Morgunblaðið - 16.10.2015, Page 27

Morgunblaðið - 16.10.2015, Page 27
tengingu verður heldur hvenær.“ Edgar kenndi við HR 1970-79 og við verkfræðideild HÍ 1974-83, var ráðgjafi við iðnaðarráðuneytið um árabil, einkum á sviði orkumála og nýrra iðnaðarkosta. Hann var auk þess ráðgjafi fyrir fjölmörg alþjóð- leg fyrirtæki á borð við Rauma Re- pola í Finnlandi, NUON BV í Hol- landi og Onoda Engineering í Japan. Þá vann Edgar að rann- sóknum í byggingareðlisfræði, m.a. við Tækniháskólann í Delft í Hol- landi, Tækniháskólann í Þránd- heimi (SINTEF) og Tækniháskól- ann í Braunschweig í Þýskalandi, einkum á sviði burðarþols, hljóð- tækni og brunamála. Edgar á sjálfur og ásamt öðrum mörg einkaleyfi á sviði byggingar- tækni. Edgar var formaður Varðar 1978-79. Hann var stjórn- arformaður byggingarsviðs Ný- sköpunarmiðstöðvar 1978-90, Iðn- skólans í Reykjavík 1986-88 og undirbúningsfélags Hitaveitu Akra- ness og Borgarfjarðar. Edgar er höfundur að ýmsum fagbókum í byggingareðlisfræði, s.s. Trévirki, 1977, og Tæknimat húsa, 1977. Hann hefur auk þess skrifað fjölda blaðagreina um ára- bil. Fjölskylda Edgar kvæntist 29.7. 1961 Hönnu Eiríksdóttur, f. 26.7. 1941, banka- starfsmanni. Hanna er af Fellskots- og Krossaætt. Börn Edgars og Hönnu eru Atli, f. 19.12. 1960, sölumaður hjá Ís- lensk-ameríska, búsettur í Reykja- vík, kvæntur Kristínu Sólveigu Vil- helmsdóttur leikskólakennara og eiga þau samtals þrjú börn, Edgar Smára, Öldu Guðlaugu og Hönnu Liv; Guðmundur, f. 11.8. 1965, málmenntafræðingur og kennari við HR og Endurmennt HÍ, en kona hans er Erlendína Krist- jánsson, lögfræðingur og háskóla- kennari, og eiga þau samtals þrjú börn, Alexander Hilmar Arnarson, Elizabeth Tinnu Arnardóttur og Victoriu Heklu Guðmundsdóttur; Svava Liv, f. 3.3. 1968, matvæla- fræðingur og viðskiptafræðingur, gift Þráni Vigfússyni, viðskipta- fræðingi og fjármálastjóra Iceland Travel og Vita, og eiga þau samtals þrjú börn, Ivan Engels, Edgar Ágúst og Hákon; Jón Viðar, f. 15.3. 1969, kvikmyndagerðarmaður. Systkini Edgars eru Þórarinn, f. 1936, d. 1991, eðlisfræðingur og menntaskólakennari; Anna Þóra, f. 1939, d. 2007, fasteignasali í New Jersey í Bandaríkjunum; Ágústa, f. 1945, Ph.D. og prófessor við HÍ; Steinunn, f. 1950, d. 2002, hús- freyja. Foreldrar Edgars: Guðmundur Ágústsson, f. 7.11. 1916, d. 17.10. 1983, bakarameistari og skákmaður í Reykjavík, og Þuríður Ingibjörg Þórarinsdóttir (Dóa), f. 18.4. 1915, d. 2002, húsmóðir. Úr frændgarði Edgars Guðmundssonar Edgar Guðmundsson Guðmundur Jakobsson kirkju- og hljóðfærasm. í Rvík. Sonur Jakobs Guðmundss. pr. á Sauðafelli og alþm. Þórarinn Guðmundsson tónskáld og fiðluleikari í Rvík Anna Kristjana Ívarsdóttir húsfreyja í Rvík Þuríður Þórarinsdóttir myndm.kennari í Rvík Þóra Bjarnadóttir húsfr. frá Álftanesi Ívar Helgason verslunarstj. á Akureyri Árni Waag kennari í Kópavogi Karin W. Hjálmarsdóttir húsfr. í Kópavogi Hjálmar W. Hannesson sendiherra Kristján Guðmundsson myndlistarmaður Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður Eggert Gilfer organisti og skákmeistari Höskuldur Ágústsson dælust.stj. í Mosfellssveit Ásgerður Höskulds- dóttir innanh.