Morgunblaðið - 16.10.2015, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.10.2015, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2015 ✝ Elín HannaJónsdóttir fæddist í Reykjavík 5. ágúst 1966. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 8. október 2015. Foreldrar henn- ar eru Jón Sig- urgeirsson vinnu- vélastjóri, f. 30. júní 1945, og Ingi- björg Steinunn Sigurvinsdóttir heilbrigðisritari, f. 4. sept- ember 1948. Systkini hennar eru: Hildur Lilja leikskólastjóri, f. 5. apríl 1971. Maður hennar eiga tvö börn: Sverri Bjarka og Tóbías Þorra. Unnusti Elínar Hönnu er Sig- urður Steinar Jónsson tækni- fræðingur, f. 18. ágúst 1965. Dóttir hennar er Berglind Hönnudóttir guðfræðinemi, f. 26. ágúst 1994. Sambýlismaður Berglindar er Baldur Þór Bjarnason nemi, f. 22. desem- ber 1992. Elín Hanna útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Há- skólanum á Akureyri 1993 og starfaði lengst af sem hjúkr- unarfræðingur á geðdeild 33A á Landspítalanum við Hring- braut. Hún sótti mörg nám- skeið sér til endurmenntunar auk þess að taka að sér margs- konar nefndarstörf og setu í stjórnum ýmissa félaga. Útför Elínar Hönnu fer fram frá Seljakirkju í dag, 16. októ- ber 2015, kl. 15. er Kristján Péturs- son markaðs- fræðingur. Þau eiga þrjú börn: Ró- bert, Petrínu Ingu og Kristu Guðrúnu. Jón Sigurgeir flugfjarskipta- maður, f. 26. ágúst 1980. Kona hans er Tinna Halldórs- dóttir hjúkrunar- fræðingur. Þau eiga tvö börn: Hall- dór Snæ og Rakel Emmu. Svala Sigríður bóndi, f. 26. ágúst 1980. Sambýlismaður hennar er Svavar Birkisson bóndi. Þau Minning um Elínu Hönnu, systur mína. Hárið á Elínu Hönnu var oft til umræðu og svokölluð Elínar Hönnu greiðsla er til. Hún greiddi þrjár strokur, eina vinstra megin, eina hægra megin og eina niður toppinn. Hnakkann lét hún í friði því hún sá hvort sem er ekki í speglinum að hann var allur í flækju. Þetta er Elínar Hönnu greiðsla og hún hafði mest gaman sjálf þegar við systkini hennar vorum að tala um þetta. Allir sem þekktu Elínu Hönnu þekktu vel ákafan vilja hennar til að vera til taks og veita aðstoð hverjum þeim sem þarfnaðist. Hún hefur unnið í mörgum rit- gerðum með alls konar fólki á öll- um skólastigum. Hún sá um tæknimál fjölskyldunnar, hún passaði börnin mín og hún sat með pabba á námskeiði til að tryggja að sá gamli fengi punga- prófið. Þetta er lítið brot af góð- verkum hennar. Stundum var hún líka að hjálpa með eitthvað sem maður vissi ekki að maður þyrfti hjálp við. Nýlegt dæmi er að ég er með fullt af skilaboðum frá henni um hvar er hægt að fá tilbúna kjöt- súpu á góðu verði. IKEA er með kjötsúpu á spottprís til 14. októ- ber, endilega drífið ykkur, voru síðustu kjötsúpuskilaboðin sem ég fékk frá umhyggjusömu syst- ur minni sem vissi að kjötsúpa er í uppáhaldi. Börnin mín og okkar systkin- anna voru henni kær. Dætur mínar, þær Krista og Petrína, áttu góðar stundir með Elínu Hönnu í Hagkaup. Þar var stór skódeild og stelpurnar skósjúk- ar. Stelpurnar mátuðu hverja skóna á fætur öðrum og voru himinlifandi yfir aðdáun og þol- inmæðinni í frænkunni. Börnin mín öll og systkinabörnin sjá á eftir