Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015
Ullarnærföt
í útivistina
Þinn dagur, þín áskorunOLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslunin Bjarg, Akranesi • Verslunin Tákn, Húsavík
JMJ, Akureyri • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar • Nesbakki, Neskaupsstað
Veiðisport, Selfossi • Kaupfélag Skagfirðinga • Hafnarbúðin, Ísafirði • Blómsturvellir, Hellissandi
Kaupfélag V-Húnvetninga • Heimahornið, Stykkishólmi • Eyjavík, Vestmannaeyjum
Verslunin Skógar, Egilsstöðum • Sportver, Akureyri • Pex, Reyðarfirði • Siglósport, Siglufirði
30
ÁRA
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is
100%
Merino ull
Góð og hlý heilsársföt
fyrir karla og konur
Stærðir: S – XXL
FRÉTTASKÝRING
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Landsfundur Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs verður
haldinn nú um helgina. Fundurinn
verður settur klukkan 16.15 í dag,
föstudaginn 23. október, og fer hann
fram á Hótel Selfossi, en fundarslit
eru á sunnudag klukkan hálfþrjú.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, flytur ræðu sína í
dag klukkan 17, en áður verða meðal
annars starfsmenn fundarins kosnir
og kjörbréf samþykkt. Samkvæmt
upplýsingum frá skrifstofu Vinstri
grænna er von á 375 landsfundar-
fulltrúum sem tilnefndir eru af
svæðisfélögum flokksins.
Katrín segir komandi landsfund
leggjast vel í sig. „Við höfum und-
irbúið fundinn afar vel og það liggja
fyrir endurskoðandi stefnuplögg í
öllum helstu málaflokkum,“ segir
hún í samtali við Morgunblaðið og
vísar þar meðal annars til heil-
brigðis-, mennta- og umhverfismála.
„Að mínu mati eru þau viðfangs-
efni sem framundan eru mjög stór.
Ber þar annars vegar hæst að nefna
umhverfismál og loftslagsbreyt-
ingar, en hins vegar misskiptingu
eigna og auðs – ekki bara hér á landi
heldur einnig í hinum stóra heimi.
Um þessi atriði mun ég fyrst og
fremst koma inn á í ræðu minni.“
Aðspurð segir Katrín erfitt að
gera sér grein fyrir því hvort ein-
hver sérstök átakamál komi upp á
landsfundi flokksins. „Það verður
hins vegar mikið rætt um þessar til-
lögur og er ég ekki í nokkrum vafa
um það. Á ég þá ekki einungis við
þær stefnur sem liggja fyrir heldur
einnig ályktanir frá öllum félögum.
Það verður því örugglega mikil um-
ræða ef ég þekki mitt heimafólk.“
Vilja nýtt andlit í embætti
Ekki er búist við framboði gegn
Katrínu í formannskjöri en á land-
stjórnarfundi Ungra vinstri grænna
(UVG), sem haldinn var fyrr í þess-
um mánuði, var samþykkt samhljóða
ályktun þar sem skorað er á hinn 25
ára gamla Daníel Hauk Arnarsson
að gefa kost á sér til embættis vara-
formanns flokksins. Núverandi
varaformaður Vinstri grænna er
Björn Valur Gíslason.
Segir í ályktun UVG að rekstur
hreyfingarinnar hafi „umturnast síð-
an Daníel Haukur tók við embætti
starfsmanns Vinstri grænna“ og að
UVG telji að hann sé „hæfasti mað-
urinn til að leiða forystu“ flokksins
ásamt formanni hreyfingarinnar.
