Morgunblaðið - 13.11.2015, Síða 21

Morgunblaðið - 13.11.2015, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015 ✝ Helga MargrétSigurjónsdóttir fæddist á Akureyri 31. janúar 1921. Hún lést á dval- arheimilinu Hlíð 4. nóvember 2015. Foreldrar henn- ar voru Sigurjón Benediktsson, f. 19. ágúst 1882, d. 27. október 1973, og Indíana Sigríður Davíðsdóttir, f. 17. mars 1896, d. 3. janúar 1989. Alsystkini Helgu voru Sig- urlína Dagný og Gunnar Jóhann sem bæði eru látin. Bróðir henn- ar samfeðra er Helgi sem dvelur kvæntur Daníelu Jónu Guð- mundsdóttur, f. 19. september 1945. Börn þeirra eru Dagný Sigríður, Helga Margrét, Þor- valdur Lúðvík og Selma Dögg. Barnabörnin eru tólf og barnabarnabörn eru þrjú. 3) Ell- en Margrét, f. 19. desember 1948, gift Ármanni Þóri Björns- syni, f. 2. október 1944. Börn þeirra eru Rannveig og Sveinn Fannar. Barnabörnin eru fimm. Helga og Þorvaldur byggðu sér hús að Hríseyjargötu 17, fluttu þar inn árið 1943 og bjuggu þar alla tíð. Helga vann í Þvottahúsinu Mjöll stærstan hluta starfsævinnar. Helga var virkur félagi í Oddfellow-regl- unni á meðan heilsan leyfði. Síð- astliðið ár dvaldi Helga á Dval- arheimilinu Hlíð á Akureyri. Helga verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag, 13. nóv- ember, og hefst athöfnin kl. 13:30. á Dvalarheimilinu Hlíð. Helga giftist hinn 28. desember 1940 Þorvaldi Sveini Guðjónssyni, f. 5. júlí 1917, d. 10. jan- úar 2007, netagerð- armeistara á Ak- ureyri. Foreldrar hans voru Guðjón Jakob Þórarinsson og Jóna Sigurðar- dóttir sem bjuggu á Siglufirði. Börn þeirra Helgu og Þor- valdar eru: 1) Sigríður Jóna, f. 17. nóvember 1940, gift Eyjólfi Einarssyni, f. 17. ágúst 1940. 2) Sigurjón Rafn, f. 26. júlí 1943, Haustið 1965 kom ég fyrst á heimili Helgu og Þorvaldar, til- vonandi tengdaforeldra minna. Frá fyrstu stundu skynjaði ég hversu velkomin ég var. Helstu eiginleikar Helgu voru um- hyggja og ósvikin væntumþykja í minn garð. Eftir því sem árin liðu og fjölskyldan stækkaði urðu þess- ir kostir hennar meira áberandi. Hún hugsaði um velferð af- komenda fjölskyldu sinnar og samferðafólks til hinstu stund- ar. Helga var húsmóðir sem stóð fullkomlega undir nafni. Hún hélt fast í allar hefðir. Heimilið fallegt og rausnarlegt. Árlegt jólaboð hélt hún fyrir stórfjölskylduna til að viðhalda tengslum og vinskap. Gjafmildi Helgu átti sér lítil takmörk og nutum við þess fjölskyldan og það samferðafólk hennar sem hún vissi að þurfti einhvers með. Félagslyndi var ríkur þáttur í fari Helgu og það sýndi sig best síðustu árin hversu marga hún þekkti og hve mörgum þótti vænt um hana. Helga var mikið jólabarn og hafði hún yndi af fallegum hlut- um og öllu því sem fylgdi und- irbúningi jólanna. Það verður fátækleg aðventa sem nú geng- ur í garð án hennar. Hjartans þökk fyrir samfylgdina. Ég sakna þín. Daníela (Dana). Í byrjun mánaðarins lést elskuleg amma mín eftir stutt veikindi, en á síðasta ári hafði hún flust inn á dvalarheimilið Hlíð frá heimili sínu til 72 ára. Hún var alla tíð mjög heilsu- hraust og sjálfstæð. Í vikunni stöðvaði mig eldri kona á götu úti og samhryggð- ist mér vegna fráfalls ömmu. Hún sagði að þessi aðventa yrði fátæklegri en undanfarna ára- tugi, þar sem frú Helga myndi ekki spígspora í sínu fínasta pússi um götur bæjarins í jóla- ösinni og tala glaðlega við alla um hvað sem þeim kynni að liggja á hjarta. Þessi jól verða öðruvísi en öll jól hingað til, en amma var mik- ið jólabarn sem naut þess að halda jólin í