Morgunblaðið - 28.11.2015, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.11.2015, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hóf í gærkvöldi ár- visst eftirlit með umferðinni á þessum árstíma, með áherslu á ölvunarakstur. Fylgst var með fólki á leið vestur eftir Sæbraut og voru sex lögreglumenn við eft- irlitsstörf. Alls voru 206 bílar stöðvaðir og var einn ökumaður kyrrsettur vegna áfengisneyslu, en hann var þó ekki sviptur réttindum á staðnum. Einn ökumaður var með útrunnið ökuskírteini og ljósabúnaður var í ólagi hjá öðrum. Kristófer Sæmundsson, varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagðist í gær- kvöldi ánægður með viðhorf og frammistöðu fólks. „Í heildina var ástand manna og bíla mjög gott,“ sagði Kristófer. Gott ástand manna og bíla Morgunblaðið/Júlíus 206 bílar stöðvaðir á fyrsta kvöldi í árvissu eftirliti lögreglunnar VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444 Gefðu ljúfar minningar í Jólagjöf Nýttu þér veglegan afslátt af gjafabréfum VITA í desember. Komdu við í Skógarhlíð 12, sendu okkur tölvupóst á info@vita.is, kíktu á vefsíðuna vita.is/jolagjafabref eða hringdu í síma 570-4444. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Lækningatækið og fjarbúnaðurinn Agnes, sem settur var upp á heilsu- gæslustöðinni á Kirkjubæjarklaustri 2013, hefur gefið góða raun að sögn Auðbjargar Brynju Bjarna- dóttur, hjúkr- unarstjóra og ljósmóður hjá HSU. Auðbjörg á sæti í starfshópi sem Kristján Þór Júlíusson, heil- brigðisráðherra, skipaði til að móta stefnu og aðgerðaáætlun til að efla fjarheilbrigðisþjónustu. Samtök heimamanna keyptu tæk- ið sem nefnt var Agnes í höfuðið á eiginkonu eins eiganda bandaríska fyrirtækisins sem smíðaði tækið. „Bæði læknirinn og ég notum Agnesi í starfi. Framtíðarsýn okkar er að geta jafnað aðgengi að heil- brigðisþjónustu og sérfræðiþjónustu fyrir fólkið á landsbyggðinni. Það geti fengið sérfræðiálit í gegnum búnaðinn hér,“ sagði Auðbjörg. Hún sagði að notkun tækisins hafi það fram yfir myndsímtöl að heilbrigð- isstarfsmaðurinn hafi aðgang að sjúkraskrá. Jafnvel sé hægt að framkvæma ýmsar rannsóknir með Agnesi sem annars þyrfti að gera á sjúkrahúsi eða hjá sérfræðingi fjarri heimabyggð. „Með þessu minnkar ferðakostnaður og þetta eykur að- gengi íbúanna að heilbrigðisþjónust- unni.“ Auðbjörg sagði að notkun Agnesar hefði fengið mjög jákvæðar undirtektir hjá notendum heilbrigð- isþjónustunnar á Klaustri. „Við höf- um lengi þurft að glíma við það að manna læknisstöðuna hér,“ sagði Auðbjörg. Hún sagði að fyrir tilstilli Agnesar væri auðveldara að leita ráða hjá lækni, þótt hann væri ekki á staðnum. Þannig gæti hún t.d. sent hjartalínurit auk upplýsinga eins og um öndun, blóðþrýsting, hita og súr- efnismettun í gegnum tækið, sem er nettengt, og fengið greiningu eða ráð um meðferð. »28 Fjarheilbrigðis- þjónusta virkar vel  Jafnar aðgengi að heilbrigðisþjónustu Ljósmynd/Sigurður Árnason Kirkjubæjarklaustur Læknir í fjarlægð getur t.d. fylgst með eyrnaskoðun. Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Fram kemur í fjáraukalögum að rekstrarafkoma ríkisins er rúmum 17 milljörðum kr. betri en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Í nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar segir að það skýrist að mestu af auknum tekjum vegna arðgreiðslna úr Landsbanka, auknum skatt- tekjum vegna kjarasamninga, háu atvinnustigi og betri þjóðhags- horfum. Gert er ráð fyrir að ráð- stafa þurfi 8,8 milljörðum kr. af fjárheimild liðar- ins til endurmats á launaforsendum vegna áhrifa af kjarasamningum. Á móti hafa skatttekjur, hátt atvinnu- stig og betri þjóðhagshorfur skilað 15,1 milljarði kr. umfram það sem áætlað var í fjárlögum. Hvað einstaka þætti frumvarpsins varðar kemur fram að Ríkisútvarpið muni halda skilyrtu 182 milljóna króna viðbótarframlagi þrátt fyrir að fjárheimildin hafi verið háð kröfu um að rekstraráætlun yrði lögð fram þar sem fram kæmi hvernig starfsemi stofnunarinnar yrði komið á réttan kjöl og að reksturinn yrði sjálfbær. Þetta fól í sér að rekstr- aráætlanir um starfsemina skyldu yfirfarnar af ráðherranefnd um rík- isfjármál. Mat meirihluta fjárlaga- nefndar er að viðunandi svör hafi ekki borist vegna rekstursins. „Stjórn Ríkisútvarpsins hefur borið fyrir sig trúnað vegna skulda- bréfs sem skráð er á markaði en meirihlutinn telur að sú skoðun fái vart staðist. Jafnframt liggur fyrir að ráðherranefndin hefur ekki sam- þykkt rekstraráætlanirnar. Engu að síður hefur meirihlutinn fallist á að umrædd fjárveiting verði ekki dreg- in til baka þar sem fyrir liggur ein- dreginn vilji ríkisstjórnarinnar í þeim efnum,“ segir í nefndarálitinu. Opinbert hlutafélag skýlir sér Spurð hvort ekki sé ljóst að RÚV geti ekki veitt upplýsingar um reksturinn sökum reglna í kauphöll- inni telur Vigdís Hauksdóttir, for- maður fjárlaganefndar, svo ekki vera. „Opinbert hlutafélag er að skýla sér á bakvið kauphallarreglur sem eiga við um fyrirtæki sem skráð eru í kauphöll. Hér er um að ræða eitt skudabréf sem hefur aldr- ei gengið kaupum og sölum og var lán frá lífeyrissjóði, sem skráð var sem skuldabréf. Þegar málum er svona háttað, hvernig á ríkið þá að geta skoðað reksturinn?“ segir Vig- dís. Í frumvarpinu felst tillaga um að heimila RÚV ohf. að ganga til samn- inga við Reykjavíkurborg um sölu á lóðarréttindum og verja andvirðinu til lækkunar skulda félagsins. Gert er ráð fyrir því að hækkun gjalda í frumvarpi um fjáraukalög vegna málskostnaðar í opinberum málum, opinberrar réttaraðstoðar og bóta brotaþola muni samtals nema 837 millj. kr. eða 17% af gjaldahækkun frumvarpsins. Ríkisútvarpið heldur viðbótarframlagi  Ekki viðunandi svör frá RÚV að mati meirihluta fjárlaga- nefndar  Rekstrarafkoma ríkisins betri en við var búist Morgunblaðið/Eggert Viðbótarframlag RÚV ohf. heldur 182 milljóna króna viðbótarframlagi. Vigdís Hauksdóttir Ofbeldi gegn öldruðum getur tekið á sig ýmsar myndir og meðal ann- ars verður eldra fólk fyrir líkam- legu, andlegu og kynferðislegu of- beldi. Þá eru einnig líkur á því að aldraðir verði fyrir vanrækslu eða fjárhagslegri misbeitingu. Sigrún Ingvarsdóttir, félagsráðgjafi, greindi frá þessu á málþingi um of- beldi gegn öldruðum í gær. Í samtali við mbl.is segir Sigrún að auðvitað sé allt ofbeldi stórt vandamál, jafnvel þótt tíðni í þess- um málaflokki sé ekki gífurleg. Fjölgun aldraðra á næstu árum þýði þó að tíðnin muni aukast tölu- vert ef ekkert verði að gert. Ekki hafa verið gerðar rann- sóknir á þessu máli hér á landi, en Sigrún segir að ef miðað sé við rannsóknir erlendis megi gera ráð fyrir að 2-10% af öldruðum sem búi í eigin húsnæði hafi orðið fyrir ein- hverskonar ofbeldi af hálfu þeirra sem alla jafna eigi að aðstoða þá. Segir hún að ofbeldið sé mun víð- tækara en heimilisofbeldi, því hóp- urinn geti verið veikur fyrir og því átt erfitt með að bera hönd fyrir höfuð sér. thorsteinn@mbl.is Ofbeldi gegn öldruðum í ýmsum myndum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.