Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015 BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 MASTER - DeLUXE HÆGINDASTÓLL MEĐ INNBYGGĐUM SKEMMLI - STILLANLEGUR HNAKKAPÚĐI FJÖLSTILLANLEGT BAK SEM LEGGST ALVEG AFTUR Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Tilhneiging manneskjunnar er að tengjast öðrum á sínum eigin forsendum. Eiginlega má ekkert rugga bátnum, ef þú ætl- ar að komast hjá átökum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Mundu bara að leyna engum stað- reyndum sem skipta máli. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vertu varkár í samskiptum þínum við börn í dag. Gerðu hlutina eins smátt og smátt og þú þarft til þess að komast í gegn- um daginn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Sýndu háttprýði í allri framgöngu því þá mun þér farnast vel. Slepptu frekar því það er þér sjálfum fyrir bestu. Flýttu þér því hægt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft að sjá til þess að þú hvílist reglulega, því annars áttu á hættu að bíða tjón á heilsu þinni. Mundu að lengi má mann- inn reyna. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Taktu ekki að þér aukaverkefni nema þú sért undir það búinn að vera undir álagi í einhvern tíma. Farðu í stutta ökuferð til að njóta útsýnisins eða skoðaðu þig um í búðum eða söfnum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú munt komast að því að þú átt margt sameiginlegt með vinnufélögum þínum. Skrifaðu niður hugmyndirnar eða varðveittu á bandi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur unnið mikið seinustu tvær vikurnar, og nú skaltu ákveða hvernig þú vilt leika þér. Til allrar hamingju hefur þú fulla stjórn á aðstæðum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Einhver ættingi þinn bankar upp á og er stútfullur af nýjum og spennandi fréttum. Bæði þú og aðrir geta átt á hættu að lenda í óhöppum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert í miðjum umbrotatíma og þarft að hafa þig allan við til þess að koma heilskinnaður út úr breytingunum. Annars er hætt við að jákvæðni þín brenni fljótt upp. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Kvöld í félagsskap vina yrði ábyggilega ánægjulegt. Löngun þín til að gera öðrum til geðs getur leitt til þess að þú setjir þér óraunhæf markmið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Samræður munu koma þér á óvart í dag. Vertu viss um að þeir, sem málið snertir, viti ótvírætt hvað þú hugsar. Áþriðjudaginn sagði ég frá því íVísnahorni að „Vísur um blóm og stjörnur“ eftir Skúla Pálsson eru væntanlegar á markað. Í kringum útgáfuna hefur hann sett upp skemmtilegan leik, þannig að á Boðnarmiði er hægt að skrá sig fyr- ir bók og síðan fá vísu í kaupbæti, – ferskeytla kostar minnst, hring- henda ívið meira o.s.frv. Páll setti sér það verkefni að búa til eina vísu á dag í eitt ár. Þær fóru sínar eigin leiðir og sumar vildu raða sér saman í ljóð. Og nú vilja þær standa saman í bók og fá fleiri til að lesa sig. Páll segist aldrei hafa hugsað um vísurnar sem ljóð – „þær eru ekki list sem þjónar listinni heldur frek- ar nytjahlutir“, segir hann. „Um stóra hluti og litla – um hið stóra í hinu smáa“. Bókin skiptist í fjóra kafla sem heita eftir árstíðunum. „Æviskeið“ heitir þetta: Litlu krakkakrílin fá kunna orð að mæla, angur sitt og óskir tjá einatt með að skæla. Táningarnir tjútta og af tómri kæti hoppa, viðstöðulaus