Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015 anna, sérstaklega síðustu árin hingað austur með mömmu, Konný og Steinunni. Alltaf var hlegið mikið, því það var virki- lega gaman. Nú verða þær góðu stundir ekki endurteknar. Síðasta ferðin hingað með mömmu, Konný, Hildi, Helgu og Guðrúnu var sérlega eftir- minnileg. Að venju var kíkt á Sólheima, farið í búðina og svo kíktum við í kaffi til Ögmundar frænda í bústaðinn hans, það var góður dagur. Ekki má gleyma öllum versl- unarferðunum sem farnar voru í bæinn. Þá var oft mikið fjör, sérstaklega þegar þær systur voru að leita sér að fötum. Þá stóðum við oftast á hliðarlín- unni og hlógum mikið. Þvílíka þolinmæði sem þú hafðir í þetta. Það er sárt að sættast við að nú sé komið að leiðarlokum. Kristgeir minn, þín verður sárt saknað. Stórt skarð er hoggið í okkar raðir. Ég sendi öllum samúðar- kveðjur, einkum Berglindi og hennar fjölskyldu og svo systk- inum Kristgeirs og frændfólki. Ég veit að mamma syrgir sárt bróður sinn. Ykkur öllum og öðrum óska ég að tíminn græði sárin. Ég er á langferð um lífsins haf og löngum breytinga kenni. Mér stefnu frelsarinn góður gaf. Ég glaður fer eftir henni. Mig ber að dýrðlegum, ljósum lönd- um. Þar lífsins tré gróa’ á fögrum ströndum. Við sumaryl og sólardýrð. Og stundum sigli ég blíðan byr og bræðra samfylgd þá hlýt ég og kjölfars hinna er fóru fyrr án fyrirhafnar þá nýt ég. Í sólarljósi er særinn fríður og sérhver dagurinn óðum líður, er siglt er fyrir fullum byr. En stundum aftur ég aleinn má, í ofsarokinu berjast. Þá skellur niðadimm nóttin á, svo naumast hægt er að verjast. Ég greini ei vita né landið lengur, en ljúfur Jesús á öldum gengur, um borð til mín í tæka tíð. Mitt skip er lítið, en lögur stór og leynir þúsundum skerja. En granda skal hvorki sker né sjór því skipi, er Jesús má verja. Hans vald er sama sem var það áður, því valdi’ er særinn og stormur háður. Hann býður: Verði blíðalogn! Þá hinsti garðurinn úti er, ég eygi lönd fyrir stöfnum. Og eftir sólfáðum sæ mig ber, að sælum blælygnum höfnum. Og ótal klukkur ég heyri hringja. Og hersing ljósengla Drottins syngja. Velkominn hingað heim til vor. Lát akker falla! Ég er í höfn. Ég er með frelsara mínum. Far vel þú æðandi dimma dröfn! Vor Drottinn bregst eigi sínum. Á meðan akker í æginn falla. Ég alla vinina heyri kalla, sem fyrri urðu hingað heim. (Þýð.Vald. V. Snævarr) Þín frænka, Eva Björk Kristborgardóttir. Góður drengur er fallinn frá. Það hryggir mig meir en orð fá lýst að ekki hafir þú getað lifað því lífi sem þú þráðir meir en allt. Mikil var spenna þín yfir að geta loksins flutt í þína íbúð eftir sjö ára bið og haft hlutina eins og þú vildir hafa þá. Síðast er þú talaðir við mig sagðir þú mér að þú horfðir út um gluggann í íbúðinni þinni og náttúran væri alls staðar í kring og allt væri svo dásam- legt. Ávallt varst þú boðinn og bú- inn að aðstoða alla þá er báðu þig, og alltaf gat ég stólað á þig ef eitthvað var sem ég gat ekki gert ein, eins og að mála fyrir mig íbúðina, hjálpa mér í flutn- ingum og svo margt margt fleira. Ég man eftir ferðum okkar um landið og á meðan ég keyrði sagðir þú mér af sögur sem pabbi þinn hafði sagt þér þegar þú varst ungur. Þótti mér mikið til þeirra koma og undraðist ég hversu minnugur þú varst á allar þess- ar sögur. Ég man líka eftir veiðiferðum okkar og er við vorum stödd við veiðiá fórst þú að hlaða steinum og spurði ég þig: „Hvað ertu að gera, Krist- geir, af hverju ertu ekki að veiða?