skemmtilegri og umhyggju- samri frænku og öll eiga þau minningu um hana hlæjandi og káta. Við systur vorum með sam- komulag sem var frábært. Elín Hanna hjálpaði mér með ýmis- legt og svo mátti ég líka hjálpa henni. Það er góð tilfinning að við þáðum og gáfum báðar. Metnaðarfyllsta hlutverk El- ínar Hönnu í lífinu var móður- hlutverkið. Hún ól Berglindi sína upp og skildi hana eftir með hell- ing af sjálfsöryggi. Hún var ákaf- lega stolt þegar Berglind lauk stúdentsprófi og sátt við námsval hennar í guðfræðideildinni. Líf þeirra mæðgna var alltaf fullt af gleði og samheldni en það var skrítið þegar unginn flaug úr hreiðrinu í sumar. Elín Hanna var spennt og glöð yfir þessum áfanga í lífi dóttur sinnar og var mjög sátt við Baldur, kærasta Berglindar. Mamma og pabbi eru nú að upplifa martröð allra foreldra sem er að sjá á eftir barni sínu og við því duga enginn huggunar- orð. En orð Elínar Hönnu um systkinahópinn eru kannski ekki einkennandi en varpa ljósi á húmorinn og öryggið sem var og er á milli okkar allra: „Þau halda mest uppá mig því ég er elst, mest uppá Svölu því hún er yngst og mest uppá Nonna því hann er eini strákurinn, aumingja Hild- ur.“ Árin 49 nýtti Elín Hanna vel til að skapa fallegar minningar með okkur og það eru þær sem mamma og pabbi verða nú að hugga sig við. Hildur systir. Nú ert þú farin frá okkur og það er erfitt að skrifa þessa grein en aftur á móti er mjög auðvelt að finna falleg orð til að segja um þig og það er gott að minnast þín. Góð er mjög gott orð til að lýsa þér, góð á alla vegu, góð við fólk, góð í skapi, góð í að hjálpa, bara góð í öllu því sem þú tókst þér fyrir hendur og ætlaðir þér að gera, því þú einbeittir þér að því sem þú varst að gera og lærðir mjög vel á það. Þú varst alltaf áhugasöm um tækni og græjur og hafðir gaman af að tala við mig um þau tæki sem annað- hvort ég eða þú vorum að kaupa eða hugsa um að kaupa. Þú sætt- ir þig ekki við hvað sem er og gerðir kröfur. Þú hafðir fullan skilning á því að sjónvörp þyrftu að vera stór og treystir á ráðgjöf frá Nonna bróður sem mér þótti vænt um. Mér eru mjög minnisstæðar ferðirnar sem við Svala systir fengum að fara til þín á Akureyri þar sem þú tókst okkur opnum örmum og vissir vel að unglings- strákar, eins og ég var þá, þyrftu ekki mikla dagskrá í heimsókn- um til stóru stóru systur sinnar, það sem þurfti voru spólur, nammi og gos og af þessu var aldrei skortur hjá stóru stóru systur. Það var hlýlegt að vita af ykk- ur Berglindi í kjallaranum í Bakkaselinu eftir að þið fluttuð til Reykjavíkur og ég á eftir að sakna þess að heyra ekki bankið sem kom alltaf áður en þú komst upp til mömmu og pabba þegar við komum í heimsókn. Það sýnir sig best hversu góð persóna þú varst á því hversu frábærlega þér tókst upp með uppeldið á Berglindi þinni, þó að þú værir ein að gera þetta og í fullri vinnu gerðir þú allt sem þurfti til að þið ættuð gott heimili saman og að hana skorti aldrei neitt. Þú gafst henni þau tæki- færi sem hún þurfti og studdir hana í þeim ákvörðunum sem hún tók um nám sem var reyndar ekki erfitt því við vitum það bæði, Elín Hanna mín, að hún tók hárrétta