Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015 HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS EKKISLEIKJA MALBIKIÐ Í FROSTINU! -NAGLADEKKIN UNDIRHJÓLIÐ FÁST ÍGÁP Það er vaskur hóp- ur karla og kvenna sem starfar innan fangelsa landsins. Störfin þar eru hvert öðru mikilvægara – því má ekki gleyma. Fangelsi eru við- kvæmir vinnustaðir þar sem starfsmenn eru í daglegum sam- skiptum við fólk sem orðið hefur fótaskortur í lífinu með margvíslegum hætti; sumir fangar kljást auk þess við ýmsan vanda af heilsufars- og félagslegum toga. Fólkið, fangarnir, er komið í að- stæður sem eru afar framandi venjulegu lífi. Það sem fangar finna mest fyrir í fyrstu eru hvers kyns skorður og hindranir sem draga úr almennum lífsgæðum. Gæði lífsins innan fangelsis eru rýr í roði miðað við frelsið sem býr utan múrsins. Það eitt og sér ásamt mörgu öðru hefur áhrif á fangana sem manneskjur. Þeir skoða líf sitt og gjörðir og takast á við ástæðu þess að vera komnir skyndilega bak við lás og slá – það geta hvort tveggja verið einfaldar ástæður sem og flóknar. En að- stæður þeirra eru mjög oft brenndar marki sárinda og kvíða. Þetta er fangelsi – stofnanir sem ríkið á og rekur Fangaverðir gegna mikilvægum störfum í þessum stofnunum hins opinbera. Störf þeirra fara ekki hátt en eru ábyrgðarmikil og vandasöm. Jafnframt geta þau ver- ið býsna erfið á stundum. Ekki svo að skilja að beita þurfi oft líkams- kröftum á vettvangi hversdagsins heldur eru samskipti innan þessa fyrirbæris mannlegs lífs, sem heit- ir fangelsi, á köflum flókin og gera býsna miklar kröfur um innsæi í viðkvæmar aðstæður, skilning, for- dómaleysi og væntumþykju en samtímis festu og ákveðni. Þol- inmæði er sömuleiðis bráðnauðsyn- legur eiginleiki. Fangaverðir sem búa ekki yfir slíkum kostum staldra ekki lengi við í starfi. Margir fangaverðir hafa sýnt ein- staka samskiptahæfni og gert líf fanga bærilegra en ella. Þeir hafa eytt mörgum stund- um í viðtöl við fanga þegar allir heimsins sérfræðingar eru víðs fjarri (með fullri virð- ingu fyrir þeim) og linað hugarkvalir þeirra og hvatt þá til betra lífs. Sú þjónusta hefur verið unnin í hljóði og kannski til fárra fiska metin. Margir fangar hafa látið þau orð falla að sumir fangaverðir hafi beinlínis bjargað lífi þeirra. Fangelsi með slíka fangaverði er betri staður en ella og mannbæt- andi. En allir þeir sem vinna með fólki vita að sú vinna tekur sinn toll af sálartetrinu. Hún getur ver- ið sár og rífandi; njóti viðkomandi starfsmaður til dæmis ekki form- legrar og faglegrar handleiðslu af einhverju tagi getur hún smám saman sogið úr honum kraft og gert hann veikari fyrir. Samskipti við fanga innan fang- elsis ganga allajafna vel fyrir sig frá degi til dags. Fangelsin eru að mestu rammur karlaheimur og menn vissulega misfrekir til rýmis eins og gengur og gerist. Fangar virða góða og trausta fangaverði og geta eignast trúnað þeirra hvort heldur vörðurinn er nú karl eða kona. Oftar en einu sinni hefur til dæmis komið fyrir að fangi hef- ur séð góða foreldraímynd í fanga- vörðum og traust samband jafnvel haldist ævina út í sumum tilvikum. Fangaverðir hafa fundið til með föngum og viljað rétta þeim hjálp- arhönd þar sem vissulega skyn- semi hefur ráðið för sem og vænt- umþykja ásamt hollri, foreldralegri hvatningu. Þau dæmi eru líka því miður til þegar maður bregst manni og slík brigð geta svo sann- arlega reynt á og verið sár enda þótt