Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015 ✝ Halldóra BjörgPálsdóttir fæddist í Ísafjarð- arsýslu 14. sept- ember 1936. Hún lést á Landakoti 9. október 2015. Foreldrar henn- ar voru Sigríður Haukdal Andrés- dóttir, fædd í Höll í Haukadal í Dýra- firði 17. febrúar 1914, d. 8. febrúar 2004, og Páll Bjarni Sigfússon, fæddur á Ísa- firði 29. júní 1900, d. 28. október 1970. Systkini samfeðra: Rósa, f. 19. janúar 1922, d. 26. október 2001, Sigríður Guðbjörg, f. 3. janúar 1929, d. 16. febrúar 2006, Þorkell Páll, f. 19. júlí 1932, d. 19. apríl 2008, Sigfús Ásgeir, f. 4. nóvember 1934, d. 16. mars 1980, Ólafur Hersir, f. 20. júní 1936, d. 26. febrúar 1997, og Daníel Karl, f. 24. júní 1938. Hinn 31. desember 1966 gift- ist Halldóra Snorra Jóhanns- 24. september 2013, og Gunnar Darri, f. 17. apríl 2015. b) Sig- rún Halldóra, f. 24. nóvember 1991, maki Sveinn Yngvi Val- geirsson, f. 7. ágúst 1987. Börn þeirra eru: Þórunn Ósk, f. 4. júní 2013, og Jóhann Valgeir, f. 25. ágúst 2015. c) Snorri Heiðar, f. 31. janúar 1997. d) Snædís Ólöf, f. 28. mars 2007. Halldóra ólst upp á Sveins- eyri í Dýrafirði hjá móðurfor- eldrum sínum, þeim Andrési Guðmundssyni og Ólafíu Jóns- dóttur. Hún lauk gagnfræða- námi frá Núpsskóla og fór eftir það suður til Reykjavíkur í leit að vinnu. Hún hóf störf við þjón- ustu og umönnun á Sankti Jós- epsspítala í Hafnarfirði. Síðan lá leið hennar til Bessastaða í tíð Ásgeirs Ásgeirssonar forseta og starfaði hún þar fyrst sem stofu- stúlka og síðar sem ráðskona. Starfsferill hennar hefur lengst af verið á Bessastöðum og þjón- aði hún alls fjórum forsetum á starfsævi sinni. Árið 1982 tók Halldóra að sér meðhjálpara- starf við kirkjuna á Bessastöð- um og gegndi því fram til árs- loka 2014. Útför Halldóru fer fram frá Bessastaðakirkju í dag, 23. októ- ber 2015, kl. 13. syni, f. 22. júlí 1944, þau slitu samvistir 1988. Foreldrar hans voru Jóhann Jónasson, f. 2. mars 1912, d. 30. desem- ber 2005, og Mar- grét Sigurð- ardóttir, f. 3. mars 1916, d. 9. janúar 2011. Börn Hall- dóru og Snorra eru: 1) Sigríður Margrét, f. 9. mars 1966, maki Ragnar Svanur Vilhjálmsson, f. 5. júlí 1965. Þau eiga tvær dæt- ur: Söru Margréti, f. 17. desem- ber 1997, og Rebekku Steinunni, f. 10. október 2001. Fyrir átti Ragnar soninn Hörð, f. 5. apríl 1992. 2) Andrés Jóhann, f. 25. apríl 1967, maki Ragnhildur Skúladóttir, f. 29. júní 1967. Börn þeirra eru: a) Sandra Mjöll, f. 17. desember 1989, maki Sigurjón Einar Gunn- arsson, f. 6. ágúst 1988. Börn þeirra eru: Ragnhildur Karen, f. Elsku amma. Við vitum eiginlega ekki hvar við eigum að byrja, það er svo margt sem við eigum eftir að sakna nú þegar þú hefur yfirgefið þessa jörð. Sérstaklega þar sem jólin nálgast og við vorum vön að stússast fyrir jólin saman, til dæmis fara í jólagjafaleiðangur, baka ljúffengu sörurnar þínar og fara með þér á jólaböll á Bessa- stöðum. Margar minningar koma upp í huga okkar þegar við hugsum til þín, hvað það var gott að koma og gista hjá þér, þú last fyrir okkur ævintýri fyrir svefninn