tvennum tónleikum í Hörpu á næstu dögum, á sunnu- dags- og mánudagskvöld. Þar mun tékkneski hljómsveitarstjórinn Ja- kub Hruša stjórna flutningi á tveim- ur vinsælum tékkneskum verkum: Forleik að óperunni Selda brúðurin eftir Smetana og hinni kunnu Sjö- undu sinfóníu eftir Dvorák. Þá leik- ur rússneski píanistinn Daniil Trifo- nov vinsælt og dramatískt verk eftir Rachmaninoff með hljómsveitinni, Annan píanókonsertinn. Philharmonia Orchestra hefur verið kölluð „vinahljómsveit Íslend- inga“ því eins og kunnugt er lék hún fyrir þrjátíu árum undir stjórn Vla- dimirs Ashkenazy á rómuðum tón- leikum í Royal Festival Hall í Lund- únum og gaf hljómsveitin allan aðgangseyrinn í söfnun fyrir nýju tónlistarhúsi á Íslandi. Ári fyrr hafði Philharmonia verið fyrsta breska sinfóníuhljómsveitin til að leika á tónleikum á Íslandi, kom þá í tví- gang fram í Laugardalshöll og þótti liðsmönnum sveitarinnar mikil þörf fyrir gott tónlistarhús hér. Kom þá upp þessi hugmynd, að taka höndum saman með Ashkenazy og safna fé með því að halda tónleika sem Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti Íslands, Karl Bretaprins og Díana prinsessa sóttu, meðal annarra. Daviid Whelton tók við stöðu framkvæmdastjóra Philharmonia Orchestra aðeins ári eftir styrktar- tónleikana í Lundúnum árið 1986. Hann er því gjörkunugur þessari sögu og segir það aldrei hafa gerst, fyrr né síðar, að hljóðfæraleik- ararnir hafi beitt sér með þessum hætti til að safna fé, og það var fyrir tónlistarhús í öðru landi. Hann segir þessa tónleika í raun hafa verið merkilega vörðu í starfi sveitar- innar. Einstakur viðburður „Þetta var einstakur viðburður í starfi hljómsveitarinnar,“ segir Whelton. „Þegar Ashkenazy, sem er íslenskur ríkisborgari, hafði orð á því við einhverja félaga í hljómsveit- inni að verið væri að safna fyrir nýju tónlistarhúsi á Íslandi þá sneri sveit- in sér strax að honum og tilkynnti að hún vildi gjarnan aðstoða við það verðuga verk. Að reyna að leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að slíkt hús næði að rísa á Íslandi.“ Nú snýr hljómsveitin aftur til Ís- lands, þrjátíu árum síðar. Eru ein- hverjir hljóðfæraleikarar sem tóku þátt í flutningum þá enn í sveitinni? Framkvæmdastjórinn segist hafa farið að kanna þetta í vikunni og tel- ur víst að tveir og mögulega þrír – flautuleikari, fiðluleikari og bassa- leikari, sem léku á þessum tón- leikum í Royal Festival Hall muni nú leika í Eldborg. „Og þeir léku líka á Íslandi og hlakka, eins og allir hinir, til að leika nú á Íslandi.“ Ástæðuna fyrir komu þeirra nú segir Whelton vera þá að þau hafi, eins og aðrir í tónlistarheiminum, heyrt um þetta dásamlega nýja tón- listarhús í Reykjavík. „Við störfum enn með Ashkenazy – hann er heið- ursstjórnandi hljómsveitarinnar og afar góður vinur okkar allra, við er- um líka meðvituð um söguna af gömlu samstarfi við Íslendingana og fannst einfaldlega að við yrðum að snúa aftur! Að hljómsveitin fengi að leika í þessu dásamlega nýja tónlist- arhúsi. Við náðum að skipuleggja vetrarstarfið þannig að við náum að fljúga til Íslands og hlökkum mikið til. Og komum með spennandi efnis- skrá í farteskinu. Hruša er einn af okkar vinsælu og virtu gestastjórn- endum og nýtur þess að stjórna verkum frá heimalandinu, hljóm- sveitin mun svo sannarlega blómstra í flutningi verka eftir Smetana og Dvorák, svo ekki sé minnst á píanó- konsertinn eftir Rachmaninoff; flutningur Trifonov á honum er framúrskarandi!“ Víkingur með sveitinni í vetur Whelton bætir við að tónleikaferð- ir séu mikilvægur þáttur í starfi hljómsveitarinnar, sem hefur höfuð- stöðvar í Lundúnum. „Á hverju ári förum við í tónleikaferð um Evrópu, annað hvert ár til Japan og Kína og fjórða hvert ár til Norður-Ameríku. Þá leikum við víða á Bretlands- eyjum, frá nyrstu byggðum Skot- lands til annesja í Wales!“ Þess má geta að Víkingur Heiðar Ólafsson mun í mars næstkomandi leika Annan píanókosertinn eftir Liszt á tónleikum með hljómsveit- inni og stjórnar Ashkenazy. „Það er ánægjulegt því hann er afar góður hljóðfæraleikari,“ segir Whelton. Í formi Gagnrýnendur breskra dagblaða hafa dásamað leik Philharmonia Orchestra á fyrstu tónleikum haustsins. „Hljómsveitin mun svo sannarlega blómstra“  Hin kunna Philharmonia Orchestra snýr aftur til Íslands 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Lau 17/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Fim 26/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 18/10 kl. 19:30 14.sýn Mið 11/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Lau 5/12 kl. 19:30 31.sýn Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Sun 6/12 kl. 19:30 32.sýn Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Móðurharðindin (Kassinn) Fös 16/10 kl. 19:30 18.sýn Sun 25/10 kl. 19:30 22.