Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015 ✝ Steindór Krist-inn Ingimund- arson (Daddi), bif- vélavirki og bíla- málari, fæddist í Bygggarði, Sel- tjarnarnesi, 30. janúar 1945. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 13. október 2015. Foreldrar hans voru hjónin Stefanía G. Guð- mundsdóttir, f. 2.6. 1920, d. 29.12. 2003 og Ingimundur G. Steindórsson, f. 25.12. 1920, d. 10.8. 1993. Systkini Steindórs eru: 1) Drengur, f. 31.8. 1942, d. 30.11. 1942. 2) Inga Marta, f. 2.9. 1943, d. 24.5. 2012. Eftirlifandi maki hennar er Sigurður Stef- ánsson, f. 15.7. 1944, og áttu þau fjögur börn. 3) Sigurlaug, f. 25.6. 1946, gift Jónasi Hann- essyni, f. 11.4. 1945 og eiga þau fjögur börn. 4) Eyjólfur Þór, f. 22.6. 1949, giftur Ingibjörgu Helgadóttur, f. 10.6. 1949 og eiga þau þrjú börn. 5) Guð- mundur Svanberg, f. 12.6. 1953, giftur Guðrúnu Þorbjörns- dóttur, f. 18.8. 1954, og eiga þau þrjú börn. Steindór eignaðist dótturina Helgu Dóru, f. 16.9. 1962, með Elsu E. Drageide. Helga Dóra á aðinn þar sem hann vann m.a. í Ísbirninum og hjá Eimskip. Hann fór einnig til sjós en draumur hans var lengi að verða skipstjóri og fór hann í nám til þess en lauk ekki. Daddi dvaldi mikið á Litla- Kambi á Snæfellsnesi hjá ömmu sinni og naut þess mikið. Eftir að hafa kynnst Maríu árið 1966 fór Daddi í Iðnskól- ann og stundaði nám í bifvéla- virkjun. Þá fór hann að vinna á bifreiðaverkstæði Ásmundar Pálssonar tengdaföður síns á Laugarnesvegi 48. Þau Mæja fluttu árið 1972 á Kóngsbakka 9, þar sem þau bjuggu til ársins 1983 þegar þau fluttu í Hagasel 11. Síðar stofnaði Daddi sitt eigið bifreiðaverkstæði að Hamarshöfða 6. Daddi var mjög virkur í skíðaíþróttinni á sínum tíma og var lengi vel félagi í Skíðadeild Fram. Síðar tók golfíþróttin við og voru þau María félagar í GR til fjölda ára. Þá voru þau einn- ig mjög virkir briddsspilarar og spiluðu í fjöldamörg ár og unnu til margra verðlauna. Eftir fráfall Maríu kynntist Steindór Þóru B. Jónsdóttur, f. 6.3. 1950, og hófu þau sambúð í Smárarima 116 í október 2004, þar sem Steindór bjó til dauða- dags. Börn Þóru eru: Þorsteinn, Albert, Berglind og Jón Dagur. Faðir þeirra var Kristján Al- bertsson, f. 28.4. 1944, d. 4.10. 2002. Útför Steindórs fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 23. október 2015, kl. 13. þrjú börn: Sævar, f. 7.4. 1981, Helgu, f. 19.6. 1982, gift Þórði Bjarka Guð- mundssyni, f. 25.1. 1980, og Ólaf Þórð, f. 2.5. 1990. Hinn 1. apríl 1972 kvæntist Steindór Maríu Ás- mundsdóttur (Mæju), f. 19.4. 1947, d. 27.8. 2002. Foreldrar hennar voru Jónína Ágústsdóttir, f. 21.1. 1923, d. 11.8. 2009, og Ásmundur Páls- son, f. 20.2. 1915, d. 10.2. 1996. Steindór og María eignuðust tvö börn. Þau eru: 1) Jóna Dís, f. 12.1. 1972, í sambúð með Inga Ingasyni, f. 30.12. 1969. Þau eiga þrjú börn: Viktor Inga, f. 22.5. 2003, Hjálmar Andra, f. 21.1. 2005, og Maron Lárus, f. 14.11. 2006. 2) Óskar Örn, f. 30.5. 1980, í sambúð með Ingibjörgu Guðmunds- dóttur, f. 13.3. 1982. Þau eiga þrjú börn: Anton Breka, f. 27.2. 2005, Maríu Lenu, f. 7.8. 2009, og Hrafndísi Karen, f. 1.8. 