og það var svo gaman að hlusta á þig lesa. Þú kenndir okkur að spila á spil og varst alltaf tilbúin að hjálpa okkur þegar við þurftum aðstoð. Aldrei kom maður að lok- uðum dyrum hjá þér, við vorum alltaf velkomin til þín og þú faðm- aðir okkur svo innilega að faðm- lögum þínum verður seint gleymt. Hér er smá brot úr vísu sem okkur fannst lýsa þér vel. Hver er sú kona sem opnar sitt hjarta, gerir hverja barnsframtíð skæra og bjarta. Huggar og lagar sérhvert mein, og ef eitthvað vantar er hún aldrei sein. Það rifjast upp fyrir okkur gamlir tímar þegar við vorum hjá þér á Sólbarða og horfðum alltaf á leikritið Síðasti bærinn í daln- um og fengum eitthvað gott að borða hjá þér, það er þér að þakka að við elskum ís. Það var svo gaman að fá að koma með þér í vinnuna upp á Bessastaði og fá að upplifa vinnu- daginn þinn hjá forsetanum, okk- ur fannst svo merkilegt að amma okkar vann hjá forsetanum og okkur finnst það enn. Okkur fannst líka svo merkilegt að amma fékk að hitta prinsessur og prinsa. Þú varst okkur mikil hvatning í námi, komst alltaf í lok annar til að skoða einkunnaspjöldin og varst alltaf jafn stolt. Þú varst mikill dýravinur, komst sérstaka ferð til að gefa hundunum okkar harðfisk og við gleymum ekki þegar þú og Snorri Heiðar feng- uð ykkur köttinn Rómeó saman. Þú varst í skýjunum þegar þú varðst langamma og geislaðir al- veg þegar þú hittir langömmu- börnin þín, þér fannst svo gaman að fylgjast með þeim og hlóst mikið að þeim, þér fannst þau svo sniðug og skemmtileg. Við gætum haldið endalaust áfram að rifja upp gamlar og góð- ar minningar með þér sem munu alltaf lifa í hjörtum okkar. Við fundum þetta fallega ljóð sem við látum fylgja með. Við munum sakna þín sárt, elskum þig alltaf, kossar og knús, þín barnabörn. Kveðja til ömmu Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlést okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili.) Sandra Mjöll Andrésdóttir, Sigrún Halldóra Andrés- dóttir, Snorri Heiðar Andrésdóttir, Snædís Ólöf Andrésdóttir. Haustið er komið með alla sína litadýrð og hringrás náttúrunnar heldur áfram sinn vanagang. Elskuleg frænka mín Halldóra Björg Pálsdóttir hefur nú kvatt þennan heim eftir stutt en erfið veikindi. Dóra, eins og hún var alltaf kölluð af okkur fjölskyld- unni, fæddist á Sveinseyri í Dýra- firði og ólst þar upp hjá afa okkar Andrési og ömmu Ólafíu. Móðir hennar Sigríður flutti til Reykja- víkur til að stunda vinnu er Dóra var tveggja ára gömul en kom alltaf reglulega vestur í sumar- leyfum sínum og áttu þær mæðg- ur þá góðar stundir saman. For- eldrar mínir Sigurjón og Ásta og við systkinin bjuggum líka á Sveinseyri í sambýli við afa og ömmu. Við eldri systkinin, ég, Kristján og Ólafía, ólumst því þarna upp í nánu sambandi við Dóru. Við vorum nokkuð yngri en hún var fimm árum eldri en ég. Dóra gekk í barnaskólann í Haukadal og á unglingsárunum fór hún í Héraðsskólann á Núpi. Þar var hún í tvo vetur og af frá- sögnum hennar frá þessum tíma var dvölin skemmtileg og lýsti hún þessu oft vel