Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015 Skúli Sverrisson tónlistarmaður er listrænn stjórnandi listahúss-ins Mengi sem er til húsa á Óðinsgötunni rétt við Skólavörðu-stíg. „Mengi verður tveggja ára í desember. Ég held að fyrstu tónleikarnir hafi verið 12. desember. Þetta gengur bara mjög vel eins og ég átti von á. Við erum með mikla dagskrá, þrjá viðburði í hverri viku sem er mikið fyrir litla borg eins og Reykjavík en sýnir hvað mik- ið er að gera í menningarlífinu á Íslandi.“ Í kvöld verður Kriðpleir – leikhópur með sýningu á verkinu Krísu- fundur. Á morgun verða tónleikar sem bera yfirskriftina Revealing the Unseen. Þar koma fram franska radd- og hljóðlistakonan Marie Guilleray og tónskáldin og hljóðlistamennirnir Bjarni Gunnarsson og Steindór Kristinsson. Það er alltaf nóg að gera hjá Skúla sjálfum í spilamennskunni. Hann var síðast að vinna með Kjartani Sveinssyni, fv. hljómborðsleik- ara úr Sigur Rós, en þeir héldu tónleika á Írlandi í síðasta mánuði. Á morgun verða svo útgáfutónleikar með Einar Scheving í Norður- ljósum í Hörpunni kl. 9, þar sem Skúli, Einar, Eyþór Gunnarsson og Óskar Guðjónsson leika. Í vikunni kom út þriðja hljómplata Einars með þessari hljómsveit, og nefnist hún Intervals, en kvartettinn hefur aldrei haldið tónleika áður. Ég hef verið að spila á afmælinu mínu eins langt aftur og ég man og held að ég hafi ekki verið á Íslandi á afmælisdegi mínum í 20 ár. Í dag verð ég á æfingum fyrir tónleikana á morgun og fer svo í Mengi á sýn- inguna.“ Sambýliskona Skúla er Ólöf Arnalds tónlistarkona. Dóttir Skúla er Helena 5 ára og Ólöf á dreng sem heitir Ari og er 7 ára. Í Mengi Skúli Sverrisson tónlistarmaður staddur á Óðinsgötunni. Yfirleitt verið að spila á afmælinu Skúli Sverrisson er 49 ára í dag G uðmundur Ingi fæddist í Reykjavík 23.10. 1955 og ólst þar upp í Vesturbænum, nánar tiltekið á Fornhag- anum. Eins og fleiri Vesturbæingar fæddist hann inn í KR-fjölskyldu en móðurafi hans var einn af stofn- endum þessa elsta knattspyrnu- félags landsins. Guðmundur Ingi æfði knatt- spyrnu og badminton með KR á unglingsárunum. Hann var í Ísaks- skóla, Melaskóla og Hagaskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1976, útskrif- aðist sem rafmagnsverkfræðingur frá HÍ og lauk meistaraprófi í raf- orkuverkfræði frá Danmarks Tekn- iske Universitet (DTU). Guðmundur Ingi réðst til Lands- virkjunar árið 1982 og var þar verk- fræðingur á rekstrardeild, síðar yf- irverkfræðingur og deildarstjóri kerfisdeildar frá 1993. Hann varð kerfisstjóri Landsnets við stofnun fyrirtækisins í ársbyrjun 2005, framkvæmdastjóri kerfisstjórnar frá 1.11. 2005, var aðstoðarforstjóri Landsnets frá ársbyrjun 2008 og er forstjóri þess frá ársbyrjun 2015. Guðmundur Ingi kom að stofnun og hefur setið í stjórnum Fjarska hf., Netorku hf., Orkufjarskipta hf., situr nú í stjórn Samorku, Iceland Geothermal, í aðalstjórn samtaka evrópskra raforkuflutningsfyrir- Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets – 60 ára Guðmundur og Sigrún Hér eru glæsileg hjón í gönguferð í stórfenglegu umhverfi, við Arnarstapa á Snæfellsnesi. Með hugann við rann- sóknir og nýsköpun Skíðafjölskylda Guðmundur og Sigrún með börnunum í Klettafjöllunum. Í dag, 23. október, eiga hjónin Ása Sigríður Ólafsdóttir og Valur Sól- berg Gunnarsson frá Akranesi 50 ára brúðkaupsafmæli. Árnað heilla Gullbrúðkaup Grindavík Arna Dröfn Davíðsdóttir fæddist 23. október 2014 kl. 19.45. Hún vó 1.920 g og var 43 cm löng. For- eldrar hennar eru Edda Ósk Gísladótt- ir og Davíð Sveinn Guðmundsson. Nýir borgarar Akureyri Tómas Uni Geirsson fæddist 5. mars 2015. Hann vó 3.784 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Stella Bryndís Karlsdóttir og Geir Sigurðsson. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.