Morgunblaðið - 13.11.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.11.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015 www.smarativoli.is / Sími 534 1900 / Smáralind SKEMMTUN FYRIR ALLA! Opið: Mánud. til fimmtud. kl. 14-22 Föstud. kl. 14 - 23 Laugard. kl. 12 - 23 Sunnud. kl.13 - 22 halda upp á afmæli ð! Aldrei of gömul til að Gerðu þér glaðan dag með börnum og barnabörnum í Smáratívolí VERÐ FRÁ 2.390,-pr. mann Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Þetta var mjög góð stund og ánægjulegt þegar svona vel tekst til,“ segir Sigrún Magnúsdóttir umhverf- isráðherra, en Alþingi samþykkti í gær ný náttúruverndarlög með 42 samhljóða atkvæðum. Lögin taka gildi 15. nóvember nk. en þá verða lið- in um sex ár frá því að vinna við heild- arendurskoðun náttúruverndarlaga hófst. Sigrún segir þetta mikilvægt skref í náttúruvernd til framtíðar. „Ég hef ekki upplifað þennan tón fyrr, þetta andrúmsloft, í húsi Alþingis eins og tvo síðustu daga,“ segir Sigrún en þingmenn hafi lagst á eitt við að koma málinu í gegn. „Það hafa lengi verið átakalínur í þessu og það er náttúran sem komin er í hærra sæti hjá öllum,“ segir hún en fólk hafi áttað sig á auðlindinni sem í náttúrunni felst í tengslum við ferðamennsk- una. Sáttin hafi einnig myndast vegna þroska málsins en um- hverfis- og sam- göngunefnd hafi haft samráð við marga sem fengu að koma að málinu og láta sína skoðun í ljós. Þá kom fram í umræðum á Alþingi að helstu deilumál í tengslum við ný lög hefðu verið leyst, en afgreiðslu frumvarpsins var frestað á vorþingi til að tryggja að það fengi full- nægjandi umfjöllun. Helstu efnisatriði nýrra laga eru varúðarreglan svokallaða, almanna- rétturinn, utanvegaakstur og friðlýs- ing svæða. Í nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar er fjallað ítar- lega um varúðarregluna en hún sé ein af meginreglum umhverfisréttar. Kjarna hennar megi lýsa þannig að ef óvissa ríkir um afleiðingar athafna eða athafnaleysis á náttúru og um- hverfi, skuli grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að koma í veg fyrir að óæskilegar afleiðingar verði að veru- leika, jafnvel þótt ekki sé til staðar fullkomin sönnun á orsakasambandi aðgerða eða aðgerðaleysis og mögu- legra afleiðinga, eins og segir í álitinu. Umhverfisráðherra segir ákveðin tímamót vera með fléttun þessarar reglu inn í nýju náttúruverndarlögin. Í nefndarálitinu segir að beiting var- úðarreglunnar sé í samræmi við þró- un í íslenskri og evrópskri löggjöf sem varðar umhverfið á einn eða ann- an hátt. Kafli laganna um akstur utan vega kveður á um undantekningar frá banni á slíkum akstri og taka skuli mið að verndarmarkmiðum laganna. Almannarétturinn skýrður Almannarétturinn var einnig tek- inn föstum tökum í nýjum lögum sem hefur sætt gagnrýni hagsmunasam- taka, þ.e. réttur almennings til frjálsrar farar um landið til að njóta náttúrunnar og útiveru. Núverandi lög veita landeigendum heimild til að banna fólki för um óræktað land á landareign sinni. Ástæða þess sé m.a. fjölgun ferða- manna til landsins. Að sögn Sigrúnar er ástæðan sá fjöldi ferðamanna sem nú flykkist til landsins og felur í sér áður óþekkta áskorun. Við henni þurfi að bregðast og til standi frekari vinna á milli um- hverfis- og iðnaðarráðherra varðandi almannaréttinn og gjaldtöku.  