Morgunblaðið - 13.11.2015, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015
Borðapantanir og frekari upplýsingar í síma
487 5700 eða á hotelranga@hotelranga.is
Jólahlaðborð á Hótel Rangá
Meðal rétta á hlaðborðinu eru:
Forréttir
Jólasúpa · Síld · Grafinn lax · Önd · Bleikja
Paté · Kæfa · Salöt
Aðalréttir
Svínahamborgarhryggur · Innbakað lambalæri
Purusteik · Kalkúnn · Fiskur dagsins
Grænmetisréttur
Meðlæti
Rauðkál · Grænar baunir · Grænmeti · Uppstúfur
Dillsósa · Rauðvínssósa · Sveppasósa
Waldorf salat
Eftirréttir
Riz à l’amande · Hjúpuð súkkulaðikaka
Ostar · Ávextir · Sörur
Jólahlaðborðin verða:
20. og 21. nóvember , 27. og 28. nóvember,
4. og 5. desember og 11. og 12. desember
Við minnum á villibráðarseðilinn
okkar sem er í fullum gangi
til og með 19. nóvember
www.hotelranga.is
BAKSVIÐ
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Samningarnir eru sérstakir fyrir
þær sakir að samið er við heil-
brigðisstofnun um reksturinn og
hafa sambærilegir samningar ekki
verið gerðir áð-
ur.“
Þetta segir í
skriflegu svari
heilbrigðis-
ráðherra, Krist-
jáns Þórs Júl-
íussonar, við því
hvers vegna ekki
sé búið að ganga
frá samningum
við Heilbrigðis-
stofnun Vest-
fjarða um rekstur nýrra hjúkr-
unarheimila á Ísafirði og í
Bolungarvík. Byggingu húsanna
lauk í sumar og hafa þau staðið
tóm upp frá því.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær þá hefur ríkið greitt
leigu á báðum heimilunum frá því í
ágúst sl. Ísafjarðarbær fær tæpar
sex milljónir króna í leigu á mán-
uði og Bolungarvík tæpar tvær
milljónir króna.
Þröstur Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofn-
unar Vestfjarða, vildi ekki tjá sig
um ástæðu þess að ekki er enn bú-
ið að ganga frá samningum, og vís-
aði til heilbrigðis- og velferð-
arráðuneytisins. Drög að
samningnum voru samþykkt í
sumar.
Gengið út frá að Heilbrigðis-
stofnun myndi reka heimilin
Hjúkrunarheimilið Eyri á Ísa-
firði er byggt við sjúkrahúsið og
unnið er að því að klára tengi-
byggingu við sjúkrahúsið. Þröstur
sagði að áætluð verklok við hana
yrðu líklega um miðjan desember.
Að öðru leyti er heimilið tilbúið.
Báðir bæjarstjórarnir, Elías
Jónatansson, bæjarstjóri Bol-
ungarvíkur, og Gísli Halldór
Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarð-
arbæjar, segja við Morgunblaðið
að ávallt hafi verið gengið út frá
því síðan bygging hjúkrunarheim-
ilanna hófst að Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða myndi reka þau.
Til stóð að skrifa undir samn-
inga 15. nóvember nk. en að sögn
Gísla, bæjarstjóra Ísafjarðar, þá
fékk hann þau skilaboð í vikunni
að af því yrði ekki. Hann sagði
ennfremur að Ísafjarðarbær gæti
lítið gert til að liðka fyrir að samn-
ingum. Ríkið hefur óskað eftir því
við Ísafjarðarbæ að sveitarfélagið
greiði kostnað vegna hita og raf-
magns. Gísli sagði að bærinn gæti
ekki orðið við því og vísaði í gild-
andi leigusamning og innan hans
væri hiti og rafmagn.
Bíða í tveggja
manna herbergi
Þeir sem bíða eftir að komast á
nýtt hjúkrunarheimili eru í öðrum
hjúkrunarrýmum. Þessi nýju
hjúkrunarrými eru ekki viðbót við
þau sem eru í notkun heldur er
um endurnýjun að ræða.
Á nýja hjúkrunarheimilinu í
Bolungarvík eru 10 hjúkr-
unarrými, og öll í sérbýli. Fyrir
eru 12 rými þar sem flestir þurfa
að vera tveir saman í herbergi og
eru þau rými í húsnæði frá árinu
1950.
„Þetta er nálægt því að vera
nóg,“ segir Elías spurður hvort
hjúkrunarrýmin séu nógu mörg.
Hann segir unnið að því að finna
heppilegan opnunardag og er von-
góður um að hægt verði að opna
fyrir jól, þrátt fyrir að samningar
séu ekki í höfn.
Á nýja hjúkrunarheimilinu á
Ísafirði eru 30 ný hjúkrunarrými,
10 í hverri einingu og allt sérbýli.
Þau koma í staðinn fyrir þau sem
nú eru nýtt sem hjúkrunarrými. Á
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða eru
19 skilgreind hjúkrunarrými, þar
af eru öll herbergin tveggja
manna nema eitt, þá eru sex
hjúkrunarrými á hjúkrunarheim-
ilunum Tjörn og Þingeyri.
„Flestir þeirra sem eru á skil-
greindum hjúkrunarrýmum eru
líklegir sem íbúar á nýja
hjúkrunarheimilinu Eyri og einnig
þeir sem búa í þjónustuíbúðum
aldraðra á Hlíf,“ segir Margrét
Geirsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldu-
sviðs Ísafjarðarbæjar. Hún tekur
þó fram að ekki sé búið að velja þá
sem komast á nýtt heimili.
Gísli segist bjartsýnn á að
hjúkrunarheimilin verði opnuð í
desember.
Ekki áður samið við stofnanir um rekstur
Ríkið greiðir leigu fyrir tóm hjúkrunarrými á Vestfjörðum Heilbrigðisráðherra segir samning-
ana um reksturinn sérstaka Vonir uppi um að opna heimilin á Ísafirði og í Bolungarvík fyrir jól
Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson
Hjúkrunarheimili Eyri á Ísafirði er ekki enn komið í notkun þó að það sé í raun tilbúið til reksturs. Bæði þar og í
Bolungarvík er stefnt að því að hefja rekstur fyrir jól, þó að samningar hafi ekki tekist ennþá.
Kristján Þór
Júlíusson