menn forðist að taka vinnuna inn á sig. En kjarni málsins er ætíð sá að fangaverðir kynnast föngunum sem manneskjum, ein- staklingum með vonir um betra líf og hamingjusamara, en ekki sem félagslegum fyrirbærum. Mannlegi þátturinn má nefnilega aldrei glat- ast. Starfsfólk fangelsa vinnur krefj- andi vinnu í fremstu víglínu og meðal annars með fíkniefnasjúka fanga sem margir ættu í raun og vera að vera á sjúkrahúsum. Þá er ekki síður ástæða til að nefna fanga sem glíma við geðræna sjúk- dóma. Það er sá hópur í velferð- arsamfélaginu sem enginn virðist vilja eiga. Dæmi eru um mjög geð- sjúka menn í fangelsum sem þau beinlínis sitja uppi með og fá ekki geðlæknishjálp enda þótt margoft sé leitað eftir henni. Slíkt er auð- vitað fyrst og síðast brot á mann- réttindum hins sjúka, frelsissvipta einstaklings, og sömuleiðis eru fangaverðir settir í aðstæður sem þeir hafa eðli máls samkvæmt ekki hlotið neina klíníska menntun til að glíma við. Þrátt fyrir það hafa fangaverðir sinnt þessum sjúku og brotnu mönnum af mikilli mann- gæsku sem hvergi lærist nema í uppeldinu heima. Þeir eiga heiður skilinn fyrir framgöngu sína. Nú er þrengt að margvíslegri starfsemi fangelsa í landinu undir merki hagræðingar. Það gerir fangelsin að erfiðari vinnustöðum en ella og margt verður þyngra fyrir fæti. Fangaverðir finna fyrir því. Og þrengingin bitnar ekki síð- ur á föngunum sjálfum. Lítið dæmi skal nefnt: Það kemur iðulega fyr- ir að sé fangavörður veikur þá er brugðið á það ráð að loka vinnu- stað fanga eða fella niður hluta af daglegri útivist vegna þess að ekki eru til fjármunir til að kalla á af- leysingamann í stærsta fangelsi landsins. Hvort tveggja er slæmt. Reyndar afleitt. Fangelsi eru vinnustaðir fólks, frjálsra einstaklinga og ófrjálsra. Ríkið á og rekur fangelsi lands- ins. Það verður að standa sóma- samlega að því verki – er það ekki? Raunveruleikinn í fangelsi Eftir Hrein S. Hákonarson »En kjarni málsins er ætíð sá að fanga- verðir kynnast föng- unum sem manneskjum, einstaklingum með von- ir um betra líf og ham- ingjusamara … Hreinn S. Hákonarson Höfundur er fangaprestur þjóðkirkjunnar. Einstaklingur með fötlun fær bætur úr ríkissjóði vegna þess að hann er sökum fötlunar sinnar ófær um að afla sér tekna. Bætur eru lágar og það er eins og það sé helsta markmið „kerf- isins“ að tryggja það að enginn hafi það of gott. Þannig að betra er að tryggja að sem flestir hafi það jafn slæmt í stað þess að margir geti haft það gott. Það kerfi sem við búum við er úr sér gengið og úrelt. Kerfið er „við og þið“, þ.e. þið sem þurfið á okkur að halda. Það er löngu tímabært að breyta þessu fyrirkomulagi þannig að fólk með fötlun hætti að vera bóta- þegar og verði í þess stað launþegar. Það er grundvallarmunur á því að vera bótaþegi eða launþegi. Nú þegar verið er að vinna að breytingum á at- vinnumálum fatlaðs fólks þá eigum við að hafa metnað og gera raunveru- legar breytingar. Launaseðill fatlaðs fólks á að vera eins og launaseðill annarra starfs- manna, þar sem greitt er í lífeyrissjóð og verkalýðsfélag eins og hjá öðru starfsfólki. Sú kvöð ætti að vera á þessari greiðslu að hver einstaklingur ætti að mæta til vinnu eða í virkniúrræði sem hon- um væri séð fyrir af sveitarfélagi eða öðrum aðila, þó ekki væri nema hluta úr degi hjá þeim einstaklingum sem búa við mjög skerta starfs- getu. Hafi einstaklingur tækifæri á að sækja sér auknar tekjur með vinnu eða