2011. Steindór, eða Daddi, ólst upp á Seltjarnarnesinu en bjó síðar með foreldrum sínum á Vest- urgötu 28. Hann lauk grunn- skólanámi frá Mýrarhúsaskóla og fór ungur út á vinnumark- Það er margt sem flýgur um hugann þegar maður sest niður og ætlar sér að skrifa „nokkur orð“ um föður sinn. Mann sem gaf endalaust af sér til þess að gera mig að betri manni. Allt frá því að beita verkfærum, veiða fisk, slá golfkúlu og keyra bíl til þess að þurrka tár af vanga ef eitthvað amaði að. Þessum kostum varstu gæddur, elsku pabbi, og svo miklu meira til. Þú varst fyrirmynd mín í svo mörgu og hefur mótað mig að svo miklu leyti að ég er hræddur um að Morgunblaðið kæmist ekki inn um bréfalúg- una ef ég ætlaði að skrifa um það allt hér. Kærleiksríkur, um- burðarlyndur, duglegur, vand- aður og góður maður eru orð sem lýsa þér vel. Síðustu árin hafa verið erfið og vildi ég óska þess að við hefðum getað gert meira sam- an, enda áttum við nóg af sam- eiginlegum áhugamálum. Heilsufar þitt bauð því miður ekki upp á það. Eitt var hins vegar heilagt; við horfðum sam- an á boltann. Aðdáun á Arsenal kom frá mér og þú greipst það opnum örmum þegar ég var unglingur. Ég hafði fengið svo mikið af dellum frá þér í gegnum tíðina. Nei, það er ekki hægt að skrifa bara nokkur orð um föð- ur sinn. Sérstaklega ef hann hefur verið manni jafn góður og þú varst mér. Þú átt allt mitt þakklæti fyrir það og ég vil enda þessa grein eins og við enduðum flestöll okkar samtöl. Ég elska þig. Þinn sonur, Óskar. Elsku pabbi minn. Mig langar að þakka þér fyr- ir þann yndislega tíma sem við fengum að eiga saman. Það er svo margs ánægjulegs að minn- ast þó tími okkar saman hafi verið of stuttur. Upp úr standa spjöllin okkar góðu og ferðin út til Jónu í sumar þar sem mikið var spilað og hlegið. Það var mér ómetanlegt, og mér þótti vænt um, þegar þú sagðir mér að þú værir stoltur af mér, þrátt fyrir að ég héldi með Liverpool, þú verandi harður Arsenal-maður í húð og hár. Það er margt sem ég gæti sagt, pabbi minn, minningar sem streyma fram þegar ég skrifa þetta. Þær minningar lifa áfram og munu alltaf hlýja mér um hjartarætur. Að lokum langar mig að láta fylgja með ljóð eftir hann frænda okkar. Þegar einhver fellur frá fyllist hjartað tómi en margur síðan mikið á í minninganna hljómi. Á meðan hjörtun mild og góð minning örmum vefur þá fær að hljóma lífsins ljóð og lag sem tilgang hefur. Ef minning geymir ást og yl hún yfir sorgum gnæfir því alltaf verða tónar til sem tíminn ekki svæfir. (Kristján Hreinsson) Steindór Kristinn Ingimundarson ✝ Jens Krist-jánsson fædd- ist 9. mars 1925 í Ytra-Skógarnesi á Snæfellsnesi. Hann lést á Hjúkrunar- heimilinu Eiri 13. október 2015. Foreldrar hans voru Sigríður Kar- ítas Gísladóttir, f. 7. febrúar 1891, d. 15. nóvember 1988, og Kristján Ágúst Krist- jánsson, f. 4. ágúst 1890, d. 4. júlí 1934. Jens var þriðji í röð níu systkina og eru tvö þeirra enn á lífi, sem og ein uppeldis- systir. Jens kvæntist árið 1957 Ingibjörgu Þorvaldsdóttur, f. 22. ágúst 1937. Börn þeirra Berglind, Árný og Guðjón Ágúst. Fyrir átti Jens dótturina Báru, maki hennar er Eiríkur Gunnarsson. Dætur þeirra eru Erna María og Hrönn. Barnabarnabörn Jens eru 17 talsins. Sem ungur maður starfaði Jens sem lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli, og síðar við járnsmíðar í Reykjavík, en lengst af vann Jens við versl- unarstörf; fyrst hjá Ford- umboðinu Sveini Egilssyni og síðar hjá Bílanaust og lauk sínum starfsferli þar. Jens var í skíðadeild KR til margra ára, einnig gegndi hann trúnaðarstörfum í Versl- unarmannafélagi Reykjavíkur og var virkur félagi í Odd- fellow-reglunni. Útför Jens fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 23. október 2015, klukkan 13. eru: 1) Þorvaldur, maki hans er Ragnheiður Þór- ólfsdóttir. Sonur þeirra er Hinrik Valur. Fyrir átti Þorvaldur dótt- urina Ingibjörgu með Unni Guð- rúnu Baldurs- dóttur. 