Morgunblaðið - 16.10.2015, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2015
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Mávurinn fjallar, eins og önnur
kunn verk eftir Tsjekhov, um hóp af
fólki sem leiðist og fílósóferar um líf-
ið og tilveruna, manneskjuna og til-
ganginn,“ segir Björn Thors, einn
leikaranna í hinnu kunna leikriti
Antons Tsjekhov (1860-1904), Máv-
inum, sem verður frumsýnt á Stóra
sviði Borgarleikhússins í kvöld.
Björn bætir við: „Þetta er einskonar
stúdía á því hvernig við erum inn við
beinið, um drauma okkar og þrár.
Við tölum oft um það hvað við ætlum
að gera en oft verður minna úr því
hvað við gerum.“
Leikstjóri sýningarinnar er Yana
Ross en hún fæddist í Litháen, ólst
upp í Moskvu en nam í New York. Í
samtali í Sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins í maí sagði hún meðal ann-
ars: „Tsjekhov hefur alltaf komið
mér fyrir sjónir sem vægðarlaus
höfundur. Hann er algjörlega mis-
kunnarlaus í skrifum sínum og
óhræddur við að kryfja bæði sam-
félag sitt og manneskjuna. Hann
þorir að pota í okkur á sársauka-
fyllstu stöðunum. […] Ég heillast af
grimmdinni sem birtist í hreinskilni
hans. Ég hef litla þolinmæði fyrir til-
finningasemi og í mínum huga er
ekkert væmið við verk Tsjekhov.“
Hljómbotn í klassíkinni
Leikritið, sem var frumsýnt í
Moskvu árið 1896, er sagt gaman-
samt og alvarlegt í senn, það fjalli
um lífið sjálft en þó einkum líf í list-
um, ást og ástleysi. Leikarar í sýn-
ingunni eru Björn Stefánsson, Björn
Thors, Halldóra Geirharðsdóttir,
Hilmar Guðjónsson, Hilmir Snær
Guðnason, Jóhann Sigurðarson,
Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Þór-
unn Arna Kristjánsdóttir, Þuríður
Blær Jóhannsdóttir og Guðrún S.
Gísladóttir. Zane Pihlström hannar
leikmynd og Filippía I. Elísdóttir
búninga.
„Sagan hverfist um fjölskyldu
sem fer út fyrir borgina í sveitasetur
– í uppsetningunni er búið að færa
söguna til í tíma og rúmi og sögu-
sviðið komið til Íslands,“ segir
Björn. „Fjölskyldan fer í bústað og
hittir þar vini og ættingja. Móðirin
er þekkt leikkona og sonur hennar
er ungur listamaður sem er að reyna
að fóta sig. Í kringum þau safnast
allskonar fólk, vinir, nágrannar,
elskendur … “
Björn leikur þekktan rithöfund
sem er ástmaður leikkonunnar.
„Bóris Trígorín heitir hann í
frumtextanum en er kallaður B.T.
hjá okkur!“ segir Björn og hlær.
„Það lýsir aðlöguninni að ein-
hverju leyti. Leikstjórinn reynir að
finna hljómbotn í klassíkinni sem
kallast á við samtíma okkar og um-
hverfi sem við tengjum við. Og
kringumstæður sem við skiljum.
Hún leitast við að tengja áhorfendur
við söguna og ekki síður hópinn sem
kemur að verkefninu. Hún gerir
kröfur um að við sem komum að
verkinu leggjum talsvert undir.“
Björn segir leikstjórann Ross búa
yfir djúpum skilningi á verkum
Tsjekhov og Rússlandi þessa tíma
en í nálguninni sé líka nútímalegt al-
vöruleysi og afbygging á klassík.
„Hún er mjög trú höfundinum og
leitast við að kalla fram hughrif sem
Tsjekhov var sjálfur að vinna með en
hún leitast líka við að ögra jafnvel og
stuða … Þetta er ekta evrópskt af-
byggingarleikhús, spennandi og
skemmtilegt.“
Engar tilviljanir í nálguninni
Þuríður Blær er nýútskrifuð leik-
kona sem spreytir sig nú á Stóra
sviðinu. „Þetta er mjög gaman – ég
er loksins komin heim,“ segir hún
um glímuna við Mávinn.