ákvörðun, hún er einhver best heppnaða mann- eskja sem til er og gríðarlegur persónuleiki sem hefur staðið sig ótrúlega vel eftir að þessi ósköp dundu yfir. Þú tókst þeim verkefnum sem lífið færði þér af fullkomnu æðru- leysi, óendanlegri jákvæðni og mikilli bjartsýni. Þetta smitaði út frá sér sem gerði það að verkum að það var aðeins auðveldara fyr- ir þau okkur sem stóðu þér næst að ganga í gegnum það með þér. Þú hafðir svo gaman af mannamótum og veislum hvort sem það voru ættarmót, vinnu- staðafagnaðir, saumaklúbbar eða bara við að hittast í Bakkaseli. Það var einkennandi fyrir þig á svona stundum að þú raukst ekki beint í sófann til að spjalla við fullorðna fólkið heldur gafst þér alltaf tíma til að spjalla við krakkana og sýna þeim eitthvað sniðugt í símanum þínum eða spyrja þau út í eitthvað sem þau hefðu gaman af. Það leyndi sér aldrei þegar þú varst á staðnum í svona samkvæmum því þér lá alltaf hátt rómurinn og tókst þátt í umræðum í báðum stofunum í einu án þess þó að standa upp. Mér finnst voðalega gott að þú fékkst að passa Rakel Emmu fyrir okkur því það var þér hjart- ans mál en það gerðist því miður ekki nógu oft. Það var magnað þegar þú passaðir hana að þér tókst að svæfa hana með því að lesa bók fyrir hana, það er eitt- hvað sem engum öðrum hefur tekist. Rakel Emmu finnst mikilvægt að vita af því að þú fylgist með okkur og biður þig að taka sér- staklega vel eftir þegar hún er í spariskónum sínum. Hvíldu í friði, elsku systir. Ástarkveðjur, Jón (Nonni) bróðir, Tinna, Halldór Snær og Rakel Emma. Látin er mágkona mín, Elín Hanna Jónsdóttir, hjúkrunar- fræðingur. Elínu kynntist ég fyrst árið 1989 þegar við Hildur, systir hennar, byrjuðum að stinga sam- an nefjum. Allt frá mínum fyrstu kynnum af Elínu Hönnu hafði hún reynst mér og síðar fjöl- skyldu minni ákaflega vel. Elín Hanna var nefnilega þannig gerð að hún vildi alltaf gera allt til að hjálpa fólki. Gott dæmi um hve hjálpfús, úrræðagóð og sniðug Elín Hanna var tengdist því þegar Róbert sonur okkar Hildar byrjaði í menntaskóla. Eins og gengur þurfti að kaupa skólabækur fyrir komandi vetur. Elín Hanna fylgdist sjálf með því þegar bókalistinn birtist á vef skólans og fór svo á vefsíður ýmissa bókasafna landsins til að reyna að fá bækurnar lánaðar í stað þess að þurfa að kaupa þær. En hún lét ekki þar við sitja heldur sótti allar bækurnar líka og af- henti Róberti. Þvílík umhyggju- semi. Annað dæmi um umhyggju- semi Elínar Hönnu var þegar hún ásamt móður sinni fór í síð- asta sinn á spítalann í Fossvogi. Í anddyri spítalans hittu þær fyrr- verandi skjólstæðing hennar sem leið greinilega illa en Elín Hanna vann til margra ára á geðdeild spítalans. Elín Hanna gekk til hans, ræddi einslega við hann og veitti honum ráðleggingar. Þarna var Elín Hanna orðin mjög veik, en það stoppaði hana ekkert í góðverkum sínum. Það kemur mér ekki á óvart að Elín Hanna skuli hafa valið sér starf hjúkrunarfræðings sem ævistarf enda átti það starf ákaf- lega vel við hana. Það var líka oft mjög gaman að Elínu Hönnu. Hún hló oft mjög hátt og mikið og var frekar hávær þó hún hefði mjög góða nærveru. Að fara með