fyrir yngri frænku sem hlustaði af áhuga. Hún eignaðist góða vini bæði í barnaskólanum og í Núpsskólan- um. Það var mikið lesið heima hjá okkur á Sveinseyri og hafði Dóra mjög gaman af að lesa bækur og var hún afar minnug. Mér eru mjög minnisstæðar stundirnar sem hún spilaði fyrir okkur börn- in á gítarinn sinn og söng við góð- ar undirtektir okkar hinna. Það er fallegt á Sveinseyri, mjög víðsýnt um fjörðinn og veit ég að henni var mjög annt um þennan stað þar sem við ólumst upp í nánu sambandi við náttúr- una og það frjálsræði sem sveitin gaf. Við börnin tókum þátt í öllum sveitastörfum, svo sem heyskap, sauðburði, smalamennsku og fleiru. Fljótlega eftir dvölina á Núpi fór hún til vinnu í Reykjavík en hélt tryggð við átthagana og kom heim að sumri til. Um 18 ára aldur var hún alfarin til Reykja- víkur og nú gátu þær mæðgur notið þess að vera meira saman. Dóra var mjög frændrækin og gestrisin. Mér er minnisstætt hvað það var gott að koma á heimili hennar. Okkur frænkum hefur hlotnast sú ánægja í gegn- um tíðina að geta mætt hver hjá annarri á stórum stundum í lífi okkar og afkomenda okkar. Dóru var mjög annt um fjölskylduna sína, börnin sín þau Sigríði Mar- gréti og Andrés Jóhann, tengda- börnin, barnabörnin og lang- ömmubörnin. Mestur er nú missir þeirra. Frænka mín lét sig varða um velferð mína og minnist ég um- hyggju hennar þegar ég byrjaði mína fyrstu skólagöngu í Hauka- dalsskóla sem og síðar þegar við vorum báðar fluttar til Reykja- víkur. Þegar ég kvaddi hana í síð- asta sinn á Landspítalanum, hún þá orðin mjög veik, var það síð- asta sem hún sagði við mig eftir að ég kvaddi hana: „Passaðu þig að detta ekki, Veiga mín.“ Ég lyfti hækjunni og sagðist vera með góða hjálp og við hlógum báðar innilega. Ég kveð nú mína kæru frænku með innilegri þökk fyrir allt. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Innilegar samúðarkveðjur til ykkar, elsku fjölskylda, Sólveig Arnfríður Sigurjónsdóttir. Dýrafjörður og Bessastaðir. Sveitastúlkan sem kom ung til starfa hjá Ásgeiri og Dóru og varð svo í áratugi hollur ráðgjafi allra sem síðar urðu forsetar lýð- veldisins, sálin og kjölfestan, gleðigjafi og reynslusjóður í dag- legri önn forsetasetursins, létt í lund á formlegum stundum og stýrði með öryggi viðburðum og móttökum til heiðurs tignum gestum jafnt sem íslenskri al- þýðu. Halldóra Pálsdóttir bar ætíð í fasi sínu, viðmóti og hugsun veganestið sem hún fékk í hinum fagra firði, var hinn glaðværi Vestfirðingur sem gerði sér aldr- ei mannamun en lærði líka að fága formið í samskiptum ráða- manna eins og þrautreyndur diplómat. Forsetaembættið byggist ekki aðeins á regluverki eða ákvæðum í stjórnarskrá heldur fyrst og fremst á fólki; ekki bara forset- anum sjálfum heldur fólkinu sem velst til starfa við embættið. Það hefur ætíð verið fámennur hópur; reyndar undravert að svo fáir hafi í áratugi lýðveldissögunnar skilað öllu því sem þurfti til að gæta þess sóma sem jafnan verð- ur að setja svip á öll verk og at- hafnir þjóðhöfðingjans. Í þessari fámennu