“ en þú hélst bara áfram að hlaða steinum. Eftir nokkra stund stóðst þú sigri hrósandi og sagðir: „Svanhvít Varða.“ Þú stundaðir sjóinn í mörg ár og þar leið þér vel. Sönn hetja hafsins varstu. Við áttum margar góðar stundir sem við spjölluðum mikið saman og gerðum helling saman, en síð- ustu árin þín var sjúkdómur þinn orðinn mjög slæmur og þér leið mjög illa. Þú vildir ekki lifa svona og gast ekki skilið af hverju þú réðir ekki við þetta. Sonum mínum varstu góður og ávallt gafstu þér tíma að spjalla við þá, eins við mömmu og pabba. Þér þótti vænt um hversu góð þau voru við þig, eins og það væri ekki sjálfsagt mál, og þótti mér vænt þegar þú baðst um að fá að koma með mér í jarðarför pabba í desember síð- astliðnum því þú vildir votta honum virðingu þína. Ávallt sýndir þú veikum einstakling- um virðingu og gafst þér tíma til að spjalla við útigangsfólk og skildir svo vel líðan þess. Man ég er ég prjónaði þrjár lopapeysur og gaf útigangs- mönnum að þú felldir tár af þakklæti og auðmýkt yfir þeirri gjöf. Mig langar að þakka þér þau ár sem við áttum og kveð þig með miklum söknuði, en í hjarta mínu veit ég að þér líður vel og opnir faðmar hafa tekið á móti þér af ástvinum þínum sem þú saknaðir alltaf svo mik- ið. Ég kveð þig með ljóði sem passar svo vel við þig. Birtast myndir en brenna mig þar blæða gömul ár. Í hjarta mínu þrái þig með þúsund falin sár. Í skugganum ég beið og bað þá brast mitt hjarta hljótt. Og allir vissu að eld bar að og aldrei varð mér aftur rótt. Inn í mér kom trega teinn ég trú ekki á neitt. Mér finnst ég alltaf vera einn því eitthvað hafði meitt. Og myrkraþokan þjakar mig ég þrýsti litla hönd. Hún leiddi mig að leik við sig en lagði svo frá strönd. Því snemmbúið var skipið þitt í seglin vindinn bar. En stormarnir á skipið mitt þeir stýrðu mér í var. Ó tregabundna lilju ljóð þú lifir árin öll. Þú berð mitt fall að faldri glóð ég flýg að þinni höll. (Stefán Finnsson.) Þín vinkona, Svanhvít Brynja Tómasdóttir. HINSTA KVEÐJA Sjaldan er á vísan að róa, Kristgeir. Oft er tvísýnt um að sjómenn nái til hafnar. Nú er enginn vafi. Ágjaf- irnar, köldu dagarnir og tvísýnan er að baki. Þú syrgðir Siggu og foreldra þína. Njóttu nú vina- fagnaðarins. Sigurjón Magnús Egilsson. ✝ SigríðurHelgadóttir fæddist á Háreks- stöðum í Norður- árdal 11. ágúst 1921. Hún lést á Dvalarheimilinu Grund (Litlu Grund) 16. október 2015. Foreldrar Sig- ríðar voru Helgi Þórðarson, f. 3. febrúar 1877, d. 11. febrúar 1951, og seinni kona hans, Ingi- björg Skarphéðinsdóttir, f. 6. júlí 1890, d. 11. mars 1965. Systkini Sigríðar: Rögnvaldur Ingvar, f. 17. júní 1911, d. 14. janúar 1990, Sigurþór , f. 19. febrúar 1913, d. 4. apríl 1995, Laufey, f. 6. ágúst 1914, d. 4. janúar 1983, Sigurlaug, f. 24. mars 1916, d. 21. október 2009, Óskar, f. 14. september 1917, d. 2. júní 1993, Gunnar, f. 23. september 1924, d. 19. október maki Haraldur Hilmar Heim- isson, f. 25. nóvember 1980. Synir þeirra eru Heimir Krogh, f. 1. apríl 2008, og Sverrir Krogh, f. 18. maí 2012. Sigríður ólst upp í Norður- árdal og síðar í Hrútafirði en fluttist með foreldrum sínum til Skagastrandar árið 1936, þá 15 ára gömul. Sigríður lauk prófi frá Kvennaskólanum á Blöndu- ósi vorið 1939 og stundaði síð- an ýmis störf á Skagaströnd, var m.a. talsímakona síðustu ár sín þar. Sigríður og Engilbert fluttu til Reykjavíkur 1958 og bjuggu á Bugðulæk 16, sem var á þeim tímum eitt af nýjum hverfum í Reykjavík. Sigríður stundaði nokkur störf í byrjun í Reykjavík, en frá 1. júlí 1960 hóf hún störf hjá Landssíma Ís- lands sem talsímavörður og starfaði við það þar til hún lét af störfum vegna aldurs árið 1991. Eftir að Engilbert lést ár- ið 1982 flutti Sigríður að Fann- borg 3 í Kópavogi og bjó þar þangað til hún flutti á Dval- arheimilið Grund í Reykjavík í mars 2013. Útför Sigríðar fer fram í dag, 23. október 2015, frá Kópavogskirkju klukkan 13. 