henni í bíó var líka – ja algjört bíó. Elín Hanna réð nefnilega stundum ekki við sig og talaði upphátt við leikarana í myndinni og stundum komu upp setningar eins og „passaðu þig, vondi kallinn er fyrir aftan þig“. Í gegnum veikindi hennar síð- ustu ár var aldrei uppgjöf eða depurð að heyra hjá Elínu Hönnu. Hún var alltaf jákvæð og bjartsýn á framhaldið og jafnvel undir það síðasta var það alltaf markmið hennar að fara aftur að vinna. Þannig var Elín Hanna. Elsku Berglind og Baldur, ég votta ykkur innilega samúð mína. Eins sendi ég yndislegum tengdaforeldrum mínum, þeim Ingu og Jóni, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Sömuleiðis votta ég öðrum í fjölskyldunni samúð mína. Kveðja, Kristján Pétursson. Nú ertu laus undan líkamleg- um kvillum, elsku Elín Hanna mín, og finn ég fyrir þakklæti í hjarta mínu fyrir það. En að ann- að sé líka búið er erfitt að sætta sig við. Þú varst alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd og stundum varstu búin að veita hana áður en maður gat áttað sig á því, en það var bara svo mikið þú. Ég hefði t.d. aldrei komist í gegnum loka- ritgerðina mína án þín og sem betur fer sagði ég þér það oft augliti til auglitis. Hins vegar verð ég því miður að setja það hér niður á prenti, hversu mikils virði spjallið okkar góða var þeg- ar ég heimsótti þig á spítalann fyrir nokkrum árum og eins sím- tölin sem við áttum þar sem við gátum nú aldeilis leyst málin í okkar sameiginlega geira og önn- ur mál. Þú kenndir mér margt með hreinskilni þinni og jafn- framt réttsýni. Stundum gat ég sagt: „Nei Elín Hanna, það er nú ekki alveg svoleiðis,“ en þá færð- ir þú rök fyrir því sem þú varst að segja og ég breytti í: „Já, það er rétt.“ Með virkni þinni, já- kvæðni og skellibjöllugangi skil- ur þú eftir stórt skarð, hvort sem það er innan fjölskyldunnar eða vinnutengt. Þú lifðir lífinu og komst frábærri stelpu á legg, vegna þess geri ég þig að fyr- irmynd minni. Hvíl í friði, elsku Elín Hanna mín. Þín frænka, Hulda Maggý. Elsku Elín Hanna frænka mín er farin. Þetta er enn svo óraun- verulegt og það líður vafalaust langur tími áður en ég átta mig almennilega á þessari staðreynd. Ég er svo þakklát fyrir allar minningarnar sem ég á, ég er svo þakklát fyrir fjölskylduhittinginn okkar fyrr á þessu ári en mikið vildi ég að við hefðum byrjað á þeirri hefð miklu miklu fyrr. Að ég hitti lífsglöðu, jákvæðu, dug- legu frænku mína aldrei aftur er bara svo fjarri mér. Hún var fyrsta manneskjan til að rétta hjálparhönd þegar þurfti, eld- snögg að redda öllu sem þurfti að redda. Og fannst það allt svo sjálfsagt. Þegar hún frétti að ég væri byrjuð í klásus í hjúkrunar- fræði leitaði hún logandi ljósi að námsefni fyrri ára hjá sér og samstarfsfólki sínu sem hún gæti látið mig fá. Alveg óumbeðin hringdi hún í mig og sagðist vera með marga tugi gígabæta af efni sem gæti hjálpað mér. Ég sótti það til hennar í vinnuna á deild 33A og fékk í leiðinni að sjá deildina auk þess sem hún kynnti mig fyrir allri starfseminni, sem 1. árs hjúkrunarnemanum fannst mjög spennandi og rúmlega það. Hún kvaddi mig síðan með orð- um um að nú væri sko eins