Morgunblaðið - 18.11.2015, Síða 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2015
Meira en eitt og
hálft ár er nú liðið síð-
an framkvæmdir hóf-
ust við ný Norðfjarð-
argöng sem gætu ef
engin teljandi vanda-
mál koma upp klárast
mörgum mánuðum á
undan Vaðlaheiðar-
göngum. Með tilkomu
nýju ganganna sem
verða tvíbreið – og
leysa af hólmi ein-
breiðu slysagildruna á snjóþungu
og illviðrasömu svæði í 620 m hæð
fyrir ofan Eskifjörð verður ein-
angrun Fjarðabyggðar endanlega
úr sögunni. Engin svör fást þegar
spurt er hvort nýju Norðfjarð-
argöngin sem nú eru langt komin
verði tilbúin á næsta ári á meðan
verktökunum gengur illa að grafa
úr Fnjóskadal undir Vaðlaheiði. Án
Fáskrúðsfjarðarganga gætu heima-
menn norðan Breiðdalsvíkur aldrei
fengið öruggari vegasamgöngur við
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaup-
stað þegar framkvæmdum við
Norðfjarðargöng lýkur að fullu.
Um ókomin ár vekur
þessi staðsetning
sjúkrahússins norðan
Oddsskarðsins alltaf
óánægju heimamanna
utan Norðfjarðar á
meðan jarðgöng á suð-
urfjörðunum auk
Mjóafjarðarganga eru
ekki í sjónmáli næstu
15-20 árin. Fyrir heil-
brigðisþjónustuna og
alla íbúa fjórðungsins
sem þurfa að hafa
greiðan aðgang að
sjúkrafluginu allt árið
um kring skipta þessi samgöngu-
mannvirki miklu máli þegar vega-
lengdirnar styttast og snjóþungum
fjallvegum í meira en 200 m hæð
fækkar. Að loknum framkvæmdum
við Fjarðarheiðargöng myndu veg-
göng milli Seyðisfjarðar, Mjóa-
fjarðar og Norðfjarðar með teng-
ingu við Hérað styrkja
Mið-Austurland sem atvinnu-,
menningar-, og þjónustusvæði.
Með venjulegum ríkisframlögum
getur vinna við þessi samgöngu-
mannvirki tekið 15-25 ár fari svo að
Fjarðarheiðargöng verði tekin á
undan Mjóafjarðargöngum eins og
Seyðfirðingar ætlast til. Að Norð-
fjarðargöngum meðtöldum sem
rjúfa einangrun Fjórðungssjúkra-
hússins yrðu þetta samanlagt 30
km löng veggöng, spurningin er
hvaða leiðir verði ákveðnar. Óhjá-
kvæmilegt er þegar tímar líða að
vegurinn á stystu leiðinni milli
Héraðs og Reyðarfjarðar víki
endanlega fyrir þessum samgöngu-
mannvirkjum þótt biðlististar eftir
jarðgöngum séu langir enn sem
komið er. Fullvíst er talið að þessi
vegur á Fagradal verði hvergi
öruggur fyrir meira en 8 metra
snjódýpt og miklu fárviðri sem
tryggir íbúum Fjarðabyggðar og
suðurfjarðanna aldrei öruggar
vegasamgöngur við Egilsstaða-
flugvöll þegar þeir þurfa fyrir-
varalaust að treysta á sjúkraflugið.
Þetta illviðri á Fagradal og beggja
vegna Oddsskarðsins í 620 m hæð
getur kostað fárveikan mann í Nes-
kaupstað lífið ef flugmaður sjúkra-
flugvélar verður að hætta við lend-
ingu á Norðfjarðarflugvelli vegna
veðrabreytinga sem minna á sig
þvert á allar veðurspár örfáum
mínútum fyrir áætlaðan lending-
artíma. Með tilkomu Fjarð-
arheiðar- og Mjóafjarðarganga
verður fljótlegra fyrir Seyðfirðinga
og íbúa Fjarðabyggðar að treysta á
sjúkraflugið sem Flugfélagið Mý-
flug sinnir frá Akureyri. Fyrir
sjúkraflugmenn og starfandi lækna
úti á landi verður strax auðveldara
og fljótlegra að koma slösuðu fólki
á landsbyggðinni undir læknis-
hendur í Reykjavík þegar ill-
viðrasamar og snjóþungar heiðar í
meira en 500 m hæð víkja end-
anlega fyrir jarðgöngum sem stytta
vegalengdirnar og tryggja öryggi
byggðanna enn betur.
Án jarðganganna sem hér eru
nefnd er óhjákvæmilegt að senda
barnshafandi konur á Héraði og
Seyðisfirði með sjúkraflugvél frá
Egilsstöðum til Reykjavíkur eða
Akureyrar á meðan áhyggjufullir
bílstjórar sjúkrabifreiða geta aldrei
treyst vegunum á Fagradal,
Fjarðarheiði og beggja vegna
Oddsskarðsins sem eru hvergi
öruggir fyrir of mikilli veðurhæð.