2007, og hálfsystir Sigríðar, samfeðra, Lára Kristín Helgadóttir Gold- en, f. 12. júlí 1902, d. 13. ágúst 1985. Sigríður giftist 9. febrúar 1941 Engilbert Guð- mundi Óskarssyni, bifreiðastjóra, frá Skagaströnd, f. 10. júlí 1915, d. 13. september 1982. Foreldrar hans voru Óskar Tryggvi Þor- leifsson og Elín Guðmunds- dóttir. Dóttir Sigríðar og Engil- berts er Ingibjörg Ósk, f. 30. apríl 1949, gift Gísla Krogh, f. 14. febrúar 1949, foreldrar hans eru Sigríður Gísladóttir, frá Stóra Hrauni, f. 26. desem- ber 1913, d. 16. október 1986, og Per Krogh frá Bergen, f. 21. janúar 1914, d. 3. janúar 1996. Dóttir Ingibjargar og Gísla er Bryndís Krogh, f. 16. júní 1979, Tengdamóðir mín Sigríður Helgadóttir er látin. Ég gerði mér grein fyrir því strax að hún var ekki allra, en við urðum góðir vinir. Sigga og Berti bjuggu á Bugðulæk. Þegar Berti lést flutti hún í Fannborg í Kópavogi og bjó þar þangað til hún flutti á Grund við Hringbraut. Í Fannborg stundaði hún félagsstarf aldr- aðra, söng í kór aldraðra þar til röddin gaf sig og hún hætti í kórnum, sagði röddina ekki nógu góða fyrir kórinn. Hún gerði allt- af kröfur til sjálfrar sín. Skemmtilegast þótti henni að spila á spil, ýmist vist eða lomber. Siggu þótti gaman að ferðast, hennar fyrsta utanlandsferð var farin árið sem hún varð fimmtug. Eftir það urðu ferðirnar margar. Hún ferðaðist um Evrópu, til Taí- lands, Bandaríkjanna og víðar. Þegar við spurðum hana hvort hún vildi koma með, var svarið alltaf: „Auðvitað vil ég það.“ Um það bil ári áður en Bryndís varð stúdent talaði Sigga um að hún vildi gefa henni bíl í stúdents- gjöf. Ég sagði að ég myndi leita að eins til tveggja ára gömlum bíl. Þá sagði Sigga: „Gísli minn, Bryndís mín fær nýjan bíl frá mér hvort sem ég er lífs eða liðin.“ Eftir allan prufuaksturinn spurði ég hvaða bíl hún vildi helst kaupa. Hún vildi kaupa Renault Clio af því að hann var svo fallegur á lit- inn, fallegt áklæði á sætunum og frábær hljómur í græjunum. Þegar hún hélt upp á afmælið sitt bauð hún nánustu fjölskyldu alltaf á Jómfrúna, þar var ekkert til sparað. Síðustu ár var afmæl- isveislan haldin hjá Bryndísi dótt- urdóttur hennar og að sjálfsögðu var maturinn pantaður frá Jóm- frúnni. Heilsu hennar hrakaði seinni árin svo hún var alls ekki örugg með gang, enda kom það fyrir nokkrum sinnum að hún datt heima hjá sér. Eftir þriggja ára baráttu við kerfið fékk hún inni á Grund. Á Litlu Grund leið henni vel. Öll þjónusta til staðar. Matur, læknisþjónusta, herbergi og þrif á því og síðast en ekki síst fé- lagsskapurinn. Henni þótti gam- an að spila og þegar einhver nýr vistmaður flutti inn var hún ekki lengi að hitta hann kynna sig og spyrja „Spilar þú vist?“ Fyrir u.þ.b. þremur vikum datt hún í herberginu sínu og meiddist illa og þurfti að vera rúmliggj- andi. Síðustu dagana reyndi hún að komast um í hjólastól en það var ekki hennar stíll. Nokkrum dögum áður en hún dó sagði hún við okkur hjónin: „Mig dreymir oft svo mikla vit- leysu.