gott að ég kæmist í gegnum klásus- inn. Ég man ennþá pressuna sem ég fann fyrir en þegar ég hugsa til baka held ég að þetta hafi ver- ið með stærri hvatningum sem ég nýtti mér til að troða mér í gegnum klásusinn. Og ég hef sennilega ekki þakkað elsku frænku minni nægilega vel fyrir þessi orð. En ég vona að hún hafi vitað hversu þakklát ég var fyrir alla hennar aðstoð. Henni þótti ekkert sjálfsagðara en að veita alla þá hjálp sem hún mögulega gat. Þannig var hún, elsku frænka mín. Vildi allt fyrir alla gera og maður þurfti varla að biðja um aðstoðina til að fá hana. Dugnaðurinn og krafturinn voru svo einkennandi fyrir hana. Margir sem hefðu hennar þrautagöngu líkamlegra kvilla á bakinu hefðu fyrir löngu verið búnir að gefast upp. En þessi kappsama og duglega kona sló öllum við, sinnti vinnu sinni af svo mikilli alúð þrátt fyrir allt, að það er til stórkostlegrar fyrir- myndar. Annað sem er til eft- irbreytni, er hversu ótrúlega vel henni tókst upp með dóttur sína. Hún var alltaf svo stolt af Berg- lindi sinni, enda ærin ástæða til. Elsku frænka mín, þú kenndir henni svo vel. Frábæra stelpan þín er svo dugleg og sterk í gegn- um þetta allt saman. Þín er og verður svo sárt saknað, elsku El- ín Hanna frænka mín. Elsku Berglind, Inga, Nonni, Steinar, Hildur, Svala, Nonni Geiri og fjölskyldur; allar mínar fallegustu hugsanir og styrk fáið þið frá mér á þessum erfiðu tím- um. Stórt skarð er hoggið í fjöl- skylduna okkar en minning um dásamlega konu lifir. Björg Eyþórsdóttir. Elsku besta frænkan mín. Það er afskaplega óraunveru- legt og tómt að þú skulir vera farin frá okkur. Það sem ein- kenndi þig var hjálpsemi, drif- kraftur og hvað þú varst skiln- ingsrík. Ég sakna þín og finnst óraunverulegt að það sé ekki hægt að taka upp símann og heyra í þér um ráð, hjálp eða skilning. Þú hefur alltaf reynst mér vel og varst alltaf tilbúin með þína einstöku hjálparhönd. Hjálp þín var alltaf af heilum hug og þú ætlaðist aldrei til að fá neitt tilbaka. Drifkraftur þinn lýsir sér best, þegar ég hringdi í þig frá Danmörku til að biðja þig að athuga fyrir mig um góðan lækni og næringarfræðing, sem voru starfandi á Landspítalan- um, fyrir son minn áður en ég flytti heim með hann. Eftir skamma stund var ég komin með tölvupóstfangið þeirra og síma- númer ásamt skilaboðum um að mér væri velkomið að hafa sam- band. Skilningur þinn á aðstæð- um mínum að eignast langveikt barn sem þurfti mikið af lyfjum kom berlega í ljós þegar ég talaði við þig vegna lyfs sem sonur minn þurfti og þú gast útlistað fyrir mér af mikilli nákvæmni hvernig lyf þetta væri og hvaða áhrif það hefði og gæti haft, einn- ig bara að ræða sjúkdóm hans í heild sinni, einmitt það sem ég þurfti á þeim tíma. Þegar ég flutti til Akureyrar og byrjaði þar í Háskólanum vantaði mig húsnæði. Það stóð ekki á því að þú opnaðir heimilið þitt og ég fékk að búa hjá þér þar til ég fann húsnæði. Við áttum góða tíma þar og þú hjálpaðir mér mikið við að komast inn í há- skólasamfélagið sem mér fannst frekar mikið mál á þeim tíma. En fyrir þér var þetta ekkert mál og með drifkrafti þínum og hjálp- semi komst ég vel af stað