vöðvaflog vonlaust er að stoppa. Þó að lengi þetta sker þjaki vondsleg kreppa allra sinna ferða fer fullorðinn á jeppa. Þegar er í lífsins lind löggin næstum búin öldungur með göngugrind gaufar áfram lúinn. Hér er Sumarvísa: Í dag er alveg brjáluð blíða, börnin úti skoppa víða, lifnar óðum lauf á trjánum, leik ég mér og veifa tánum. Og loks er hér kynningarvísa: Skúli Pálsson skáldið er, skemmtilega yrkir, yður býður kvæðakver, Karólína styrkir. Einhvern tíma í byrleysi orti Há- kon Hákonarson í Brokey vísu þessa: Komi leiði um kembingsheiði, Kári beiði ég veiti lið. Boðar freyði, skaflar skeiði skutinn breiða aftan við. Og ekki að sökum að spyrja: Byr blásandi rann á! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísur eru nytjahlutir fremur en list Í klípu „ÉG LOKAÐI GLUGGANUM, EN EKKERT GERÐIST. ÆTTI ÉG AÐ PRÓFA AÐ DRAGA GLUGGATJÖLDIN FYRIR?“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HÆTTU AÐ SEGJA AÐ ÞÚ KUNNIR EKKI VIÐ ÞÁ. ÞÚ ERT BARA BÚINN AÐ GANGA Í ÞEIM Í FIMM MÍNÚTUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann horfir bara á þig. ÞAÐ ER ÞRUMUVEÐUR Á LEIÐINNI HINGAÐ ALVEG EINS OG Í VEÐURFRÉTTUNUM ÉG ER AÐ HALDA BOÐ FYRIR GARÐYRKJU- KLÚBBINN MINN Í DAG… … OG ÞÚ ÞARFT AÐ YFIRGEFA HÚSIÐ!! KOMDU SNATI! FÖRUM Í LYSTI- GARÐINN! ÉG VEIT EKKI HVAÐ ÉG GERÐI EN… … ÞAÐ HLÝTUR AÐ HAFA VERIÐ NOKKUÐ GOTT!ÓKEI TÖL VA TÆKNIAÐSTOÐ TÍSKU SKÓR Víkverji hefur lengi furðað sig áýmsu í nærumhverfinu, en nú skilur hann betur hvers vegna borgarfulltrúar meirihlutans ganga á skýjum og vilja ekki vegi, útgefendur gefa út bók eftir höfund sem er ekki til og blaðamaður á fríblaði tekur við- tal við viðkomandi og birtir jafnvel mynd af höfundi, sem er ekki til. Þetta snýst allt um að fara aftur til framtíðar. x x x Fyrir þá sem ekki skilja – og þeireru örugglega margir – kom út önnur kvikmyndin í þríleiknum Back to the Future (Aftur til framtíðar) 1989 og gerist hún að hluta til í fyrra- dag, 21. október 2015. Þar er meðal annars svifið um á svifbrettum og ferðast í fljúgandi bílum í stað þess að fara ferða sinna á götum – kunnugleg draumsýn úr Ráðhúsinu – og tól og tæki ráða ríkjum við matarborðið, þar sem samtöl venjulegs fólks eiga sér annars gjarnan stað. x x x Ákveðinn hópur virðist ekki lifa íraunheimi heldur draumheimi og því er staðan eins og hún er. Hún kallar fram í huga Víkverja bíómynd sem hann sá í æsku. Víkverja minnir – og minnið er gloppótt – að hún hafi fjallað um dreng, hugsanlega Áslák sem myndin heitir þá eftir, sem var ekki nógu góður í fótbolta, að mati leikfélaganna, en honum áskotnuðust skór sem gerðu honum mögulegt að hoppa á miklum hraða yfir völlinn endilangan og auðvitað gerði hann út um leikinn á örlagastundu. Svona skór hafa ekki sést síðan en í fyrr- nefndri framtíðarmynd er gengið út frá því að sjálfreimandi skór hafi ver- ið komnir á markað í fyrradag. Vík- verji hefur reyndar ekki rekist á þá en ef til vill fást þeir í Hellas. x x x Í Reykjavík er stöðugt verið aðbyggja í draumheimum. Ný byggðarlög rísa á milli þeirra gömlu, innangengt er í vinnuna fyrir allt fólkið auk þess sem öll þjónusta, skól- ar og stofnanir, eru líka í göngufæri. Enginn þarf að fara úr nærumhverf- inu. Hanna og Barbera hefðu ekki gert betri sviðsmynd fyrir Flintsto- nes. víkverji@mbl.is Víkverji Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Sálm. 23:4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.