öllu sínu veldi með pökkum, mat og stórum fjöl- skylduboðum. Ef amma hefði fæðst á Ítalíu hefði hún líklegast verið kölluð Donna Helga, ættmóðir okkar allra, og verið alla tíð sínum Don Þorvaldi innan handar með alla hluti. Þannig voru þau heið- urshjón í augum okkar allra í fjölskyldunni og alltaf var þar kyrrð, hlýja og viska. Ég var svo heppinn að fá að vera mikið með ömmu og afa sem barn og nú nýt ég góðra minninga um hlýju, gjafmildi og gæsku. Það veganesti sem mér var gefið hefur reynst mér staðgott og hollt til allra hluta. Amma hafði alla tíð sterkar skoðanir og lét okkur þær óspart í té, en jafnframt bjó hún að víðsýni þeirri sem leyfði okkur að þroska með okkur okkar eigin skoðanir og fylgja þeim eftir. Hún var þeirrar gerðar að mega ekkert aumt sjá og gaf sig jafnt að mönnum og mál- leysingjum. Ég veit að hún mun áfram fylgjast með okkur og minna okkur á guðsótta og góða siði á sinn hátt og verða áfram lifandi í minningunni. Góða ferð, amma mín. Þinn Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson (Lúlli). Í dag kveð ég ömmu mína sem var ein af mikilvægustu manneskjunum í lífi mínu. Amma var umhyggjusöm, ósér- hlífin, glaðlynd og umfram allt einstök. Jólin í ár verða sérlega tóm- leg en amma var einstaklega mikill fagurkeri og jólabarn. Húsið skreytt hátt og lágt og hafði hún einstaklega gaman af jólaljósum og fórum við stund- um í bíltúr um bæinn til að virða þau fyrir okkur. Árlegt jólaboð fjölskyldunnar annan í jólum var ætíð gleðilegt og var ávallt tilhlökkun að hitta ætt- ingja yfir heitu súkkulaði og smákökum svo ekki sé nú minnst á allt hitt sem var á boð- stólum. Heimsóknirnar í Hrís- eyjargötuna voru margar og alltaf var maður jafn velkominn hvernig sem stóð á. Amma bauð ávallt upp á eitthvert góðgæti, spil eða gott spjall. Hún hafði mikla kímnigáfu og gat hlegið að góðu gríni og gert grín sjálf. Amma var meira en bara amma mín, hún var líka vinkona mín og við gátum rætt allt milli himins og jarðar ef þannig lá á okkur. Amma fylgd- ist vel með fólkinu sínu og öðru samferðafólki og sagði gjarnan: „Ef maður spyr ekki þá veit maður aldrei neitt.“ Hún var trú sínu fólki og átti einnig vini og vinkonur um all- an bæ, hún hafði góða nærveru og þótti einstaklega gaman að hitta fólk á förnum vegi. Hún las blöðin daglega og fylgdist vel með fréttum. Mest þótti henni gaman að því að lesa um unga fólkið sem gekk vel í skóla og maður skynjaði það vel hversu mikið hún hefði viljað læra ef tækifæri hefðu verið fyrir hendi og það var henni af- ar mikilvægt að okkur gengi vel í skóla. Ég minnist ömmu með þakk- læti í huga, hennar verður sárt saknað. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Selma Dögg. Hér kveðjum við ömmu Helgu. Þegar ég hugsa um ömmu Helgu og bernskuna kemur margt upp í hugann. Hrein og ilmandi rúmföt, sund- ferðir með afa með appelsíni og lakkrísröri, heima beið amma með steik á sunnudegi. Amma mátti aldrei aumt sjá og lærði ég margt af henni sem snýr að manngæsku og kærleika gagn- vart náunganum og dæma ekki aðra. Amma hafði gaman af því að bera fallega hluti og töluðum við oft í gríni um að hún væri eins og krummi og í því sam- hengi gullhringir, armbönd og aðrir skartgripir sem hún bar. Eitt af því sem amma hafði gaman af var að fara í búðir en þar hitti hún gjarnan fólk á förnum vegi sem hún hafði gaman af að spjalla við og gátu því búðarferðirnar verið í lengra lagi. Ég skynjaði oft að hún hefði viljað mennta sig, hún lagði mikið upp úr