og átti mína bestu tíma þarna. Elsku Elín Hanna mín, þakka þér fyrir allt, með fráfalli þínu er skilið eftir stórt skarð sem ekki verður fyllt. Guð geymi þig. Þín Elín (Ella). Árið er 1966. Mikill spenning- ur, stóra systir mín er að fara að eiga barn. Þann 5. ágúst fæðist stúlka, sú stúlka var Elín Hanna, systurdóttir mín. Þá var ég 13 ára og fékk svo að halda henni undir skírn á fermingardaginn minn sama ár. Það var stolt móð- ursystir sem sagði nafnið Elín Hanna hátt og skýrt. Síðar, þeg- ar ég var orðin fullorðin og búin að eignast börn, kom Elín Hanna oft á heimili mitt og bauðst til að passa dætur mínar. Þar kom hjálpsemi hennar strax í ljós, en það einkenndi Elínu Hönnu alla tíð, hjálpsemi hennar og glað- værð. Þegar Elín Hanna komst á unglingsár leitaði hún stundum til frænku sinnar og áttum við góðar stundir, stundir sem ég kýs að minnast með bros á vör og eiga einungis með henni. Elín Hanna átti við vanheilsu að stríða undanfarin ár, en þegar við ræddum saman í síma sagði hún oft að hún nennti ekki að tala um heilsufarið, það væri svo margt annað skemmtilegra að tala um. Og svo hló hún. Glað- værðin aldrei langt undan. Heim- sókn til Elínar Hönnu þýddi að maður var meðhöndlaður eins og drottning, allt var velkomið, mat- ur, gisting, snúningar út og suð- ur. Hjálpsemin aldrei langt und- an. Nú sit ég hér og skrifa minn- ingarorð um systurdóttur mína. Það er óraunverulegt og óskilj- anlegt. Elín Hanna var hjúkrunar- fræðingur og starfaði stóran hluta starfsævi sinnar við geðsv- ið Landspítalans. Deild 33A naut starfskrafta hennar síðustu árin og bar Elín Hanna skjólstæðinga sína mjög fyrir brjósti. Tilfinningin um að þetta geti ekki verið satt, Elín Hanna getur ekki verið farin frá okkur, hverf- ur ekki, en staðreynd er það engu að síður og við verðum að læra að lifa með því. Söknuður- inn og sorgin er mikil. Elsku hjartans Berglind, Inga systir og Nonni, Hildur Lilja, Svala og Nonni Geiri og ykkar fjölskyldur og Steinar, megi guð veita ykkur styrk á þessum erf- iðu tímum. Eygló (móðursystir). Elsku Elín Hanna mín. Hér sit ég í góðviðrinu á Sikiley og skrifa kveðjuorð til þín, elsku frænka. Hvern hefði órað fyrir því? Þú hugsaðir aðeins um að ég hefði það nú gott á Ítalíu, sendir mér dásamlegar myndir og minntir mig stöðugt á að njóta frísins, Elín Hanna Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA Einu sinni var stelpa sem hét Elín Hanna og var að hjálpa mér með heima- lærdóminn og var mjög góð við mig. Svo þurfti hún að fara upp á spítala því henni varð illt í lungunum og gat ekki hjálpað mér lengur með heimalærdóminn og með því dó hún. Þín frænka, Krista Guðrún. Elsku Elín Hanna mín. Hvíldu í friði, ég veit þér líður miklu betur núna. Ég elska þig óendanlega mikið. Minning þín á sérstakan stað í mínu hjarta. Petrína Inga Kristjánsdóttir. Til minningar um Elínu Hönnu, móðursystur mína. Elín Hanna var frábær manneskja. Hún hefði gert hvað sem er fyrir mig ef ég hefði beðið hana um það. Hún var alltaf í góðu skapi og góð við allt og alla. Hvíl í friði, elsku Elín Hanna. Róbert.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.