sveit hafði Halldóra algjörlega sérstöðu, bæði vegna ríkulegrar reynslu en líka vegna mannkosta sinna og heilinda. Enginn annar í sögu lýðveldisins hefur verið jafn lengi á vaktinni; fyrst í áraraðir með Ásgeir Ásgeirssyni og síðan nutu Kristján Eldjárn, Vigdís Finn- bogadóttir og ég starfa og vináttu Halldóru, fórum að hollum ráðum hennar, mátum mikils þegar hún létti formfastar stundir með hár- fínni kímni eða góðri sögu; jafnt á heimili forsetans sem og í öðrum vistarverum Bessastaða. Ásamt forsetunum fjórum hafa fjölskyldur okkar bundist Halldóru sterkum böndum. Hún varð okkur félagi og vinur í hinni sérstæðu tilveru sem jafnan fylgir búsetu á Bessastöðum. Því kynntumst við Guðrún Katrín vel þegar við komum ásamt Tinnu og Döllu til staðar- ins. Í veikindum Guðrúnar Katr- ínar og eftir andlát hennar var Halldóra klettur í hinni daglegu glímu. Hún varð líka fyrsta vinkonan sem Dorrit eignaðist á Íslandi og gaman að verða vitni að því hve vel dætur Dýrafjarðar og Jerú- salem náðu saman. Við andlát Halldóru þökkum við öll í fjölskyldunni vináttu hennar og trúmennsku, hjálp- semi hennar og hlutdeild í ævi okkar árum saman, jafnt á stund- um gleði sem sorgar. Ég þakka líka einstaka þjón- ustu hennar við embætti forseta Íslands og við kirkjuna á Bessa- stöðum, framlag hennar til þeirr- ar farsældar sem þjóðhöfðingj- arnir hafa notið, allt frá tíð Ásgeirs Ásgeirssonar til okkar daga. Hún var í áraraðir embættinu einstakur fjársjóður reynslu og upplýsinga, þekkti fordæmin og vissi hvað var við hæfi, gat rakið sögu gripa og minja sem prýða staðinn; var í senn sagnabrunnur og gagnabanki; ómissandi á tím- um þegar minnið gilti enn; tölvan ekki mætt til leiks. Þótt Halldóra vildi vegna eðlislægrar háttvísi og hógværð- ar aldrei ræða eigið framlag eru störf hennar í þágu lýðveldisins þökkuð á kveðjustundu. Hennar ævi verður ætíð samofin sögu Bessastaða. Ólafur Ragnar Grímsson. „Vertu dyggur, trúr og trygg- ur“ eru upphafsorðin í heilræða- vísum Hallgríms Péturssonar. Mér fljúga þau orð einatt í hug, þegar ég hugsa til Halldóru Páls- dóttur, sem í dag verður kvödd hinstu kveðju í Bessastaðakirkju. Halldóra Pálsdóttir helgaði Bessastöðum á Álftanesi ævistarf sitt. Hún réðst ung sem aðstoð- arstúlka á forsetasetrinu, í tíð Ás- geirs Ásgeirssonar og frú Dóru Þórhallsdóttur, og batt mikla tryggð við fjölskyldu þeirra, fór m.a. um skeið til Washington til aðstoðar á heimili Þórhalls Ás- geirssonar ráðuneytisstjóra og Lilly konu hans, þegar Þórhallur var fulltrúi Norðurlanda hjá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum. Að sjálfsögðu kom hún úr þeirri för prýðilega mælt á ensku. Hún starfaði fyrir fjóra forseta lýð- veldisins, Ásgeir Ásgeirsson, Kristján Eldjárn, undirritaða og Ólaf Ragnar Grímsson, en fór á eftirlaun fyrir skömmu sam- kvæmt opinberum reglum. Það var happafengur að eign- ast vináttu og starfskrafta Hall- dóru fyrir 35 árum. Hún var með- al þess ómetanlega samstarfs- fólks á Bessastöðum sem var boðið og búið að gera allt úr garði svo