- arkitekt í Rvík Höskuldur Ólafs- son bankastj. Arion banka Þóra Ágústsdóttir húsfr. í Rvík Ingigerður Karls- dóttir flugfr. og húsfr. í Rvík Páll Hjaltason arkitekt og fv. borgarfulltr. Margrét Magnúsdóttir húsfreyja í Rvík Sigurður Friðrik Sigurðsson sjóm. og hafnsögum. í Rvík Ingigerður Sigurðardóttir húsfr. á Ísafirði og í Rvík Ágúst Guðmundsson fiskmatsmaður á Ísafirði Guðmundur Ágústsson bakarameistari í Rvík Helga Símonardóttir hómópati á Ísafirði Guðmundur Guðmundsson skipasmiður á Ísafirði Árni Páll Árnason alþm. og fyrrv. ráðherra Þórólfur Árnason fyrrv. borgarstj. Árni Pálsson fyrrv. sóknarprestur í Kópavogi Þuríður Þórarinsdóttir húsfreyja í Rvík Anna Árnad. húsfr. í Rvík Kristín Árnad. húsfr. í Færeyjum og Rvík Guðmundur Árnason verslunarm. í Rvík Árni Þórarinsson prófastur á Stóra- Hrauni ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2015 Pétur fæddist á Eyrarbakka16.10. 1918 en ólst upp áBráðræðisholtinu og á Fram- nesveginum í Reykjavík. Foreldrar hans voru Pétur Guðmundsson, skólastjóri á Eyrarbakka, og k.h., Elísabet Jónsdóttir húsfreyja. Pétur skólastjóri var sonur Guð- mundar, bónda í Langholtsparti í Flóa Sigurðssonar, bróður Guð- laugar, móður Sigurðar regluboða, föður Sigurgeirs biskups, föður Pét- urs biskups. Móðurbróðir Péturs var Berg- steinn, langafi Atla Heimis Sveins- sonar, en móðursystir Péturs var Ólöf, amma Bergsteins Jónssonar sagnfræðiprófessors. Elísabet var dóttir Jóns, alþm. á Eyvindarmúla Þórðarsonar. Meðal systkina Péturs var Jón Axel bankastjóri. Eiginkona Péturs var Ingibjörg Birna Jónsdóttir húsfreyja en dóttir þeirra, Ragnheiður Ásta, var út- varpsþulur um áratuga skeið, móðir Eyþórs Gunnarssonar tónlistar- manns. Pétur stundaði nám við lýðháskól- ann í Tarna og í skólum sænska al- þýðusambandsins og samvinnu- sambandsins í Svíþjóð og Pitman’s College í London 1937-38. Hann var sendill og síðar bankaritari í Útvegs- bankanum í Reykjavík, 1931-42, og þulur hjá Ríkisútvarpinu 1941-55 og 1970-88. Auk þess var Pétur kaup- maður í Reykjavík og umboðsmaður skemmtikrafta 1955-70, var leið- sögumaður hjá Ferðaskrifstofu rík- isins 1950-60 og auglýsingastjóri Al- þýðublaðsins 1958-59. Pétur sá um útgáfu og ritaði for- mála að bókinni Réttvísin gegn Ólafi Friðrikssyni, útg. í Reykjavík 1986. Hann sinnti dagskrárgerð í fjölda ára, stýrði m.a. barnatíma á árunum 1943-44, og sá um útvarpsþættina Lög og létt hjal og Sitt af hverju tagi. Þá tók hann saman fjölda þátta um mannlífið í Reykjavík fyrri tíma. Hann stóð fyrir fyrstu dægurlaga- samkeppninni hér á landi á Hótel Ís- landi árið 1939. Pétur var vinsæll útvarpsþulur, hafði hljómþýða rödd og listilega framsögn. Hann lést 23.4. 