Hún segir leikstjórann greinilega
búinn að pæla gríðarmikið í verkinu,
það séu engar tilviljanir í nálgun
hennar. „Við sumt setti maður
spurningarmerki þegar hún kom
með það í æfingaferlinu en svo áttaði
maður sig á því hvað hún var að fara.
„Stúdía á því hve
Uppsetning Yana Ross á Mávinum
eftir Tsjekhov frumsýnd í kvöld
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin
Northern Wave er haldin í 8. sinn í
Grundarfirði núna um helgina. Há-
tíðin fer að mestu fram í Samkomu-
húsi Grundar-
fjarðar þar sem
alþjóðlegar stutt-
myndir eru sýnd-
ar á föstudag og
laugardag en á
sunnudeginum
eru sýndar ís-
lenskar stutt-
myndir en þá fer
verðlaunaafhend-
ingin fram.
Áður en hátíðin
hefst formlega er haldin vinnusmiðj-
an WIFT (Women in film and televi-
sion) í tvo daga og er opin öllum. Yf-
irskrift smiðjunnar er „Surviving
the rabbit hole“ en þar fá nemendur
fræðslu í formi fyrirlestra og ráðgjöf
fyrir komandi verkefni. Kvikmynda-
gerðarfólk frá Norðurlöndum sér
um smiðjuna sem er í boði WIFT.
Þátttakendur eru um 30 og er meiri-
hlutinn konur.
„Markmiðið er að gefa kvik-
myndagerðarmönnum sem vinna að
lengri myndum verkfæri til að tak-
ast á við það sem kemur upp þegar
unnið er að lengri myndum,“ segir
Dögg Mósesdóttir, stjórnandi og
stofnandi hátíðarinnar.
Hún segir að eitt af markmið-
unum með WIFT sé að búa til
tengslanet. Í kvikmyndabransanum
er mikilvægt að kynnast vel þeim
sem búa yfir meiri reynslu, að sögn
Daggar. Hún bindur vonir við að það
eigi eftir að ganga vel því hópurinn á
eflaust eftir að kynnast vel á þessum
tíma.
Fleiri konur vilja búa til
myndir í fullri lengd
„Margir byrja á heimildamynd-
um. Flestir sem ætla sér að búa til
langar leiknar myndir byrja á leikn-
um stuttmyndum,“ segir Dögg,
spurð hvort flestir kvikmyndaleik-
stjórar hefji ferilinn með stutt-
myndagerð.
Dögg bendir á að margar konur
séu í heimildamyndagerð. Ástæðan
er líklega helst sú að það er auðveld-
ara að fjármagna þær, auðveldara er
að vinna að slíkum myndum sam-
hliða fjölskyldulífi og einnig felst
minni fjárhagsleg áhætta í gerð
þeirra. „Mjög margar konur langar
að búa til myndir í fullri lengd og
þeim fjölgar sífellt. Það er mjög
ánægjulegt,“ segir Dögg.
Konur kjósa heim-
ildamyndagerð
Vinnusmiðjur og verðlaunaveitingar
Dögg
Mósesdóttir
Black Mass 16
Alríkislögreglumaðurinn
John Connolly telur mafíós-
ann James „Whitey“ Bulger
á að vinna með lögreglunni
gegn mafíunni.
Metacritic 68/100
IMDb 7,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
21.00, 22.10, 22.40
Sambíóin Egilshöll 22.40
Sambíóin Kringlunni
20.00, 22.40
Þrestir 12
Dramatísk mynd sem fjallar
um 16 ára pilt, sem sendur
er á æskustöðvarnar vestur
á firði til að búa með föður
sínum sem hann hefur ekki
séð í ein sex ár.
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 15.30, 17.45,
20.00
Háskólabíó 17.30, 20.00,
22.30
Legend 16
Tvíburarnir Ronnie og Reggie
Kray voru valdamestu
glæpakóngar Lundúna og
jafnframt þeir grimmustu.