sæmd væri að. Við störfuðum öll saman sem vinir og þær eru ófáar stundirnar sem hist var í eldhúsinu, lögð á ráð og skipu- lagt, en líka gantast og hlegið. Þannig verður einmitt traust vin- átta til. Halldóra var glaðsinna, vask- leg og ræðin. Hún vildi hverjum manni gott gera, tryggð við stað- inn var samofin hjálpsemi. Að halda utan um eitthvað aukalega var ekkert mál, svo sem eins og að líta eftir Ástríði minni, þegar móðir hennar fór í kvöldboð. Hún vissi hvar allt var, bæði á einka- heimilinu og í opinberum hluta þessa sérstæða höfuðbóls sem Bessastaðir eru, hélt öllu fáguðu og gekk um beina eins og útlærð- ur þjónn í veislum og við gesta- komur. Hún undirbjó allt af kost- gæfni þegar á þurfti að halda. Hún sá til að mynda um að láta niður í ferðatöskur fyrir stór- ferðalög. Ef mér fannst óþarfi að vera að taka eitthvað mikið aukalega með hafði hún jafnan á orði: „Þetta borðar nú ekki mat.“ Stóra hugðarefni Halldóru Pálsdóttur var Bessastaðakirkja. Hún var kirkjuvörður um langt árabil og einnig meðhjálpari und- anfarin ár og stóð jafnan í innri dyrunum þegar gengið var til messu eða annarra samkoma í þessu aldagamla guðshúsi. Nú er sú tíð liðin þegar hún í dag fer í sína hinstu för frá kirkjunni góðu. Við Ástríður kveðjum Hall- dóru með einlægum vinarhug og hlýju og vottum börnum hennar, barnabörnum og ættingjum öll- um innilega samúð. Blessuð sé minning Halldóru Pálsdóttur. Vigdís Finnbogadóttir. Fallin er frá vinkona okkar og samstarfsmaður Halldóra Björg Pálsdóttir kirkjuvörður. Hún gegndi starfi kirkjuvarð- ar í Bessastaðakirkju af mikilli kostgæfni í rúm 30 ár eða þar til hún lét af störfum um síðustu áramót. Seint verður staða henn- ar fyllt, hún þekkti sögu kirkj- unnar og forsetasetursins betur en nokkur annar enda hafði hún starfað á staðnum frá árinu 1955. Það var dýrmætt að geta leitað í viskubrunn hennar öll árin, allt- af boðin og búin að styðja og leið- beina. Henni var einkar lagið að leggja okkur lið. Hún sló á létta strengi með sögum og sögnum um liðna tíð á þessum annars virðulega stað. Stundum þegar við fórum vill vegar, að hennar mati, fengum við að heyra „nei, nei, nei“, þá vissum við að ekki þýddi að malda í móinn, hún vissi betur enda föst fyrir ef því var að skipta. Hún taldi aldrei eftir sér að vera á staðnum og til taks ef á þurfti að halda og hugsaði afar vel um allt sem að starfinu lét. Hún var trú sínu fólki. Vandfund- in er manneskja sem ber jafn mikla virðingu fyrir starfi sínu og hún gerði. Öll árin sat hún með okkur sóknarnefndarfundi þar sem ákvarðanir voru teknar. Þá tók hún fullan þátt í starfi eldri borg- ara í Bessastaðasókn þar sem hennar verður sárt saknað. Hún var mikill húmoristi og hélt uppi léttu gamni í hópnum. Fyrir öll hennar ráð, vinsemd og traust þökkum við af alhug. Minning um góðan liðsmann lifir. Við vottum fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð. Megi góður Guð blessa minningu Halldóru Bjargar Pálsdóttur. Fyrir hönd sóknarnefndar Bessastaðasóknar, Elín Jóhannsdóttir, formaður. Í