2) Sig- urður, maki hans er Sjöfn Sóley Kolbeins. Börn þeirra eru Jenný Kristín, Sigurður Haf- steinn og Emil Þorvaldur. Fyrir átti Sigurður Jóhannes Hafstein og Málfríði Ernu með Guðrúnu Margréti Jóhannesdóttur. 3) Jóna Kar- en, maki hennar er Guðjón Símonarson. Börn þeirra eru Þó að það sé ekki mikið um tár er ég í hjarta mjög sár. Þakklæti er mér efst í huga með þig mér í hjarta, læt ekkert mig buga Það var sérstakt samband milli þín og mín alveg sama hvað, ég er litla afastelpan þín enda fékk ég þann heiður að bera þitt nafn minningar okkar gleðja mitt hugar- safn. Þinn tími er kominn, veit ekki hvernig mér á að líða. Þegar það kemur að mér veit ég að þú verður þar að bíða. (Höf. Jenný Kristín) Jenný Kristín Sigurðardóttir. Í dag þegar ég kveð elskuleg- an afa minn, afa Jenna, kemur margt upp í hugann. Efst í huga er þakklæti fyrir að hafa fengið að eiga hann sem afa, fengið að heyra allar skemmtilegu ferða- sögurnar hans þar sem hann fræddi mig og vakti áhuga minn á hinum ýmsu stöðum í heim- inum. Ástin, umhyggjan og ein- lægur áhugi sem hann hefur sýnt mér alla tíð og síðar börn- unum mínum. Afi var maður sem nýtti sinn tíma svo vel, lifði góðu viðburða- ríku lífi, kynntist fjölda fólks og gaf af sér hvert sem hann for. Heimili ömmu og afa hefur ávallt verið fullt af hlýju og ást, og eitt það verðmætasta er at- hyglin sem manni er veitt; alltaf tími fyrir spil, spjall og nærveru. Ég er einnig þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast afa á ann- an hatt þegar ég varð fullorðin, ég hef verið svo heppin að hafa haft mikinn tíma undanfarin ár til að njóta heimsókna til ömmu og afa. Sá tími er mér svo verðmætur og kær og gaf mér margar góðar minningar um elsku afa Jenna minn. Elsku afi, ég kveð þig með miklu þakklæti í hjarta. Takk fyrir alla ástina og hlýjuna sem þú hefur gefið mér alla mína ævi. Sofðu vært elskan mín. Ástar- og saknaðarkveðjur, þín Berglind. Elsku afi Jenni. Er ég hugsa til hans fæ ég hlýju í hjartað því það var það sem hann gaf mér frá því ég man eftir mér. Alltaf svo gott að vera í kringum hann, rólegt og yfirvegað. Það var samt aldrei langt í grínið og hann var orðheppinn og skemmtilegur. Ég er heppin að hafa átt besta afa og bestu ömmu sem hægt er að hugsa sér. Þegar ég var lítil voru þau alltaf með mig, tóku mig með í útilegurnar, leikhúsið, jólaböllin í Oddfellow og svo margt skemmtilegt sem við gerðum saman. Er ég lít til baka á ég ótal stundir til þar sem ég sat með honum og hann kenndi mér að tefla eða leggja kapal eins og hann gerði svo oft eða bara spjalla saman. Þetta var hann, góður og traustur og til staðar. Minning- arnar um afa geymi ég sem fjár- sjóð og mun hafa að fyrirmynd í framtíðinni. Guð gefi ömmu minni og alnöfnu, pabba, Jónu og Sigga styrk í sorginni. Megi minningin um elsku afa vera ljós sem lifir. Ingibjörg Þorvaldsdóttir. Með þessu ljóði langar okkur að kveðja kæran vin okkar, Jens Kristjánsson. Leiðir okkar og hans góðu konu og kærrar vin- konu okkar, Ingibjargar, hafa legið saman í allt að 60 ár og eru minningarnar okkur ljúfar og dýrmætar. Þó dökkni og dimmi yfir og dagsins lokið önn, sú vissa að látinn lifir er ljúf og sterk og sönn. Hún er það ljós, sem lifir og lýsir myrkan veg. Hún ljómar öllu