Morgunblaðið - 13.11.2015, Qupperneq 10
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
K
onurnar í handverks-
hópi kvennadeildar
Rauða krossins
brugðu sér til skiptis í
hlutverk uppboðshald-
ara þegar þær komu saman í liðinni
viku til að verðleggja, verðmerkja og
stilla upp handverki sínu fyrir árleg-
an jólabasar, sem haldinn verður í
húsakynnum Rauða krossins við
Efstaleiti á morgun.
Eitt þúsund krónur? Tvö þús-
und? Þrjú þúsund? Fyrsta, annað og
þriðja – slegið! Þannig fór verðlagn-
ingin fram. Á stundum kom þó svo-
lítið hik á samkunduna þegar ein-
hver kvennanna skaut inn í að verðið
væri kannski of hátt. Hinar kváðu
hana snarlega í kútinn, sögðu slíkt af
og frá, enda stæði gripurinn fyllilega
fyrir sínu og meiru til ef út í það væri
farið. Flestir utanaðkomandi með
auga fyrir vönduðum hannyrðum
væru efalítið sammála. Handverks-
konurnar hógværu létu þá gott
heita, þeim virtist þykja óþægilegt
að meta eigin verk til fjár.
Af hjartans lyst og listfengi
Allt frá árinu 1967 hafa að jafn-
aði um tuttugu konur komið saman
einu sinni í viku og prjónað, heklað,
saumað og föndrað af hjartans lyst
og listfengi fyrir árlegan jólabasar
kvennadeildar Rauða krossins. Bas-
arinn er í huga margra fyrsti boð-
beri jólanna, enda ævinlega haldinn
áður en jólasveinarnir koma til
byggða og tímabært er að dusta ryk-
ið af aðventukransinum.
Að sögn Auðar Þorgeirsdóttur,
skrifstofustjóra kvennadeildarinnar,
fór ágóðinn fyrst í stað í að fjár-
magna bækur til útlána á spítöl-
unum eða til ársins 2002 þegar
Handverk í þágu
mannúðar – ár eftir ár
Ágóðinn af jólabasar kvennadeildar Rauða krossins rennur óskiptur til
mannúðarmála. Á boðstólum eru handunnar prjónavörur, alls konar
munir sem tengjast jólunum og gómsætar heimabakaðar tertur.
Undirbúningur Hulda Jónsdóttir, Auður Þorgeirsdóttir, skrifstofustjóri
kvennadeildarinnar, og Una Jóhannsdóttir önnum kafnar við undirbúning.
Prjón Svala Viktorsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir skoða handprjónuð
barnaföt. Á basarnum eru einnig dúkkuföt, oft í stíl við barnafötin.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015
Í dag er fæðingardagur Árna Magnús-
sonar, handritasafnara og fræði-
manns, og af því tilefni stendur
Stofnun sú sem kennd er við hann í
íslenskum fræðum fyrir fyrirlestri kl.
16 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Ís-
lands. Þar ætlar Johan Peter Gum-
bert, prófessor emeritus í handrita-
fræðum við Háskólann í Leiden, að
flytja erindi á ensku sem kallast:
In Praise of Some Grand Old Men:
Some important figures in the fields
of palaeography and codicology of
the 19th and 20th century.
Árni fæddist 1663 á Kvennabrekku
í Dölum og er þekktastur fyrir að
hafa safnað bókfelli og handritum á
Íslandi og flutt til Kaupmannahafnar.
Árið 1728 varð mikill bruni í Kaup-
mannahöfn og brann þar hluti af
bókasafni Árna, auk bókasafns há-
skólans. Talið er að í brunanum hafi
glatast mörg íslensk handrit.
Vefsíðan www.arnastofnun.is
Árni Teiknuð mynd af honum prýðir gamla góða hundraðkrónuseðilinn.
Handrit áttu hug hans allan
og brunnu mörg til kaldra kola
Trompetleikarinn Snorri Sigurðarson
flytur nokkur af sínum uppáhalds-
lögum úr söngbók djassins í Gerðu-
bergi í Breiðholti í hádeginu í dag kl.
12:15 og aftur á sunnudag kl. 13:15.
Með Snorra leikur Leifur Gunnarsson
á kontrabassa og Ásgeir Ásgeirsson
á gítar. Snorri lærði á píanó hjá
Björgvini Þ. Valdimarssyni en hóf
nám á trompet árið 1985. Hann var
meðlimur í Sælgætisgerðinni, Casino
og Jólaköttum á 10 áratugnum en
hefur m.a. spilað með SjS Big Bandi,
Jónasi Sig og Ritvélunum, Sigur Rós,
Stórsveit Reykjavíkur og Diktu.
Ókeypis aðgangur er á hádegistón-
leikana.
Endilega …
… hlýðið á
djass í hádegi
Leifur Listrænn stjórnandi Jazz í há-
deginu og leikur líka undir.
Í dag vill svo ágætlega til að þrettánda
dag mánaðarins ber upp á föstudag,
en afar margir tengja það við hvers-
konar ólukku. Á ensku kallast slíkur
ótti því langa nafni paraskevidekatri-
aphobia og tengist það óttanum við
töluna þrettán eða triskaidekaphobia.
Að sögn sálfræðingsins Donalds Dos-
sey læknast menn af óttanum um leið
og þeir geta borið orðið fram.
Talan þrettán hefur verið tengd við
ýmslegt miður gott, t.d. hafa nokkrir
þekktir fjöldamorðingjar borið þrettán
stafa nafn, svo sem Jack the Ripper,
Charles Manson, Jeffrey Dahmer,
Theodore Bundy og Albert De Salvo.
Ef þrettán manns setjast saman við
kvöldverðarborð er sagt að þeir muni
allir deyja innan árs. Í norrænni goða-
fræði var tólf guðum boðið til veislu í
Valhöll. Loka, hinum illa, var ekki boð-
ið en mætti samt í veisluna svo að þar
voru þrettán saman komnir. Loki
hvatti Höð hinn blinda til að ráðast á
Baldur og rétti honum spjót með
mistilteini. Höður réðst á Baldur og
drap hann, en allir í Valhöll syrgðu
Baldur mjög. Af þessari sögu drógu
norrænir menn þá ályktun að þrettán
manna veisla væri óheppileg.
Hjátrú tengd föstudeginum þrettánda
Þrettán stafir eru í nöfnum
margra frægra morðingja
Kobbi kviðrista Á íslensku hefur nafn Jacks the Ripper 14 stafi en ekki 13.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Frá
morgni
líkama
og sál
fyrir alla
fjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir
líkama
Laugarnar í Reykjavík