Morgunblaðið - 13.11.2015, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.11.2015, Blaðsíða 11
ákveðið var að verja honum til ýmissa styrktarfélaga og fjölskyldu- miðstöðvar Rauða kross- ins. „Ágóðinn af basarnum hefur undantekningarlaust farið til mann- úðarmála. Vettlingar, sokkar, peys- ur og aðrar flíkur, sem ekki seljast á basarnum, verða sendar til Hvíta- Rússlands og Grænlands eins og í fyrra þegar við sendum 400 stykki,“ segir hún. Sjálfboðaliðar Konurnar í handverkshópnum vinna allar sem sjálfboðaliðar, en Rauði krossinn leggur þeim til hrá- efnið, garn og þvíumlíkt. Flestar eru um sjötugt, sú yngsta er 49 ára og nýbyrjuð og sú elsta 92 ára. Margar hafa verið í hópnum í meira en ára- tug. Til dæmis Hulda Jónsdóttir, 81 árs, sem er jafnvíg á föndur og prjónaskap. Eins og reyndar flestar í hópnum, sem áður skiptist í prjóna- hóp og föndurhóp en voru samein- aðir fyrir skemmstu. Ekki aðeins saumar, prjónar og föndrar Hulda fyrir jólabasarinn, heldur vinnur hún við fatabreytingar heima hjá sér. Dóttir hennar á nefnilega tísku- búð. „Þetta eru bara svona tvær til þrjár flíkur á dag,“ segir hún og lítur vart upp frá verki sínu við að flokka fíneríið á föndurborðinu. Sigríður Sigurgeirsdóttir, sem gekk til liðs við hópinn fyrir fjórum árum, og Una Jóhannsdóttir, sem í mörg ár vann sem sjálfboðaliði í verslunum Rauða krossins á spítöl- unum, eru líka önnum kafnar. Og reyndar allar konurnar, enda mikið verk að vinna. Að gefa til baka Það er handagangur í öskjunni. Og glatt á hjalla. „Unglingurinn“ og nýliðinn í hópnum, Rósa Brekkan, aðstoðar af bestu getu. Hún kveðst hafa farið á vefsíðu Rauða krossins til að kanna hvernig starfs- kraftar hennar nýtt- ust sem best sem sjálf- boðaliði, eða – eins og hún orðar það – hvernig hún gæti gefið til baka. Niðurstaðan varð sú að hún hyggst ganga til liðs við handverks- hópinn og leggja sitt af mörkum í hekli og prjóna- skap. Hugmynda- flug kvennanna virðist eiga sér lítil takmörk. Auk nytja- varnings á borð við prjónaðar og heklaðar peysur, húfur, trefla og vettlinga, meira að segja líka á dúkkurnar í sama stíl, gefur að líta – ótrúlegt en satt – hekluð bollastell og bókamerki, prjónaðar jólakúlur og spilastokka. Og alls konar dúllerí, sem nostrað hefur við af mikilli alúð. Í þágu mannúðar Konurnar segjast læra hand- bragðið hver af annarri og stundum hafi þær ekki hugmynd um hver hef- ur gert hvað af því sem þær draga fram á söluborðið. Þær ætla líka að koma með bakkelsi að heiman, en skiljanlega koma þær ekki með það í hús fyrr en sjálfan basardaginn. Eftir basarinn fara þær í jólafrí, en koma saman á sínum hefðbundnu fimmtudagsfundum og hefjast handa við undirbúning jólabasars á næsta ári. Þær prjóna, hekla, sauma og föndra í þágu mannúðar – ár eftir ár. Jólabasar Kvennadeildar Rauða krossins verður haldinn á morgun, laugardaginn 14. nóv- ember, frá kl. 13-16 í húsi Rauða krossins, Efstaleiti 9, Reykjavík. Jólin koma Konurnar í handverks- hópnum skortir ekki hugmynda- flugið. Heklað bollastell, prjónaðar jóla- kúlur og alls konar frumlegt föndur er á boð- stólum á bas- arnum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Glatt