2007. Merkir Íslendingar Pétur Pétursson 90 ára Hilmar Rósmundsson Ingólfur Jónsson 85 ára Ásta Þórðardóttir Guðríður Guðmundsdóttir Páll Þórarinn Finnsson Vilhjálmur Eiríksson 80 ára Guðný Sigurðardóttir Gunnar L. Hjartarson Helga Gunnarsdóttir Þórunn Einarsdóttir 75 ára Andrés Þórðarson Hörður Sigurðsson Steinunn Vigfúsdóttir 70 ára Anna Sverrisdóttir Bryndís Jóhannesdóttir Edda Kristinsdóttir Herborg Guðmundsdóttir Sigríður Hjartardóttir 60 ára Aðalheiður Hagar Haraldsdóttir Ásbjörn Sigurðsson Ásdís Marion Gísladóttir Garðar Halldórsson Gísli Björnsson Guðrún G. Sigurbjörns- dóttir Gunnhildur J. Halldórsdóttir Indriði Birgisson Karen Erla Erlingsdóttir Karólína Guðrún Jónsdóttir Sigrún B. Valdimarsdóttir Sigrún Reynisdóttir Sigurjón Guðmundsson Vilberg Rúnar Jónsson 50 ára Agnes Ingadóttir Anna Brynja Ísaksdóttir Einar Baldvin Axelsson Friðþjófur H. Jónsson Halla Jónsdóttir Hrönn Petersen Hörður Erlendsson Sigurður Ingi Ragnarsson Steindór Jóhannes Elíson Steindór Sigursteinsson Sturla Hjartarson Svanfríður Jóhannsdóttir Sævar Valtýr Úlfarsson Valdimar Viggósson Þorsteinn G. Kristjánsson Þorsteinn Hauksson 40 ára Aðalsteinn Jón Þorbergsson Alfreð Björn Gíslason Berglind Maríusdóttir Borgar Þorsteinsson Brynjar Björn Gunnarsson Elsa Gerður Hauksdóttir Helgi Þórsson Hermann Bjarki Rúnarsson Hugrún Hjálmarsdóttir Logi Gunnlaugsson Margrét Helga Theodórsdóttir Tatyana Ericson 30 ára Anna Heba Hreiðarsdóttir Dagbjört Fjóla Óðinsdóttir Helena Þórarinsdóttir Ívar Hlynur Ingason Sebastian Robert Renefort Þórunn Anna Elíasdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Tinna ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk prófi í læknisfræði frá HÍ, starfar á skurðsviði við LSH og stundar MSc-nám í lækna- og lífvísindum. Maki: Andrew Robert Harper, f. 1983, viðskipta- fræðingur hjá Meniga. Börn: Alexander Örn Harper, f. 2012, og Eva Ís- fold, f. 2014. Foreldrar: Örn Gústafs- son, f. 1950, og Árný Benediktsdóttir, f. 1950. Tinna Harper Arnardóttir 30 ára Sigurjón ólst upp í Bolungarvík, býr í Reykja- vík og er nú á lokaári í læknisfræði við HÍ. Maki: Ásgerður Hös- kuldsdóttir, f. 1987, við- skiptafræðingur hjá Val- tor. Sonur: Ásgeir Ragnar, f. 2013. Foreldrar: Rögnvaldur Guðmundsson, f. 1949, sjómaður, og Halldóra Þórarinsdóttir, f. 1953, vinnur á leikskóla. Sigurjón Ragnar Rögnvaldsson 30 ára Lena ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk sveinsprófi í gullsmíði og er nú í fæðingarorlofi. Maki: Hörður Jens Guð- mundsson, f. 1981, lög- fræðingur. Synir: Hlynur Atli Harðar- son, f. 2011, og óskírður Harðarson, f. 2015. Foreldrar: Kristján Giss- urarson, f. 1953, hús- gagnasmiður, og Anna Fjóla Gísladóttir, f. 1960, ljósmyndari. Lena Rut Kristjánsdóttir MOSFELLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is Brauð dagsins alla föstudaga Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.