yfir svo örugg, dásamleg. Við samferð þína þökkum, já, þökkum allt þitt starf. Hrærðum huga og klökkum þú hlaust þá gæfu í arf að eiga huga heiðan og hreina sanna lund, sem gerði veg þinn greiðan á granna og vinafund. Nú ertu héðan hafinn á hærra og betra svið. Þar ást og alúð vafinn en eftir stöndum við. Þig drottinn Guð svo geymi og gleðji þína sál. Í öðrum æðra heimi þér ómi guðamál. (Valdemar Lárusson) Anna og Birgir, Erna og Örn. Jens Kristjánsson ✝ SigurbergurSverrisson fæddist 20. júlí 1925 á Brimnesi í Grindavík. Hann lést 14. október 2015. Foreldrar hans voru Sverrir Sig- urðsson út- gerðarmaður frá Miklaholti í Mikla- holtshreppi, f. 24. júlí 1899, d. 28. mars 1978, og Guðmunda Ólafs- dóttir húsmóðir frá Hæðarenda í Grindavík, f. 18. maí 1901, d. 12. mars 1984. Sam- býliskona hans var Fanney Sigurjóns- dóttir. Útför hans fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag, 23. október 2015, klukkan 13. Þá er bróðir minn hann Diddi í h/f eins og hann var alltaf nefndur í daglegu tali, sem varð níræður í sumar, far- in til feðra sinna. Hann ólst upp í föðurhúsum fram undir tví- tugt. Veturinn 1946 reri hann með Gunnari frá Vík og var hluturinn sjö þúsund krónur. Sama vorið stofnuðu faðir okk- ar, Sverrir Sigurðsson frá Brimnesi, og Diddi auk þriggja annarra Þorbjörn h/f í Grinda- vík og var hlutur hvers sjö þús- und krónur. Þennan sama vetur kynntist hann konu sinni, Sig- ríði Guðmundsdóttur frá Tálknafirði, og giftu þau sig og áttu átta börn og eina uppeldis- dóttur. Diddi var vélstjóri á fyrsta Hrafni Sveinbjarnarsyni GK 255, en vertíðina 1947 varð það óhapp að maður fór einn hring á spilinu. Skipstjórinn kenndi Didda um þetta óhapp og upp frá því samdi þeim mjög illa. Hætti Diddi þá um sumarið og flutti til Keflavíkur að Hafnargötu 20 í eitt herbergi og lítið eldhús og þurfti Sigga að fara í næsta hús eftir vatni. Síðan réð Diddi sig sem vél- stjóra hjá H/f Keflavík og vann þar í nokkur ár. Á þeim tíma var vinnutíminn frá 8 á morgn- ana til 12 á kvöldin á veturna en með þessu starfi var hann leigubílstjóri um helgar og þeg- ar tími gafst. Árið 1952 byggðu þau hjón hús að Sóltúni 10 í Keflavík þar sem þau bjuggu allan sinn bú- skap, nema síðustu tvö árin á Nesvöllum. Þegar H/f Keflavík hætti rekstri fór Diddi til sjós á Tálknafirði með mági sínum Magnúsi Guðmundssyni og var með honum í nokkur ár langt frá heimili sínu, sem þótti allt í lagi í þá daga. Þegar hann kom heim eftir langa útivist fór hann aftur til sjós með Gulla á Voninni og var Sigurbergur Sverrisson Okkar innilegustu þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, HELGU JÓHÖNNU JÓNSDÓTTUR, Brákarhlíð í Borgarnesi, áður Böðvarsgötu 4. Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar fyrir góða umönnun og hlýju. . Jón Björnsson, María Alexandersdóttir, Magnús Þórðarson, Gunnar L. Þórðarson, Hörður Þórðarson, Anna María Kristjánsdóttir, Þórður Þórðarson, Inga Sigurðardóttir, Guðrún Hildur Þórðardóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar kærrar eiginkonu minnar, móður og ömmu, ARNDÍSAR ELLERTSDÓTTUR hjúkrunarfræðings. Sérstakar þakkir til starfsfólks Kvennadeildar Landspítalans fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. . Mats Wibe Lund, Margit Robertet, Anita Lund, Christopher Lund, og barnabörnin Hlynur Smári, Manon, Bjargey, Arndís, Eliot og Ari Carl Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.