Morgunblaðið - 13.11.2015, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015
Listaháskóli Ís-
lands verður með
opið hús í dag
milli kl. 13 og 16.
Námsbrautir á
BA- og MA-stigi
verða kynntar og
fjölbreytt dag-
skrá verður í öll-
um deildum, m.a.
boðið upp á fyrir-
lestra. Myndlist-
armaðurinn Guðmundur Thorodd-
sen heldur einn slíkan kl. 13 í
fyrirlestrarsal myndlistardeildar
að Laugarnesvegi 91, fjallar um
verk sín og hugmyndir.
Opið hús með fjöl-
breyttri dagskrá
Guðmundur
Thoroddsen
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin Markús & The Diver-
sion Sessions, leidd af tónlistarmann-
inum Markúsi Bjarnasyni, sendi
undir lok síðasta mánaðar frá sér
hljómplötuna The Truth the Love
the Life sem hef-
ur að geyma 10
lög. Markús &
The Diversion
Sessions var í
upphafi sólóverk-
efni Markúsar en
er nú orðin
hljómsveit. Markús leikur á gítar og
syngur, Ási Þórðarson leikur á
trommur, Georg Kári Hilmarsson á
bassa og Marteinn Sindri Jónsson á
hljómborð. Platan er komin út staf-
rænt og á geisladiski og segir Mark-
ús að beðið sé útgáfu vínylplötunnar.
Þegar hún sé komin verði blásið til
útgáfutónleika.
Ý́msar ástæður fyrir töfum
Markús var áður í hljómsveitunum
Sofandi og Skátum og sendi hvor frá
sér tvær breiðskífur. Hann hefur
einnig verið í öðrum hljómsveitum
sem hafa ekki gefið út plötur og er
núna í indírokksveitinni Stroff og er
skífa væntanleg frá henni.
The Truth the Love the Life er
fyrsta breiðskífa Markúsar & The
Diversion Sessions og liggur löng
vinna að baki, um þrjú til fjögur ár
með hléum, að sögn forsprakkans.
„Við ætluðum aldeilis að gera plötu
og tókum upp grunna fyrir þónokkru
síðan. Ég vil helst ekki tala um það
eða muna eftir því að þetta hafi tekið
svona langan tíma,“ segir Markús
sposkur. Ýmislegt hafi tafið plötu-
smíðina, m.a. nám hljómsveitar-
meðlima innanlands sem utan, fjöl-
skyldumál og annað. Ástæður fyrir
töfum hafi verið ýmsar og ekki endi-
lega góðar. Markús segist haldinn
fullkomnunaráráttu sem hafi einnig
tafið fyrir.
Dramatík kallar á fiðlu og sög
„Þetta er tónlist sem byggir á mik-
illi hefð, americana og mikil popp-
áhrif, „folk revival americana“-áhrif
og þá vill maður heyra hitt og þetta,
vanda sig og reyna að bæta einhverju
við,“ segir Markús um tónlistina.
-Bakraddir og gospelkór, t.d?
„Já og smá lúðra þar sem þarf og
ef lagið er dramatískt verður nátt-
úrlega að vera fiðla og sög. Þetta tók
smátíma, að koma þessu öllu saman,
hljóðblanda og svona.
Platan var tekin upp á fjölmörgum
stöðum, þar af í einu leynistúdíói og í
kjallara. Smellurinn „É bisst assök-
unar“ var tekinn upp í kjallara á
Vesturgötunni og líka „Decent Tim-
es“, það er nú verið að rífa það hús-
næði og byggja hótel. Ég var að hjóla
framhjá Mjölnisholti, fyrsta æfing-
húsnæði Sofandi, og það er búið að
rífa það og reisa íbúðablokkir,“ segir
Markús og bætir við að upptökur
hafi einnig farið fram í hlöðu í Vogum
á Vatnsleysuströnd.
-Höfðu þessir ólíku upptökustaðir
ekki áhrif á hljóminn í lögunum?
„Jú, trommuhljómurinn er ólíkur
eftir því hvar þú tekur upp og fjöl-
breyttur fílingur, það myndast öðru-
vísi stemning,“ svarar Markús.
Elsta lagið átta til tíu ára
Þekktasta lag plötunnar, „É bisst
assökunar“, naut mikilla vinsælda
fyrir einu og hálfu ári eða þar um bil
og spurður að því hvort það sé elsta
lagið á plötunni segir Markús svo
ekki vera. Lögin hafi verið samin á
löngu tímabili og hann valið þau
bestu úr sarpi sínum á plötuna.
„Elsta lagið á plötunni samdi ég fyrir
átta eða tíu árum þannig að þetta er
epískt,“ segir Markús. Lögin hafi bú-
ið með honum lengi og bankað reglu-
lega upp á. „Ég hef líkt þeim við
heimtufrek börn sem maður eignast,
þau vilja gospelkór, fiðlu, sög, bak-
raddir og ég veit ekki hvað og hvað
og svo vilja þau auðvitað koma út á
plötu,“ segir hann kíminn.
Markús telur vinsældir „É bisst
assökunar“ hafa átt stóran þátt í því
að platan var kláruð á endanum.
„Maður var kominn með tónlistina
svolítið mikið út í hobbíástand, hún
var alveg á kantinum en núna er búið
að klára plötuna,“ segir Markús og
bætir því við að hann njóti þess mest
af öllu að semja tónlist og hafi ein-
hverja hæfileika á því sviði. Honum
hafi þótt „É bisst assökunar“ dálítið
flókið, skrítið og langdregið lag og
því ekki leikið það oft. „Þetta lag er
svolítið út úr kú og setti pressu á mig
að gefa hin lögin út, að leyfa fólki að
heyra hina tónlistina sem er ansi ólík
þessu lagi.“
Afvegaleiðir og styttir stundir
Markús er spurður út í nafn hjóm-
sveitarinnar sem í upphafi var sóló-
verkefni, hann einn að syngja og spila
á gítar. Markús segir orðið „diver-
sion“ bæði vísa til þess að vera af-
vegaleiddur og til dægrastyttingar.
„Það er þetta sem leiðir mann af að-
alveginum. Þú þarft að mæta í vinn-
una, fara í skólann, vaska upp og gera
þetta og hitt. Í mínu tilfelli var það oft
þannig að ég greip í gítarinn og var
að dunda mér í tónlist þegar ég átti
að vera að gera eitthvað allt annað.
Þetta er líka svo fjölbreytt nafn,
„diversion“ í gamalli ensku þýddi af-
þreying eða skemmtun.“
Markús er að lokum spurður að því
hvað hann sé að fjalla um í textum
sínum. Hann segir grunninn oftast
melankólískan, fjalla um eitthvert
mótstreymi í lífinu en þó taki ávallt
við von og bjartsýni. „Lífið breytist
svo hratt,“ segir Markús og blaða-
maður tekur undir það.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hljómsveitin Markús & the Diversion Sessions, frá vinstri Marteinn Sindri Jónsson, Georg Kári Hilmarsson, Ási Þórðarson og Markús Bjarnason.
Lögin eins og heimtufrek börn
The Truth the Love the Life nefnist nýútkomin breiðskífa Markús & The
Diversion Sessions Tónlist sem byggist á mikilli hefð, að sögn Markúsar
SPECTRE 4,7,10(P)
HANASLAGUR 3:50
JEM AND THE HOLOGRAMS 5
CRIMSON PEAK 10:30
EVEREST 8
SICARIO 8,10:30
HOTEL TRANSYLVANIA 2 6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 10
TILBOÐ KL 5
TILBOÐ KL 3:50
SÝND Í 4K!