Morgunblaðið - 13.11.2015, Page 6

Morgunblaðið - 13.11.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Færri íbúðir voru í byggingu á höfuðborgarsvæðinu í október en í sama mánuði í fyrra. Alls voru 2.436 íbúðir í byggingu í október 2014 en 2.399 íbúðir í október 2015. Þetta kemur fram í nýrri talningu Samtaka iðnaðarins á uppbyggingu íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Helstu niðurstöður eru sýndar í töflum hér fyrir ofan. Samtök iðnaðarins kynntu nýja greiningu á stöðunni á húsnæðis- markaðnum á opnum fundi í gær. Þau hafa síðan í maí 2010 tíu sinn- um talið umfang þessara fram- kvæmda og eru breytingar milli ein- stakra talninga sýndar hér. Athygli vekur að í maí kreppuárið 2010 voru 2.016 íbúðir í smíðum á höfuðborgarsvæðinu en 2.399 íbúðir í október sl. Það er 19% aukning. Lítil breyting frá samdráttarári Árið 2010 var erfiðleikaár í ís- lensku efnahagslífi og var stærstur hluti íbúða sem þá voru fokheldar eða lengra komnar byggður fyrir hrunið. Nú er hins vegar uppgangur í efnahagslífinu og rætt um skort á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Það vekur einnig athygli hversu lítið er byggt af sérbýli. Fyrstu árin eftir efnahagshrunið var mikið af sérbýli óklárað. Síðan gekk á þann lager þar til nú að uppbyggingin eykst lítillega. Þrátt fyrir það eru að- eins 278 íbúðir í sérbýli nú í smíðum á höfuðborgarsvæðinu. Samtök iðnaðarins hafa jafnframt tekið saman yfirlit yfir væntanlega uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum. Er þar horft til ríflega 90 byggingar- staða/svæða þar sem hægt er að áætla uppbyggingu næstu misserin. Mest byggt í Reykjavík Sé litið til einstakra sveitarfélaga kemur í ljós að á tímabilinu 2015- 2018 verður byrjað á flestum íbúðum í Reykjavík, alls 4.173 íbúðum. Næst kemur Kópavogur með 2.255 íbúðir og svo Hafnarfjörður með 1.231 íbúð. Garðabær er í fjórða sæti með 956 íbúðir og svo kemur Mosfellsbær með 610 íbúðir. Seltjarnarnes rekur lestina en þar verður byrjað á 219 íbúðum. Þessar tölur geta auðvitað breyst á tímabilinu. Bjarni Már Gylfason, hagfræð- ingur hjá SI, var með erindi á fundi samtakanna í gærmorgun. Fram kom í máli Bjarna Más að sögulega hefði árleg fjölgun um 1.000 landsmenn kallað að jafnaði á 500 nýjar íbúðir. Á árunum 2009 til 2014 hefði árlega verið lokið við um 950 íbúðir á ári en hins vegar hefði verið byrjað á mun færri íbúðum. Miklar sviptingar voru í íbúafjölda á fyrri hluta tímabilsins og fækkaði lands- mönnum vegna brottflutnings eftir efnahagshrunið. Heilt yfir er það mat samtakanna að þegar árið 2010 hafi byrjað að myndast þörf umfram framboð sem síðan hafi aukist jafnt og þétt. Á tímabilinu hafi myndast uppsöfnuð þörf upp á 2.500-3.000 íbúðir sem enn hafi ekki verið mætt. Bjarni Már segir aðspurður ekki útlit fyrir að uppsafnaðri þörf verði mætt með auknu framboði húsnæðis á næstu árum en samt séu horfur á að nokkuð sé að rofa til og framboð að vaxa. Tekur að jafnaði tvö ár Friðrik Á. Ólafsson, forstöðu- maður byggingarsviðs hjá Sam- tökum iðnaðarins, segir að nú