öðrum hætti getur sá ein- staklingur gert það líkt og hver ann- ar. Þær tekjur eru þá skattaðar með nákvæmlega sama hætti og hjá öðr- um í gegnum almennt skattkerfi. Þannig getur fatlað fólk verið að leggja til samfélagsins með skatt- greiðslum sínum eins og aðrir þegnar þjóðfélagsins. Hugarfarsbreyting gagnvart fötl- uðu fólki er tímabær og sú grundvall- arbreyting að fatlað fólk færist frá því að vera bótaþegar í að vera laun- þegar er einfaldlega réttlætismál. Bótaþegi eða launþegi Eftir Guðmund Ármann Pétursson Guðmundur Ármann Pétursson »Nú þegar verið er að vinna að breytingum á atvinnumálum fatlaðs fólks þá eigum við að hafa metnað og gera raunverulegar breyt- ingar. Höfundur er framkvæmdastjóri Sól- heima og sveitarstjórnarmaður. Fimm manna fjöl- skylda frá Albaníu verður send úr landi eftir langa bið og óvissu, eftir að tekist hefur loks að tryggja þremur börnum skólavist. Fólkið er sett til hliðar af póli- tískum ástæðum í heimalandinu og á sér ekki viðreisnar von. Það leitar hingað af sömu hvötum og aðrir sem sjá hér öruggt og gefandi umhverfi, ekki ólíkt því sem margur maðurinn hefur gert, svo sem Þjóðverjinn Renate (?) 1948, Ungverjinn Lazlo (?) 1956, kínverski Víetnambúinn Dao (?) 1985 og Palestínumaðurinn Rashid (?) 1995. Ekkert þeirra átti líflát yfir höfði sér og við buðum þau velkomin. Af hverju? Vildum við sýna mannúð í verki, kristi- legan kærleika eða að hér væri rými fyrir nokkurn fjölda í sömu stöðu? Eða var um uppgerð- armanngæsku að ræða, svo heim- urinn gæti séð að við erum hvorki rasistar né gersneydd mann- kærleika? Við höfum heyrt og séð margar fréttir af grátandi börnum, hljóð- um einstaklingum, sundurstíuðum hjónum og hnípnum fjölskyldum sem eru send, jafnvel í fylgd svart- klæddra manna, úr landi. Og heyrt fréttir af fólki sem bíður mánuðum eða árum saman í lamandi óvissu um örlög sín. Brottvísunin nú hef- ur stoð í alþjóðasamkomulagi kenndu við Dublin. Undirmönnuð stofnun, sem er fulltrúi okkar gagnvart umheiminum, metur um- sóknir flóttamanna eða hælisleit- enda og kannar bakgrunn þeirra. Í máli albönsku fjölskyldunnar kemst stofnunin að því að þau eru ekki í lífs- hættu heima fyrir og því skuli þau hverfa héðan á vit þess óþekkta. Ekki fer hér fyrir efa og heldur ekki fyrir þeirri hugs- un að útskúfun eða, ef mildara orð er notað, fátækragildra, geti næstum jafnast á við örkuml eða óbærilegt líf. Fráleitt er að úr- skurður um líf eða dauða („ekki í lífshættu“), fundinn upp í íslenskri ríkisstofnun, geti ráðið öllu um framtíð þriggja barna sem ekkert hafa annað gert af sér en biðja sér menntunar, frelsis og atvinnu á Ís- landi. Vissulega getum við ekki tekið við þúsundum manna á ári en svo fáir eru þeir sem hingað koma og biðja sér griða að það er rétt- mæt krafa að þessi tiltekna fjöl- skylda fái að vera um kyrrt. Þá er um leið horft til óvissra örlaga sem hundruð manna hafa horfst í augu við eftir brottför héðan, allt frá því á árunum fyrir seinni heimsstyrj- öldina. Engan úr hópi þeirra sem vísað er úr landi ár hvert hef ég þekkt en sem almennur þegn of- býður mér miskunnarleysið. Lífshætta eða ekki? Eftir Ara Trausta Guðmundsson Ari Trausti Guðmundsson » Við getum ekki tekið við þúsundum á ári en svo fáir eru þeir sem biðja sér griða að það er réttmæt krafa að þessi fjölskylda fái að vera um kyrrt. Höfundur er jarðvísindamaður og rithöfundur. - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.