því að við barna- börnin menntuðum okkur og þegar ég fór í mitt hjúkrunar- nám, þegar ég stóð á fertugu, fylgdist hún vel með og hvatti mig áfram. Fyrir það er ég þakklát. Amma fylgdist vel með því sem snéri að stórfjölskyldunni eftir því sem þróttur og þrek leyfði allt til hinsta dags. Í október sl. sátum við nöfn- urnar á rúmstokknum og spjöll- uðum um lífið og tilveruna og þá skynjaði ég sterkt að þrek hennar var á þrotum. Að lokum er hér bæn sem amma kenndi mér: Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson) Elsku amma, ég veit að afi tekur vel á móti þér. Takk fyrir samfylgdina – Hvíl í friði. Þín, Helga Margrét og börn. Elsku amma mín, núna þegar þú hefur kvatt þessa jarðvist safna ég öllum góðu minning- unum okkar saman í minninga- bankann minn. Má ég fá kúlu? Þetta var yf- irleitt það fyrsta sem ég sagði þegar ég mætti í heimsókn til þín sem lítill drengur og alltaf fékk ég kúlur. Ég var mikið hjá ykkur afa sem ungur drengur, þú passaðir mig oft og við bröll- uðum margt saman. Við spil- uðum oft á tíðum ólsen og fleiri spil og alltaf varð ég sigurveg- ari því þú vildir láta spilið end- ast aðeins lengur. Það er svo margs að minnast, fjölmennu og glæsilegu jólaboðin sem þú stóðst alltaf fyrir, allar heim- sóknirnar þar sem þú tókst mér og síðar fjölskyldunni minni ávallt opnum örmum og tókst ekki annað í mál en að bera fram dýrindis kræsingar og heitt kakó í hvert skipti. Bæj- arferðirnar okkar margar og fróðlegar, alltaf komið við í Alaska og svo fékk ég líka að fara í Sigga Gúmm meðan þú fórst í blómabúðina og sagðir alltaf áður „bara skoða, ekki snerta“ og að sjálfsögðu hlýddi ég því, líklega eina sex ára barnið sem gerði það í þessari flottu búð. Þú varst mér einstaklega góð amma, alltaf svo hlý og komst ávallt hreint fram við mig og varst ekki þekkt fyrir að liggja á skoðunum þínum. Glæsileiki þinn var einstakur og margum- ræddur víða annars staðar. Þú hafðir einstakan áhuga á barna- börnunum þínum og ekki síður langömmubörnunum og ljómað- ir ávallt þegar dætur mínar komu með mér í heimsókn. Áhugi þinn á tísku og fallegu handverki var eftirtektarverð- ur, enda varstu mikill fagurkeri og einstök hannyrðakona. Elsku amma, ég sakna þín en ég veit að þér líður vel í dag með afa þér við hlið. Þinn, Sveinn Fannar. Helga Margrét Sigurjónsdóttir ✝ KristínPálsdóttir fæddist á Dalvík 31. júlí 1922. Hún lést á Dalbæ, dvalarheimili aldr- aðra á Dalvík, 5. nóvember 2015. Foreldrar Krist- ínar voru Páll Friðfinnsson, út- gerðarmaður á Dalvík, og Ráðhild- ur Ingvarsdóttir húsmóðir frá Junkaragerði á Suðurnesjum. Bróðir hennar var Gunnar Bjarkarbraut 5, Dalvík, ásamt föður sínum en móðir Kristínar lést árið 1944. Kristín stundaði nám við hús- mæðraskóla í Reykjavík og sá síðan um föður sinn og föð- ursystur, Sigríði Friðfinns- dóttur. Kristín fór snemma að vinna ýmis störf, t.d. í apótekinu, en frá 1954 starfaði hún hjá Pósti og síma á Dalvík eða allt til árs 1992, er hún lét af störfum vegna aldurs. Eftir það vann hún við rækjuvinnslu í nokkur ár. Hún fluttist að Dalbæ á efri árum. Útför Kristínar verður gerð frá Dalvíkurkirkju í dag, 13. nóvember 2015, klukkan 13:30. Pálsson, f. 29. mars 1924, d. 12. nóv- ember 1998, giftur Jónínu Guðrúnu Egilsdóttur Thor- arensen frá Sel- fossi, f. 15. mars 1928, d. 26. mars 1997, og áttu þau þrjá dætur, Hrafn- hildi, Kristínu og Ragnheiði. Kristín var ógift og barnlaus. Hún ólst upp á Hrafnstöðum í Svarfaðardal, flutti þaðan ung að árum á