Ný náttúruverndarlög samþykkt á Alþingi  Sex ár frá því endurskoðun lag- anna hófst  „Mjög góð stund og ánægjulegt“  Varúðarregla og almannaréttur Nýr sáttatónn á Alþingi Sigrún Magnúsdóttir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Dreifingarbanni á hrognkelsaseiðum hefur verið aflétt í kjölfar þess að rannsóknir á seiðum hafa leitt í ljós að seiði hjá Hafró í Grindavík og Stofnfiski í Höfnum voru ósýkt og án veirusmits. Hrognkelsaseiði hafa reynst góð náttúruleg vörn gegn laxalús í fisk- eldi. Hrognkelsin éta lúsina af laxin- um í eldiskvíunum. Seiðin hafa verið framleidd hér, bæði í tilraunastöð Hafró á Stað við Grindavík og hjá Stofnfiski í Kirkjuvogi í Höfnum, og flutt út til Færeyja til notkunar í eldisstöðvum. Við sýnatökur Matvælastofnunar greindi fisksjúkdómadeild Tilrauna- stöðvar Háskóla Íslands að Keldum veiru sem veldur sjúkdómnum veiru- blæði. Veiran var í líffærum fiska sem notaðir voru til undaneldis. Er þetta í fyrsta skipti sem veiran er greind hér á landi. Eftir að skipta tjóninu Tekin voru sýni úr fjölda hrogn- kelsaseiða hjá Hafró og Stofnfiski og einnig voru gerðar rannsóknir á seið- um sem flutt höfðu verið til Færeyja. Niðurstöður rannsókna hér leiddu í ljós að öll seiðin voru ósýkt og án veirusmits. Agnar Steinarsson, sér- fræðingur hjá Hafró, segir að ekki séu komnar endanlegar niðurstöður úr rannsóknum í Færeyjum en á ekki von á öðru en þær séu á sama veg. Öllum þeim hrognkelsum sem voru í stöð Hafró var slátrað, eftir að sýni höfðu verið tekin, og nú er unnið að sótthreinsun og endurskoðun verk- ferla. Agnar reiknar með að þráður- inn verði tekinn upp á nýju ári. Búist er við að Stofnfiskur geti fljótlega hafið útflutning á hrognkelsaseiðum til Færeyja. Agnar segir ekki ljóst hvert tjón Hafró hefur orðið. Búið hafi verið að flytja út meirihlutann af seiðunum út, áður en veirusýkingin greindist í síð- asta mánuði. Þá sé eftir að ákveða hvernig tjónið skiptist á milli seljanda og kaupanda seiðanna. Banni við dreif- ingu seiða aflétt  Hrognkelsaseiðin reyndust ósýkt Morgunblaðið/Þorkell Grásleppa Hrognkelsaseiði hafa reynst góð vörn gegn laxalús. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Við vorum sannarlega í mikilli hættu og allir skipverjar hræddir. Enginn sem þarf að horfast í augu við dauðann í 72 tíma, og veit ekki á hvorn veg fer, kemst hjá því að finna til hræðslu,“ segir Þórður Guð- laugsson, fyrrverandi vélstjóri, þeg- ar hann rifjar upp svaðilför díseltog- arans Þorkels mána RE 205 á Nýfundnalandsmið snemma árs 1959. Þorkell, sem nú er 82 ára gam- all, var 1. vélstjóri um borð í þessari eftirminnilegu ferð. Atburðirnir eru rifjaðir upp í nýútkominni bók Ótt- ars Sveinssonar, Útkall í hamfara- sjó. Fleiri íslensk fiskiskip voru á mið- unum við Nýfundnaland þegar þar skall á eitthvert allra versta sjó- veður sem Íslendingar hafa lent í á síðustu öld. Auk Þorkels mána voru þar