“ Hana dreymdi að hún væri að fara til Siggu og Per (for- eldra minna, sem eru látin), í Hrauntunguna. Þar var mikill snjór og Berti, maðurinn hennar heitinn, var að moka til að það yrði auðveldara fyrir Siggu að komast inn. Hún dó 16. október, sem var einnig dánardagur móð- ur minnar, sem einnig hét Sigríð- ur. Við hjónin túlkuðum draum- inn á sama hátt og erum viss um að Sigga gerði það líka. Það er kannski ástæðan fyrir því að hún sagði okkur frá þessum draumi, en það var ekkert rætt frekar. Hún var 94 ára þegar hún lést. Það er gangur lífsins og í raun ekki sorglegt, en söknuðurinn er til staðar. Kæra Sigga, ég þakka sam- fylgdina í hartnær 40 ár. Ég veit að þér líður vel núna. Þinn tengdasonur, Gísli Krogh. Elsku amma, ég sakna þín meira en orð fá lýst en ég veit að þú ert hvíldinni fegin. Þú hefur staðið af þér ótrúleg áföll í gegn- um tíðina og alltaf staðið keik uppi. Í þetta sinn gat líkaminn þinn ekki meir og ég skil það al- veg, ástin mín. Þú tjáðir mér stundum að þú værir orðin þreytt á þessum verkjum en samt barstu þig svo vel. Þú varst líka ánægð hvað lífið lék við mig og varst með góða ró í hjarta þínu gagnvart mér, Halla og strákunum okkar. Ég er heppin að hafa átt þig að ömmu enda varstu til staðar alla tíð og fékkst nánast fréttir dag- lega. Þú varst sterkur karakter, hugulsöm, húmoristi, stríðin og dugleg að njóta lífsins og ferðast meðan þú gast. Þú sagðir mér oft að þig langaði að verða tónlistar- maður og læra á öll hljóðfærin enda var tónlist eitt af því sem fyllti líf þitt af gleði. Ekki tókst mér að tileinka mér vott af þínum ómældu prjónahæfileikum en hundruð af óaðfinnanlegum peys- um fóru í Handprjónasambandið. Alltaf varstu vel til höfð enda alltaf glæsileg. Hafðir gaman af því að eiga falleg föt og áttir heila kommóðu af skartgripum. Ófáar spilastundirnar í Fannborginni, bókasafnsferðirnar, herbergis- félaginn minn á ferðalögum með mömmu og pabba og allar kök- urnar sem við prófuðum enda okkar helsta uppáhald. Svona mætti lengi telja góðu stundirnar okkar. Á tímabili varstu ekki viss um að lifa það af að sjá mig út- skrifast sem stúdent en þú gerðir það og gott betur. Allur þessi tími hefur verið ómetanlegur. Yndis- legri ömmu og fyrirmynd var ekki hægt að hugsa sér og þú vissir að ég elskaði þig enda gát- um við sagt það beint við hvor aðra. Þú eignaðist nýja augasteina í lífi þínu þegar Heimir og Sverrir komu í heiminn. Mikið hvað þér var annt um þá og varst spennt að heyra fréttir af þeim. Heimi hefur alltaf þótt vænt um þig og hugsar oft til þín. Nú á dögunum vorum við á Tenerife og hann sá heldur frumlegan rafknúinn hjólastól. Hann var ekki lengi að sjá tæki- færið í þessu og sagði að þetta væri eitthvað sem Sigga langamma yrði að eignast. Hann taldi þig alltaf upp þegar hann talaði um fólkið sem hann elskaði. Hann veit núna að þú ert engill á himninum og ert að fylgjast með okkur. Sverrir knúsmeistari með sólskinsbrosið sitt knúsaði þig innilega þegar þið hittust. Sverrir mun kynnast þér betur síðar þeg- ar við deilum sögum okkar af þér. Á meðan sitjum við til skiptis í ömmustólnum hér heima og bönkum á barrómeterinn þinn. Þú ert og verður hjá okkur í anda hér heima í Stararimanum. Ég og Heimir hittum þig tveimur dögum áður en þú fórst. Þú vildir láta greiða á þér hárið og nudda á þér axlirnar. Ég fann hvað þú varst orðin þreytt. Heim- ir fann það líka, honum fannst hann vera að horfa á aðra konu. Við kysstum þig og knúsuðum þig bless. Planið var að hitta þig aftur stuttu síðar en af því varð ekki. Nú ertu farin og ert hvíldinni feg- in, elsku ástin mín. Elsku