Morgunblaðið - 13.11.2015, Page 9

Morgunblaðið - 13.11.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015 Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Fylgist með okkur á faceboock Glæsilegur kvennfatnaður & fylgihlutir Mokkajakkar Skinnkragar Tryggvagötu 18 - 552 0160 Ísmáfur heiðrar Dalvíkinga með nærveru sinni þessa dagana, við höfnina. Um er að ræða ungan fugl, því enn er hann með svartar doppur, einkum á vængjum og stéli, og kámugur í andliti; alhvít- ur verður hann á öðru hausti. Vera má að hann hafi elt veiðiskip inn Eyjafjörðinn, því nóg er af þeim en hafísinn er ennþá langt í norðri. Ísmáfurinn er hánorrænn fugl, verpir á Svalbarða, á eyjunum í Norður-Íshafinu norðan Síberíu, nyrst á Grænlandi og á jökul- skerjum norðan Ammassalik á Austur-Grænlandi og í eyjum norðan Kanada. Ísmáfa verður vart hér frá því í október og fram í maí, bæði full- orðinna og ungra fugla, að því er fram kemur í grein eftir Gunnlaug Pétursson í Náttúrufræðingnum árið 1987. Vetrarheimkynnin ná suður undir Ísland, segir þar enn- fremur, og ræðst fjöldi ísmáfa hér við land líklega fyrst og fremst af legu ísjaðarins og veðurskilyrðum. Þótt ísmáfar hafi sést víða eru þeir þó tíðastir norðanlands eins og vænta má, sérstaklega við Gríms- ey, Skjálfanda og Eyjafjörð. Sjaldgæft er að sjá ísmáfa setj- ast á sjó, og vitað er að þeir forð- ast bleytu. Fæðan er ýmsir fiskar og hryggleysingjar en einnig leggjast fuglarnir á hræ sela og fleiri dýra. Á myrkum vetrar- dögum eru sjálflýsandi fiskar mik- ilvæg fæða. Eitthvað hefur dregið úr komum ísmáfa til Íslands hin síðari ár. Ísmáfurinn æ sjaldséðari Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Hvíld Ísmávur á bryggjunni á Dalvík í vikunni, bara nokkuð spakur að sjá. „Verð á fatnaði verður algjörlega samkeppnishæft við önnur lönd í Skandinavíu sem búa við svipað virðisaukastig,“ segir Hákon Há- konarson, eigandi fataverslunar- innar Herragarðsins. Verslunin tilkynnti í síðustu viku að veittur yrði 15% afsláttur af vörum hennar í tilefni af afnámi fatatolla, en eins og fram hefur kom- ið munu tollarnir verða afnumdir um áramót. Hákon bendir á að til þessa hafi föt á Íslandi verið tvítolluð. Meiri- hluti innflutts fatnaðar er fram- leiddur utan Evrópu en er svo toll- aður þegar komið er inn í lönd Evrópusambandsins. Þaðan eru föt- in gjarnan send til Íslands. Íslenska ríkið hefur svo tollað fötin aftur þeg- ar þau koma til landsins. Að sögn Hákonar hafa Samtök verslunar og þjónustu sagt að um 70% fatnaðar sem koma til Íslands hafi millilendingu í löndum ESB. Sem dæmi má nefna að ef miðað er við 15% afslátt, sem Herragarð- urinn veitir nú í takt við fyrirhugað afnám tolla, þá lækka t.d. Sand- jakkaföt úr 89.980 krónum í 76.483 kr, Eterna-skyrta úr 12.980 í 11.000 kr., Bugatti-frakki úr 49.980 kr. í 42.783 kr, Monti-bindi úr 9.980 í 8.483 kr., Lloyds-skór úr 29.980 kr. í 25.483 kr og Sand-peysa úr 19.980 í 16.983 kr. vidar@mbl.is Verslun Herragarðurinn ríður á vaðið með verðlækkun á fatnaði og skóm. Verður samkeppn- ishæft við önnur Norðurlönd  Herragarðurinn lækkar verð í tilefni afnáms tolla af fatnaði um áramót „Fátt bendir til að lát verði á þessu ástandi, nokkur þeirra ríkja sem undir hvað mestum þunga eru hafa brugðið á það ráð að taka upp landamæra- eftirlit að nýju þrátt fyrir aðild að Schengen,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráð- herra, en hann tók þátt í leiðtoga- fundi um fólksflutningsvandann, sem haldinn var í Valletta á Möltu og lauk í gær. Þar voru 60 aðrir leiðtogar Evrópu- og Afríkuríkja þar sem rætt var um alvarleika vandans og þörfina á heildstæðri nálgun gagnvart áskorunum sem felast í fólksflutningum. „Því olli það vissum vonbrigðum að ekki hafi komið fram á fundinum meira af raunhæfum lausnum á vandanum eins og hann er núna, þó að margar ágætar tillögur hafi komið fram um hvernig stemma megi stigu við vandanum til fram- tíðar,“ segir Sigmundur í tilkynn- ingu frá ráðuneytinu. Fram komu fáar raunhæfar lausnir vandans Sigmundur Davíð Gunnlaugsson - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.