þyrftu að vera 3.000 til 3.600 íbúðir í smíð- um á höfuðborgarsvæðinu til að mæta eftirspurn, miðað við að lokið sé við 1.500 til 1.800 íbúðir á ári og að byggingartíminn sé að jafnaði tvö ár. Til samanburðar er sem áður segir verið að byggja 2.399 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt þessu mun uppsöfnuð þörf aukast. Friðrik segir þessar 2.399 íbúðir undir sögulegu meðaltali sem sé um 2.600 til 2.700 íbúðir í smíðum á ári. „Talning okkar í mars leiddi í ljós að íbúðum í byggingu fækkaði frá því í október 2014. Það kom okkur mikið á óvart. Um vorið birti Hagstofa Ís- lands tölur um að fjárfesting í mannvirkjagerð hefði dregist saman, sem kom heim og saman við talningu okkar,“ segir Friðrik. Á litla grafinu hér fyrir ofan má sjá spá SI fyrir 2015-2016. Sam- kvæmt henni verður lokið við tæp- lega þann fjölda íbúða sem þarf í venjulegu árferði til að mæta eftir- spurn, eða 1.650 íbúðir (mitt á milli 1.500 og 1.850 íbúða). Það verði að- eins lokið við um 2.000 íbúðir árin 2017-2018. En eins og sjá má á graf- inu hægra megin hér fyrir ofan áætla Samtök iðnaðarins að það verði ekki fyrr en um mitt ár 2017 sem byrjað verður að byggja nærri 3.000 íbúðir. Þurfum liðlegri reglugerðir Almar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri SI, segir núverandi mannvirkjalög og byggingar- reglugerð of stranga miðað við þarfir alls markaðarins. Hann horfir í því efni til Danmerkur. Þar séu þrír flokkar mannvirkja. Sá fyrsti feli í sér minnstar kröfur og henti t.d. ungu fólki sem er að kaupa íbúð í fyrsta sinn. Næst komi flokkur sem sé sambærilegur við nú- verandi reglugerð á Íslandi, en þurfi að fela í sér nokkuð vægari kröfur til að minnka kostnað. Þriðji flokkurinn í Danmörku sé vegna rýma sem upp- fylla skilyrði hjúkrunarrýmis og rýmis fyrir umönnun. Almar telur aðspurður að með því að slaka á kröfum í byggingar- reglugerðinni megi lækka bygging- arkostnað um 5-10%. Það ásamt skil- virkari eftirlitsferlum geti stytt byggingartíma um nokkra mánuði. Það muni minnka fjármagnskostnað og lækka verð á nýjum íbúðum. Ekki náðist í Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra. Minna byggt af íbúðum en 2013  Ný talning Samtaka iðnaðarins sýnir að íbúðum í smíðum á höfuðborgarsvæðinu fækkar milli ára  Sérfræðingur hjá SI segir að nú séu byggðar 2.400 íbúðir en þörfin sé 3.000 til 3.600 íbúðir Talningar Samtaka iðnaðarins á höfuðborgarsvæðinu Fjöldi íbúða í byggingu 2010-2015 Heimild: SI Allar húsgerðir maí.10 mar.11 nóv.11 sep.12 feb.13 sep.13 mar.14 okt.14 mar.15 okt.15 Fokhelt og lengra komið 1.641 1.300 1.175 809 831 927 891 1.183 1.202 1.419 Að fokheldu 375 348 244 473 736 749 1.130 1.253 1.076 980 Samtals 2.016 1.648 1.419 1.282 1.567 1.676 2.021 2.436 2.278 2.399 Breyting -368 -229 -137 285 109 345 415 -158 121 Fjölbýli maí.10 mar.11 nóv.11 sep.12 feb.13 sep.13 mar.14 okt.14 mar.15 okt.15 Fokhelt og lengra komið 1.185 916 837 569 598 696 661 1.018 1.040 1.233 Að fokheldu 237 243 213 392 639 656 1.054 1.171 993 888 Samtals 1.422 1.159 1.050 961 1.237 1.352 