amma og langamma, við munum hittast seinna en þangað til veit ég að þú munt fylgjast með okkur líkt og afi Berti hefur gert. Þín Bryndís, Heimir og Sverrir. Móðursystir mín Sigríður Helgadóttir, eða Sigga eins og hún var kölluð í daglegu tali, er nú horfin af okkar sjónarsviði. Sigga var glæsileg kona, vel gefin og með fallega framkomu, dugleg og heiðarleg. Fyrsta minning mín varðandi hana er frá Skaga- strönd, en þar bjuggu þá Sigga og Engilbert maður hennar í húsi sem þau kölluðu Skálholt. Engil- bert, sem kallaður var Berti, var ágætis maður, sérstaklega barn- góður og mikill dýravinur. Á Skagaströnd bjuggu líka á þeim tíma móðir mín, önnur systir Siggu og bróðir. Systurnar voru ólíkar en kom einstaklega vel saman og gerðu margt sameigin- legt eins og t.d. í sláturtíð og jóla- bakstri. Sigga var ákaflega sjálf- stæð kona, vann alla tíð utan heimilis, en valkostir voru á þess- um tíma ekki margir. Hún var kvennaskólagengin. Vann fyrstu árin í frystihúsi bæjarins og hafði orð á sér fyrir að vera oft með af- köst á við tvo. Fór síðan að vinna hjá Landsímanum, fljót að af- greiða og röddin falleg, enda hafði hún yndi af því að syngja og af tónlist almennt. Kirkjutónlist var henni hugleikin og hún tók mikinn þátt í félagslífi. Hún var mjög trúuð og leit á lífið hér sem áfanga og óttaðist ekki dauðann. Trúin var henni án efa styrkur í lífinu, sem meðal annars kom svo sterklega fram í því að gefast aldrei upp hvað sem fyrir kæmi. Síðar fluttu þau hjón til Reykja- víkur með dóttur sína Ingibjörgu og vildi svo til að er ég lauk námi leigði ég herbergi í sama húsi í tvö ár. Enn styrktust böndin við það og var notalegt að hafa þau svona nálægt sér. Eiginmaður hennar dó fyrir mörgum árum, en áður voru þau hjónin byrjuð að ferðast erlendis með dótturinni og tengdasyni og naut hún þess mjög og hélt því áfram eftir and- lát hans og líka með vinkonum sínum. Ingibjörg og Gísli og barnabarnið Bryndís og fjöl- skylda hennar voru henni eitt það mikilvægasta í lífinu. Þau reynd- ust henni einstaklega vel, boðin og búin að hjálpa til hvenær sem á þyrfti að halda. Sigga – ég mun ætíð sakna þín og mun oft hugsa til þín. Samúðarkveðjur til aðstand- enda hinnar látnu. Helgi Ingi Sigurðsson. Sigríður Helgadóttir Hún Anna okkar Rósants er dáin. Hún er farin til sumarlandsins. Okkur finnst það of snemmt en eins og oft er sagt: „Þeir fara snemma sem guðirnir elska.“ Það hefur verið þörf fyrir hana í sum- arlandinu. Við sem kynntumst Önnu vit- um að þar var kona með hjartað á réttum stað. Alltaf var hún hress og kát og hvers manns yndi. Þeg- ar við vorum að vinna saman í „Sáló“ var glatt á hjalla og mikið hlegið. Alltaf var hægt að treysta á hana og hún var félaginu mikils virði. Aldrei dró hún af sér í vinnu. Jafnvel þegar hún var veik var hún fyrst til að mæta á stað- inn þegar vinna átti eitthvert verkefni. Yfirleitt var hún líka Anna Árdís Rósantsdóttir ✝ Anna ÁrdísRósantsdóttir fæddist 10. mars 1951. Hún lést 13. október 2015. Útför Önnu Ár- dísar fór fram 19. október 2015. síðasta manneskja til að fara heim. Ef við minntumst á það við hana hvort hún þyrfti ekki að fara heim og slaka á sagði hún brosandi: „Ég er hress og kát, það er ekkert að mér.“ Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (höf. óþekktur) Fyrir hönd Sálarrannsóknar- félagsins á Akureyri, Sæunn S. Jóhannsdóttir, Svanborg Svanbergsdóttir, Sigríður Jóna Gísladóttir og Anna Guðný Egilsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.