Morgunblaðið - 16.10.2015, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2015
Sjáðu meira á mbl.is/askriftarleikur
Hvaða lit mundir þú velja?
Hafðu augun opin þann 22. október
þegar heppinn áskrifandi hlýtur að gjöf
glæsilegan Suzuki Vitara GLX
að verðmæti 5.440.000 kr.
í lit að eigin vali.
VIÐ DRÖGUM
eftir 6 daga
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Skert þjónusta er framundan í
banka- og póstafgreiðslu á Þórshöfn
eftir samruna Landsbankans og
Sparisjóðs Norðurlands. Samruninn
tók formlega gildi í byrjun sept-
ember eftir að bankaráð Lands-
bankans og stofnfjárhafar Spari-
sjóðsins höfðu veitt samþykki sitt.
Um miðjan október breytist af-
greiðslutími Landsbankans á Þórs-
höfn þannig að afgreiðslan verður
ekki opnuð fyrr en kl. 12:30 í stað kl.
10:15 áður.
Afgreiðsla Íslandspósts mun
fylgja opnun Landsbankans svo að
bæði banka- og póstþjónusta minnk-
ar á svæðinu.
Ferðir póstbíls falla ekki vel að
þessum tíma þar sem póstbíllinn
getur verið farinn af staðnum þegar
afgreiðslan er opnuð svo að póstur
frá Þórshöfn mun þá bíða flutnings
til næsta dags.
Í bréfi Landsbankans til við-
skiptavina Sparisjóðsins, dagsettu
18. september sl., segir að Lands-
bankinn muni halda úti afgreiðslu
með óbreyttum afgreiðslutíma á
Þórhöfn, Raufarhöfn og Kópaskeri.
Það kom því nokkuð á óvart þegar
bankinn auglýsti breyttan opnunar-
tíma á Þórshöfn rúmum hálfum
mánuði síðar.
Skortur á upplýsingaflæði
Sveitarstjórn Langanesbyggðar
hefur lýst áhyggjum sínum af þróun
mála og þessari þjónustuskerðingu
en fram kemur í fundargerð á vef
Langanesbyggðar að sveitarstjórn
telji með öllu óviðunandi þá skerð-
ingu á póstþjónustu sem kemur í
kjölfar þessa breytta opnunartíma
Landsbankans.
Einnig koma þar fram áhyggjur
sveitarstjórnar vegna þeirra starfa
sem eru í húfi og eru samfélaginu
mikilvæg og átelur sveitarstjórn
Landsbankann fyrir skort á upplýs-
ingaflæði. Sveitarstjórn mun koma
ályktun sinni á framfæri við Lands-
bankann og Íslandspóst.
Opnunartími eins og á sam-
bærilegum stöðum
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbanka þá er þessi breyting á
opnunartíma í samræmi við þjónustu
á sambærilegum stöðum, til dæmis á
Vopnafirði. Stöðugildum fækkar á
Þórshöfn þar sem starfslokasamn-
ingur verður gerður við starfsmann
sem kominn er á aldur (eftir fjörutíu
ára starf) og sú staða lögð niður á
Þórshöfn. Einnig er starfshlutfall
annars starfsmanns minnkað um
20%. Starfsemin sé þannig löguð að
stærri mynd hjá Landsbankanum og
fellur inn í hana. Engar breytingar
eru fyrirhugaðar á afgreiðslunum á
Kópaskeri og Raufarhöfn.
Yfirstjórnin er í höndum útibús-
stjóra Landsbankans á Húsavík en
þjónustustjóri ber ábyrgð á dag-
legum rekstri afgreiðslnanna á
Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópaskeri.
Starfsemi sparisjóða á Þórshöfn
heyrir nú sögunni til eftir 71 ár.
Sparisjóður Þórshafnar og nágrenn-
is var stofnaður árið 1944 og þjónaði
byggðarlaginu allt til ársins 2013
þegar hann sameinaðist Sparisjóði
Svarfdæla á Dalvík undir nafninu
Sparisjóður Norðurlands.
Með þeirri sameiningu stóðu vonir
til þess „að nýtt, sterkara afl yrði til
innan sparisjóðanna og hagræðing
næðist í rekstri, ásamt því að sam-
runinn yrði hvatning og áskorun til
annarra sparisjóða í landinu að fara
sömu leið í þeim tilgangi að tryggja
tilvist sparisjóða sem mótvægi á
einsleitum fjármálamarkaði,“ eins
og fram kom í bréfi til stofnfjáreig-
enda Sparisjóðs Þórshafnar þar sem
samruninn var kynntur.
Samruni hélt áfram og um mitt
árið 2014 sameinaðist Sparisjóður
Bolungarvíkur Sparisjóði Norður-
lands.
Fljótlega eftir þá sameiningu fór
að halla undan fæti því í ljós kom að
lánasafn Sparisjóðs Bolungarvíkur
hafði verið ofmetið og niðurstaðan
sú að færa þurfti Bolungarvíkur-
lánasafnið niður um 207 milljónir og
var stofnfjáreigendum gerð grein
fyrir þessu bréflega. Þessi staða
kom stjórnendum Sparisjóðs Norð-
urlands verulega á óvart þar sem
hún var ekki í samræmi við þau gögn
sem lögð voru fram við samruna-
áætlun.
Rekstrargrundvöllur var því ekki
lengur til staðar fyrir Sparisjóð
Norðurlands og stjórnin leitaði leiða
sem gætu styrkt eiginfjárgrunn
sjóðsins eða þá að sameina hann
öðru fjármálafyrirtæki.
Árangur af þeirri vinnu varð að
lokum samruni við Landsbankann
sem tók formlega gildi 4. september.
Þjónusta á Þórshöfn hefur verið skert
Afgreiðsla í bankanum og Póstinum verður ekki opnuð fyrr en kl. 12:30 í stað kl. 10:15 áður
Sveitarstjórn Langanesbyggðar telur skerðinguna óviðunandi Stöðugildum fækkar
Morgunblaðið/Líney
Landsbankinn Þjónusta bankans og Íslandspósts á Þórshöfn skerðist frá og með þessari viku.