Morgunblaðið - 13.11.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015
Á Alþingi var á dögunumfjallað um Ríkisútvarpið.
Eftirfarandi brot er frá þeim um-
ræðum og er dæmi um ábend-
ingar Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur alþingismanns:
’’
Í allt of lang-
an tíma hefur
kostnaður RÚV ver-
ið meiri en tekjur.
Umframeyðslahefur verið
fjármögnuð með
lánum en stærsti vandinn er samt
sem áður kostnaðartengdur og felst
í of stóru húsnæði, of mikilli yf-
irbyggingu og of dýru dreifikerfi
svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Hanna
Birna.
Þá sagði hún skýrslu nefnd-arinnar um Ríkisútvarpið einn-
ig benda til þess að „mun færri en
áður nýta sér þjónustu RÚV“.
’’
Tug-prósenta fækkun þeirra
sem horfa og hlusta á þennan
ríkisrekna fjölmiðil er staðreynd.
Bæði vegna þess að aðrir bjóðaupp á samskonar þjónustu og
einnig vegna þess að miklar tækni-
breytingar hafa orðið.“
Í þriðja lagi sagði þingmaðurinnskýrsluna benda á að erfitt virt-
ist að nálgast samræmdar upplýs-
ingar um stöðu Ríkisútvarpsins.
’’
Þrátt fyrir að í skýrslunni
séu tölur sagðar frá stofn-
uninni er enn tekist á um hvað sé
rétt og rangt í þeim.“
Er eina stofnun landsins, sem lögsegja að sé rekin „í þjóð-
arþágu“, búin að týna þræðinum til
hennar?
Hann Birna
Kristjánsdóttir
Er svona komið?
STAKSTEINAR
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Stórt olíuskip, Atlantic Aquarius,
kom fyrir skömmu á ytri höfnina í
Reykjavík, lagðist svo að Eyjagarði
um stund en fór aftur út á ytri höfn-
ina um tíma. Síðan lagðist skipið að
bryggju. Vakti þetta ferðalag nokkra
athygli þeirra sem fylgjast með líf-
inu við Reykjavíkurhöfn.
Hjá Faxaflóahöfnum fengust þær
upplýsingar að skipið hefði komið
fyrst upp að til að taka um borð tvo
gáma með íblöndunarefnum. Þeim
var síðan bætt út í farminn áður en
honum var landað.
Stefán Karl Segatta, innkaupa-
stjóri eldsneytis hjá Olís, sagði að
þetta væri ekkert nýtt. „Kuldaeigin-
leikarnir í farminum voru ekki eins
og þeir áttu að vera fyrir veturinn
hér á Íslandi. Það var verið að bæta
það upp með íblöndunarefnum,“
sagði Stefán. Hann sagði að elds-
neytið þyrfti að uppfylla ákveðna
gæðastaðla. Þar á meðal þarf það að
hafa ákveðna kuldaeiginleika til þess
að vinnuvélar og bílar gangi eðlilega
í kulda og frosti. Teknar eru prufur
af hverjum farmi áður en honum er
skipað á land og kannað hvort elds-
neytið stenst allar kröfur. Ef eitt-
hvað skortir á er bætt úr því, sé það
hægt. Kuldaeiginleikar eldsneytis
eru til dæmis atriði sem hægt er að
laga með íblöndun.
Atlantic Aquarius er tæplega
30.000 tonna skip. Það er með tvö-
faldan byrðing. Hafnir styðjast við
rúmtak innri byrðingsins og því er
skipið skráð í höfn sem 24.000 tonna
skip. Skipið kom með farm af dísil-
olíu frá Bandaríkjunum. Eigandi
hans er Statoil sem er birgir íslensku
olíufélaganna.
Juku á kuldaþol olíunnar
Dísilolían búin undir íslenskan vetur Olíuskip á ferðalagi við Reykjavíkurhöfn
Morgunblaðið/RAX
Atlantic Aquarius Íblöndunarefnum var bætt í dísilolíufarminn.
Sextugur karl-
maður, Jón
Sverrir Braga-
son, var í Hæsta-
rétti í gær
dæmdur í
tveggja ára og
átta mánaða
óskilorðsbundið
fangelsi fyrir
vörslu á tugum þúsunda barna-
klámmynda og brot á vopnalögum.
Með brotum sínum rauf Jón
Sverrir reynslulausn sem honum
var veitt vegna dóms fyrir kynferð-
isbrot. Alls fundust 45.236 ljós-
myndir og 155 hreyfimyndir sem
sýndu börn á kynferðislegan og
klámfenginn hátt í fórum Jóns í
ágúst 2014. Hluti efnisins er sagður
af grófasta tagi.
Jón Sverrir neitaði sök. Hann
kannaðist ekki við að eiga efnið á
vélunum og sagðist ekki hafa séð
það. Hann gat þó ekki gefið frekari
skýringar á því af hverju efnið væri
í tölvunum og framburður hans var
talinn ótrúverðugur.
Dæmdur fyrir vörslu
barnaklámmynda
Veður víða um heim 12.11., kl. 18.00
Reykjavík 0 léttskýjað
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri 0 heiðskírt
Nuuk -10 skafrenningur
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 3 léttskýjað
Kaupmannahöfn 12 léttskýjað
Stokkhólmur 5 léttskýjað
Helsinki 7 skúrir
Lúxemborg 12 skýjað
Brussel 12 léttskýjað
Dublin 8 léttskýjað
Glasgow 12 léttskýjað
London 16 skýjað
París 12 alskýjað
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 11 heiðskírt
Berlín 10 léttskýjað
Vín 13 skýjað
Moskva 2 skúrir
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 21 heiðskírt
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 16 heiðskírt
Aþena 17 heiðskírt
Winnipeg -2 alskýjað
Montreal 10 alskýjað
New York 13 alskýjað
Chicago 7 alskýjað
Orlando 22 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:50 16:35
ÍSAFJÖRÐUR 10:13 16:22
SIGLUFJÖRÐUR 9:56 16:04
DJÚPIVOGUR 9:24 16:00
Sölusýning á fullbúnum
ferðaþjónustuhúsum, gesthúsum og sumarhúsum
Laugardaginn 14. nóvember til kl. 18.00.
Upplýsingar í síma 894 0048 | Gagnheiði 5, Selfossi
Kaffi á könnunni.