Morgunblaðið - 16.10.2015, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2015
Við vissum frá fyrsta degi að verk-
inu yrði breytt nokkuð.“ Býst hún
við því að það fái á áhorfendur?
„Mér finnst líklegt að annaðhvort
elski áhorfendur þetta eða hati – en
mér finnst þetta vera snilld.
Við byrjuðum æfingaferlið á því
að fara í bústað saman. Og verða
fjölskylda. Við unnum hratt en það
virkaði rólegt. Leikstjórinn er mjög
mikið að pæla í hópdýnamík og vill
hafa marga á sviðinu eins lengi og
hægt er. Þetta er eitt af því sem er
ekki hægt í bíó – þegar allir eru á
sviðinu má sjá viðbrögð hvers og
eins við því sem er í gangi á hverjum
tíma. Þá ertu að horfa á allt að tíu
sögur í einu. Og allir eru meðvitaðir
um sögu hinna, en tala bara ekki um
það – sem er mjög íslenskt.“
rnig við erum“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Ást og ástleysi „Þetta er ekta evrópskt afbyggingarleikhús, spennandi og
skemmtilegt,“ segir Björn Thors um uppsetninguna á Mávinum.
Tónlist er einnig hluti af hátíðinni
en þar verða sýnd 20 tónlistar-
myndbönd en hátíðin er sú eina sem
sýnir íslensk tónlistarmyndbönd á
kvikmyndahátíð. Þau verða sýnd á
föstudagskvöldið á veitingastaðnum
Rúben og áhorfendur kjósa um
besta tónlistarmyndbandið. Hljóm-
sveitin Milkywhale sýnir tónlist-
armynband sitt og spilar einnig á há-
tíðinni.
Baldvin Z ræðir um verk sín
Á laugardaginn mun Baldvin Z
kvikmyndaleikstjóri leiða áhorf-
endur í gegnum reynslu sína af kvik-
myndagerð og sýnd verða brot úr
verkum hans (t.d. Óróa og Von-
arstræti) og gerð myndanna rædd.
Baldvin er hluti af dómnefnd
Northern Wave ásamt Ísold Ugga-
dóttur og Iris Brey en veitt verða
þrenn verðlaun.
Spurð hvernig þróunin hafi verið á
hátíðinni frá því hún var stofnuð fyr-
ir átta árum, segir hún breyting-
arnar vægast sagt miklar. Fyrst
kom fámennur hópur saman í fram-
haldsskóla. Í dag er hátíðin mun fjöl-
mennari og er haldin, eins og fyrr
segir í Grundarfirði og á sama tíma
stendur yfir menningarhátíð Grund-
firðinga, Rökkurdagar. Hápunktur
hátíðanna tveggja er á laugardags-
kvöldið þegar haldin er fiskrétta-
keppnin. Keppt er um besta fiskrétt-
inn og eru þeir allir gerðir úr
grundfirsku hráefni.
Dögg segir fiskréttakeppnina allt-
af vekja mikinn áhuga hjá erlendum
gestum hátíðarinnar. „Þeim þykir
þetta mjög skemmtilega íslenskt.“
Stilla Úr stuttmyndinni Regnbogapartí eftir Evu Sigurðardóttur sem sýnd
verður á hátíðinni Northern Wave í Grundarfirði um helgina.
The Walk
Kvikmynd um ótrúlegt afrek línu-
dansarans Philippes Petits sem
gekk í leyfisleysi á línu milli Tví-
buraturnanna í New York árið
1974. Til að það tækist þurfti hann
aðstoð vina sinna við að strengja
milli turnanna 400 metra langan vír
sem var 200 kg að þyngd. Með hlut-
verk Petits fer Joseph Gordon-
Levitt og í öðrum helstu hlut-
verkum eru Ben Kingsley og Charl-
otte Le Bon. Leikstjóri myndar-
innar er Robert Zemeckis en hann á
að baki vinsælar kvikmyndir á borð
við Forrest Gump og Back to the Fut-
ure.
Metacritic: 70/100
Pan
Hér er sótt í hið sígilda ævintýri um
Pétur Pan og forsaga þess rakin.
Pétri er rænt af munaðarleysingja-
hæli ásamt fleiri börnum og eru
þau flutt á skýjaskipinu Jolly Roger
til Hvergilands þar sem hinn illi
Svartskeggur sjóræningi ræður
ríkjum. Þar eiga börnin að safna
álfaryki því Svartskeggur trúir því
að álfaryk geti gert hann ódauðleg-
an. Í græðgi sinni hefur Svart-
skeggur hins vegar útrýmt meira
en helmingnum af álfastofninum og
það á eftir að koma í hlut Péturs og
félaga að bjarga honum og um leið
að svipta Svartskegg völdunum,
eins og segir í tilkynningu. Með að-
alhlutverk fara Hugh Jackman,
Levi Miller, Jimmy Vee, Amanda
Seyfried, Cara Delevingne, Rooney
Mara og Garrett Hedlund.
Leikstjóri er Joe Wright.
Metacritic:36/100
Þrestir
Almennar sýningar á kvikmynd
Rúnars Rúnarssonar hefjast í dag.
Hún fjallar um Ara, 16 ára pilt sem
sendur er á æskustöðvarnar vestur
á firði til að dvelja hjá föður sínum
um tíma. Samband þeirra er stirt
og margt hefur breyst í sjávarpláss-
inu þar sem Ari ólst upp. Ari end-
urnýjar kynnin við Láru, æsku-
vinkonu sína og þau laðast hvort að
öðru. Með aðalhlutverk fara Atli
Óskar Fjalarsson, Ingvar E. Sig-
urðsson og Rakel Björk Björns-
dóttir. Gagnrýnandi Morgunblaðs-
ins gaf myndinni 4,5 stjörnur í
einkunn.
Bíófrumsýningar
Á bláþræði Joseph Gordon-Levitt í
hlutverki Petits í The Walk.
Lífshættulegur línu-
dans, Pan og Þrestir
mbl.is
alltaf - allstaðar
CRIMSON PEAK 8,10:30
PAN 3D ÍSL 5
ÞRESTIR 5:50
KLOVN FOREVER 8,10:30
EVEREST 3D 5,8
SICARIO 10:10
HÓTEL TRANSYLV. 2D ÍSL 3:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
Skráningá imark.is
Stjórnendur frá fjórumfyrirtækjumfjallaumstöðu
markaðsmála í sínumfyrirtækjum.Hvaða sessmarkaðs-
málinhafioghvarþau séu innan skipuritsins.
Morgunfundur ÍMARK
Vægimarkaðsmála
hjá íslenskum
fyrirtækjum.
–Hversumikið ernóg?
Þriðjudaginn 27. október kl. 9–12
í sal Arion banka, Borgartúni 19.
Höskuldur
Ólafsson,
bankastjóri
Arion banka
Kristín
Eysteinsdóttir,
Borgarleikhússtjóri
Hermann
Björnsson,
forstjóri Sjóvár
Fundarstjóri
EddaHeiðrún
Geirsdóttir,
forstöðumaður
alþjóðamarkaðssviðs
Össurar
Guðrún
Hafsteinsdóttir,
markaðsstjóri
Kjöríss
Pallborðsumræðurað loknumerindum
Húsið opnar kl. 8.30