1.715 2.189 2.033 2.121 Breyting -263 -109 -89 276 115 363 474 -156 88 Sérbýli maí.10 mar.11 nóv.11 sep.12 feb.13 sep.13 mar.14 okt.14 mar.15 okt.15 Fokhelt og lengra komið 456 384 338 240 233 231 230 165 162 186 Að fokheldu 138 105 31 81 97 93 76 82 83 92 Samtals 594 489 369 321 330 324 306 247 245 278 Breyting -105 -120 -48 9 -6 -18 -59 -2 33 Áætlaðar framkvæmdir næstu ár Samtals á höfuðborgarsvæðinu 20162015 2017 2018 3.000 2.000 1.000 0 2015 2016 2017 2018 Byrjað Lokið Byrjað Lokið Byrjað Lokið Byrjað Lokið Reykjavík 646 589 822 511 1.344 838 1.361 650 Seltjarnarnes 39 49 10 35 85 29 85 10 Kópavogur 372 544 753 417 598 567 532 665 Garðabær 240 200 270 322 226 255 220 300 Hafnarfjörður 156 178 200 222 445 162 430 200 Mosfellsbær 130 50 170 110 170 150 140 150 Samtals 1.583 1.610 2.225 1.617 2.868 2.001 2.768 1.975 Breyting - byrjað 642 643 -100 Breyting - lokið 7 384 -26 Byrjað Lokið Höfuðborgarsvæðið – spá SI 2015-2018 2015 2016 2017 2018 *Sá fjöldi sem þarf í venjulegu árferði til að mæta eftirspurn, eða 1.650 íbúðir, skv. áætlun SI. Fj öl di íb úð a Heimild: SI 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 LokiðByrjað Viðmið* 1.975 1.583 2.225 2.868 2.768 1.610 1.617 2.001 Reyktur lax í brunch-inn Láttu það eftir þér Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Samkaup, Sunnubúðin. Félagsmenn í Félagi prófessora við ríkisháskólana hafa samþykkt að boða til verkfalls í næsta mánuði. Þá hefur samninganefnd Flóabanda- lagsins slitið viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga. Rafrænni atkvæðagreiðslu um verkfall félagsmanna í Félagi pró- fessora við ríkisháskólana lauk í gær. 76% félagsmanna greiddu at- kvæði. Tillaga um að boða til verk- falls 2. til 18. desember var sam- þykkt með 85% atkvæða. Því verður verkfall um próftíma háskólanna, takist ekki samningar fyrir þann tíma. Félagsmenn í Félagi prófessora starfa við Háskóla Íslands, Háskól- ann á Akureyri, Háskólann á Hól- um og Landbún- aðarháskóla Ís- lands. Félagið boðaði til verk- falls 1. til 15. des- ember á síðasta ári, á jólaprófs- tíma rétt eins og nú. Ekki kom til verkfalls því sam- komulag náðist um nýjan kjara- samning til loka febrúar. Samninganefnd Flóabandalagsins sleit viðræðum við Samband ís- lenskra sveitarfélaga síðdegis í fyrradag. Deilunni var vísað til ríkis- sáttasemjara. Fram kemur á vef Efl- ingar að töluverður ágreiningur sé ennþá um launalið samninga. Verið að semja við borgina Fram kemur hjá Eflingu að við- ræður félagsins við Reykjavíkur- borg séu langt komnar og stefnt að því að ganga frá nýjum kjarasamn- ingi í þessari viku. Þar mun vera horft til niðurstöðu þeirra samninga sem nýlega voru gerðir við aðra hópa, svo sem ríki og hjúkrunar- heimili. Mun samningurinn gilda afturvirkt frá 1. maí sl. Þá hefur Efling gengið frá kjara- samningi við Orkuveitu Reykjavík- ur. helgi@mbl.is Prófessorar boða verkfall á jólaprófstíma nemenda  Flóabandalagið slítur viðræðum við sveitarfélögin Dauft verður á háskólasvæðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.