Harðbakur, Júní, Júlí, Marz, Norðlendingur, Bjarni riddari og fleiri skip. Á skipin öll hlóðst stór- hættuleg ísing. Sjórinn var mínus tvær gráður. Á þriðja hundrað ís- lenskir togarasjómenn voru í lífs- hættu. Einn togaranna, Júlí frá Hafnarfirði, fórst í óveðrinu og með honum 30 skipverjar. Á tímabili lá Þorkell máni fulllestaður eins og borgarísjaki á hliðinni. Öldurnar í kring voru á við átta hæða hús. Bar- ist var upp á líf og dauða við að berja ís. Losuðu sig við bátana Þórði Guðlaugssyni er í fersku minni hvernig nær örmagna skip- verjarnir stóðu í ógnarveltingi og blindbyl úti á glerhálli ísingunni með járnbolta, sleggjur og önnur tiltæk barefli. Vegna klakabunkanna sást vart í brúna á skipunum – vírar og kaðlar voru eins og tunnubotnar að þykkt. Brá áhöfn Þorkels mána á það örþrifaráð að losa sig við björg- unarbátana og logskera davíðurnar í burtu til að létta skipið. Svo svart var ástandið um tíma að skipstjórinn, Marteinn Jónasson, hugleiddi að láta möstrin fara líka. Annaðhvort yrði ísinn barinn af eða dauðinn einn blasti við. Og til allrar hamingju hafði áhöfnin betur í viðureigninni við höfuðskepnurnar. Skipti sköpum að togarinn Mars kom Þorkeli mána til aðstoðar. „Atburðirnir höfðu mikil áhrif á flesta skipverjana og margir voru lengi að jafna sig,“ segir Þórður. Sumir voru orðnir óvinnufærir vegna þreytu, ótta og meiðsla í miðjum hamaganginum. Nokkrir hættu sjómennsku þegar heim kom, aðrir fundu sér pláss í skipum á öruggari miðum. Sjálfur hélt Þórður sínu striki og fór með Þorkeli mána í næsta veiði- túr. Árið 1966 fór hann í land um tíma, en varð síðar vélstjóri á Þor- móði goða, Bjarna Benediktssyni en lengst á togaranum Ottó N. Þorláks- syni. Í hófi sem haldið var í gær í tilefni af útgáfu bókarinnar voru auk Þor- kels, loftskeytamaðurinn á Þorkeli mána, Valdimar Tryggvason, stýri- maðurinn á Mars, Albert Stef- ánsson, og Arngrímur Jóhannsson flugmaður sem var loftskeytamaður á Harðbaki. Þar voru einnig margir aðstandendur skipverja og börn sjó- mannanna af Júlí frá Hafnarfirði. Morgunblaðið/Eggert Útgáfuhóf Þórður Guðlaugsson (t.v.) ásamt Óttari Sveinssyni í útgáfuhófinu í gær, í tilefni af útkomu nýjustu Út- kallsbókar Óttars sem fjallar um óveðrið og hörmungarnar á Nýfundnalandsmiðum í ársbyrjun 1959 Horfðust í augu við dauðann í 72 tíma  Bók um óveðrið mikla á Nýfundnalandsmiðum 1959 SAMÚT, samtök útivistarfélaga, Ferðaklúbburinn 4x4, Ferða- félag Íslands, Íslenski Alpa- klúbburinn og Ferðafélagið Úti- vist mótmæla hugmyndum um skerðingu á almannarétti sem fram kemur í frumvarpi um breytingu á náttúruverndar- lögum. Þetta segir í tilkynningu sem samtökin sendu frá sér í gær. Þau segja miklar breyt- ingar hafa orðið frá frumvarp- inu sem lagt var fram 2013 þar sem útivistarfólki hafi verið tryggð réttarbót varðandi göngu um náttúruna. Nú sé það svipt henni og landeigendum gefið vald til að banna göngu um landareignir sínar. „Enginn tími er gefinn til um- ræðu og svo virðist sem frum- varpið verði keyrt með hraði í gegnum þingið.“ Mótmæla skerðingu ÚTIVISTARFÓLK ÓSÁTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.