Stína frænka var hún og er allt- af kölluð af okkur krökkunum í fjölskyldunni. Síkát og glöð útivist- arkona sem tíndi ber, bjó til slátur, prjónaði peysur, sokka og ullarboli og bjó eiginlega til allt sem mömmur þurftu á að halda fyrir börnin sín. Sem börn þvældumst við Gussi bróðir með mömmu óteljandi sinn- um fram til Dalvíkur til að vera með Stínu sem var mömmu ótrú- lega góð alla tíð. Æskuminning- arnar þaðan eru ljúfar og bjartar, fullar af skemmtilegum ævintýr- um úr sveitinni og góðum vinum, Stínu og frændfólki. Afi Gunnar, sem var bróðir Stínu, og amma Nína voru henni bestu vinir og varði hún mestum frítíma sínum hjá þeim og okkur, þannig að jólin voru aldrei byrjuð fyrr en hún var komin. Þá hjálp- uðust þær að við jólaundirbúning- inn, amma Nína, Stína, mamma og systur hennar, elduðu rjúpur og annað dýrindi sem tilheyrir jólun- um. Stína eignaðist ekki börn og vorum við því, barnabörn ömmu og afa, börnin hennar líka. Við fengum alltaf vandaðar og fallegar gjafir sem hún varði miklum tíma í að útbúa handa okkur og hélt því áfram alveg til síðasta dags. Eftir að barnabarnabörnin fæddust fengu þau líka. Hún skildi engan eftir útundan þessi gullmoli sem við vorum svo heppin að hafa feng- ið að vera samferða í þennan tíma. Það var Stínu erfitt að missa ömmu Nínu og saknaði hún henn- ar sárt og svo þegar afi fór ekki svo löngu seinna þá var lítið eftir fyrir hana að koma suður til að heim- sækja en mamma, Hrafnhildur og maðurinn hennar, Guðmundur, hafa haldið miklu og góðu sam- bandi þessi síðustu ár og Stína var alltaf ótrúlega glöð af fá þau og okkur í heimsókn. Þó svo að börnin í fjölskyldunni væru orðin mörg fengu allir heimatilbúnar jólagjafir sem við höldum upp á og hugsum hlýtt til hennar núna eins og alltaf. Stína mín, elsku frænka mín, þín verður saknað og ég er sann- færð um að það verða margir dýr- mætir vinir og ættingjar sem bíða þín og taka á móti þér. Ég vona að þú berir þeim kveðju mína og okkar. Segðu ömmu Nínu að ég sakni hennar daglega. Þín, væntumþykjandi og þakk- láta fyrir okkar tíma saman, Ragnheiður (Ragga litla). Nú er elsku Stína frænka mín, vinur og lærifaðir, farin frá okkur, 93 ára gömul – blessuð sé minning hennar. Á svona stundu hrannast upp minningar sem í gegnum árin eru orðnar ansi margar og þá er spurningin – hvar á að byrja og hvar enda? Ég var ansi rík að eiga svona góða frænku, hún kenndi mér að sauma út og prjóna, svo ég tali nú ekki um að salta síld, þol- inmæði hennar var ótrúleg þegar hún hjakkaði með mig niður á planið þeirra pabba í tíma og ótíma, ég bara 11 ára og náði ekki einu sinni ofan í tunnuna, en ég fékk samt að fara með – í dag eru þessir tímar mér mikils virði. Eftir að fjölskylda mín flutti suður, og ég eignaðist sjálf fjöl- skyldu, tóku heimsóknir til Dalvík- ur við, berjamór, prjónastundir og margt fleira. Stína var börnunum mínum, þeim Ragnheiði og Gunn- ari Arngrími, afar góð alla tíð. Það var alltaf tilhlökkun að fá pakkana á jólunum frá Stínu frænku, nýjar peysur, húfur og margt fleira, ynd- islegt. Undanfarin ár hefur Stína mín dvalið á Dalbæ í góðum félagsskap og ferðirnar þangað ófáar. Við fór- um í bíltúra í sveitinni fögru, Svarfaðardal, til Húsavíkur, Siglu- fjarðar og margt fleira, Stína dug- leg að segja frá sínum yngri árum, sem ég hafði virkilega gaman af, fyrir utan hvað það er gefandi og gaman að koma á Dalbæ, hitta allt þetta fullorðna, góða fólk og ynd- islega starfsfólk, þökk sé þeim. Elsku Stína mín, þín verður sárt saknað. Þú áttir stóran hlut í lífi mínu og hjarta, takk fyrir mig og mína fjölskyldu, elskan, Guð geymi þig, góða kona. Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga, en sér í lagi þau, sem tárin lauga, og sýndu miskunn öllu því, sem andar, en einkum því, sem böl og voði grandar. (Matthías Joch.) Hrafnhildur. Stína frænka, afasystir, fékk að lifa spræk til 94 ára aldurs og fékk að deyja friðsæl í svefni í síðustu viku. Ég er þakklát fyrir þetta, fyrir að hafa knúsað hana í sumar og aðallega fyrir að hafa átt hana að alla mína ævi. Ég þekki ekki lífið án þess að eiga Stínu frænku á Dalvík. Svo lengi sem ég man, var hún alltaf til og alltaf á sama stað, á Bjarkar- braut 5, húsinu sem mamma ólst upp í með systrum sínum og afa og ömmu sem bjuggu um árabil á hæðinni fyrir ofan. Sögurnar frá æsku mömmu á Dalvík voru alltaf sveipaðar ævin- týraljóma og fólu í sér nákvæmar lýsingar og veislu skynjana. Þar bar oft hæst lyktina, hvort sem það var sjávar- og fiskilyktin niðri á bryggju, lyktin á síldarplaninu þar sem mamma og Hrabba systir hennar fengu ungar að vinna með fullorðna fólkinu á síldartörnum eða af sláturtöku, súrsun, sultun, matar- eða baksturslykt þar sem Stína og Sigríður kenndu ömmu Nínu að halda heimili í sveitinni og undirbúa fyrir veturinn eins og skyldi. Stína frænka var hús- mæðraskólagengin og „myndar- legasta“ kona sem ég hef kynnst. Hún giftist aldrei en allir sem hana þekktu vita að hún hefði getað orð- ið hin mesta fyrirmyndareigin- kona og -móðir, hefði það tækifæri gefist, en þess í stað annaðist hún pabba sinn, langafa Pál, og síðan Sigríði föðursystur sína fatlaða. Þó voru það ekki aðeins þau sem fengu að njóta góðs af umhyggju Stínu frænku heldur svo margir, margir fleiri. Ég man ekki þau jól sem ung stúlka að ég hafi ekki farið að sofa við nýsaumuð sængurföt, í nýjum náttfötum og oftast með jólabók líka frá Stínu frænku. Mamma tal- aði oft um það að þegar ég var lítil, og mamma og pabbi svo ung og blönk, að ég hafi oft farið á leik- skólann í öllu, allt frá ullarnærföt- unum og að ysta laginu, í hand- gerðum fötum af Stínu. En við vorum jú fleiri barnabörnin afa Gunnars, og svo voru líka allar „fjölskyldurnar“ hennar á Dalvík sem áttu ung börn sem hún tók líka undir sinn stóra góða væng. Stína kom stundum suður í gamla daga og var hjá afa og ömmu á hátíðum. Sem unglingur fannst mér hún helst til „forvitin“ þegar hún spurði mig mikið út í skólann, námið og tómstundirnar. Nú sem fullorðin kona og móðir þykir mér vænt um það og veit að þetta var einmitt umhyggjusemin, einlægur áhugi og kannski bara smá Dalvíkur-háttur. Ég sé líka að Stína frænka gleymdi mér aldrei þrátt fyrir að ég hafi búið erlendis árum saman. Án undantekninga, þá sendi hún okkur fjölskyldunni jólapakka á hverju ári með ís- lensku dagatali og góðgæti sem hlýjaði mér um hjartarætur svona langt að heiman og síðast en ekki síst jólahandavinnuna: keramik- hluti, handmálaða jóladúka og skraut sem mun endast mér ævi- langt til að skreyta fyrir litlu ís- lensku jólin okkar úti í heimi. Ég er þakklát fyrir alla þessa umhyggju og fyrir að hafa átt svona vel gerða afasystur sem var alla tíð einskonar klettur í norðri bak við þær systurnar Hröbbu, mömmu (Sissu), og Röggu Gunn- arsdætur og okkur börnin og barnabörn þeirra. Elsku Stína frænka, megi minn- ing þín lifa um alla tíð í hjörtum okkar. Jónína (Nína) og fjölskylda. Kristín Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.