Morgunblaðið - 13.11.2015, Page 36
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 317. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Vélin fundin – brotlenti í hrauni
2. Snjór á leiðinni
3. Ætluðu að gera árás í Noregi
4. Prestar í leyfi vegna óánægju
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Uppfærsla Íslensku óperunnar á
Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini
verður sýnd í síðasta sinn í Eldborg-
arsal Hörpu í kvöld og mun Kristinn
Sigmundsson syngja hlutverk tónlist-
arkennarans Don Basilios í stað Við-
ars Gunnarssonar. Er það jafnframt
eina sýningin á Rakaranum frá
Sevilla sem Kristinn syngur í.
Morgunblaðið/Golli
Kristinn syngur hlut-
verk Don Basilios
Kristín Rúnars-
dóttir opnar sýn-
ingu í Núllinu,
sýningarrými Ný-
listasafnsins í
Bankastræti 0 þar
sem áður voru al-
menningssalerni,
í dag kl. 17. Sýn-
ingin nefnist
prik/strik/ og á henni má sjá inn-
setningu sem teygir sig frá gólfi, um
veggi og upp í loft.
Innsetning þar sem
áður var salerni
Myndlistarsýningin Hörund eftir
Eddu Heiðrúnu Backman verður opn-
uð í Norræna húsinu í dag kl. 17 og
verða Ragnar Jón Hrólfsson og Arn-
mundur Ernst Björnsson með
skemmtiatriði Eddu til
heiðurs. Viðfangsefni
Eddu eru líkamar og
sýnir hún 42 vatns-
litamyndir. ,,Allir eru
einhvern veginn, þetta
er minn raunveru-
leiki, minn heim-
ur,“ segir Edda
um verkin.
Edda opnar sýningu í
Norræna húsinu
Á laugardag Norðlæg átt, 8-13 m/s og slydda eða snjókoma
eystra, en hægari og úrkomuminna síðdegis. Annars norðaustan
5-10 og él, en þurrt og bjart syðra og vestra. Hiti um frostmark.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan 13-23 m/s eystra, rigning eða
slydda norðaustantil, en snjókoma til fjalla. Mun hægari vindur
vestra, él norðvestantil, en þurrt suðvestantil. Hiti yfirleitt 0-5 stig.
VEÐUR
Áttundi tapleikur
ÍR-inga í röð
„Þetta verður prófraun fyrir okkur
en við ætlum samt að nýta þennan
leik, og leikinn við Slóvakíu, til að
gefa nýjum leikmönnum tækifæri
til að sýna sig,“ segir Heimir Hall-
grímsson landsliðsþjálfari en Ís-
lendingar mæta Pólverjum í vin-
áttulandsleik í kvöld. »1
Þetta verður prófraun
fyrir okkur
Þór Þorlákshöfn gerði góða ferð í
Garðabæinn þegar liðið lagði
Stjörnuna í Dominos-deild karla í
körfuknattleik í gærkvöld. Tinda-
stóll komst loks á sigurbraut
með sigri á móti Hetti á Krókn-
um, KR-ingar burstuðu Snæfell í
Frostaskjólinu og Njarðvík átti
ekki í vandræðum með nýliða
FSu á Selfossi. »2-3
Þór gerði góða ferð í
Garðabæinn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Stöðugt bætist við menningarflóruna
á Grandanum í Reykjavík og eitt nýj-
asta verkið er skúlptúr af víkingi með
skjöld og sverð á hestbaki eftir Ernst
Backman fyrir framan Sögusafnið,
sem hann á og rekur með fjölskyldu
sinni í gamla Alliance-húsinu.
„Þetta er merki safnsins,“ segir
Ernst um listaverkið. Hann byrjaði á
því í fyrra, vann það í gömlu síldar-
bræðslunni, sem sjávarútvegs-
fyrirtækið HB Grandi hf. á. „Stjórn-
endur fyrirtækisins hafa stutt
listamenn og leyft þeim að nýta að-
stöðu í húsinu án endurgjalds. Ég
naut góðs af því,“ segir Ernst.
Hjónin Ernst og Ágústa Hreins-
dóttir hafa rekið Sögusafnið síðan
2002, fyrst í Perlunni og á núverandi
stað síðan í apríl 2013. Þeim leið vel í
Perlunni en eftir að þeim var bolað
þaðan í burtu, þrátt fyrir að vera með
langtímaleigusamning, fannst þeim
að sér vegið. Lögðu samt ekki árar í
bát og hafa komið sér vel fyrir í sögu-
frægu húsi á horni Mýrargötu og
Grandagarðs. Húsið var byggt sem
saltverkunarhús á árunum 1924 til
1925 og er friðað.
Sögusafnið er í raun eins og það
var í Perlunni en öðruvísi uppsett.
Það er samtals um 760 fermetrar og
sjálft sýningarsvæðið um 400 fer-
metrar. Þar eru 15 leikmyndir og 30
persónur. „Hérna er sagan sögð rétt
eins og í Íslendingasögunum,“ segir
Ernst. Í húsnæðinu er sérstakt vídeó-
herbergi og fyrir utan sjálft sýning-
arsvæðið er stór verslun og veitinga-
staðurinn Matur og drykkur, sem
dætur þeirra reka.
„Gestirnir eru nánast alfarið er-
lendir ferðamenn,“ segir Ernst, en
safnið er opið frá kl. 10 til 18 nær alla
daga ársins. Hann segir að umferð
gangandi fólks um Grandann hafi
aukist mikið með aukinni uppbygg-
ingu. „Hafnarsvæðið er sérlega
vinsælt og við verðum áþreifanlega
vör við það.“
Erlendir njóta góðs af
Ernst lætur sér ekki nægja að
varpa ljósi á sögu Íslands heldur hef-
ur verið erlendum söfnum innan
handar. Hann hefur meðal annars
gert 17 persónur fyrir Sögusafnið í
Vestmanna í Færeyjum og sex brúð-
ur fyrir safnið í Aðalsnesi í Noregi,
þar sem Haraldur hárfagri átti bú-
stað, auk þess sem hann hefur unnið
brúður fyrir safnið í Lofoten í Noregi.
„Næst á dagskrá er að undirbúa eina
leikmynd til viðbótar fyrir Sögusafnið
í Færeyjum,“ segir Ernst.
Nýtt listaverk á Grandanum
Ernst á Sögu-
safninu með verk
fyrir Færeyinga
Morgunblaðið/RAX
Persónur og leikendur Í Sögusafninu eru 15 leikmyndir og 30 persónur.
Listaverk Ernst Backman við nýjasta verkið fyrir framan Sögusafnið úti á Granda í Reykjavík.
ÍR-ingar töpuðu sínum átt-
unda leik í röð þegar þeir
biðu lægri hlut fyrir FH-
ingum í Olís-deild karla í
handknattleik á heimavelli
sínum í gærkvöld. Framarar
héldu sigurgöngu sinni
áfram þegar þeir lögðu Eyja-
menn í Safamýri, Akur-
eyringar fögnuðu góðum
sigri á móti Aftureldingu á
heimavelli og í nýliðaslagn-
um hafði Grótta betur á móti
Víkingi. »2-4