„Við leggjum mikla áherslu á að fá
inn ungt fólk. […] Hann býr yfir
miklum persónutöfrum og því gott
efni í varaformann flokksins,“ segir
Sigrún Birna Steinarsdóttir, tals-
kona UVG. Spurð hvort grasrót
flokksins ætli að láta til sín taka á
landsfundinum kveður Sigrún Birna
já við. „Hver og einn tekur sitt mál-
efni og við ætlum að berjast fyrir
okkar skoðunum.“
Bjarkey Gunnarsdóttir, þingmað-
ur Vinstri grænna, tekur undir með
formanni sínum og segir von á „fjör-
ugum umræðum“ á fundinum. Spurð
út í hugsanlegt framboð Daníels
Hauks til varaformennsku svarar
hún: „Öll framboð eru af hinu góða
og enginn á öruggt sæti. Ég held að
það sé öllum flokkum hollt að fá
áskorun um embætti innan flokka og
því ekkert út á það að setja. […] Mér
finnst allt í lagi að hann fari fram.“
Annar heimildarmaður innan
flokksins segist ekki eiga von á nein-
um átakafundi að þessu sinni. „Ég
hef ekki trú á því að þarna verði ein-
hverra stórra tíðinda að vænta,“
segir hann og bætir við: „En í þeim
átökum sem kunna að koma upp
varðandi varaformanninn myndi ég
eflaust kjósa Daníel Hauk.“
Fyrr í þessari viku var send út
önnur áskorun á Daníel Hauk að
bjóða sig fram til embættis og að
þessu sinni rituðu 74 stuðnings- og
áhrifamenn innan flokksins nafn sitt
við. Má þar nefna tvo fyrrverandi
framkvæmdastjóra Vinstri grænna,
Sóleyju Tómasdóttur borgarfull-
trúa, og Sóleyju Björk Stef-
ánsdóttur sem sæti á í bæjarstjórn
Akureyrar.
„Það verður mjög spennandi að
sjá hvort Daníel Haukur bjóði sig
fram,“ segir Sóley Björk og bætir
við að hún treysti sér hins vegar
ekki til þess að meta stöðu núver-
andi varaformanns í embætti. „Hún
kemur bara í ljós.“
Ný andlit þurfa greiða leið
Samkvæmt nýlegri könnun MMR
á fylgi stjórnmálaflokka mælast
Vinstri grænir með 11,8% fylgi nú
samanborið við 8,3% fylgi hinn 24.
september síðastliðinn. Spurð hvort
nýr og ungur varaformaður gæti
laðað til sín fylgi fleiri kjósenda
svarar Sóley Björk: „Þetta snýst
ekki einungis um að ná til kjósenda
heldur einnig til þeirra sem vilja
starfa með flokknum. […] Það er
einnig mikilvægt að til sé greið leið
fyrir ný andlit og um leið að við
séum opin fyrir breytingum.“
Formaður Vinstri grænna vildi
hins vegar ekki taka afstöðu til
hugsanlegs framboðs Daníels Hauks
til embættis. „Allir félagar geta boð-
ið sig fram í öll embætti og frestur til
þess rennur út á fundinum. […] Ég
hef átt mjög gott samstarf við sitj-
andi varaformann en fagna því líka
að fólk hafi áhuga á að vinna með
okkar hreyfingu,“ segir hún.
Til marks um mikla grósku
Sjálfur segir Daníel Haukur þenn-
an meðbyr með hugsanlegu fram-
boði hans koma honum nokkuð á
óvart. „Þetta sýnir, að ég held, fyrst
og fremst hversu mikið líf og gróska
er í hreyfingunni,“ segir Daníel
Haukur, en þegar
blaðamaður
ræddi við hann í
gær hafði hann
enn ekki gert upp
hug sinn. „Það
eru mjög margir
vinklar á þessu
máli sem nauð-
synlegt er að
skoða. Ég mun
hins vegar gera
það sem ég tel vera Vinstrihreyfing-
unni – grænu framboði til fram-
dráttar,“ segir hann.
Daníel Haukur hefur áður boðið
sig fram til varaformanns Vinstri
grænna og gerðist það árið 2013.
„Þá var ég hluti af ungliðahreyfing-
unni og gert á öðrum forsendum en
ef ég myndi bjóða mig fram núna,“
segir hann, en framboði hans þá var
einkum ætlað að vekja athygli á ung-
liðastarfi flokksins.
Yrði Daníel Haukur varaformaður
segist hann myndi beita sér einna
helst fyrir eflingu á innra starfi
flokksins, styrkja svæðisfélögin og
tengja grasrótina betur við bæði
þingflokk og stjórn. „Ég vil efla and-
ann í hreyfingunni og félagsmenn, fá
með okkur fleira fólk og tala fyrir
þessari skýru vinstri stefnu sem við
höfum alltaf talað fyrir því hún á svo
sannarlega erindi upp á borð núna.“
Er von á hrókeringu á fundi?
Landsfundur Vinstri grænna hefst á Selfossi í dag Formaður flokksins segist eiga von á miklum
umræðum Hugsanlegt framboð til varaformennsku flokksins virðist hafa sterkan meðbyr
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samherjar Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður Vinstri grænna, og Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksins, á landsfundi 2013.
Katrín
Jakobsdóttir
Sóley Björk
Stefánsdóttir
Björn Valur
Gíslason
Bjarkey
Gunnarsdóttir
Daníel Haukur
Arnarsson