Metacritic 59/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Sambíóin Kringlunni
20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 22.30
Crimson peak 16
Ungi og metnaðarfulli rithöf-
undurinn Edith Cushing upp-
götvar að nýi, heillandi eig-
inmaður hennar er ekki allur
þar sem hann er séður
Metacritic 69/100
IMDb 7,9/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Egilshöll 20.00, 22.40
Akureyri 20.00, 22.30
Keflavík 22.30
The Martian 12
Geimfarinn Mark Watney er
talinn af eftir að ofsafenginn
stormur gengur yfir.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 74/100
IMDB 8,6/10
Smárabíó 17.00, 20.00,
22.20
Háskólabíó 18.00, 21.00,
21.00
Borgarbíó 21.00
Sicario 16
Alríkislögreglukonan Kate er
í sérsveit við landamæri
Bandaríkjanna og Mexíkó.
Metacritic 83/100
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 22.10
Smárabíó 22.50
The Intern Sjötugur ekkill sér tækifæri
til að fara aftur út á vinnu-
markaðinn og gerist lærling-
ur á tískuvefsíðu.
Metacritic 50/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Egilshöll 17.20
Sambíóin Kringlunni 20.00
The Walk
Saga línudansarans Philippe
Petit, sem gekk á milli Tví-
buraturnanna.
Metacritic 70/100
IMDB 8,0/10
Sambíóin Keflavík 22.10
Smárabíó 20.00, 22.30
Háskólabíó 18.00, 20.00
Borgarbíó 20.00
Maze Runner: The
Scorch Trials 12
Mbl. bbmnn
IMDb 75/100
Smárabíó 17.00
Vacation 12
Metacritic 34/100
IMDB 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Töfrahúsið Við kynnumst hér kettlingi
einum sem lendir á vergangi
þegar vondur eigandi hans
ákveður að losa sig við hann.
Metacritic 47/100
IMDb 6,3/10
Sambíóin Álfabakka 16.00
Hotel
Transylvania 2 Drakúla er í öngum sínum.
Afastrákurinn hans, Dennis,
er hálfur maður og hálfur
vampíra.
IMDB 7,7/10
Sambíóin Keflavík 17.50
Laugarásbíó 15.50
Smárabíó 15.30, 17.45
Inside Out Ung stúlka flytur á nýtt
heimili og tilfinningar hennar
fara í óreiðu.
Metacritic 93/100
IMDB 8,8/10
Sambíóin Álfabakka 15.40,
17.50
Sambíóin Akureyri 17.50
Jóhanna - Síðasta
orrustan Í myndinni er fylgst með
störfum Jóhönnu og því sem
gerist bak við tjöldin í Stjórn-
arráðinu.
Bíó Paradís 20.00
Stúlkurnar á
Kleppjárnsreykjum
Í seinni heimsstyrjöldinni fór
allt á annan endann í ís-
lensku samfélagi vegna sam-
skipta kvenna við setuliðið.
Bíó Paradís 18.00
Stille Hjerte
Bíó Paradís 18.00, 22.15
Pawn Sacrifice 12
Metacritic 66/100
IMDb 7,5/10
Bíó Paradís 17.15
Hrútar 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 83/100
IMDB 8,2/10
Bíó Paradís 18.00
In the Basement
Bíó Paradís 22.00
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Munaðarleysingi ferðast til töfraríkisins
Hvergilands. Þar finnur hann bæði æv-
intýri og hættur, og uppgötvar örlög sín,
að verða hetjan Pétur Pan.
Metacritic 36/100
IMDb 6,0/10
Laugarásbíó 17.00
Sambíóin Álfabakka 15.00, 15.00, 15.00, 17.30, 17.30,
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30, 17.30, 20.00
Sambíóin Kringlunni 17.30, 17.30
Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00
Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00
Pan 10
Casper ákveður að flytja frá Danmörku til
Los Angeles til að eltast við frekari frægð
og frama. Frank er ákveðinn í að vinna
vináttu hans á ný og eltir hann til LA, en
það hlýtur að enda með ósköpum.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 6,9/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Smárabíó 20.00, 20.00, 22.20, 22.40
Háskólabíó 17.30, 20.00, 22.20
Borgarbíó Akureyri 18.00, 22.10
Klovn Forever 14
Átta fjallgöngumenn fórust í
aftakaveðri 11. maí árið
1996 á Everest.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 66/100
IMDb 7,7/10
Laugarásbíó 17.0, 20.00
Sambíóin Álfabakka 18.00, 20.00, 20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.35
Smárabíó 17.00
Háskólabíó 18.00
Borgarbíó Akureyri 20.00
Everest 12