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Lau 17/10 kl. 19:30 19.sýn Sun 1/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 27.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 20.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 24.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 21.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 25.sýn Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna. Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið) Lau 24/10 kl. 19:30 Frums. Lau 31/10 kl. 20:00 3.sýn Fim 19/11 kl. 19:30 6.sýn Lau 24/10 kl. 22:30 2.sýn Lau 7/11 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/11 kl. 22:30 7.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Heimkoman (Stóra sviðið) Fös 16/10 kl. 19:30 4.sýn Sun 1/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 10.sýn Sun 25/10 kl. 19:30 5.sýn Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 27/11 kl. 19:30 11.sýn Fim 29/10 kl. 19:30 6.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Fös 4/12 kl. 19:30 12.sýn Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters. Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan) Lau 17/10 kl. 13:30 Lau 24/10 kl. 13:30 Lau 17/10 kl. 15:00 Lau 24/10 kl. 15:00 Kuggur og félagar eru komnir aftur í Kúluna. (90)210 Garðabær (Kassinn) Fös 30/10 kl. 19:30 Frums. Lau 7/11 kl. 19:30 4.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 7.sýn Lau 31/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 5.sýn Fös 6/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 6.sýn Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið) Sun 25/10 kl. 16:00 Sun 8/11 kl. 14:00 Sun 15/11 kl. 16:00 Sun 1/11 kl. 14:00 Sun 8/11 kl. 16:00 Sun 1/11 kl. 16:00 Sun 15/11 kl. 14:00 Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu DAVID FARR HARÐINDIN Billy Elliot (Stóra sviðið) Lau 17/10 kl. 19:00 Fös 13/11 kl. 19:00 Fös 27/11 kl. 19:00 Fös 23/10 kl. 19:00 Fös 20/11 kl. 19:00 Lau 28/11 kl. 19:00 Fös 6/11 kl. 19:00 Lau 21/11 kl. 19:00 Fim 12/11 kl. 19:00 Sun 22/11 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Sun 18/10 kl. 20:00 aukas. Sun 1/11 kl. 20:00 Sun 25/10 kl. 20:00 aukas. Sun 8/11 kl. 20:30 Allra síðustu sýningar! At (Nýja sviðið) Lau 17/10 kl. 20:00 13.k Fim 22/10 kl. 20:00 14.k Fös 23/10 kl. 20:00 15.k Allra síðustu sýningar! Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 17/10 kl. 20:00 5.k. Fös 30/10 kl. 20:00 7.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k Fös 23/10 kl. 20:00 6.k. Fös 6/11 kl. 20:00 8.k. Fös 20/11 kl. 20:00 10.k Kenneth Máni stelur senunni Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 18/10 kl. 13:00 6.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k. Sun 25/10 kl. 13:00 7.k. Sun 8/11 kl. 13:00 9.k Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur Öldin okkar (Nýja sviðið) Fös 30/10 kl. 20:00 1.k. Fim 5/11 kl. 20:00 4.k. Sun 8/11 kl. 20:00 7.k. Lau 31/10 kl. 20:00 2 k. Fös 6/11 kl. 20:00 5.k. Fim 12/11 kl. 20:00 8.k. Sun 1/11 kl. 20:00 3.k. Lau 7/11 kl. 20:00 6.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k Hundur í óskilum snúa aftur Sókrates (Litla sviðið) Mið 21/10 kl. 20:00 8.k. Þri 3/11 kl. 20:00 11.k Lau 21/11 kl. 20:00 14.k Fim 22/10 kl. 20:00 9.k Fim 5/11 kl. 20:00 12.k Sun 22/11 kl. 20:00 15.k Lau 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 14/11 kl. 20:00 13.k Mið 25/11 kl. 20:00 Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina Vegbúar (Litla sviðið) Fös 16/10 kl. 20:00 2 k. Mið 28/10 kl. 20:00 7.k. Sun 8/11 kl. 20:00 12.k Sun 18/10 kl. 20:00 3.k. Fim 29/10 kl. 20:00 8.k. Sun 15/11 kl. 20:00 13.k Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Sun 1/11 kl. 20:00 9.k Mið 18/11 kl. 20:00 Lau 24/10 kl. 20:00 5.k. Mið 4/11 kl. 20:00 10.k Fim 19/11 kl. 20:00 Sun 25/10 kl. 20:00 6.k. Lau 7/11 kl. 20:00 11.k Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið Mávurinn (Stóra sviðið) Fös 16/10 kl. 20:00 1.k. Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k. Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki Hystory (Litla sviðið) Þri 27/10 kl. 20:00 aukas. Mið 11/11 kl. 20:00 aukas. Allra síðustu sýningar! Mávurinn frumsýning í kvöld! TJARNARGÖTU 12, 101 REYKJAVÍK SÍMI 527 2100 TJARNARBIO.IS .. — — Frami (Salur) Sun 18/10 kl. 20:30 Nazanin (Salur) Mið 18/11 kl. 20:30 Lokaæfing (Salur) Fös 16/10 kl. 20:30 Lau 31/10 kl. 20:30 Fös 13/11 kl. 20:30 Lau 24/10 kl. 20:30 Sun 8/11 kl. 19:00 Þú kemst þinn veg (Salur) Mið 21/10 kl. 20:30 Sun 25/10 kl. 20:30 Lífið (Salur) Sun 18/10 kl. 13:00 Sun 15/11 kl. 13:00 Sun 1/11 kl. 13:00 Lau 21/11 kl. 13:00 Petra (Salur) Lau 17/10 kl. 20:30 Fös 30/10 kl. 19:00 Uppsprettan (Salur) Þri 20/10 kl. 19:30 This conversation is missing a point (Salur) Mið 28/10 kl. 20:30 Mið 11/11 kl. 20:30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.