sextíu ár hefur Halldóra Pálsdóttir verið okkur mjög kær. Allt frá því árið 1955 þegar hún réðst til starfa á Bessastöðum hjá ömmu Dóru og afa Ásgeiri. Þegar fjölskyldan flutti til Washington árið 1958 vegna starfa pabba flutti Halldóra með og var hjá okkur í tvö ár. Hún var eins og stóra systir, svo barngóð og hlý. Minningarnar eru margar og ljúfar eins og þegar hún spilaði á gítar og söng fyrir okkur. Hjá okkur var hún ávallt kölluð Haddana, sem henni fannst ekki leiðinlegt því ekki gátu allir sagt nafnið rétt. Á þessum árum hnýttum við þau vináttubönd sem aldrei rofn- uðu. Alltaf var Halldóra tilbúin með góð ráð þegar til hennar var leitað. Hún var algjör meistari í matargerð og skipulagningu á fínum veislum. Ef hún átti heim- angengt mætti hún sjálf á staðinn og þá urðu fagnaðarfundir. En nú skilja leiðir og Haddana okkar leggur í þá langferð sem bíður okkar allra. Okkur langar til að nota tækifærið til þess að færa þakkir fyrir trygglyndi hennar og velvild um áratuga skeið. Fjölskyldu hennar vottum við innilega samúð. Sverrir, Dóra, Ragna og Sólveig. Halldóra Pálsdóttir var bara nítján ára vestfirsk sveitastúlka þegar Ásgeir Ásgeirsson forseti kallaði hana til verka á Bessa- stöðum um miðjan sjötta áratug síðustu aldar. Þá voru Bessastað- ir fjölmennt íslenskt sveitaheim- ili með mjólkandi kúm í fjósi, gróðurhúsi og stórum kartöflu- garði, og Halldóra bjó ásamt for- setahjónunum og fjölskyldu þeirra á efri hæð Bessastaða- stofu. Allar götur síðan fléttuðust líf Halldóru og Bessastaðir, hún vann hjá embættinu í tíð fjögurra forseta allt þar til hún lét af störf- um fyrir aldurs sakir fyrir tæp- um tíu árum. Hún var kirkju- vörður og meðhjálpari Bessastaðakirkju um langt árabil og hélt þeim störfum áfram fram á síðustu ár. Halldóra var lífið og sálin á þessum fámenna vinnustað þar sem allir þurfa helst að geta gengið í hvert verk þegar mikið liggur við, hláturmild og gáska- full, sagnasjóður og reynslu- banki, gerði sér aldrei manna- mun. Hún var skemmtileg kona og stundum dálítið stríðin en aldrei meinfýsin, úrræðagóð og ham- hleypa til allra starfa og kunni jafnt að sinna tignum gestum sem að skúra kirkjugólfið og gerði ekki upp á milli verka. Hall- dóra var vel að sér og fróð, sér- fræðingur í sögu Bessastaða og kunni skil á hverjum grip sem þar er varðveittur. Hún varð traustur fjölskyldu- vinur forsetanna fjögurra sem hún vann með og allra sinna sam- starfsmanna sem nú sakna góðr- ar vinkonu. Ég vil, fyrir hönd okkar allra, þakka Halldóru sam- fylgdina góðu og uppeldið um leið og ég færi fjölskyldu hennar inni- legar samúðarkveðjur. Megi bjartar minningar sefa sorg. Örnólfur Thorsson. Halldóra Pálsdóttir var ættuð frá Þingeyri og héldust tengsl hennar við fjölskyldu okkar órof- in frá því að hún kom kornung að Bessastöðum til að fara í vist hjá afa okkar og ömmu, Dóru Þór- hallsdóttur og Ásgeiri Ásgeirs- syni. Við systkinin eigum því minn- ingar um Halldóru allt frá því við Halldóra Björg Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.