Morgunblaðið - 13.11.2015, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015
!"!
"
"#!
!#
$"$
%&'() '*'
+,%-%*./ ,&*'0'12% 34*'1.4
"!
! $
!
! !
"#
"#
"5
"##
!"
$"5#
5
55
!!$
!!
"
"
"#
"##
!
$"#
5!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● New Enterprise Associates (NEA),
með þátttöku Novator Partners, leiðir 4
milljarða króna fjárfestingu í CCP sem
tilkynnt var á hluthafafundi félagsins í
gær. Í tilkynningu segir að NEA sé
stærsti framtakssjóður heims með
eignir metnar á rúma 17 milljarða
Bandaríkjadala. Novator Partners er
fjárfestingafélag stýrt af Björgólfi Thor
Björgólfssyni með aðsetur í London.
Fram kemur í tilkynningu að fjárfest-
ingin muni efla CCP á sviði sýndarveru-
leika. Einn af stjórnendum NEA, Harry
Weller, hefur tekið sæti í stjórn CCP og
annar fulltrúi NEA, Andrew Schoen,
hefur tekið sæti varamanns í stjórninni.
NEA fjárfestir ásamt
Novator Partners í CCP
● Capacent spáir því að vísitala neyslu-
verðs hækki um 0,2% í nóvember og
verðbólgan fari þá úr 1,8% í 2,5% og
verði þar með við verðbólgumarkmið
Seðlabankans. Í greiningu Capacent
kemur meðal annars fram að olíuverð
hafi haldist stöðugt, að enn sé mikil velta
á fasteignamarkaði sem dregist hafi
saman síðustu vikur, og að búast megi
við lækkun á grænmetisverði en litlum
breytingum á verði annarra matvæla. Þá
segir að óvissa sé um flugfargjöld en
gert er ráð fyrir smávægilegri hækkun.
Capacent telur verð-
bólgu fara í markmið
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Hagnaður Íslandsbanka á þriðja
ársfjórðungi var 5,9 milljarðar eftir
skatta og eykst um 2,4 milljarða
miðað við sama tímabil í fyrra þegar
hann var 3,5 milljarðar. Arðsemi
eiginfjár á fjórðungnum var 12,5%
en var 7,9% yfir sama tímabil í
fyrra. Hreinar vaxtatekjur voru 7,5
milljarðar og hreinar þóknanatekjur
námu 3,5 milljörðum og jukust um
23,2% frá fyrra ári. Lán til við-
skiptavina jukust um 6,6 milljarða á
fjórðungnum eða um 1% frá fyrra
ári og voru 660 milljarðar króna við
lok fjórðungsins. Innlán aukast hins
vegar minna á fjórðungnum en
gerðist á fyrstu sex mánuðum árs-
ins. Á þriðja ársfjórðungi jukust
þau um 2,5% eða 14 milljarða en á
fyrstu sex mánuðum ársins var
aukningin um 10% milli ára.
Minni hagnaður en í fyrra
Hagnaður Íslandsbanka á fyrstu
níu mánuðum ársins var 16,7 millj-
arðar og dróst saman um 1,5 millj-
arða frá árinu 2014. Hins vegar var
arðsemi eigin fjár af reglulegri
starfsemi 11,9%, sem er aukning frá
fyrra ári þegar hún var 11,4%. Þá
jukust vaxtatekjur bankans á fyrstu
níu mánuðum ársins og voru 21
milljarður í samanburði við 20,6
milljarða í fyrra. Nokkuð dró úr
vaxtamun og var hann 2,9% í stað
3,1% á fyrstu níu mánuðum ársins
2014. Heildareignir bankans voru
1.004 milljarðar í lok þriðja árs-
fjórðungs og eiginfjárhlutfallið
29,2%, þar af var eiginfjárhlutfall A
26,9%. Lausafjárstaða bankans er
mjög sterk og nam hún 276 millj-
örðum við lok þriðja ársfjórðungs.
Af því voru 104 milljarðar í erlendri
mynt.
Bindiskyldan heftir vöxt útlána
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, segist ánægð með
uppgjörið. „Afkoma bankans fyrstu
níu mánuði ársins var mjög góð. Við
sjáum áframhaldandi fjölbreytni í
tekjustoðum bankans og jukust
þóknanatekjur um 17% milli ára. Á
sama tíma hefur vöxtur útlána verið
hóflegur. Seðlabanki Íslands hækk-
aði bindiskylduna í lok september
sem dregur úr útlánagetu bank-
anna, en við vonum að hér sé um
tímabundna aðgerð að ræða.“
Hagnaður Íslandsbanka
16,7 milljarðar króna
Uppgjör Hagnaður Íslandsbanka dregst nokkuð saman miðað við fyrra ár.