á hjalla Konurnar skoðuðu hverja einustu flík og lögðu síðan á ráðin um hæfilegt verð. Fyrirkomulagið var líkt og á uppboði. menn heilsast mjög virðulega í stigaganginum, sem þeir hraða sér flóttalegir upp stigann. Húsið mitt er einnig heppilegt til útleigu vegna smæðar íbúðanna og því er mikið af leigjendum á svæð- inu. Það er því æsispennandi að átta sig á því í hverjum mán- uði hverjir búi nú með þér. Íbúaveltan er hröð sem get- ur skapað óvissu um hvort stigagangurinn verði gerður að skemmtistað eða allt sigli áfram í hefð- bundnu dægurþrasi. Það kryddar vissulega til- veruna að búa einn með öðrum og ókunnugum en framtíðarstefnan er þó kirfilega sett á einbýlis- hús, helst með mjög stórri lóð. Ég bý ein samkvæmt skil-greiningunni, þ.e. það erbara ein manneskjaskráð sem íbúi í íbúð minni. En þó mætti færa rök fyrir því að ég byggi í raun alls ekki ein því ég bý í blokk. Þar eru sextán íbúðir með fleiri íbúum sem lifa all- ir sínu lífi innan veggja íbúðanna. Hins vegar eru fjölbýlishús mörg hver þeim galla gædd að mismiklu var kostað til við einangrun þeirra, þ.e. hversu mikið heyrist á milli hæða og íbúða. Ég vil fullyrða það að í því fjölbýlishúsi sem ég hef fundið mér samastað í voru menn almennt ekki að stressa sig á ein- angrun, þegar það var byggt. Mér til mikillar gleði og jafnmik- ils ama heyri ég því óeðlilega mikið í nágrönnum mínum og þeir í mér væntanlega. Þú veist því innst inni að þegar þú skellir upp úr, sem hendir mig endrum og eins, eða stillir á uppá- haldslagið þitt og hækkar, þá eru ná- grannarnir með í því. Ég og gamli maðurinn í íbúðinni fyrir neðan mig hlustum til dæmis iðulega á RÚV- fréttirnar saman, nema það er bara kveikt á sjónvarpinu í hans íbúð. Þetta gerir okkur öll furðulega náin en utan veggja íbúðanna kann- ast enginn við neitt og »Ég og gamli mað-urinn í íbúðinni fyrir neðan mig hlustum til dæmis iðulega á RÚV- fréttirnar saman, nema það er bara kveikt á sjón- varpinu í hans íbúð. HeimurLaufeyjar Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015 2015 Hilton Reykjavík Nordica 19. – 20. nóvember Skráning á www.sjavarutvegsradstefnan.is Aðal styrktaraðilar Sjávarútvegsráðstefnunnar 2015 S T Æ R S T I V E T T V A N G U R A L L R A S E M S T A R F A Í S J Á V A R Ú T V E G I N U M Fimmtudagurinn 19. nóvember Afhending gagna 09:00 Málstofa - sameiginleg Íslenskur sjávarútvegur Málstofa A1 - Salur A Málstofa B1 - Salur B Lengi býr að fyrstu gerð Ný nálgun við markaðs- - Frá veiðum til vinnslu setningu sjávarafurða Málstofa A2 - Salur A Málstofa B2 - Salur B Hvaða tækifæri sjá erlendir Eru tækifæri fyrir Íslend- aðilar í íslensku fiskeldi? inga í umhverfismálum? Föstudagurinn 20. nóvember Málstofa A3 - Salur A Málstofa B3 - Salur B Togveiðar – Áskoranir Sjávarútvegur og til framtíðar samfélagsábyrgð Málstofa A4 - Salur A Málstofa B4 - Salur B Ferskfiskflutningar Af hverju eru ekki fleiri og markaðir konur í stjórnunarstöðum í sjávarútvegi? Málstofa - sameiginleg Sameiginleg markaðssetning Hluthafafundur Sjávarútvegsráðstefnunnar klukkan 15:30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.