Mörg eru verkefnin á Mið-
Austurlandi og suðurfjörðunum
sem hefðu átt að vera á undan
Vaðlaheiðargöngum þó að Norð-
fjarðargöng geti hugsanlega klár-
ast fyrr en áætlað er.
Á sunnanverðum Vestfjörðum
vantar fleiri göng í beinu framhaldi
af Dýrafjarðargöngum sem nú eru
tilbúin til útboðs á þessu eða næsta
ári. Stigið er fyrsta skrefið til að
losna við tvo snjóþunga fjallvegi
milli suður- og norðurhluta Vest-
fjarða. Þessi göng fyrir vestan og
austan sem eru á samgönguáætlun
greiðast af ríkisfé. Að þeim loknum
er eftir eitt stórt og tímafrekt verk-
efni á Mið-Austurlandi, það eru 13-
14 km löng veggöng undir Fjarðar-
heiði sem tryggja viðkomustað
Norrænu öruggari vegasamgöngur
við byggðirnar norðan Fagradals
og betra aðgengi að innanlands-
fluginu.
Verða Norðfjarðargöng tilbúin 2016?
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson
»Með tilkomu Fjarð-
arheiðar- og Mjóa-
fjarðarganga verður
fljótlegra fyrir Seyðfirð-
inga og íbúa Fjarða-
byggðar að treysta á
sjúkraflugið...
Höfundur er farandverkamaður.
Nú stendur yfir
verkefni ríkisstjórn-
arinnar um að koma
upp hagkvæmu íbúð-
arhúsnæði fyrir fólkið
í landinu. Í viðleitni
sinni til að finna hag-
kvæmar bygginga-
lausnir sem væru
vandaðar, með húsum
sem gætu risið hratt
og ódýrt hélt ráðherra
300 manna upphafsfund að verk-
efninu með þjóðfundarfyrir-
komulagi til að kalla fram hug-
myndir.
Hugmyndin að ódýru og hag-
kvæmu húsnæði á Íslandi hefur
verið draumur margra í áratugi en
þeir sem hafa glímt við að leysa
þann sérstaka vanda hafa flestir
gefist upp á verkefninu. Ástæðan
fyrir því kom skýrt fram á um-
ræddum 300 manna fundi þar sem
reglugerðafarganið og okurvextir
var oftast nefnt til sögunnar sem
sökudólgar. Báðir þessir þættir eru
að miklu leyti á höndum hins op-
inbera þannig að það gæti reynst
mjög einfalt fyrir ráðamenn að
lækka byggingakostnaðinn með því
að einfalda regluverkið og lækka
fjármagnskostnað.
Engu að síður þá er vandamálið
miklu flóknara og erf-
iðara viðfangs og á
þessum annars ágæta
fundi var ekki lagt
fram neitt sem fór of-
an í kjölinn á vanda-
málum bygginga-
kostnaðar – enda bara
verið að fá fram laus-
legar hugmyndir sem
verður unnið úr á
næstunni.
Staðan í dag á
íbúðamarkaði er
skelfileg fyrir fólk,
bæði leigjendur og kaupendur, og
reikna má með að framundan séu
miklar hækkanir á íbúðarhúsnæði
á Reykjavíkursvæðinu. Hugsanlega
er það gott þar sem það mundi ýta
undir jafnari dreifingu á fólki um
landið og fyrirtæki mundu sjá sér
hag í að færa sig út á land burtu
frá húsnæðisokri á suð-vesturhorni
landsins.
Þegar grannt er skoðað þá er
byggingakostnaður hússins sjálfs
ofan botnplötu aðeins lítil hluti af
heildarkostnaði og gæti verið á
bilinu 40% til 50% af heildarkostn-
aðinum. Aðrir þættir svo sem lóð,
botnplata og lagnir, gata, hönnun
og fjármagnskostnaður gæti hæg-
lega verið á bilinu 50% til 60%.
Mun flóknara er að spara eða
lækka þennan kostnað sem er ann-
að en húsið sjálft heldur en að
lækka kostnað við húsið ofan botn-
plötu. Ástæðan er að þessir aðrir
þættir sem eru gatnagerð, sökklar,
botnplata, botnlagnir, tengingar
hússins við heitt og kalt vatn, raf-
magn, síma o.s.frv. kosta mikið og
ekki hægt að kaupa þessa þætti
með magnafslætti í pakka frá verk-
smiðju.
Við erum lítið land og fámenn
þjóð og búum til lítið magn af öllu
sem leiðir til hærri kostnaðar við
hverja einingu en tíðkast til dæmis
erlendis. Einnig þurfa allir sem
koma að þessum þáttum að fjár-
magna sig með fjármagni á háum
vöxtum sem fer beint inn í verðlag-
ið.
Þetta þýðir einfaldlega að ef fer-
metri í íbúðarhúsi í dag kostar um
það bil kr 450 þúsund, á fermetra
að meðaltali – þá skiptist þetta
gróflega í tvo þætti: a) hús ca 40%
af heildarkostnaði eða ca. kr.