Eignir í óskyldum
rekstri
» Á allra næstu dögum verð-
ur 80% hlutur Íslandsbanka í
Frumherja auglýstur til sölu,
en fyrirtækið starfar á sviði
prófana, skoðana og tengdrar
þjónustu.
» Bankinn á 26% hlut í
Atorku Group.
» Þá á bankinn rúm 70% í IG
Invest sem er fyrirtæki á sviði
flugvélafjármögnunar.
Bankastjóri segir aukna bindiskyldu draga úr getu til útlána
Samkvæmt greiningu Samtaka iðn-
aðarins, SI, á húsnæðismarkaðnum
er enn áskorun að mæta uppsafn-
aðri þörf á markaðnum, þrátt fyrir
að íbúðum í byggingu fjölgi og
framboð á nýju húsnæði verði í
takt við áætlaða þörf næstu þriggja
ára. Á fundi samtakanna í gær þar
sem fjallað var um íbúðamarkaðinn
kom fram að byggja þyrfti 10.000
íbúðir á tímabilinu til 2018. Almar
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
SI, segir brýnt að grípa til sam-
hæfðra aðgerða til að stytta fram-
leiðslutímann, auka sveigjanleika
og hafa þannig jákvæð áhrif á
framboð íbúða þar sem þörfin er
mest.
Í greiningunni kemur fram að
þörfin fyrir íbúðarhúsnæði sé sér-
staklega í minna og ódýrara hús-
næði en frá árinu 2005 hefur ungu
fólki á aldrinum 25-43 ára sem býr
hjá foreldrum fjölgað um 60%. SI
bendir jafnframt á að þarfir eldri
kynslóða séu líka að breytast og
fleiri sem vilja minna húsnæði.
Í skýrslu SI, sem ber yfirskrift-
ina „Mætum þörfinni“, segir að
bygging íbúðarhúsnæðis sé stærsta
verkefni byggingariðnaðarins og að
frá árinu 2009 hafi fjöldi fullgerðra
íbúða verið langt undir þörf.
Til að mæta eðlilegri þörf á fast-
eignamarkaði þarf að klára 6-7 full-
búnar íbúðir alla virka daga ársins.
Framboð á húsnæði hefur ekki
vaxið í takt við þarfir og vaxandi
hópur fólks fær ekki húsnæði við
hæfi.
Á árunum 2009-2015 var lokið
við um 950 íbúðir árlega en á sama
tíma var undirliggjandi þörf fyrir
um 1.500-1.800 íbúðir miðað við
fjölgun landsmanna. Þá segir að
fjölgun erlendra ferðamanna hafi
aukið enn á þessa þörf.
Morgunblaðið/Eggert
Íbúðir Lokið var við 950 íbúðir á ári
en hefði þurft allt að 1.800.
10 þúsund íbúðir á
næstu þremur árum
SI segir þörf
fyrir minna og
ódýrara húsnæði
Byrði húsnæð-
iskostnaðar er
meiri hjá leigj-
endum en eig-
endum hús-
næðis.
Húsnæð-
iskostnaður
var 24% af ráð-
stöfunar-
tekjum dæmi-
gerðs leigjanda á almennum
markaði á síðasta ári. Byrðin jókst
hratt hjá leigjendum eftir 2007 en á
síðasta ári vörðu
19% leigjenda meira en 40% af
ráðstöfunartekjum sínum í húsnæði,
sem telst vera íþyngjandi húsnæðis-
kostnaður. Þetta kemur fram í nýj-
um Hagtíðindum Hagstofu Íslands.
Þegar horft er til eigenda hús-
næðis varði dæmigerður eigandi
með lán 16% af ráðstöfunartekjum
sínum í húsnæði á síðasta ári. 6% af
eigendum voru með íþyngjandi hús-
næðiskostnað en með húsnæð-
iskostnaði er átt við vaxtakostnað og
verðbætur húsnæðislána, húsaleigu,
rekstrarkostnað svo sem rafmagn
og hita, viðhald og viðgerðir.
Byrði húsnæðiskostnaðar miðast
við heildartekjur heimila og var sú
byrði þyngst árið 2006, en þá nam
húsnæðiskostnaður 19% af ráðstöf-
unartekjum heimila og þá bjuggu
14% fólks við íþyngjandi húsnæð-
iskostnað. Byrði húsnæðiskostnaðar
hefur verið svipuð frá 2007 en á síð-
asta ári fóru að meðaltali 16% af ráð-
stöfunartekjum einstaklinga í hús-
næðiskostnað. Hlutfall fólks með
íþyngjandi húsnæðiskostnað hefur
lækkað yfir tímabilið og var hlut-
fallið komið niður í 8% í fyrra.
Um 16%
tekna í
húsnæði
24% í húsnæðis-
kostnað leigjenda
Byrði leigjenda af
húsnæði er meiri.
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Þér er í lófa lagið að taka upp
Hjá okkur færðu faglega þjónustu,
byggða á þekkingu og áratuga reynslu.