180.000/m2 og b) aðrir kostn-
aðarliðir ca 60% af heildarkostnaði
kr. 270.000/m2.
Segjum að við mundum fá
ókeypis fullbúið hús ofan á botn-
plötuna, þá væri kostnaðurinn samt
í kringum kr. 270 þúsund á fer-
metra.
Það sem fólk er þá að ræða um
að spara í byggingarkostnaði undir
kjörorðunum „Vandað – Hag-
kvæmt – Hratt“ væri þá þessi
byggingarþáttur sem gæti verið
um 40% af heildarkostnaði. Ef unnt
væri að spara 10-15% af þessum
þætti ca. 18.000/m2 til 27.000/m2 –
sem voru þau viðmið sem ráðherra
húsnæðismála nefndi á 300 manna
fundinum – þá er þetta lækkun á
heildarkostnaði íbúðarhúsnæðis um
ca. 4-6%.
60m2 íbúð sem kostar í dag á höf-
uðborgarsvæðinu ca. 27 milljónir
mundi við aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar lækka um ca. 1-1,5 millj-
ónir í heildarkostnaði og íbúðin er
eftir sem áður allt of dýr.
Lækkun byggingarkostnaðar á
Íslandi sem um munar hefur mis-
heppnast hingað til. Engin patent-
lausn hefur komið fram önnur en
að skera niður stærð húsnæðis og
minnka umfang af öllu sem fer inn
í byggingarkostnað einstakra húsa
og íbúða, sleppa svölum, bíla-
geymslum o.fl. Samnýta meira göt-
ur og holræsi sem þýðir þéttingu
byggðar – og hafa til dæmis meira
af göngu- og hjólreiðagötum í stað
gatna fyrir ökutæki.
Láglaunafólk hefur því oftast
reynt að leysa málin með því að
kaupa litlar íbúðir – sem oftar en
ekki eru mun dýrari á hvern fer-
metra en stærra húsnæði – en þar
sem verktakar hafa þénað meira á
að byggja stærri íbúðir eða lúx-
usíbúðir – þá hafa litlar, ódýrar
íbúðir verið ófáanlegar. Auk þess
hafa ódýrar litlar íbúðir verið
bannaðar af löggjafanum þar sem
kröfur byggingareglugerðar hafa
kveðið á um lágmarksstærðir ein-
stakra rýma í íbúðum.
Fjármögnun íbúðarhúsnæðis
einnig verið eins óaðgengileg og
hægt er. Verðtryggð lán eru ekki
valkostur og lánasamningar með
óverðtryggum kjörum eru með það
háum vöxtum að fólk almennt – og
allra síst láglaunafólk – hefur ekki
haft efni á að taka íbúðalán.
Í viðbót við öll ofangreind vanda-
mál sem mörg stafa af reglugerð-
arfrumskógi opinberra aðila og
ónýtu efnahags- og gjaldmiðilskerfi
Íslendinga þá hafa opinberir aðilar
svo sem ríkið, sveitarfélög og hugs-
anlega lífeyrissjóðir verið að vinna
að þessum málum hvert í sínu
horninu í stað þess að sameina
krafta sína til að koma upp viðráð-
anlegu húsnæði fyrir fátækustu
borgarana.
Eftir Sigurð
Sigurðsson » Það sem á að spara í
byggingarkostnaði
undir kjörorðunum
„Vandað – Hagkvæmt –
Hratt“ er þá ca 4-6% af
heildarkostnaði.
Sigurður Sigurðsson
Höfundur er B.Sc., M.Phil.
byggingaverkfræðingur.
Lækkun byggingarkostnaðar
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899
Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is
Hleðsluhöggborvél
M18 FPD-502C
16mm með höggi
og skrúfvél
2x5,0Ah rafhlöður
MW 4933 4512 53
Herslulykill 3/4"
M18 CHIWF34-502C
Átak: 508/1016Nm.
2x5,0Ah rafhlöður
MW 4933 4481 05
Hefill M18 BP-402C
Geta: 82mm x 0-2mm.
Fals: 10,7mm. 2x4,0Ah rafhlöður.
MW 4933 4511 14
Vifta
M18 AF-0
Spenna: 18V og 230Volta
Loftmagn: 1290m³ klst. Án rafhlöðu.
MW 4933 4510 22
125mm Slípirokkur með bremsu
M18 CAG125XPDB-502C
2x5,0Ah rafhlöður.
MW 4933 4510 11
Segulstandsborvél
M18 FMDP-502C
Geta: 38mm.
Hleðsla: 40 göt 18mm. í 6mm. stál.
2x5,0Ah rafhlöður.
MW 4933 4510 12
Pressfittings töng M18 BLHPT-202C
Geta: 110mm. 2x2,0Ah rafhlöður.
MW 4933 4511 32
Verð Kr.
84.900,-
Verð Kr.
29.900,-
Verð Kr.
399.900,-
Verð Kr.
140.900,-
Verð Kr.
117.900,-
Verð Kr.
134.900,-
135Nm.
ÁTAK
1626Nm.
LOSUN